Bjarki - 10.10.1902, Page 3
B J A R K I.
3
feingu þau 32 bændur fyrir jarðabætur á næst-
undanförnum 5 árum. Hæstu verðlaunin eru
200 kr. en lægstu 50 kr. Þrír bændur hafa
hlotið hæstu verðlaunin og er Vilhjálmur Hjálm-
arsson einn þeirra. Einn bóndi annar hjer á
Austfjörðum hefur og feingið verðlaun, Gunnar
Jónsson í Holti í Mjóafirði, 100 kr.
Alls var úthlutað til verðlauna 3425 kr.
Guðlaugur Guðmundsson
sýslumaður Skaftfellinga hefur feingið hjá
Vilhjálmi Þýskalandskeisara rauðu arnarorðuna
af 3. flokki.
Síld.
A Eyjafirði er alltaf nokkur síldarafli. 24.
f. m. köstuðu bræðurnir F. og M. Kristjáns-
son í fjelagi við 2 Norðmenn afarlángri nóta-
trossu utanvið Svalbarðseyrina. I nótinni var
mikil síld og 1 hvalur. En hann forðaði sjer
og reif nótina, svo nokkuð af síldinni tapaðist.
Wathnesútgerðin kastaði um sama leiti í fje-
lagi við 2 Nörðmenn og mun hafa feingið um
1000 tn. og 2 útgerðir frá gufuskipinu Alf
álíka mikið.
Um síðastliðin mánaðamót fór síldarútgerð
Túliniusar af Reyðarfirði norður til Eyjafjarð-
ar með Mjölni, 14 manns.
Tvo hvali
rak í Vestmannaeyjum nýlega: höfðu hvala-
veiðamenn stjórað þá niður á víkinni fyrir
sunnan Ystaklett, en þá sleit upp í austan-
veðri. Voru þeir seldir við opinbert uppboð
og fór spik- og reingisvættin á 70 au ogupp
í 1 kr.
Póstafgreiðslumaður
á Vopnafirði er Jón Jónsson alþm. skipaður
af landshöfðingja í stað Olafs Davíðssonar.
Embœtti.
Sr. Ólafur Olafsson frá Arnarbæli hefur
feingið lausn frá prestsskap með fullum eftir-
launum og er nú tekinn við ritstjórn Fjallkon-
unnar.
Oddi Jónssyni settum lækni í Reykhólahjer-
aði er veitt það frá 1. f. m.
Magnúsi Ásgeirssyni lækni í Dýrafirði veitt
Flateyarhjerað, en Andrjesi Fjeldsted cand.
med. Dýrafjarðarhjerað.
Barð í Fljótum er veitt sr. Jónmundi Hall-
dórssyni aðstoðarpresti í Ólafsvík.
Jaðar strandaður. ,
Hann er leiguskip Wathnesfjelagsins, kom
hingað frá Eyjafirði nú í vikunni og hjelt áleið-
is til útlanda hlaðinn af síld og fiski. í fyrra
kvöld lenti hann í þoku upp á Víkursker í
Fáskrúðsfirði og brotnaði strax stórt gat á
hann og framlestin fylltist af sjó.
Með afturbirtu í gærmorgun var sendur mað-
ur hingað til að skýra frá strandinu og kom
hann hingað í morgun snemma. Hann veit
ekki nákvæmlega, hve mikið skipið er brotið,
en segir að talin hafi verið hætta á, að þegar
út fjelli brotnaði það meir og mundi ef til vill
sökkva. En rjett við skerið er 20 faðma dýpi.
I skipinu átti Wathnesfjel. 500 tn. af síld
og 200 skp. af fiski, St. Th. Jónsson kaup-
maður 60 skp. af fiski, Stefán Steinholt
kaupm. 10 skp. af fiski, en annan farm áttu
ýmsír á Eyjafirði. Allt var þetta vátyggt.
Tíðin
er stöðugt hin besta og muna menn vart
jafn stöðug og lángvinn góðviðri um þetta leyti
árs.
Afli er fremur lítill.
Trollari
var þrjá daga í byrjun þessarar viku að
sveima inni á Loðmundarfirði og þar utifyrir
með vörpu í eftirdrægi uppundir landsteinum.
Nafn eða númer á skipinu sást ekki. En
maður, sem kom úr fiskiróðri, náði ljóskeri af
uppihaldi, sem skipsmenn höfðu sett niður úti
í flóanum, og stendur á ljóskerinu: Venus,
Hull.
Sútunarhúslð
hjer á Seyðisfirði hefur verið bætt mikið nú
í sumar, veggirnir múraðir, tvö loft lögð í
húsið og hitaleiðsla um það allt. Ennfremur
bygður hjallur við hliðina á því til þess að
þurka í skinn. Segir eigandinn að það standi
nú að öllum útbúnaði jafnfætis bestu sútunar-
húsum erlendis. Telur hann húsin með öll-
um útbúnaði 7000 kr. virði. 4 menn vinna
þar nú sem stendur. Ættu söðlasmiðir og
skósmiðir út um landið að skifta sem mest við
þetta innlenda sútunarhús.
Þllsklp Sig Johansens
kaupmans tvö, sem hann hefur haldið út
hjeðan í sumar, hafa aflað illa, Ruth 240 skp.
saltfisk, Esther 225 skp.
Esther er nú seld Þorsteini skipstjóra Þor-
steinssyni í Rvík; kom hann hingað í haust
og sigldi henni suður. -Ruth er enn óseld.
Fjártaka
hefur verið hjer óvanalega mikil í haust,
en fremur er fje rírt, einkum mörlítið.
