Bjarki - 22.11.1901, Page 4
176
fyrir, þá gleymi jeg öllutn flokkadráttum og
geing undir merki kouiíngsins í Ítalíu, og
það þótt djöfuliinn sjálfur sæti í hásætinu.
Í’ví komum við aftur undir yfirráð klerkanna,
nndir yfirráð þeirra sem hafa vald yfir sálinni,
þá er úti um allt.«
Jeg spurði hann þá, hvernig hann liti á
konúnga- og keisara-morð stjórnleysfngja.
»'þeir menn sem þau vinna eru okkur hin-
um óviðkomandi,« svaraði hann. »Þeir eru
vitlausir, eða óðir. Jeg held að eingu leyti
með þeim, nema aðeins þeim manni sem myrti
•Canovas de Castillo; fyrir honum tek jeg of-
an.«
Morgun einn var mjer sagt að Communar-
do hefði verið dauðveikur nóttina á undan.
Jeg ætlaði að vita hvernig honum liði. En á
leiðinni mætti jeg honum. Hann gekk hægt
og leit ellilega út. Hann gekk við staf, en
studdi vinstri höndinni á lendina. Hann var
boginn í baki einsog gamalmenni.
»Menjar frá fangavistinni,« sagði hann.
»Taugarnar eru eyðilagðar, hryggurinn bilaður
og líkt er víst um allt hitt. Jeg fæ þetta
nær því stöðugt cinu sinni þriðja hverja viku
og get þá naumast á heilum mjer tekið.« Þó
var Communardo aðeins 22 eða 23 ára. En
hann lór ekki heldur vel með sig. Sumar
nætur háttaði hann alls ;kki. Hann gat stað-
ið nóttina í gegnum við gluggan sinn og star-
að út í loftið.
1 október komu ákafar rigníngar. Þökin á
húsunum hjeldu ekki því regni; það streymdi
inn. I stofunum stóðu hvervetna balar til að
taka á móti lekanum. í matarhúsinu sátum
við með útþandar regnhlífar yfir okkur meðan
við borðuðum. Fyrstu nóttina fjellu tvö hús
og íbúarnir björguðust með naumindum. Víða
fluttu menn út úr húsum sínum, því þeim lá
við falli. Vatnið át jarðveginn undan þcim.
Kirkjuklukkunum var hríngt í sífellu, en ekki
leit út fyrir að það bætti neitt úr. Niðri á
sljettlendinu voru menn þó miklu ver komnir.
Recanati liggur um 1000 fet yfir sjávarmáli
efst á hæð einni. Nú var eins og bærinn stæði
á umflotinni ey. Öðrumegin flóði Mussone yfir
bakkana, hinumegin Potenza. Vatn lá yfir öliu
í margra mílna fjarlægð og flóði yfir ræktaða
akra og víngarða; þeir höfðu sýnilega orðið
fyrir svo miklum skemdum, að þeir gátu ckki
náð sjer eftir þær í lángan tíma. Korninu
scm var ný sáð, skolaði burt. Sandskriður
frá hæðunum höfðu víða spillt láglendinu.
Nokkrir menn drukknuðu og fjöldi dýra. Hús-
in hrundu og húsgögnin fundust síðar út um
eingin lángar leiðar frá þeim. Það er ekki
unnt að lýsa bágindunum. Prestarnir settu
að lokum út Maríulíkneski, sem átti að gcra
kraftaverk. Daginn eftir var veðrið gersam-
lega breytt, himininn orðinn heiður og blár.
Aumíngjarnir, sem fyrir tjóninu böfðu orðið,
keyítu vaxkerti fyrir síðustu peníngana, sem
þeir áttu til, og kjarkur þeirra vaknaði á ný.
En góðviðrið varaði aðeins þrjá daga. ]’á
byrjuðu sömu ósköpin aftur og í það sinni
dugðu hvorki Ijós nje líkneski. Bændurnir
hjeldu að heimsendir væri þegar kominn.
Uppi í Recanati kendu menn í brjósti um
bændurna niðri á sljettunum. Menn töluðu
bver í munninn á öðrnm. En einn var sá
jmaður, sem gekk niður eftir til að sjá, hvern-
ig ástandið væri, og var í þeirri ferð heilan
dag í helliregni. Það var Corrmunardo. Þeg-
ar hann kom heim um kvöldið skrifaðí hann
áskorun um samtök til að hjálpa. Hann sagði
að fólkíð væri bjargarlaust og liöi sult. Að-
alskonunum í bænum þótti leitt, að þær höfðu
ekki fundið upp á þessu sjálfar. Þær mynd-
uðu nefnd og völdu Communardo fyrir skrif-
ara í henni. Það átti að vera gert í háði.
En bann tók á móti því. Allt erfiðið Ienti á
honum. Hann gaf sjálfur 10 lírur, en mörg
ríkisfrúin gaf ekki meir en helmníng á móts
við hann.
Hann sótti um þetta leiti um upptöku í
lestr^rfjelag bæjarins. Honum var neitað. Hann,
stjórnleysínginn, hegníngarhússfánginn, fjekk auð-
vitað ekki að vera í fjelagi með bestu mönn-
um bæjarins. Hann svaraði neituninni á prenti
með opnu brjefi, og svaraði 'með stolti og
fyrirlitningu. Brjsfið var meistaralega skrifað.
