Nýja öldin

Tölublað

Nýja öldin - 16.04.1898, Blaðsíða 1

Nýja öldin - 16.04.1898, Blaðsíða 1
I, 38. 1898. A ÖLDIN. Reykjavík, Laugardag 16. Apríl. Til minnis. Bœjarstjórnar-fundir 1. og 3. Fmtd. i mán., kl. 5 siðd. S'átœkranefndar-ixm&n 2. og 4. Fmtd. 1 mán., kl. 5 slðd. Womgripasafnið opið Mvkd. og Ld., kl. 11—12 árdegis. Landsbankínn opinn dagl. kl. 11 árdegis til 2 siðdegis. — Bankastjóri við kl. 117.—1’/«.— Annar gœzlnstjðri við kl. 12—1. LandslókasafniÖ: Lestrarsalr opinn dagl. kl. 12—2 slðd.; á Mánud., Mvkd. og Ld. til kl. 3 slðd. — Útlán sömu daga. Náttúrugrvpasafniö (i (llasgow) opið á Sunnu- dögum kl. 2—3 síðd. Söfnunarsjóðrinn opinn 1 barnaskðlanum kl. 5—6 eíðdegis 1. Mánud. 1 hv. mánuði. April. 16. L. síðasta (26.) v. vetr. byrj. 20. Mi. nýtt (sumartungl) M. 8, 53 síðdegis. Sólargangr 4. 13’ — 7. 47'. 21. Li. Sumardagrinn fyrsti. 1. v. sumars byrjar. Heimsendanna á milli. Danmörk. — Þar eru nú um garð gengnar nýjar þingkosningar, og eftir þvi sem fréttist með „Hólum“, fóru þær svo, að vinstri menn unnu inu mesta kosninga-sigr, og liafa þeir einir út af fyrir sig nú talsvert meira en helming allra atkvæða í fólksþinginu. Þar sitja 113 þing- menn, og er svo flokkum skift: Vinstri (áðr 55, nú) 63 Böjseningar (— 25, -—) 23 Hægri menn (— 24, —) 15 Jafningjar (— 9, —) 12 (113) 113 í Höfn er það mjög á orði, að konungr vor muni ætla sér að segja af sér konungdómi nú eftir 80-ára afmæli sitt og selja völdin í hendr krónprinsinum syni sínum, er þá taM konungdóm. En vart er reiður að henda á slíku hjali. — 30. f. m. fóru fram í Höfn kosningar 7 bæjarfulltrúa og urðu úrlsitin þau, að stjórnarandstæðing- ar unnu sigr hvervetna og komu að sínum mönnum. Alls sitja 36 menn í bæjarstjórn í Höfn, og eru nu 22 af þeim stjórnarandstæð- ingar (13 vinstri, 9 lögjafningjar), en 14 að eins af hægri manna flokki. Þessi úrslit bæjarstjórnarkosning- anna í Höfn vóru talinn órækr vottr þess, hvernig þingkosningarnar mun- du ganga 5. þ. m., enda er auðvit- að, að þær hafahafteigi lítil siðferðis- leg áhrif til að styrkja stjórnarand- stæðingana. Svo var að sjá á blöðum allra flokka i Danmörkn sem þeir byggjust allir við stórfenglegum sigri andstæðinga, og við þvi búizt að konungr vor skifti nú um ráðaneyti, láti hægri menn fara frá stjórn, en kveðji sér ráðaneyti af flokki and- stæðinga. En hvort sem það verðr nú eða ekki, þykir enginn vafi á að nokkrar breytingar verði á stjórn- inni, og er sjálfsagt talið, hversu sem veltist, að Rump ráðgjafi fari frá völdum (ráðgjafi lögstjórnarmála og íslands-mála). Jarðskjálftar urðu í byrjun Marz-m. á ýmsum stöðum í Vestr-Indíum, og eins í Langbarðarlandi á Italíu. — Hraða ferð’ yfir Atlashaf hafði „Campania11, skip Cunard-linunnar, snemma i f. m. Það fór frá New- York til Liverpool og hafði sífelda austan-átt, oft allsnarpa, á móti alla leið; var þó ekM nema 5 daga, 15 stundir og 40 mínútur á leiðinni. Svo jöfn var ferðin, að ekki munaði meira en 6 sæmílum enskum (11/2 mílu danskri) á sólarhring þá er hæg- ast gekk og hraðast. Engan sólar- hring gekk skipið minna en 500 mílur enskar; meðalferðin var 21. 