Pöntunarskipið »Fridthjof« fór út hjeðan nú
um miðja vikuna með rúm 2200 fjár, 850 tók
það á Kópaskeri, en hitt hjer. Jóhansen kaup-
maður hefir keyft margt fje á fæti í Hjeraði
og var sumt af því sent út með »Fridthjof«
en hinu slátrað.
»Fridthjof« hafði farið eina ferð áður
í haust með 2300 fjár út frá Nordurlandi, og
gekk sú ferð vel, aðeins ein kind hafði drep-
ist á leiðinni.
Síra Matthías
kvað nýlega, þegar hann var að lesa í ljóða-
bók Guðmundar Friðjónssonar:
Hvín af ergi arnsúgur
óðs af bergi magnaður;
þjóðarkergju þrúðvaldur,
þú ert dvergur, Guðmundur.
C. Schiödt
kaupm. af Eskifirði fór nú með Hólum
alfarinn til Akureyrar.
Finnur Jónsson prófessor
ritar í Austra 13. f. m. lánga grein til varnar fals-
skýrslum Þjóðólfs og Austra frá stúdentafundinum í
Khöfn 30. nóv. f. á. og síðar flytur Austri yfirlýsing
frá nokkrum stúdentum í sömu áttina. Dr. Valtýr
hefur mótmælt þessum skýrslum bæði í Bjarka og
Austra og skýrt frá rángfærslunum og útúrsnúning-
unum, sem þar er farið með, viðvíkjandi öllu, sem
eftir honum hefur verið haft af þeim fundi, bæði í
Þjóðólfi og Austra.
Dr. Valtýr hjelt þar fram miðlunarfrumvarpinu frá
'89, en mótmælti harðlega því fyrirkomulagi, sem
Scavenius hafði stúngið upp á í dönsku blaði, að
ráðgjafi okkar skyldi vera búsettur í Reykjavík, en
standa undir sjerstöku eftirliti einhvers af dönsku
ráðgjöfunum. Því fyrirkomulagi hjelt Finnur mjög
fram á fundinum, og með honum tveir danskir menn,
sem þar töluðu.
Svona skýrir dr. Valtýr frá fundinum i mótmælum
sínum móti fundarskýrslunni í Þjóðólfi og Austra, og
Finnur skýrir alveg eins frá í grein sinni í Austra.
En hann segir, að þetta fyrirkomulag, sem Scavenius
stakk upp á, sje nákvæmlega hið sama og það, sem
síðar var boðið með stj.frumvarpinu. Að öðru leyti
greinir þá dr. Valtý ekki á.
Finnur er enn að kara undirtylluráðgjafann sinn og
er honum það auðvitað velkomið. Hann var einu sinni
hættulegur, en er það ekki framar, og því er óþarft
með öllu að vera að stæla um hann leingur.
Kappsiglingin.
Eftir Fredrik Kittelsen.
Nú bar að höndum, eins og áður er sagt, nýja og
stóra kappsiglingu, og í þetta skifti voru fleiri keppi-
nautar en nokkuru sinni áður í fjölda mörg ár.
En í þetta sinni beið Hallvarður eftir hinum stóra
degi með ótta og skjálfandi af kvíða. Hann hafði nú
eigi hina örfandi sigurgleði eins og hann var vanur;
nei, í þetta skifti var hann, hreinskilnislega sagt,
hræddur um ástmey sína.
Hefði það nú bara verið ókunnur bátur, sem ætti
að vinna yfir „Blendu"; en því miður, það var hin
síðasta smíði nágranna hans og keppinautar, Sörens
á Grænahöfða —!
Skammt fyrir neðan Hallvarð bjó Sören á Græna-
höfða. Hann var líka bátasmiður; en öll ár sín hafði
hann unnið fyrir báta- og áraverksmiðju inni í höfuð-
staðnum og það voru bara sjegtur og prammar, sem
höfðu litið Ijós dagsins á stokkum hans.
En svo skeði dálítið sem öllum kom óvart.
Sören átti tvo fullorðna syni, sem í fyrstunni höfðu
lært hjá föður sínum og síðan fullnumað sig hjá
Collin Archer1 og í höfuðstaðnum. Svo komu þeir
heim, þegar minnst varði, og síðan hjet það ekki
lengur bátasmiður Sören á Grænahöfða, en S. Græni-
höfði og Synir. Báta- og áraupplag.
Það var eigi laust við það, að Hallvarður gæfi
þessu nýja fjelagi heldur óblítt hornauga. „Græna-
höfðasynina" skírði hann þá strax, og ekki bætti það
úr fyrir honum daginn þann, er þessir keppinautar
hans fengju pöntun frá Larsen stórkaupmanni á stóru,
nýmóðins skemmtiskipi, enn þá stærri en „Blenda".
Og þegar fór að líða á smíðina, stóð Hallvarður
oft steinhissa og varð þess brátt vísari, að það var
eitthvað annað að smiða skemmtiskip núna, en þegar
„Blenda" var smíðuð.
Skemmtiskip þetta var með nýa, útlenda laginu,
og það var smíðað eftir stórum uppdráttum, sem
komu beint frá Lundúnum. Hallvarður hafði aldrei
á æfi sinni brúkað uppdrætti, og hann hristi höfuðið
og þagði, því hjer var hann ekki með.
Smíði S. Grænahöfða & Sona varð líka framúrskar-
andi skemmtiskip, og það skar Hallvarð sárt í hjarta
að heyra „Elliða" hælt meir en öllum öðrum.
„Blenda" hafði algjörlega misst tignarstöðu sínaog
„Elliði" stórkaupmannsins hafði tekið við veldissprota
hennar.
1) Víðfrægur skipasmiður norskur-af skotskri ætt minnir mig-
hefur smíðað margar björgunarskútur, „Fram", skip Nansens. o, m.
fl.-Þýð.