Bjarki


Bjarki - 07.05.1898, Blaðsíða 2

Bjarki - 07.05.1898, Blaðsíða 2
70 verða oft áður á Þíngvallafundum, auk þess sem það er beinn kostn- aðarauki að leigja hesta í Rvík uppeitir og beinlínis vansjeð að allur sá mannurmull gæti einu sinni feingið hesta og því síður afar- kostalaust. Hitt er stórum Iakara að þíng- menn úr tveim minni flokkunum einum saman senda út fundarboð án þcss að virða viðtals fjölmenn- asta flokkinn úr þínginu. íþetta er of berserkslega, of einræníngslega að farið. Því þó það sje verra en vera bæri, þá er samt við því bú- ið, að Valtýs flokkur mcti svo, sem hinir hafi ekki v i 1 j a ð við sig tala, en ætli að fara sínu fram með harðneskju og skilmálalaust. l’etta getur orðið til þess, að stærsti flokkurinn sjái ekki að hann eigi annað að vilja á Þíngvallafund cn hárreitast við menn, sem fyrir fram eru staðráðnir í því að láta aungu tauti við sig koma og er þá hætt við, að þeir sem eru ekki sólgnir í rifrildi kjósi heldur að vera heima. En þó þcir komi allir, þrátt fyrir þctta, þá hlýtur þessi aðferð fundarboðendanna að eggja fremur til ósættis en samkomulags, því þegar eingin málaleitun hefur farið á milli, er eðlilegt að mcnn búist helst við bardaga og búi sig undir hann, og það flýtir ekki fyrir friðn- um. Hjer dugar ekki að vitna í það, að þjóðin geti og eigi að fara sínu fram án tillits til þíngflokka, þar sem þíngmenn sjeu hvorki kjör- menn nje kjörgeingir á fundinn. Það er að vísu ekki þýðíngarlaust að loka þíngmenn úti frá þessu, cn við vitum allir hve afar mikinn þátt þíngmcnn geta átt í því, að kjördæmin sendi mennina eða sitji heima. Það getur auk þess verið beinlínis hyggindaráð að sitja heima, því sá flokkurinn sem heima sat gctur mcð mcira eða minna rjetti talið sín megin alla kjósendur á landinu sem ckki standa á fund- arskrám hinna flokkanna. Það gctur því auðveldlega farið svo, að á Þíngvöll komi menn úr tveim þi iðjuhiutum kjördæma, en gcti ckki sýnt að þeir sjcu valdir af meira cn einum þriðja eða íjorða hlut kjósenda als landsins. Það getur því orðið svo um fundarsamþykktina aö hvorki þjóð, þíng nje stjórn viðurke.ini að húu sje sannur vilji landsmanna. Og í því er þá þessi aðfcrð orsök. En þetta má ekki vera svo. Annað hvort aungan fund, eða fund , sem einginn geti neitað um að hafa sterkan meirahlut þjóðarinnar að baki sjer og sínum athöfnum. Það er nú að sönnu einginn þfngvallafundur orðinn enn þó fimm þíngmenn sendi út fundarboð. Fundurinn verður auðvitað eða verður ekki, alt eftir því, hverjar undirtektir boðið fær. En af því fjórir þeirra eru atkvæðamiklir þíngmenn má telja víst að þeirra sinnar fylgi að því máli, og fari svo, að meiri hluti kjördæma vilji senda á fundinn þá væri ílla farið ef hin tæki það ráð að sitja heima. Það er vitaskuld að foríngjar þmg- flokkanna koma á fundinn og hljóta að hafa þar mikil áhrif, svo það er tómt þvaður að þjóðin geti ráð- ið þar ráðum sínum án þeirra, en kjördæmin ættu að gæta þess að velja þá eina menn, sem heldur efli samkomulag en ófrið, ef þeim er alvara um friðinn, og þá gæti kannske eitthvað unnist þrátt fyrir þessa byrjun. Verði hægri menn við stjórn í Danmörku, þá hljótum við að fylkja okkur betur en nú er, hvort sem við viljum frið eða stríð, og komi vinstri menn tíl valda, ættum við helst allir að verða á eitt sáttir um þær krötur sem við gerum á hend- ur þcim, því það