Bjarki - 01.11.1901, Side 4
Þeir Finnur Jónsson og Bogi Melsteð áttu
í fyrstu að flytja skjalið en skoruðust undan
þvi þegar til kom, einhverra orsaka vegna,
Leiðarjaing hjeldu þingmenn Skagfirð-
ínga á Sauðarkróki n. f. m. Um stjórnar-
skrármálið var þar saroþykkt svohljóðandi til-
laga : Fundurinn lýsir ánægju sinni yfir úrslit-
um þeim sem stjórnarskrármálið fjekk á þíngi
í sumar og telur breytíngar þær sem fram
á er farið í stjórnarskrárfrvmvarpi því sem sam-
þykkt var af þínginu til stórmikilla bóta«.
Um bánkamálið var svolátandi tillaga sam-
þykkt: »Fundurinn lýsir megnri óáníegju yfir
aðgerðum stjórnarinnar í bánkamálinu bæði
utan þíngs og innan*.
Japl. f’ær eru ekki lítið fróðlegar og
sannfærandi stjórnmálagrcinar gamla Skafta
nú í Austra. Eftir að hafa náðM grein úr
blaðinu »Köbenhavn«, sem fer í líka átt og
grein »Politiken« nú fyrir skömmu, farast
honum svo orð :
«Það verður, nú fróðlegt að fá að vita, hvaða
ráð dr. Valtý hugkværoast nú til þess að spilla
fyrir því hjá vinstrimannastjórninni, að hún
bjóði oss Íslendíngum heimastjórn, sem dokt-
ornum af vissum ástæðum virðist vera svo
meinilla við að hann aftók það við Hannes
Hafstein í Höfn, að hann vildi, að við feingj-
um ráðgjafa Islands búsettan hjer á landi.«
Það er nú óþörf vatnsgrautarmiskunsemi að
leysa ekki frá skjóðunni og segja beint frá
hverjar þessar »vissu ástæður* sjeu, því auð-
vitað hlyti það að koma dr. Valtý mjög illa.
Seyðisfirðt i. nóvember 1901.
Veður hið besta undanfarandi daga, suðvestanátt
og frostlaust.
»Hólar« og »Ceres« voru bæði á eftir áætlun að
norðan, »Ceres« þó miklu meir, fór hjeðan á mið-
vikudag, en hafði fullan farm af norðurhöfaunum.
»Egill« kom að norðan í gærkvöld.
Dáinn er 14. f. m. fyrverandi sýslumaður Stefán
Thorarensen á Akureyri, 75 ára gamall. Hann var
30 ár sýslumaður Eyfirðínga. ^
»Norðurland«, hið nýja blað Eyfirðínga, byrjaði að
koma út 1. okt., og eru komin híngað 3 tölublöð.
Blaðið er í lítið eitt minna broti en »Bjarki«, á að
koma út einu sinni á viku og kostar 3 kr. Blaðið
byrjar með kvæði um Norðurland eftir sr. Matthías.
Páll amtmaður Briem ritar þar um stjórnarskrár-
málið og er svo að skilja á þeirri grein, sem hann
ætli að bjóða sig fram til þíngs í vor.
Úr Breiðdal er það sagt, að nú fyrir skömmu
braust Sturla ;Vilhjálmsson frá Dölum í FásKrúðs-
firði að næturlagi inn í skemmu á Í’orgrímsstöðum
í Breiðdal, braut þar upp kistu sem bóndinn áttí, og
stal úr henni 500 kr. Síðan bar hann eld að skemm-
unni og brendi til kaldra kola. í henni voru mat-
væli og fleira og brann allt.
Sýslumaður náði í þjófmn og hafði hann þá 400
kr. af peníngunum, en fyrir 100 kr. hafði hann keyft
hest.