Þess má þó geta, að all flestir hinir ýngri
menntamenn hjeldu með honum og þótti vænt
um skósiirnar, sem forstöðunefndin fjekk, en
það voiu nokkrar landeyður úr aðalsflokkn-
um.
Veturinn 1898 fjeklc jeg þær fregnir í brjefi
frá Recanati, að tilraun hefði verið gerð til
að myrða Communardo í Macareta. Hann
átti þá að fara í herþjónustu. Kvöldið áður
var hann mcð nokkrum kunníngjum sínum.
Aður en þeir skildust vjek hann sjcr eitthvað
frá og var þá stúnginn með hníf í bakið.
»Verið þið ekki að þessari vitleysu,« sagcii
hann; hann vissi í fyrstu alls ekki, hvað um
var að vcra. Hann gekk nokkur spor, svo
fjell hann og lá fljótandi í blóði sínu.
Þegar jeg kom aftur til Recanati um vorið
heyrði jeg, að menn ætluðu apotekarasyninum,
stúdcntinum, sem áður er nefndur, verkið eða
upptökin að því. Hann hafði verið að útbreiða
þær fregnir, að Communardo hefði svikið fie-
lagsskapinn. Slíkt líktíst Communardo, eða
hitt þá heldur! f’cssi stúdent var síðan hand-
tekinn og fángelsaður í uppreistinni.
Communardo komst á fætur aftur. Þegar
hann kom í herþjónustuna var honum skipað
í deild með hegnfngarhússfaungum. Allir vissu
að hann var sijórnleys/ngi. Nú átti enn að
ala hann betur upp. Reglurnar í þessum deild-
um eru mjög strángar. Þetta er, með öðrum
orðum, önnur útgáfa af betrunahúsunum.
I mars 1898 var jeg á skemtiferð á eynni
Capri. Mig grunaði þá ekki að þessi fallega
ey væri nokkurskonar fángelsi fyrir vin minn
Communardo. En hann var þar þá, og þar
var hann enn um haustið það ár, til þess að
»betrast og uppalast.«
En heimskulegt er að fara svona með þessa
menn. Með því eru þeir knúðir til að ala
| hugssjónir sínar og þroska þær í myrkunum,
| ieynilega, og eingum gefst tækifæri til að skýra
þær fyrir þeim og hrekja þær, varla einu sinni
til að kynnast þeim að ráði. Afleiðíngin er sú,
að allur fjöldinn lítur með aðdáun til manna
eins og Communardo, en horfir með gremju á
ofsóknirnar sem þeir verða fyrir.
Og sjálfir halda þeir leingra og Ieingra á
sömu brautinni, þángað til hatrið er orðið svo
megnt að þeir grípa til eins eða annars óynd-
isúrræðis til þess að svala því.
Skraddarastofa Eyjólfs Jónssonar
saumar allskonar karlmannafatnað og drengjafatnað.
Enskar húfur.
VANDAÐ V E R K. — FLJÓT AFGREIÐSLA. — IIVERGI ÓDÝRARA.
Komið scm fyrst og semjið áður en jólaannir byrja.
Odýrasta verslun bæjarins!
Hvergi betra að versla!
iO°/0 atsláttur gegn peníngum!
Lánsverslunin á að hverfa!
Gegn peníngum og vöram ge f
strokkar
frá hinni nafnfrcegu sænsku strokka fabriku
35 kr.
eru hjá S t. T h. J ó n s s y n i
á Seyðisfirði.
jeg best kjör!
S t. Th J ó n s s o n.
Wathnes verslun rj^uurr
í vetur eins og að undanfórnu, gegn peníng-
um og vörum.
Kol, steinolía, matvara, kartöflur og flestar
vörutegundir cru til sölu, einnig ágætt tros
og saltfiskur.
Seyðisfirði 31. okt. J901.
Jóhann Vigfússon.
Leikhús Seyðisfjarðar
óskar eftir leikendum, er tak-
ast vilja á hendur að leika hið nýa stykki fje-
lagsins
HEIMKOM AN,
sem er ágætt kvöldstykki og gert hefur glim-
randi lukku hvervetna. Menn snúi sjer til
Éyjólfs Jónssonar.
2 til 3
samlit kattaskinn kaupir Eyj.
Jónsson háu verði nú þegar.
1.0. G. T. Stúkan »Aldarhvöt nr. 72«
*___________’______heidur fundi á hverjum
sunnudegi kl. 4 síðd. f Bindindis’núsinu. Allir
meðlimir mæ. ti. Nvir meðiimir velkomnir.
Brunaábyrgðarfjelagiö
»Nye danske B r a 11 d fo r s i k r i n g s
Selskab*
Stormgade 2 Kjöbenhavn
Stofnað 1864 (-Aktiekapital
4,000,000 og Reservefond 800,000).
Tckur að sjer brunaábyrgð á húsum, bæj-
um, gripum, verslunarvörum, innanhúsmunum
o. fi. fyrir fastákveðna iitla borgun (premie),
án þess að reikna nokkra borgunfyrir bruna
ábyrgðarskjöl (police) eða stimpilgjald.
Mcnn snúi sjer tn umboðsmans fjelagsins
á Seyðisfirði ,
ST. TH. JONSSONAR.
R i t s t j ó r i:
Þorsteínn Gislason.
Prentsmiðja Seyðisfjarðar.