er vitaskuld, að bæði Dr. Valtýr, og allir aðrir krefjast þess að þeir efni þá heit sín við okkur. Hvcrnig sem fer þarf þjóðin því að verða samtaka, og getur það varla betur cn með almennum fundi sem hjcraðafuudir hafa undir- búið. Og þó þetta fundarboð komi nokkuð öðruvísi við en það, sem stúngið var upp á í 15. tbl. Bjarka, þar sem gert var ráð fyr- ir að allir flokksroir kæmu sjer saman um þessa úrlausnatilraun málsins, þá munu böfundar þeirrar uppástúngu ekki láta þetta í vegi standa ef þetta fundarboð fær þær undirtektir að von sje um árángur. Loks má geta þess að allar um- ræður um þetta mál verða erviðar meðan við vitum ekkert víst um breytíngu í Danmörku, og að fundardagurinn er að þvf leiti óhag- kvæmur að mönnum umhverfis land er illmögulegt að nota nokk- u ar skipaferðir ncma mcð miklu tímatjóni. Við bíðum nú undirtektanna. Ritstj. Herra ritstjóri! Eftirfarandi línur biðjum við yður að taka í blað yðar: í 9. tbl. Bjarka þ. á. stendur grcin- arkorn eftir hr. íngimar Jónatanson, sem hann kallar »leiðrjettíng« á brjef- kafla þeim, sem Austri flutti í 53. tbl. f. á. um leiðarþíngin í Eyafirði, sem alþíngismenn sýslunnar hjeldu á síðast- liðnu hausti, á Grund og víðar. En þar sem höfundur grcinarinnar í Bjarka rángfairir en leiðrjettir ekki, finnum við ástæðu til að gera eftirfylgjandi athugasemdir, hvað Ieiðarþíngið á Grund áhrærir. Höfundurinn skýrir lesendum Bjarka svo frá, að hvorugur okkar hafi talað »eitt orð á Ieiðarþínginu viðvíkjandi stjórnarskrármálinu«, að undantekinni eínni spurníngu, sem ar.nnar okkar hafi borið upp fyrir Jón í Múla, en þetta eru ósannindi. Með þessari yfirlýsíng, ætlar höf. að sýna fram á, að brjefkaflinn í Austra hafi ekki verið áreiðanlegur og að »rjetthverfan á sannleikanum,« hafi þar ekki snúið að lesendunnm, Og þetta læst hann svo leiðrjetta með grein sinni í Bjarka, sem honum þó algjörlega mistekst, því á leiðarþínginu töluðum við báðír á móti Valtýsfrumvarpinu. Austragreinin er því í alla staði rjett, að því er snertir leiðarþíngið á Grund. Haligr. Hallgrimsson. Magnús Sigurðsson. * * * * * »Svá lýkr húr hverju hestaþingi* Og þó Bjarki sje sjerlega þakklátur fyrír allar Ieiðrjettíngar bæðí á orðum sínum og annara blaða ef þau eru raung. þá þykir honum það þó altaf ágæt- ur kostur og mikil Iprýði á Iciðrjett- ínga leiðrjettíngum, og einkum ef það yrðu nú leiðrjettíngar á ieiðrjeltínga leiðrjettíngum að þær sje sem fáorð- astar og kjarnbestar. Ritstj. Menníng’ og glæpír. ítalskur sáiarfræðíngur, sem sjerstak- laga hefur lagt stund á sálarfræði glæpamanna eða lögbrjóta hefur skrif- að grcin í »North American Review« um það, að tala glæpa sem drýgð- ir eru í heiminum fari ekki mínkandi með vaxandi menn- íngu, en verði einúngis annar- ar tegundar. Morðum og öðrum hryðjuverkum fækkar með vaxandi mentun, en þjófnaði og alskonar svik- um og prettum fjölgar að því skapi. Til dæmis segir hann að af hverjum 100,000 íbúum fremji á Ítalíu 96 morð, á Úngverjalandi 75, á Spáni 58, í Port- úgal og Austuríki 25, í Belgíu og Frakklandi 18, í Noregi og Svíaríki 13, á Fýskalandi og Einglandi 5. Fví heit- ara sem loftslagið er, því fleiri morð eru drýgð. Á Einglandi eru þannig flest morð drýgð á sumrin, þó neyðin sje þá minst. Á Norður-ítalíu koma morð miklu sjaldnar fyrir en á Suður- ítalíu. í Bandaríkjum Norður-Ameríku eru morð yfirleitt mjög