Bjarki - 17.06.1901, Qupperneq 3
I
sjálfum sjerí — Hann var dæmdur til að sjá
l'ífið, eins og það er, — með opnum augum
og lokuðum — alveg sama, —
Og hann grjet yfir hiuu únga lífi sumars-
ins. — Því hann sá leikinn, sem var lífið —
og hina hvítu vængi, sem urðu gráir: — —
týndann hreinleik sálna, brostnar æskuvonir,
slökktan eld úngra augna í dauða — við
bylgjuleik — við fossdunur — við eiturstraum
gegnum æskutryllt blóð — við lángt líf í tær-
andi sorg í einvcru fángelsisins — fyrir morð
— barnsmorð — líf í eyrnd og útskúfun eins
og ættarinnar stærsta skömm. —
Alheimsins stærsta synd mót hinu únga lífi
sumarsins !
En miili trjánna í garðinum sat kóngulóin
og spann. —
Og þráðurinn glitraði eins og gull í geisl-
um sólarinnar.
(Sumarið igoo). — w..
Eingin ráðaneytaskifti. Þær fregnir
komu nú síðast af dönsku pólitíkinni, að ekk-
ert yrði úr því fyrst um sinn að vinstrimenn
kæmust að stjórn. Sehestedsráðaneytið ætlar
að sitja í trássi við nær allt fólksþíngið, að
minnsta kosti þángað til að það sjer, hvernig
næstu kosníngum til landsþingsins reiðir af.
Hægrimenn hjeldu flokkstund í Khöfn nýlega
og komu þar saman helstu menn þeirra hvað-
anæfa úr landinu. Fundarboðunin var gerð í
því skyni af ráðaneytinu, að þar feingi það
uppöivun til að halda völdunum. Það ætlað-
ist til að þessi fundur, sem tryggustu ieyfar
flokksins voru kallaðar til, skoraði á sig að
víkja ekki. En þctta fór á annan veg. Fund-
urinn samþykkti einga áiyktun og ýmsir af
þeitn sem ræður hjeldu kváðust eingin úrræði
sjá önnur en þau að ráðaneytið viki. Blöð
hægrimanna Ijetu mikið yfir þessu fundarhaldi
þegar til þess var boðað, en síðan það fór
fram minnast þau ekki það.
Ráðaneytið situr eftir sem áður. Og tals-
menn þess láta opinberlcga í Ijósi, að það
hlýði í þessu efni vilja konúngsins. Nú á
það eftir að skjóta máli sítiu til landsþíngs-
kosnínganna. Enn getur það dregist svo ár-
um skifti að vinstrimenn komist að stjórn í
Danmörku.
Se)ði;firði 17. júní 1901.
Veður hefur verið kalt þessa viku, norðaustan-
stormar og regn og sumar nætur snjóað niður
miðjar hlíðar. Áföstudag skifti um og komu þurviðri
og iogn.
Vesta kom á miðvikudag norðan um Iand. Með
henni voru frá Akureyri frú Eggerts og Guðmund-
ur stud. jur. sonur hennar, á leið til Djúpavogs.
Knnfremur um 80 vesturfarar. Hjeðan fór með
henni til Ameríku sr. Stefán Sigfússon, fyrrum
prestur að Ilofi í Álftafirði og Sæbjörn Jóhannsson
hjeðan af Seyðisfirði, að líkindum einnig til Ame-
ríku. Hann bað annan mann að tóa með sjer út í
skipið rjett áður en það fór, hljóp upp í skipið og
kvaðst koma strax aftur, en hinn beið hans í bátn-
um. En Sæbjörn kom ekki aftur og þegar skipið
fór ;neri hinn einn til lands.
Mjölnir kom frá útlöndum á Sunnudag. Með hon-
um kom Dr. Vafiýr Guðmundsson og frú hans.
Eau eru á leið til Rvíkur; hún bíður hjer eftir »Cer-
es« eu dr. Valtýr fór til Akureyrar með Agli og
bíður Ceresár þar. Ennfremur kornu Chr. Ernst
Qi
kaupm ; fór til Akureyrar, og Tómas Skúlason stú-
dent, frá Khöfn; verður hjer í sumar.
Egill kom frá útlöridum á fimmtudag. Með hon-
um voru verslunarfulltrúar Örum & Wulffs, W. Backe
og Stefán Guðmundsson, frú Guðrún Wathnc o. fl.
Með Hólum komu að sunnan sr. Ilalldór Bjarnar-
son, sr. Árni á Sauðárkrók, fröken Guðrún Jóns-
dóttir úr Rvík, og stórstúkuþíngmennirnir’hjer af
Seyðisf.: sr. Björn, Sigurður hreppstjóri og Sigurjón
verslunarmaður og fjöldi af sunnlenskum sjómönn-
um og verkafólki, um 500 að því er sagt er.
Franska hcrskipið »Le Manche« og Heimdallur
lágu hjer inni um helgina.
Nýlega er dáinn á ísafirði Ágúst Benediktsson,
sem leingi var við verslun Gránufjelagsins hjer á
Vestdalseyrinni.
3. þ. m. andaðist præp. hon. Jón Guttormsson í
Iljarðarholti í Dölum.
Á einum bæ í Túngunni hefur kláðamaur fundist
í vor á einni kind.
Frakkneska fiskiskútan, sem strandaði hjer um
daginn, var seld á uppboði 12. þ. m. Skipið keyfti
Mar.næs skipstjóri á fiskigufuskipinu Albatros fyrir
1005 kr.
