Bjarki


Bjarki - 25.06.1900, Side 3

Bjarki - 25.06.1900, Side 3
g6 eftir að síðasti Hof- og Statskalender kom út. En þó þetta hafi staðið í öll- um helstu blöðum Dana, og mörgum hvað eftir annað, og þó Austra þættí heidur en ekki matrur í því, að lýsa mig iygara fyrir þetta, þá er þ a ð ekki þeim mun verra en annað sem í Austra stendur að jeg nenni að fara sjerstak- lega að lýsa það lýgi. Úr ýmsum áttum. Enskt lóðaveiðaskip frá Grimsby tók Heimdallur við veiði í landhelgi 24. f. m. sunnan við Reykjanes. Sekt io pd. sterl. í gróðurstöðina nýju, semalþíngi veitti í sumar fje til að koma upp hjá Rvík, voru í vor settar niður 14 trjátegundir. Gróðurstöðin er sunnan í Öskjuhlíðinni rjett sunnan og austan við^baíinn og hefur Einar Helgason garðyrkjufræðíng- ur haft alla umsjón með útbúnaðinum. Fyrsta trjeð sem þar var rótsett var björk og skýrð Haldóra í höfuðið á formanni Búnaðarfjel. ís!., H. Kr. Frið- rikssyni. Meðalandsþing í V.-Skaftaf.próf.dæmi, metin 688 kr. og Landsprestakall í R.vallapróf.dæmi, metið 765 kr., eru laus. t*essi brauð veitast frá næstu fardög- um og báðum fylgb 200 hr. bráða- birgðaruppbót næsta ár, ef þau veitast sjerstökum prestum. Dáinn er 14. f. m. sjera Stefán Pjet- ursson Stephensen prestur í Vatnsfirði, f. 1829. Vatnsfjarðarprestakall veítist frá þ. á. fardögum, metið 1620 kr., og, er umsóknarfrestur til Júiíioka. Prests- ekkja er i brauðinu og hefur t/8 af föstum tekjum þess. 1 þ. m. drukknaði Ólafur Sveinar' Haukur Benediktsson, sonur Ben. sál. Sveinssonar sýslumans, í lækjarós rjett við túnið á Elliðavatni. Ólafur var ný- byrjaður búskap á Vatnsenda og var í þetta sinn á Ieið til Elliðavatns til þess að vera þar við úttekt á jörðinni. Hann ætlaði að sundríða yfir ósinn en hest- urinn mun hafa flækt sig í taumunum og fanst hann einnig dauður þar skamt frá. Ólafur var 28 ára gamalt, gekk nokkur ár í lærða skólann, en hætti - þar námi, fór á Búnaðarskólann é Eið- um og útskrifaðist þaðan, en var síðan eilt ár við búfræðisnám á Jótlandi. Hann giftist í haust sem leið Sigríði dóttur Porl. O. Johnsens kaupmans í Rvík. Ólafur heitinn vár vel greindur maður og líktíst föður sínum í mörgu. Guðbrandur Porkelsson i Ólafsvík, bróðir dr. Jóns Iandskjalavarðar og þeirra systkyna, hefur fundið upp róðr- arvjel, sem menn gera sjer vonir um að verða muni að miklu gagni. Sveit- úngar hans og svo sýslunefnd Snæ- fellsnessýslu hafa skotið fje saman til þess að hjálpa honum til þess að gera uppfundíng sína kunna og búa til sýn- ishorn af vjelinni. Síðari ársfundur Bókmentafjel.deild- arinnar í Rvík var haidinn 7. þ- m. Sjera Eiríkur Briem var kosinn forseti í stað B. M. rektors Olsens. Sr. Ei- ríkur var áður fjehirðir deildarinnar, en þar var kosinn í hans stað Björn skóla- kennari Jensson. Sr. Pórhallur var endurkosinn skrifari og Morten Han- sen skólastjóri bókavörður. Tímarits- nefndin endurkosin. Rektor B. M. Ólsen bauð deildinni til prentunar sögu- rit eftir sig í minníngu 900 ára afmæl- is kristninnar hjer á landi og varnefnd sett til að segja álit sitt um það. Ætl- aðist hann til að það yrði fuliprentað 24. þ. m., því þá er 900 ára afmælis- dagur kristninnar hjer. í fyrsia ársfjórðúngshefti þ. á. af læknaritinu Eir, er fróðleg ritgjörð eftir Sig. Pjetursson verkfræðíng um vatns- leiðslu og skoipræsi, sýnir hve