almenn, nema í mentuðustu ríkjunum elstu, t. d.: Nýa Einglandi; þar er framið eitt morð meðal 66 þús. íbúa, en í Texas, þar scm mesti skrælíngjalýður er saman- kominn kemur eitt morð á hvcrja 115 fbúa. Flest morð í Ameríku eru þó framin af ómentuðum svertíngjum. Svertíngjar drýgja sjaldan sjálfsmorð — Sjálfsmorðum sýnist fjölga mcð vax- andi mcnníngu og mentun. Hreppstjóraskifti. í stað Vigfúsar borgara Sígfús- sonar, sem nú um nokkur ár hcfur verið hreppstjóri í Vopnafjarðarhreppi með heiðri og sóma en flytur sig bú- ferlum til Akureyrar og sest þar að scm veitíngamaður, hefur Runóifur borga i Haldórsson á Vopnafirðí vcril skipaður til þess að hafa á hendi hreppstjórasýslanina í Vopnafjarðar- hreppi fyrst um sinn. Eyjólfur Jónsson, seni í vetur hefur haft alla reiknínga og afgreiðshr Bjarka, hefur nú með vorinu feingið svo mikið að annast á Ijósmynda- stofu sinni Og skraddaraverkstæði að hann telur sjer mcð aungu móti fært að hafa þetta starf Ieingur á hendi við blaðið, og hefur því Árni Jóhanns- son sýsluskrifari tekið að sjer þettá' starf framvegis, bæði pöntun blaðsins uppsagnir og útsendíngar og öll reikn- íngsskil™þess frá 1. Júlí, eins og aug- lýst er hjer fremst f blaðinu öllum kaupenclum þess og skiftavinum. Ritstjórn alla og auglýsíngar annast ritstjórinn nú sem fyr. Dreingur drukknaði um vetur- næturnar síðastliðnu í Lángavatni í Fellum. Hann hafði verið að bera hreppamótsseðil og var á heiinlcið. Hann hjet Lórður Eyólfsson, var á ferm- íngaraldri og átti heima á Krossi f Fellum. ______ f Jóhann Svenbjarnarson SveinssonarfráKoIableikseyri í Mjóafirði andaðist hjer á Seyðisfirði 1. Maí eftir lánga sjúkdóms legu. Hann var rúm- Iega tvítugur, greindur piltur og gott inansefni. Gjöfin. Þess var getíð í Bjarka fyrir nokkru að Sigurður Jóhannesson í Kaupmannahöfn hefði gefið fæðfngar- hrepp sínum hjer, Hjaltastaðarþínghá, gjöf nokkra í minníngu »silfurbrúð- kaups« síns. Nú er komin tilkynníng um að þessi gjöt" sje 2000 krónur. Kristjania hefur nú 200^^00 íbúa, var talið Nýársdag. Fyrir 50 árum 2S bús., fyrir 25 árum 73 þús. Smávegisura Spán og B a n d a- r í k i n. Lað má með sanni segja að ójafnir eigi Ieik saman þar sem eru Spánn og Bandarfkin. Spánn er aðeins rúmir 407 þúsund ferhyrníngskilómetrar að stærð, eða tæplega 5 sinnum stærri en ís- land en Bandaríki Ameriku eru 9 miiljónir og 450 þús. □ kilometrar, eða eins og 94 íslönd. Reyndar er, eins og allir vita, mikið óbygt af Bandaríkjunum enn þá, cn það er ekki þetta citt sem munar. íbúar Spánai eru eftir síðustu skýrslum 17 milljónir og 600 þús. en í liandaríkjurn munu vera nú yfir 7° milljónir íbúa. Spán- verjar eru marglamaðir af óstjórn og innanlandsócirðum og síðast hefur Cúba sett þá hreint á kúpuna. Ilerflota ciga þeir lítið eitt stærri en Banda- menn og Iandher miklu meiri, en hann kemur þeim að litlu haldi í þessum ófriði. Hinn fasti her Spánverja er 115 þúsundir. Það er kallaður friðar- her, en á ófriðar tímuin getui stjórnin kallað 340 þús til vopna, því þar er hver innborinn maður hcrskyklur eins og í öllum löndum Norðurálfu nema Bretaríki. En þess er að gæta, að þó Spánverjar gætu komi(3 við landher sínum í þessum ófriði eða þyrftu á honum að halda á Cúbu eða þcim vestureyunum, þá hafa þeir aungan skipakost til að flytja h„n:i 1 ángað og

x

Bjarki

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.