Bjarki


Bjarki - 12.02.1898, Blaðsíða 2

Bjarki - 12.02.1898, Blaðsíða 2
22 dag, en að hún væri hrein hörm- img, og persónulega hafði jeg ekki beinst að neinum manni nema Þíngmönnum Múlsýslínga. Jeg bar sjálfur fram tillögur mínar blátt og bert, og notaði mjer hvorki nafnlaus brjef nje að- sendar greinar. Hafði jeg nú ekki eins konar rjctt til að vænta þess. að þið töluðuð til mín í sama tón, ef þið annars virtuð mig viðtals? Jeg gat vonast cftir ódreingilegu pukri úr öðram stöðum, en jeg veit að þjer hefur aldrei dottið í hug að jeg vænti slíks frá þjer eða Þíng- eyíngum nje Eyfirðíngum. En svo koma nafnlausu brjefin eg greinarnar í Stefni og Austra. Þar stendur ekki eitt orð um stjórnarskrármálið, ekki eitt orð til að sýna mjer hvar jeg fari vilt eða livað þið viljið vera Iáta. Af brjefkaflanum f Austra skil jeg að- eins að jeg eigi að vera á móti Valtý, að öðru lciti er þa^ aðeins ráðist á lffsstefnu þá sem jeg hef fylgt og fylgi, gcfið í skvn að jeg hafi þcgar svikist undan sumum rncrkjunum, og sje ekki ólíklegur til að troða hin undir fótum sem eftir cru; og það einmitt þau sem jeg hafði reynt til að styðja með þeim kröftum, scm jeg átti til. í Stefni cr þetta gert enn þá rækilegar og það auk þess látið f Ijósi að menn þar nj'rðra geti skil- ið stefnu mína í stjórnarskrármálinu með því einu móti að jeg sje að búa f haginn fyrir mig, að fá ein- hverjar snapir hjá Dr. Valtý þegar hann sje orðinn ráðgjafi, og Seyð- firðingar búnir að skila mjer af sjer. Höf. kemur svo með þá nýu skýrlngu í viðbót, að jeg hafi trúað kunníngja mínum fyrir því, að jeg væri annar faðir Valtýsfrumv. og sýnist það vera gert í greiðaskyni við mig til að hnekkja hinu —- sem allir haldi. Þetta eru þau einu svör, þær cinu raustir sem jeg heyri frá Eyfirðíngum og f’íngeyíngum. Þar finnur cinginn maður ástæðu til að skýra frá því brjeflega nje opinberlega að hann sje á öðru máli. Jeg hef aldrei svarað pcrsónu- legum árásum á mig eða kvæði mín, varla einu sinni rciðst þeim, því þær hafa flestar komið frá þeim mönnum sem last var ábatsamara frá en lof. En að Þíngeyíngar og Eyfirðíngar nata slík vopn í stjórnarskrármálinu á móti mjer í stað röksemda, það sveið mjer, því þar átti jeg von þeirra manna, bæði þín og fleiri, sem mjer var hlýast til allra manna nær og fjær, og þá sömu menn hafði jeg kannske haft hvað mest fyrir aug- um og rent oftast huganum til þegar jeg var að búa til einmitt þessi kvæði, sem þeim höfðu nú orðið handhægust. Jeg reyndi ekkert eftir að kom- ast fyrir það frá hverjum þessi brjef voru, hvorki hjá ritstjöra Austra nje öðrum. Þú trúir því kannske ekki, en það cr satt: *— Jeg vildi helst ekki vita það. Niðurl. i. Áramótin ’97 ’98. Það hafði verið meinsamt og marglynt —- þetta áríð, og mörgum orðið viðsjált með gripastofn og fleira, og suma tíma hamast, sem það cingu myndi eira, þótt ekkjurnar og börnin, feingju jafnan dýpsta sárið. Nú stóð það bjúgt og gráhært, með ellifúna fætur, og feigðina’ f augum, kríng um lángar jólanætur. Það smábirti’ í sortann, gegn um rökkurtjöldin rofnu, og roða sló á loftið, með gyltu skýakögri. — Hið neðra kvað við argið í grá-má úti’ í gjögri, en glitblæjan, hið efra, varp á neti silfur-ofnu. Sjá, gullhliðin opnast! En glóhærður og fagur í geislanum birtist hinn fyrsti nýársdagur. Og nýárið — í röðinni ,98 nú er þarna komið með ljósið inn í bæinn, með blessaða vonina, og býður >góðan daginn;< — það birtir jöfnum höndum, sem það verður fleiri nátta, og af sólroðnum himni svo hýrt það brosir niður, sem heyri maður kveðjuna: — »Friður sje með yðurí« 2. 1898 og fólkið, Fólkið : > Vcfkomið ■ — og mildara' en árið sem er úti ábyrgðina og ráðgjafann fær þú oss í hlaðið; ríddu fyrir okkur á rjettasta vaðið, og ráð þú okkur, hvar á að byrja á þessum hnúti.« Árið : >Nei það er ekki mitt, cins og þjóðin er sundruð, þið getið rifist upp 1' 1900.« Fólkið : >Það er hvorki fólkið, nje rakkarnir sem rífast, en ritstjórarnir hjerna sem óttast þjóðargrandið, þeir eru nú að sýngja hjer sjálfstjórn inn í landið, en samt er eins og stefnan eigi bágt með að þrífast.