Flensborg skógræktarmaður, sero kom híngað með
Vestu um daginn, hjelt upp í Hjerað til þess að
skoða Hallormsstaðaskóg, heldur þaðan til Vopna-
fjarðar og þá aftur til Suðurlandsins. Hann telur
víst að takast megi að rækta skóga hjer víða um
Iand, þótt aldrei verði þeir stórvaxnir.
Jarðarför Eorbjargar Wiium fer fram frá bindínd-
isfjelagshúsinu um hádegi á morgun.
Heiðurssamsæti hjeldu Rvíkíngar Steingrími skáldi
Thorsteinson á 70 ára afmælisdegi hans, 19. f. m.
Rektor B. M. Ólsen hjelt aðalræðuna, en kvæði var
súngið til heiðursgestsins eftir Bjarna Jónsson frá
Vogi og segir þar meðal annars:
Og hafðu nú þökk fyrir hörpunnar saung
og hjartnæmu, þýðlegu slögin,
því þó að þín ævi sje orðin svo Iaung
þjer aldregi döpruðust Iögin.
Og þökk fyrir trú þína á land og Iýð
og ljóðbornar vonir um fegurri tíð.
Fyr um daginn fluttu skólapiltar Steingrími ávarp
og kvæði.
Sr. Vilhjálmur Briem er kosinn prestur að Staðastað.
Botnverpíng enskan tók Heimdallur við veiðar f
landhelgi seint í fyrra mánuði. Sekt iooc kr. og
afli og veiðarfæri upptækt.
29. f. m. andaðist í Rvík Holger Clausen kaupm.,
á 70. ári.
I’mgkosníngin í Strandarsýslu fór fram 21. f. m.
og var Guðjón Guðlaugsson endurkosinn með 45
atkv. íngimundur bóndi Magnússon í Svartartúngu
fjekk 19 atkv. Aðrir voru ekki í boði.
W. O. Breiðfjörð kauprn. í Rvík hefur í vor gert
út seglskip til botnvörpuveiða. Eað er um 100
smálestir og hefur allan útbúnað botnverpínga, gufu-
vjel til að draga upp vörpuna o. s. frv.
20. f. m. fórst bátur úr Vestmannaeyjum með 6
rnönnum: Magnúsi Guðmundssyni, Pálma Guð-
mundssyni, Hreini Eórðaisyni og Jóni Eyjólíssyni, i
öllum úr eyjunum. En hinir tveir voru: Árni
Jónsson frá Steinum u. Eýjafjöllum og Eyjöifur frá
Kirkjulandi í Landeyjum, Állir voru þeir búandi
menn.
Ferðamannafjelagið danska hefur boðað lil tveggja
skemtiferða híngað til Iands í sumar. Er ráðgert
að önnur förin skuli fnrin til Austur- og Norður-
landsins og lagt á stað með »Ceres« 11. júní. Sá
hópur fci' á land í Húsavík og þaðan landvcg til
Mývatns og Akurey»rar. Hin ferðin á að vara frá
9. júlí til 4. ágúst og fer sá hópurinn hina venju-
legu leið, tii Rvíkur og þaðan til Geysis
* -X- «• * * * * * **********
UPPDRÁTTUR ÍSLANDS, endurbættur, er
nýkominn í bókverslun L. S. T ó m a s s o n a r.
Kostar 5 kr.
HÚS e r t i 1 1 e i g u hjer á öldunni.
Ritstj. vísar á.
Hjá mjer eru ýms reiðtígi sem Páll sonur
minn hafði tekið til viðgerðar, en jeg vsit ekki
hverjir eru eigendur að. Bið jeg því viðkom-
andi menn að gera rnjer aðvart um þetta. Um
leið leyfi jeg mjer að taka það fram, að jeg
held söðlasmtði áfram á verkstoíu Páls sál.
Seyðisfirði 15. júní 1901.
Böðvar Pálsson.
Reiðbeislí tapaðist bjer í kaupstaðnum á
mánudaginn. Finnandi skili til ritstjóra Bjarka
eða Kr. Hallgrímssonar á Hótel Seyðisfjörð.
— Móðablaðið »Nordisk Mönster-
tidende», verð kr. 2,40 og dllustreret
Familie Journal verð kr. 5,00 án nokk-
urra viðbóta fyrir burðargjald má panta hjá
undirrituðum.
Seyðisfirði, 30. mars 1901.
Rolf Johansen.
Strokka r
frá hinni nafnfrœgu Sænsku strokka fabriku
á 35 kr.
eru hjá S t. T h. J ó n s s y n i
Seyðisfirði.
Blöðin.
Hjá undirrituðum fást þessi blöð og tímarit:
í s a f o 1 d,
Þjóðólfur,
F j a 11 k o n a n,
F r æ k o r n,
H a u k u r,
S v a v a og
S k á k r i t i ð »í u p p n á m i«.
Kaupendur gjöri svo vel að vitja blaðanna
til mín.
Nýir kaupendur gefi sig fram sem fyrst.
Seyðisfirði í maí igot.
Á. Jóhannsson.
Brunaábyrg ðarfjelagið
»Nye danske Bráudforsikrings
Selskab*
Stormgade 2 Kjöbenhavn
Stofnað 1864 (Aktiekapital
4,000,000 ög Resérvefond 800,000).
Tekur að Sjer'brunaábyrgð á húsum, bæj-
um, gripum, verslunarvörum, innanhúsmunum
o. fl. fyrir fastákveðna litla tíorgun (prentie),
án þess að reikna no kkra bargunfyrir br.una
ábyrgðarskjöl (pölice) eða stimpilgjald.
Menn snúi sjer tii umboösmans fjelagsins
á Scyðiéfirði
ST- TH. JÓNSSONAR.