Frá úflöndum hafa komið þessa viku »Vesta«,
»Mjölnir« og »Jökull«, í gær. Með »Vestu« kom frá
útlöndum Björn Bjarnason caud. mag. frá Viðfirði,
hjelt til ísafjarðar og verður þar ritstjóri að nýju
blaði. Með »Mjölni« kom híngað frá Kaupmanna-
höfn fröken Kristín Guðmundsson.
Leiðrjettíng: í íslandsræðu Jóns frá Sleðbrjót í
36. bl. Bjarka 2. bls., 1 dlk., 5. línu að ofan hefur
fallið úr á eftir orðunum: »íslenskrar náttúrufegurð-
ar« þessi setníng: »Lítið á grænu túnblettina hjerna
á Tánganum.«
OOOOOOOOOOOOOOQQQQQQQQ q q
KVITTANIR. í byrjun hvers mánaðar standa
undir þessari fyrirsögn nöfn þeirra manna sem
borgað hafa yfirstandandi árg. »Bjarka«, þau eint.
eitt eða fleiri, sem þeir hafa selt til þess dags, þeg-
ar kvittunin er gefin út. (-(-) merkir ofborgað, (—)
merkir vangoldið:
St. Jór.sson, Fljótsbakka, Sig. A. Benediktsson,
Eiríksstöðum, Árni Jóhannsson, Sf., Guðm. Guð-
mundsson, Eyrarbakka, Sv. Einarsson, Strönd, Meðal-
Iandi, Þorst. Jónsson læknir, Vestmannaeyjum, sr. J.
Benedíktsson, Hallfreðarstöðum, St. Valtýsson, Selja-
mýri, Jón Kristjánsson, Skálanesi, Kr. Haflgrímsson,
Sfi, Jóh. Jóhannesson, Sfi, Ásgeír Ásgeirsson, Alfta-
mýri, Jón Ebeneserson, Grund, ísafi. Jón Forleifs-
son, Úlfsstöðum.
trattalisao.
íl 'I llT 1 If r\ c, * rt <c• ca c .
vffvs&ssega
(jaínalórt og letur-
drýpra en Fjallkon-
_ an meðan hón koet-
aði 3 kr.) líostar rsmt að eins 1 kr. Fíytur fréKir
•ötlendaí og mnlendar, skemtilegar sögur -- byddar
eds. ÍTumnrri'r og þe«s «t:m alt, eeia ,nenn vilja
vita úr hofuðstaðnum; íOmuIeiðis hin géðkunnu
K«HiankTi,3, OR ymwlegt n„8 „..t, frH.3ancii og Bkamt-
sndi: laust r,8 p8l,ti«kt rifrilíi og aðrar „kummir. —
Yflrstandandi irgsng m4 rttniahi4 i.ðka-oglilaðftsölu-
monmim vlðgv^ar t.m land tða fenda 1 kr. íreninc-
lun sðaí.I.frimsrkjnm tii titgef. og fá menn þáblaði,-
se«,t bamt muð p6«ti. iAkn geta meuu iengið blaðið
nú frá 1. Júii (iiá)fan árg. á 50 au.)
Urílí, 30. Jání i&oi. íorv. þorvarðsson,
Utgefandi.
Ódýrasta verslun bæjarins!
Hvergi betra að versla!
lO°/0 afsláttur gegn peníngum!
Lánsverslunin á að hverfa!
Gegn peníngum og vörum gef
jeg best kjör!
St. T Jónsson.
Þarfanaut handa bænum er að fá í vet-
ur hjá Jóhanni Sigvaldasyni í Fremstabæ.
Stykkishólms læknishjerað er veitt Guðmundi
Guðmundssyni, áður Iækni í Árnessýslu.
í smágrein Stefnis með fyrirsögninni xLíngmanna-
róstur« er rángt skýrt frá málavöxtum, eftirþvísem
sannorðir menn segja. Af þeim fundi, sem þar er
frá skýrt, bar Hermann Hónvetníngaþíngmaður brot-
inn skjöid og eingan orðstír, Lárus Ijet fætur
forða sjer, en Axel sýslumaður hjelt velli. Á sama
hátt mun allt lið afturhaldsmanna á sínum tima
ýmist beygja sig eða víkja reit fyrir framsóknar-
flokknum.