35 sæ- mílur enskar á klukkustund (21. 35 danskar mílur á vöku). — Látinn er Sir Henry Bessemer, nafnkunnr uppfúndningamaðr. Eann aðferðina til að breyta járni í stál (,,Bessemer-stál“). Hann var 85 ára. — Bank of Commerce i Canada ætl- ar að selja upp útibú i Dawson City (við gullmámana í Klondyke). Landstjórnin leggr til vopnaða lög- reglumenn til að gæta bankans, og eins vopnað lögreglulið til að fylgja sendimönnum bankas og vernda, er flytja eiga gull frá bankanum til strandar einu sinni á hverjum 4 mán- uðum. — Amerískan alþjóðabanka („Ame- rican International Bank“) hefir lengi verið i ráði að stofna, og er það nú loks orðið. Það er aðal-til- gangr hans að draga til sin úr hönd- um enskra banka og bankara pen- ingaviðskifti við Suðrameriku, sem nú eru því nær öll í höndum enskra banka. Bánkinn hefir 90 miljóna króna höfuðstól og á að hafa útibú í helztu verzlunarborgum Suðr-Ame- ríku, og í San Erancisco, Denver, St. Louis, Chicago, Minn eapolis, Pittsburg, og New Orleans, svo og í Lundún- um og París, í Norðrálfu. í New York verðr aðsetr hans. -- Spánverjar og Bandaríkjamenn hafa eldað grátt silfr um hríð, og eigi vist enn, hvað úr kann að verða — eða vera orðið. Sitthvað hefir nú á milli borið, sem hefir egnt skap Ameríkumanna. Eitt var það, að í vetr reit sendi- herra Spánverja í Washington kunn- ingja sínum bréf, og mintist í því á forseta Bandaríkjanua, McKin- ley, og fór um hann lítt virðulegum orðum, kallaði hann vera engan vits- munamann nó atgervismann, heldr lítilsigldan leiksopp í höndum ann- ara manna, er hefðu hann í vasa sínum. Brófið komst fyrir sjónir mönnum, sem það var aldrei ætlað, og var birt í blöðunum. Nú þótt almenningr í Bandaríkjum megi vel vita, að þetta er alt satt, sem í bréf- inu var sagt, þá urðu menn þó þar í landi fokreiðir, þvi að þetta þótti, sem var, óhæfa og ósvinna af manni í sendiherrans stöðu, að gæta ekki betr tungu sinnar. Bandaríkja stjórn- in gerði sér fátt um, en spurði þó sendiherrann, hvort hann hefði skrif- að bréfið, og játti hann þvi. Lét þá stjórnin Spánarstjórn vita af þessu og kvaðst eigi geta haft nein mök við sendiherrann; var hann því óð- ara heim kvaddr, en annar sendr í hans stað. Svo kom ið mikla slys fyrir með Maine, herskip Bandaríkjanna, er sprakk í loft upp á Havannahöfn á Kúba. Bandaríkin skipuðu þegar nefnd manna til að rannsaka orsök sprengingarinnar. Sú nefnd komst í einu hljóði að þeirri niðrstöðu, að enginn minsti vafi lægi á því, að sprengingin hefði ekki komið upp i skipinu (í púðr-rúminu), heldr mdir skipinu. Sprengingamar hefðu verið tvær, hvor rétt á eftir annari, in fyrri nndir skipinu, og hefði hún lyft því nær upp úr sjó, en in síðari hefði orðið í púðr-rúminu af áhrif- um innar fyrri sprengingar. Töldu það til merkis, að þar sem skipið hafði flezt í sundr undir púðr-rúm- inu, þá hefðu járn öll verið bogin inn á við, og sýndi það, að gat hefði komið á skipið af afli að utan.

x

Nýja öldin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýja öldin
https://timarit.is/publication/32

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.