* Arið : »Það er ekki stefnan, sem um cr rifist, bræður, en atvinnan, dreingir, scm stefnunni ræður. Ólafur J. Bergsson ÚTLENDAR FRJETTIR. —o — Alphonse Daudet, heims- fræga skáldið frakkneska, andaðist f Parfs 16. Des. 57 ára gamall. Cúba. Mc Kinley forseti Bandaríkjanna lýsti þvf nýl. í boðskap sínum til þíngsins að ekki gæti komið til máia að taka Cúbu inn í sambandið, og rángt væri að viðurkenna hernað uppreistarmann- anna sem löglegan eða rjettmæt- an ófrið, því Spánn væri að reyna að koma á þeim rjettarbótum sem heitið hefði verið og yrði að gefa stjórninni frið til þess. Taiað hefur verið um að upp- reistarmenn væri ekki ófúsir á að taka sáttaboðum Sjiánar, en allar fregnir frá Cúbu eru tortryggileg- at sem koma yfir Spán, en hvort sem það cr satt eða ekki, þá er hitt vfst að enn þá er barist á Cúbu og ekki að sjá neitt Iát á uppreistinni. Holger Drachmann hefur gefið út nýtt leikrít scm heitir Brav-Karl. Eftir því sem útlcnd blöð segja er það ævintýrlcikur, en þó að ýmsu leiti miðaður við vora öld einkum andlega eymd og hugleysi og er sagður ágætur af þeim mönnum, sem vanir eru að vita hvað þeir segja. Leikurinn. sýnist að vera rnikið til rímaður, ljett og hnyttið eins og Dr. er lag- ið. Ur inngángsljóðtnu er þetta tilfxrt, sem brot úr lýsíngu hans á landi sínu og samtíð : Dcr er ej Resonans i dette Land; man raabe kan derind hvad det skal være: Stolthed og Storsind, Poesi og Pærc — det lyder alt som Stokkestöd í Sand; der lysner ej bag Horisontens Rand et Skær„ som kunde flammetegne Byen — tre Ting kun pirrer op den danske Mand: Frelaens Armé, Missionen og Revyen! Hlutafjelagsprentsmiój- an í Kristjaniu brann 3. Des. þar eyðilagðist fjöldi af myndsteinum (sem myndir eru grafnar á til prentunar) og sægur nýrra bóka, þar á meðal 3000 eintök af fcrða- sögu Nansens. Skaðinn metinn 400,000 kr, Hinn ágæti danski sögumaður og mennfngarfræðíngur Troels Lund hjelt nýlega ágætan fyrirlestur í Stúdentasamkundunni dönsku um 16. öldina. Aðaleinkenni hennar voru: Lífsþrekið sem sýndi sig í landaleitunum, viðreisn trúarinnar eftir siðaskifti Lúthers og hin sót • svarta djöfiatrú sem um sama bil lá yfir þjóðunum Og hefði svift þær vitinu hefði ekki stjörnuþýðend- urnir riðið þar baggamuninn, segir Troels Lund, og getur þess að stjörnuspádómar þeirra hafi ótrú- lega oft geingið eftir. Á heljarþröminni. Bráðum þarf Guðjón alþíngismaður á Ljúfustöðum ekki að kvíða því að ís- lenski sjávarútvegurinn ræni fóikinu frá landbúnaðinum, því eftir útliti og athöfnum manna erlendis sýnist skipa- útgerð vor eiga skamt eftir til að berja nestið. f aJ er ekki annað að sjá nú en að annar aðallífs- bjargar vegur landsins sje á heljarþröminni. Marga hyggna sjómenn víða um land er fyrir laungu farið að óa við framtíðinni. Það er af sú tíð nú, þegar ekki var við aðra að kcppa cn frakkn- esku skipin og þorska og hákarla- skúturnar íslensku. Tá borgaði báta- útgerðin sig vel. Báturinn átti reynd- ar marga landlegudaga og fiskaði lítið í hlutfalli við mannafla eftir þvi scm nú er títt, en kaupið var líka lágt og gott rúni fyrir fiskinn á markaðinum og hann þá oftar í góðu verði, svo að öllu samanlögðu var atvinnan í fíest- um áfum ábatasöm. Tilskipin, seglfiskiskipin sökuðu bát- ana lítið, því þau hafa í aungu landi, svo kunnugt sje, borgað sig svo miklu betur en i átarnir að þau vxru auk’n að mun, því annars væru það hrein undur hve þilskipafiotar fiskiþjóðanua, Breta, Norðmanna, Frakka og Ameriku hafa lítið aukist síðasta mansaldur. En svo komu gufuskipin. Bretar, Amerikumenn og Norðmenn byrjuðu hverir á cftir öðrum að hafa gufuskip til fiskifánga. Fyrst voru þau notuð einkum þar sem óhægt var að korna seglskipum að, svo scm við hvala, hnýsu og marsvína veiðar og þcssháttar, en svo fcið ekki á laungu áður menn sæu hve ágæt gufuskipin voru við þáveiT, scm fljótt og haganlega þurfti að koma á markaðinn, svo sem kola og lúðu veiðar. Lúða og koli eru mcst notuð ný og jetin mcð græðgi um Evrópu og Arae-

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.