Bjarki - 29.11.1901, Blaðsíða 2
i73
Síðar reis ágreiníngur útaf því, hvernig látið
skyldi í Ijósi fyrir stjórninni, að frumvarpið
sem samþykkt var tæki ekki fram allar óskir
og kröfur þjóðarinnar í stjórnarskrármálinu.
Forgaungumenn minnihlutaflokksins vildu
að þetta v;eri gert með þíngsályktunar-
tillögu. Meirhlutaflob.kurinn sagði það vera
óformlegt, að þíngið afgreiddi frumv. cg sam-
þykkti þíngsályktunartilögu í sama málinu, þeg-
ar þau kæmu í mótsögn hvort við annað.
Hann sýndi fram á, að það væru afglöp, ef
þíngið samþykkti lög, cn bæði svo um það í
öðru skjali að þau lög yrðu ekki staðfest.
Þar á móti vildi meirihlutinn skýra frá því í
ávarpi til konúngs, að r frumv. því sem sam-
þykkt var, væru ekki fram teknar allar óskir
Islendínga um breytingar á stjórnartyrirkomu-
laginu. Avarpið var samþykkt í efri deild, en
minnihlutaflokkurinn í neðri delid gat hindiað
samþykkt ávarpsins þar. Hann hafði þá sem
sje sogað til sín síra Einar á Kirkjubæ.
Orð Guðjóns Strandaþíngmanns um >poIi-
tiska glæpinn* hefðu aldrei átt að komast inn
í þíngtíðindin, hvað þá heldur að vera prerrt-
að upi> úr þeim aftur. í’ó þeim þíngmanni
sje mart vel gefið, þá hafa ræður hans um
stjórnarskrármálið einkis álits aflað honum með-
al þíngmanna, og munu flokksmenn hans helst
kjósa þær scm stystar og jafnvel telja sig
cingu ver farna, þótt þeirra missti alveg við.
Bækur og rit
Hlín. Svo heitir nýtt tímarit sem byrjaði
að koma út í Reykjavík í haust. Utgefandi
þess og ritstjóri er Stefán B. Jónsson, scm
leingi hefur dvalið í Ameriku og gaf þar út
tímaritið >Stjarnan«. Verksvið þessa tímarits á
að vera >cfiing verkfræðilegs og hagfræðilegs
framkvæmdalífs á Islandi. >Ritið á að koma
út tvisvar á ári fyrst um sinn, árgángurinn
8—12 arkir auk auglýsinga og kostar áskrif-
cndur I kr. en aðra i kr 50 au ; sjerstök
hefti 75 au. Auk þess cru útsölumönnum boð-
in ýmis hlunnindi; þeír fá það scm út hefur
komið af >Stjörnunni« ókeypispþeir sem útvcga
150 kaupendur og standa skil á andvirðinu
ciga að fá nýa Dundas prjónavjel, sem kostar
50 kr.
Innihald Hlínar cr svipað og >Stjörnunnar<.
í I. heftinu cr grein um kjötverkun, grein um
smjörgerð og þýðing hennar hjer á landi, grein
um skilvindur og þýðing þeirra, um hænsna-
rækt, og enn ýmislegar smærri greinar, þýdd-
ar og frumsamdar, þar á meðal bending um
tilbúning nýrrar sláttuvjelar handa Islendingum.
l'á er þar kvæði cftir Mrs. M. J. Benedikts-
son, sem gefið hefur út kvennablað Islendinga
vestra, >Freyju.«—byrjun á þýddri sögu, skrá
yfir vörur, sem útgefandinn býðst til að panta
frá Ameríku og yfir verð þeirra.
Ritið er ameríkst að iitgerð og sniði. Fyrir
utan nokkur mállýti er útgáfau vönduð og í
ritinu eru ýmislegar bendingar viðvíkjandi land-
búnaði o.fl.scm eru athugunar verðar.
P, í.nningarrit Möðruvallaskólans. Vorið
k co hjeldu Möðruvallastúdentar 2oára minning-
ar á ió skóians og gaf sú samkoma tilefni til
ú gáfu þessa rits, sem nú er nýkomið fram.
Það er 39 síður í 4to. með 16 myndum og
vel vandað. Framanvið er mynd af Möðru-
völlum, tekiii meðan á minníngarhátíðinni stóð.
Þá er ágrip af sögu skólans, en hann var sett-
ur í fyrsta sinn I. okt. 1880. Því fylgja mynd-
ir af öllum kennurum, sem verið hafa við skól-
ann og eru þeir 10: Jón A. Iljaltalín skóla-
stjóri, Þórður Thoroddsen, Þorvaldur Thor-
oddsen, Halldór Briem, Benedikt Gröndal, w.
G. Spence Paterson, Guttormur Vigfússon, Stef-
án Stefánsson, Olafur Davíðsson og Magnús
Einarsson saungkennari.
Fyrsta veturinn, 1880—81 voru 35 piltar í
skólanum, næsta veturinn 51, en þriðja vet-
urinn 25. Eftir það mínkaði aðsóknin enn
meir og gckk svo til 1887. Þá voru skóla-
piltar fæstir, aðeins 7. En eftir það fór aft-
ur að lifna yfir skólanum og síðari áratuginn
hefur meðaltal skólapílta vorið 3 S, en miklu
fleiri hafa sótt um skólann en hægt hefur ver-
ið að taka á móti. Alls hafa verið á skóian-
um þcssi 20 ár 335 nemendur, en 200 hafa
tekið burtfararpróf.
Annar kaflinn er um minníngarhátíðina og
fylgja myndir af forstöðumönnunum 5.
Þriðji kaflinn er kvæði, sem ort voru og
súngin við hátfðahaldið.