Á Eyjafirði var orðið sildarlaust, er síðast frjettist.
Norðurland,
Vikublað, gefið út á Akureyri.
Verð: 3 kr árg.
Ritstjóri: EINAR HJÖRLEIFFSSON.
þetta blað er nú komið til undirritaðs, og
eru þeir, sem vilja gjörast kaupendur þess,
beðnir um að gefa sig fram sem fyrst.
Seyðisfirði 29. okt. 1901.
ÁRNI JÓHANNSSON.
Mjólkurskilvindan
Alexandra.
fgqsr» NÍÐURSETT VERÐ.
ALEXANDRA Nr. 12
lítur út eins og hjer sett
mynd sýnir. Hún er
sterkasta og vandaðasta
skilvindan sem snúið er
með handafli.
ALEXÖNDRU er fljót-
ast að hreinsa af öllum
skilvindum.
ALEXANDRA skilur
fljótast og best rnjólkina.
ALEXÖNDRU er hættuminna að brúka en
nokkra aðra skilvindu; hun þolir 15000 snún-
ínga á mínúfu án þess að sprínga.
ALEXANDRA hefur alstaðar feingið hæstu
verðlaun þar sem hún hefur verið sýnd, enda
mjög falleg útlits.
ALEXANDRA nr. 12 skilur 90 potta á
klukkustund, og kostar nú aðeins 120 kr. með-
öllu tilheyrandi (áður 156 kr.)
ALEXANDRA nr. 13,
skilur 50 potta á klukku-
stund og kostar nú endur-
bætt aðeins 80 kr. (áður
100 kr.)
ALEXANDRA er þvf
jafnframt því að vera besta.
skilvindan líka orðin sú Ó-
dýrasta.
ALEXANDRA s k i 1 v i n d-
u r eru til sölu hj á umboðs-
mönnum mínum þ. hr. Stefáni B. Jónssyni á
Dúnkárbakka í Dalasýslu búfr. Þórarni Jóns-
syni á Hjaltabakka f Húnavatnssýslu og fleirum
sem síðar verða auglýstir. Allar pantanir
hvaðan sem þær koma verða afgreiddar og
sendar strax og fylgir hverri vjel sjerstakur
leiðarvísir á íslensku. Á Seyðisfirði verða allt-
af nægar byrgðir af þessum skilvindum.
Seyðisfirði 1901.
St. Th. Jónsson
Aðalumboðsmaður fyrir ísland og Færeyjar.
í bókaverslan L. S. Tómassonar
á Seyðiífirði eru nú nægar birgðir af lærdóms-
kverum, biblíusögum og öðrum kenmlubókum,
skrifbókum, ýmsar sortir; ritföng allskonar,
pappir, umslög, pennar, blek, blýantar, reglu-
stikur, lakk, brjefaklammur, pappírsnælur,
strokleður, vasabækur o. m. fl.
Brunaábyrgðarfjelagið
»Nye danske Brandforsikrings
S elskab«
Stormgade 2 Kjöbenhavn
Stofnað 1864 (Aktiekapital
4,000,000 og Reservefond 800,000).
Tekur að sjer brunaábyrgð á húsum, bæj-
um, gripum, verslunarvörum, innanhúsmunum
o. fl. fyrir fastákveðna litla borgun (premie),
án þess að reikna nokkra borgunfyrir bruna
ábyrgðarskjöl (police) eða stimpilgjald.
Menn snúi sjer til umboðsmans fjelagsins
á Seyðisfirði
ST. TH. JÓNSSONAR.
Ritstjóri:
Porsteinn Gislason.
T71 V>ö i A i v» 3- L, nýkomið í bókaversl.
JtlimreiOin, L. S.Tóma*sonar, S.firði.
Prntaiiji Bjarka.