heilsu- far hefur batnað og manndauði stór- mínkað í borgum erlendis um leið og menn fóru að gefa nákvæmar gætur að því, að sóttkveikjuefni bærust ekki með neytsluvatninu og jafnframt að leiða skolp burt frá húsunum í lokræs- um. Þá er þar byrjun á ritgjörð eftir Guðm. Magnússon um fæðuna og önn- ur um geitur; segir þar að geitur sjeu húðsjúkdómur sem nauðsynlegt sje að sýna lækni undir eins og hans verði vart, og sje orsökin til þeirra als ekki sú sem alment sje álitið. Guðm. Björns- son ritar um sigg og líkþorn, Jónassen um berkiaveiki og aðvörun til kvenn- manna um að standa ekki á voteingi skinnsokkalausar. Einnig ritar hann um barndauða hjer á landi. Sæm. Bjarnhjeðinsson gefur skýrslu um holds- veikraspítalann. Eir er rit sem allir ættu að Iesa. Ársrit gsrðyrkjufjel. 1900 er nú kom ið út og í því ýmsar fróðiegar hug- vekjur um garðyrkju. Einar Helgason skrifar um tilbúníng matjurtagarða. Sigurður Sigurðsson um raektun á róf- urn ti! fóðurs, Guðm. iæknir Guðmunds- son um matjurtarækt í heitum görðum, Árni Thorsteinsson um garðvinnu og enn eru þar smágreinar um ýmislegt sem viðvíkur garðrækt. Búnaðar- og sveitafjelög fá, emsog áður, 8 eintök send með póstum fyrir 1 kr Styrk til að fara á landbúnaðarsýn- ínguna í Odinse veitti amtmaður Sig- urði kennara Sigurðssyni á Eiðum. Auk þeirra tveggja sem áður hefur verið getið um hjer í blaðinu að færu a sýn- ínguna af Suðurlandi er sagt að í’ór- . haiiur lektor Bjarnason ætii þángað. | Konúngur hefur nú staðfest kosníngu ’j sjera Lárusar Haidórssonar sem frí- • kirkjuprests utanþjóðkirkjumannaíRvík. 7. þ. m. drukknuðu 4 menn af einni af fisk-iskútum Helga kaupm. Helga- sonar í Rvík, »Guðrúnu«; hún lá þá á Sviðinu í logni og mennirnir astluðu yfir á botnvörpuskip sem fór skamt iiá þeim, til þess að tala við ísienskan mann sem þar var háseti. En bátnum hvolfdi við hlið botnverpíngsins og varð aðeins einum manninum sem á var bjargað. Þeir sem drukknuðu voru: Guðm. Sigurðsson (skipstj.) úr Rvík, Gestur Sigurðsson, bróðir hans, úr Garði, Ólafur Ebeneserson af Eyrar- bakka og Sigurður Sigurðsson fráBitru í Flóa. Afli var svo mikiil við ísafjarðardjúp, og þó einkum í Bolúngarvík, nú um síðustu mánaðamót, að menn muna þar ekki annan eins síðan 1882. Sjómenn leggja þar allan fisk sinn inn til kaup- manna blautan og voru dagshlutir í Bolúngarvíkinni frá 20 og alt upp í 30 kr. Spitalinn á Seyðisfirði. Spítalinn tekur á móti sjúklíng- um frá 1. Júlí næstkomandi og eru umssekjendur beðnir að snúa sjer til læknisins eða eínhvers annars úr spítalastjórninni. Inntökuskilmálar verða auglýstir síðar. Stjórnin. 29. Mars síðastl. andaðist Sigfús Berg- mann bóksali að Garðar í Dacota í Bandaríkjunum. Hann hafði þá verið vestra sfðan 1882, en áður bjó hann í Eyjafirði. Hann var einn af rnerkustu ísiendíngum vestra og mjög áreiðan- legur í viðskiftum, als ólíkur í því eini sumum vesturíslensku bókabjeusunum, t. d. Bardrd í Winnipeg. Seyðisfirði Veðurlag: Sd. -f- 18; sól, iogn. Md. -f- 14; sama v. Þd. -f- 8; kaldi nau. Mid. -f- 7; regn, stormur au. Fid. -f 7, regn, logn. Föd. 12; þoka, blær au. Ld. -(- 7; þykt, súld. Sd. -f 12, sól kyrt, þoka kvöld. Md. -j- 10; logn, þoka. SKIP. 17. Hóiar, skipstj. Jakobsen; með þeim fjöldi farþega. 