Bjarki - 22.11.1901, Síða 1
Eitt blað á viku. Verð árg. 3 kr.
borgist fyrir 1. júlí, (erlerdis 4 kr
borgist fyrirfram).
Uppsögn skrifleg, ógild nema komin
sje til útg. fyrir 1. okt. og kaupandi
sje þá skuldlaus við blaðið.
I VI. ár. 44
Seyðisfirði, föstudaginn 22. nóvember
1901
Fyrirlestur í Bindindishúsinu á sunnudag-
inn kl. 6t/2 siðd. og miðvikudagskvöld kl. 8.
D. 0stlund
Norsk prædiken í Afhoidslokalet onsdag
27/n kl. 8 aften. A!le indbudte. D. 0stlund.
Skiftafundur
í dánarbúi Snorra sál. Wiium verður haldinn
hjer á skiilstofunni laugardaginn 30. yfirstand-
andi nóvembermán. ki. 12 á hádegi; verður
skiptum 1' búinu þá væntanl. lokið.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði 14. nóv. igoi.
Jóh. Jóhannesson.
Skiftafundir
í þrotabúi verisunarfjelagsins B. Thorsteinsson
& Co. á Bakkagerði íBorgarfirði verða haldnir
hjer á skrifstofunni niánudagana 30. descmber
og 27. janúar næstkomandi kl. 12 á hádegi.
A fyrra fundinum verður lögð fram skrá yfir
eigur og skuldir búsins dg frumvarp til út-
hlutunargjörðar í því, en á síðari fundinum
verður skiptum á búinu væntanl. lokið.
Utborganir fara síðan fram hjer á skrifstofunni
12 vikum eftir skiptin, verði þeim eigi áfrýað.
Skrifstofa Norður-Múlasýslu 14, .nóv. igor.
Jóh. Jóhannesson.
Skiftafundir
í dánar- og þrotabúi Vigfúsar sál- Ólafssonar
frá Fjarðarseli verða haldnir hjer á skrifstof-
unni manudagana 2. og30 desember næstkom-
andi kl. 4 e- h. — A fyrra fundinum verður lögð
fram skrá yfir eigur og skuldir búsins og
frumvárp til úthlutunargjörðar í þv/, en á
síðara fundinum verður skijjtum á búinu vænt-
anlega lokið.
Bæjarfógetinn á Seyðisfirði 14. nóv. igoi.
Joh. Jóhannesson.
Sparisjóðurinn
á Seyðisfirði
gefur 4 °/0 p. a. í vexti af innlögum. Hann
er opinn á hverjum miðvikudegi kt. 4—5 e. h.
Peir, sem skulda sparisjóðnum, áminnast um
að borga vexti af skuldum sínum fyrir nýár.
STJ()RNIN.
SJÓMENN !
Bæði þið, sem búnir eiuð að semja við
mig, og hinir, sem ætlið ykkur á skip til mín
í vor, eruð vinsamlega beðnir að finna mig að
máli strax eftir komu »Egils* næst.
Sig. Jóhansen.
FRY’S COCOA
BESTUR OG
HEILNÆM-
AS'I UR DRYKKUR, FÆST HJÁ L, S. TÓM-
ASSYNI, SEYÐISFIRÐI.
Takið eftirl
Margir færeyskir bátar í góðu
standi eru til sölu með vægum kjörum hjá
Sig. Johansen.
Takið eftir.
Hjer með tilkynnist öllum þeim konum á
Fjarðaröldu og Búðareyri, sem bæði undanfarin
og yfirstandandi ár hafa geingið fram hjá því
við barnsfæðíngu að vitja mín sem ljósmóður,
að þeim ber öllum fyrir eina og einni fyrir
allar að greiða mjer þá upphæð, er mjer ber
samkvæmt yflrsetukonulögunum. Þar sern jeg
hefi yfirsetukonurjett yfir allan Seyðisfjörð, þá
hef jeg rjett til að innkrefja þetta gjaid, sem
sje þrjár kr. fyrir hvert barn sem fæðist, hvort
leitað hefnr verið til mín eða eigi. Þessa upp-
hæð leyfi jeg mjer hjer með að mælast til,
að allar þær konur, sem fram hjá mjer hafa
geingið, greiði mjer fyrir næsta nýár, ig02;
annars verða þær krafðar samkvæmt því, sem
lög mæla fyrir.
Vestdalseyri 18/1T igoi.
HALLFRÍÐUR BRANDSDÓTTIR
dæmið, og þar með talið Finnland, og svo
sjerstaklega finnskra laga, sem snerta hags-
muni alls rfkisins eða s'anda í sambandi við
allríkislöggjöfina, er vald þíngsins takmarkað og
því aðeins gefið ráðgefandi atkvæði, en úr-
skurðarvaldið lagt í hendur ríkisráðsins rúss-
| neska, eftir samráði við landshöfðingjann yfir
B'innlandi og nokkra þar til valda inenn úr
öldúngaráði Finna.