Fjórði kaflinn cr skrá yfir þá, sem tekið
hafa burtfararpróf frá skólanum árinn 1880-1900,
einkunnir þeirra, aldur og lífsstöðu nú.
Á samkomunni var samþykkt svolátandi til-
laga frá Páli kennara Jónssyni á Akureyri;
>Fundarmenn heita þvi, að stuðla til þess
af afefii, hver á þann hátt, sem hann getur
best við komið, að skólinn verði gerður svo
fullkominn, sem frekast eru faung á, námstím-
inn verði leingdur um eitt ár, konur vcrða
látnar hafa jafnan aðgáng að slcólanum sem
karlar, skólinn settur í samband við lærða
skólann og yfir höfuð skólanum að öllu leyti
komið í það horf, að hann fullnægi kröfum
tímans.«
Sláttuvjel fyrir ísland.
Allar þær sláttuvjelar, sem jeg þekki til, eru
fyrir 2 hesta, Og allar óhentuglega stórar og
örðugar fyrir fsl. hestana. En fyrir uxa eða
akneyti væru þær hentugar hjer sem annarstað-
ar, á vel sljettu, ef að eins að ljábakkanum
með álmunum væri breytt. Og sú breytíng
þyrfti ekki að kosta mjög mikið, því hún þarf
ekki þá að vera önnur en sú, að gjöra bakk-
ann með tilh. nógu þunnan að neðan, til þess
að Ijárinn gæti skorið nógu nærri rótinni.
Ef menn svo vildu vinna til að ala upp og
eiga akneyti til sláttar, pælingar og aksturs-
vinnu, — og það ætti að borga sig hjcr ekki
síður en hestauppeldið, því að uxar eru vel
helmíngi sterkari og þolnari til vinnu en ísl.
hestarnir, og fara miklu betur með hagana en
hestar, — þá væri þessi áminsta breyting á
sláttuvjelinni sú láng-hentugasta og ódýrasta
fytir oss Íslendínga.
Vilji menn þar á móti endilega hafa hentugar
siáttuvjelar fyrir I eða 2 hesta (eins og þeir
gerast hjer), þá er nauðsynlegt, að fá einhverja
góða tegund af þeim vjelum minkaða til stórra
muna, til islenskra nota, og þá jafnframt með
þeirri breytíng á Ijábakkanum, sem jeg mint-
ist á. En það mundi koma til að kosta tals-
vert mikið, máske eins mikið og alveg ný vjel
af óþekktri gerð mundi kosta. Auk þess scm
þess yrði þá að gæta, að koma ekki í bága
við gildandi einkaleyfi á þeim vjelum, sem nú
eru tii.
En svo er þriðji vegurinn ef til viil ekki
síst álitlegur, sem er sá, að láta hjer gera
(finna upp) nýa litla sláttuvjel fyrir mannsafl,
með stuttum ljá, scm Iegði sig betur í laut-
irnar en þeir löngu, og gæti afkastað verki á
við 3 —4 menn með einum manni. Slíka vjel
ætti að mega búa hjer til, þ. e. a. s. eitt
sýnighorn af rjettri stærð, og láta svo síðan
smíða nóg af henni á vcrksmiðjum erlendis.
S. B. Jónsson.
Utsvör i Reyóarfirði, sem sýnd voru f
síðasta blaði, munu vera hærri á einstökum
mönnum en nokkurstaðar annarstaðar á landinu.
I hreppnum eru alls 270 gjaldendum,[en niður
er jafnað 7480 krónum. Mestur hluti gjalds-
ins er lagður á síldarveiðarnar. Þcir sjö
sem hæstir eru i gjaldaskránni veiða allir síld
og þeir borga samtals 5570 kr.; hinir, 263,
fcorga samtals rpio kr. Einn hreppsnefndai -
maðurinn, sem að sögn er allvel efnum bú-
inn, hefur 3. kr. i útsvar. Síldarveiðafjelag
Scyðisfjarðar hefur kært útsvar sitt.
Seyðisftrði 29. nóv. 1901.
Framanaf vikunni voru hlýindi cins og á miðju
sumri, p.Ht að 10" hiti dag og nótt og sunnanvind-
ur svo að nú er nær snjólaust allt upp að fjalla-
brúnutn. Á miðvikudags morgun kom hríðarkast litla
stund og frysti. i gær aftur frostlaust.
Sigurður Einarsson hreppstjóri á Hánefsstöðum
andaðist á hcimili sínu 26. þ. m. eftir þúnga lcgu.
Að Sigurði var mannskaði og hefur Scyðisfjörður
þar misst einn af nýtustu mönnum sínum. llans
verður nánar getið síðar hjer í blaðinu. Ráðgert cr
að jarðarför hans fari fram föstudaginn 6. n. m.
Hann verður jarðsettur í kirkjugarði kaupstaðarins
Hreppstjóri í stað Sigurðar sál. Einarssonar er
settur fj'rst um sínn Jóhann bóndi Sveinsson á
Gnýstað.
Ivláðamaur fannst nýlega á kind einni á Vífds-
stöðum í Túngu og var hún öll útsteypt. I’ctta
var kvíaær og feingin í haust frá Fljótsbakka, sem
er austanmegin Lagarfljóts, og það er víst, að þar
hefur kindin verið síðastl. sumar. Kiáðahrúður hcf-
ur fundist í fje á Fljótsbakka, en rnaur ekki. A
Vífilsstöðum vcrður allt fje baðað og hús sótthreins-
uð.
Skarlatsóttin er í rjenum á Vestdalseyri og hcf-
ur ckkert breiðst þaðan út enn.
Inm' aukaútsvaralistann hjer úr kaupstaðnum vant-
aði í síðasta blaði: síldarveiðafjelag Seyðisfjarðar
með 100 kr. og Rolf Johansen verslunarmann með
20 kr.
1