19. Egill, skipstj. Endresen, kom að norðan; fór utan næsta dag. 22. Ceres. Fór sama dag; farþ. cand. Björn Bjarnason með unnustu sinni til ísafjarðar. 23. Vaagen, skipstj, Houeiand, kom utan, fór norður þ. 24.; farþ. að sunn- ar. Sig. Fínribogason prentari. 24. Argo, frá f’órarni Tuliniusi stór- kaupmanni, kom mcð kolafarm til Garðars. Uppboðið i Borgarfirði fór fram, sem auglýst var, þ. 18. og 19. þ. m. Verð gekk þar upp og niður og varð á mörgu ekki hátt, sjerstakléga þótti lágt verð á síórviðum, því I2álnatrje 6 þml. á hverja hlið fóru þar aðeins á tæpa hálfa þriðju krónu; sömuleið- is fór húseignin lángt undir virð- íngarverði, því íbúðarhúsið, tvíloft- að hus og vandað að sjá og vöru- hús stórt fórú bæði á 6,300 kr. Aftur komst borðviðurinn og ým- isiegt af búðarmunum nær í fúlt verð. Grímur verslurtafístjóri Laxda! varð hæstbjóðandi að húsunum. Maður Í3nn hjer gull- og silfur- búið sverð, uppi í Hratnkelsdal nú nýlega og er sagt að hann hafi verið svo sorglega fávís að selja Ernst apótekara það fyrir 12 kr. Eftir því sem af sverðinu er sagt hefði íorngripasafnið íslenska gefið manninum að minsta kosti 100 kr. fyrir það og nú er auk þess lík- lega loku skotið fyrir að það kom- ist þángað og er það illa. Frá Parisarsýningunni. II. Laugardaginn fyrir Páska. Þá var runninn upp sá mikii dagur sem opna átti heimssýníng- una á. Við vorum snemma á ferli, reyndar var kl. orðin 9, en það var nú snemt hjá okkur og svo var víst hjá fleirum. Veður var hið ágætasta, sólskin og blíða, aðeins nokkuð heitt. Við höfðum komist að því kvöld- inu áður að þann dag yrði aðeins hleyft inn á sýnínguna nokkrum út- völdum þúsundum manna til þess að vera við setníngu hátíðarinnar og hlýða á ræðu Loubeís forseta og ráðgjafa hans. Við ætluðum samt sem áður að gera tilraun til að fá aðgaungu- miða og hjeldum því fyrst til Norsk-Sænska generalkonsúlsins til ráðagerða og leiðbeiníngar. Þegar út kom á götuna var þar ekki margt komið af fólki ennþá en flögg voru á hverju húsi og eins á mörgum af vögnunum sem um strætin fóru, en sum’ húsin voru skreytt blómfljettum og alt í gló- andi hátíðabúníngi. Kousúliinn tók mjög alþýðlega á móti okkur en als aunga vön kvað hann um að fá aðgaungumiða ti! hátíðahaldsins, því hann hafði ekki einu sinni feingið hann sjáiíur og var sárgramur við sýníngarnafndina fyrir ókurteisi hennar, og einmitt meðan við stóðum þar við, þá var hann að skammast í málsíma sinn við einhvern af. forstöðumönnunum, en það dugði ekkert. Sú för varð því ekki til fjár, en við tókum því samt rólcga og hugg - uðum okkur við að þó við stæð- um fyrir utan, þá yrðu þar þó að minstakosti 100,000 manna með okkur. Sýnínguna átti ekki að opna fyrri en kl. 2 um daginn og við urðum því að fara eitthvað annað á rjátl út í borgina þángað til. Kaupendur Bjarka eru vin- samlegast beðnir að greiða and- virði hans nú á kauptíðinni allir sem því geta mögulega við komið. Borgunina má skrifa inn í hverja þá verslun sem innskrift vill taka. A g æ 11’ ís'ie nskt sal tkjöt fæst við Wathnes versian. Seyðisfirði 23. Júní 1900 Jóhann Vigfússon. 4 Trippi falleg, einlit, gaila- laus, á aldrinum 1—4 vetra kaup- ir undirskrifaður sem fyrst'. Seyðisfirði 23. Júní 1900. Jóhann Vigfússon.

x

Bjarki

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjarki
https://timarit.is/publication/28

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.