Hjer er auðsjáanlega um stjórnarskrárbrot
að ræða. En hver fremur það, keisari Rússa
eða stórfursti Finna? Auglýsíngin er gefin út
af Nikulási II. sem Rússakeisara, en sem stór-
fursti Finnlands lætafl hann birta hana þar og
skipar finnskum embætíismönnum að beita hcnni
sem lagaboði.
Með auglýsíngunni cr stígið skief í þá átt
að innlima Finnland í Rússland. 1 sömu átt
fer stjórnarboðskapurinn þegar þíng Finna var
sett árið 1900. Þar er því bannað að fjalla
nokkuð um þau iagaboð, sem snerta alríkið,
jafnvel látið í veðri vaka, að þíngið verði af-
numið. En hvort hugsað sje til fullkominnar
innlimunar Finnlands f Rússland er ekki hægt
að segja.
(ljósmóðir).
O O O o o o 000 00000
000000000
FINNLAND.
Eftirfarandi grein er útdráttur úr ritgerð eft-
ir H. Ræder.
Orsökin til óánægjunnar, sem nú á sjer stað
milli Finna og Rússa, er hin keisaralega aug-
lýsfng frá 15 febrúar 1899 og þær grund-
vallarreglur, scm þar eru settar viðvíkjandi
þeim löggjafarmálum, sem snerta allt keisara-
dæmið og þar með Finnland. Til þessa hefur
Finnland.síðan það komst í samband viðRússIand,
haft sjerstaka stöðu í ríkinu. I.öndin eru óað-
skiljanlega sameinuð f persónu æðsta stjórn-
andans, þannig, að Rússakeisari er jafnframt
stórfursti yfir Finnlandi. En Finnland hefur
sjerstaka stjórnarskrá, og eftir henni er lög-
gjafarvaldið hjá stóríurstanum og finnska
þínginu. En þíngið er með gatnaldags sniði;
þar er farið eftir stjcttaskiftíngu og kjósa hinar
fjórar stjettir landsins hver fyrir sig fulitrúa
til þíngs. Regluleg þfng eru aðeins haldin
með nokkurra (3 —5 ára) millibili. Einnig
vantar þfng Finna atkvæðisrjett um ýms mál,
áem annars eru talin heyra undir valdsvið
þínganna, þar sem þíngbundin stjórn er. En
í öllum hinum mest varðandi löggjafarmálum
hafa þó rjettindi þess sem iöggjaíarþíngs verið
opinbcrlega viðurkennd, og eingin lög hafa
öðlast gildi þar í landi án samþykkis þess.
En með auglýsíngunni frá 15. febr. 1899 er
í þessum efnum sú breytíng gerð, að með
tillili til þeirra laga, sem snerta allt keisara-
Finrdand átti frá fyrstu, eftir að það komst
í samband við Rússland, óvenjulega góðum
kjörum að mæta, þegar lítið er til þess, að
það var tekið með hervaldi. Það gekk inn í
sambandið sem sjálfstætt ríki, að’ytra útliti
sem undirgefið ríki, en í reyndinni mé.ð ýms-
um forrjettindum. Einvaldur Rússa ljet sjer í
Finnlandi nægja hrlft vald móti þínginu. Finn-
land fjekk stjórn sfna út af fyrir sig (öldúnga-
ráðið), sem var skipuð finnskum borgurum og
Finnar fcingu einkarjettindi til allra embætta
í landinu, hærri sem lægri. Landshöfðíngja-
embættið var eina embættið, sem Finnar oe-
Rússar áttu jafnan aðgángsrjett að. Finnar
voru undanþegnir a’.mennri landvarriarskyldu,
þar til 1878, að hún var lögleidd, en miklu
ljettari eru kvaðir þeirra þó í því efni en
flestra annara þjóða i Norðurálfu. Þar við
bætist, að finnski herinn er í deildum út af
fyrir sig, seni stjórnað ». r af finnskum for-
íngjum, scm skipa fyrir á móðurmáli Finna.
En sambandið við hið sterka herveldi, Rúss-
land, hefur veitt Finnlandi fulla tryggingu út
á við, svo að Finnar hafa getað gefið sig með
óskertum kröftum við innanlandsmálum sínum.
Og framlarirnar þar eru viðurkenndar að vera
mjög miklar síðan landið kom í samband við
Rússland.
I Rússlandi hafa þessi forrjettindi Finna
vakið nokkra óánægju, einkum að þvf er
snertir útgjöldin til hermálanna. í nánu sam-
bandi við þetta stendur keisaraauglýsingin frá
15. febr. 1899. Með henni átti einkum að
svifta finnska þfngið atkvæðísrjetti um hernað-
arkvaðir þær, sem gerðar yrðu á hendur Finn-