Nýja öldin - 11.05.1898, Side 3
175
er varla furða, þótt lieyleysið sé
rnikið, þegar svona margar orsakir
eru að því; en það dugar ekki, Ar-
nesingar góðir, að hafa þæríframmi;
það á iiver búandi maðr að iiafa svo
mikið vit til að bera, að setja ekki
of mikið á vetr, þegar menn vita sig
heytæpa fyrir. Ætli sé ekki munr
að skera skepnuna að haustinu til,
heldr en láta hana drepast úr hor
á vorin ? Því að ekkert gagu gerir
skepnan, þótt hún skríði fram í ein-
hverju vesaldar hor-skriði. En því
fer betr, að þetta á sér óvíða stað.
Eg hefi heyrt einstaka menn vera
að tala um það, að það væri ráð
fyrir óreynda og unga bændr, að
fræðast um heyásetning hjá einhver-
jum gömlum, reyndum og búgreind-
um bændum, sem hefðu orð á sér
fyrir fyririnyndar biiskap, hvað hey-
ásetning 'viðvikr. Það má segja svo
um þessa ráðleggingu, að það geti
öllum orðið á, ungum sem gömlum;
og það veit ég vel, að það eru til
þeir menn, þó gamlir séu, sem verða
heylausir á hverju ári; en þeir eru
miklu færri sem betr fer. Póðrskoð-
un fór fram í vetr i sumum hrepp-
um Árnessýslu, og voru gefnar skýrsl-
ur yfir um hey, fóðr og hirðingu á
búfénaði; það vissi líka á gott, eitt
það mesta heyleysis ár, sem yfir
Árnessýslu hefir dunið, nú í manna
minnum.
Eiskilaust að heita má, að sagt
er, á milli Þjórsár og Ölfusár.
Hettusótt, lungnabólga og kvef
eru veikindi, sem hafa fylgzt að nú
i vetr, mest síðari hlutann; fáir nafn-
kendir dáið, sem ég man; euda hafa
blöðiu flutt það jafnóðum svo ekk-
ert hefir að þýða að skrifa það hér.
Svo vantar nú ekki annað enn ef
bólan færi að geysa yfir á eftir; því
ekki á hún svo langt í land, ef satt
er, sem frézt hefir, að hún sé meðal
botnverpinga*).
Nýströnduð írönsk fiskiskúta á
Stokkseyri, að nafni „Isabelle11; hafði
rekizt á stórtré úti í hafi og komið
leki að henni; orðið því að hleypa
upp. Alhr menn komust lífs af.
Sýslumaðrinn heldr uppboð Mánu-
daginn 25. þ. m. á ýmsum farangri
þeirra.
E. R. „Nýja Öldin“ ætti að kom-
ast inn á hvert einasta heimili; því
að hun er blað, sem er gagn í; hún
flytr heldr ekki neiuar „húmbug11-
gremar eins og sum blöðin hin.
Að austan. — Er. Zeuthen læknir i
á Eskifirði hefir sótt um lausn frá j
embætti. — Veðrfar á Austfjörðum !
virðist hafa verið ágætt í Apríl, blið-
*) Pað er flugufregn, sem betr fer.
Ritstj.
ur og stundum rigningar. Á Sum-
ardaginn fyrsta 13 stiga hiti á E. í
skugganum á Seyðisfirði. — Um
miðbik mánaðarins góðr afli, svo að
enda varð stundum að afhöfða. Eiski-
lítið og gæftalítið síðast í mánuðin-
um. (Eftir „Bjarka11). — f Hjálmar
Hermannsson á Brekku í Mjóafirði
andaðist nær áttræðr 24. þ. m.; hann
var sonr ins víðkunna merkismanns
og ættsæla mikilmennis Hermanns
í Firði. Hjálmar var frábær dugn-
aðarmaðr, atorkusamr og hygginn.
Mátti óhætt telja hann meðal fremstu
bænda hér á landi.
— f Erú Lára Sveinbjarnardóttir,
eiginkona séra Ólafs Halldórssonar
á Þingholti í Mjóafirði lézt af tær-
ingu 9. Apríl.
Að vestan. — „Þjóðv.11 segir oft-
ast stilt, en heldr kalt veðr á Isaf.
fyrri hlut Apríls. Svo austnorðan-
garð með snjókomu 17., en síðan
blíðviðri, oftast leysing. — Hafís
rak ínn á Bolugarvíkrmið eftir Páska,
en hvarf frá aftr. Hvalveiðamenn
segja hann þó skamt undan landi.
— 2 eyfirzkar fiskiskútur strönduðu
17. Apríl í Smiðjuvík á Ströndum.
Brotnuðu 1 ís, en skipverjar björg-
uðust til lands á jökum. — Afla-
laust að kalla fram til Sumardags
fyrsta; en um síðustu vetrarhelgi
gekk fiskr inn á instu Bolungavíkr
mið, og síðasta vetrardag kom hann
inn í Djúp. Hlaðafli í Huifsdal og
Höfnuin, og 22.—23. mokafli í Álfta-
firði og Seyðisfirði, „norðanganga,
miðálsganga, sem sjómenn telja
drjúgustu göngumar11. í mánaðar-
lokin, „góðr afli hvervetna í Djúp-
inu“. — Hvalveiðarnar vestra ganga
með lakasta móti þetta vor. —
Sparisjóðr ísafjarðar hefir nú reist
sér hús, sem hann er fluttr i. —
Magnús kaupm. Árnason á ísafírði
hefir keypt af Jak. Thorarensen
kaupmanni verzlunina í Kúvikum
(Reykjarfirði) fyrir 14000 kr. og
selt síðan Ólafi syni Jaltobs hálfa
verzlunina með sér. Kvað Ólafr
verða þar verzlunarstjóri.
Að norðan. „Stefnir11 segir harð-
neskju-veðráttu á Eyjafirði um páslia-
leytið. Erostið varð -t- 15° R. og
lagði Akreyrarhöfn á tveim sólar-
hringum, svo að ríða mátti þvers og
langs. Hlánaði á Laugardag fyrir
Páska og síðan góðviðri. — Sfldafli
upp um ís um Páska leyti, en ann-
ars aflalaust.
Úr höfuðstaðnum.
— Bœjarstjórnarfundr 21. April.
— 1. Eormaðr tilkynti bæjarstjórn-
inni svarbréf landshöfðingja upp á
umsókn bæjarstjórnarinnar um þátt
í fé því í fjárlögunum, sem ætlað er
til jarðubótalána handa sveitafélög-
um, er aftr láni einstökum mönnum;
veitti landsh. 2000 kr. af fé þessu
með nánari skilyrðum, sem talin eru
í brófinu. Ákveðið að auglýsa að
menn hér í bænurn gætu fengið þátt
í þessari lánsupphæð í tilætluðu skyni
með inum ákveðnu kjörum og að
bónarbréfin yrðu að sendast stjórn
jarðræktarfélags Reykjavikr. — 2.
Eorm. las bréf amtm. í S.-umd. um
skiftingu á þurfamannaflutningskostn-
aði milli höfuðstaðarins og K. & Gr.
sýslu, þar sem hann beiðist álits
bæjarstjórnarinnar um það, hve mik-
inn hlut af kostnaði þessum skuli
greiða úr bæjarsjóði 1897 og skýrir
frá, að eftirleiðis yrði að fara eftir
ákvæðum opins bréfs 17. Apr. 1868
án tillits til venju þeirrar, er liingað
til hefir verið, að kaupstaðrinn
greiddi allan sjóvegsflutning, ensýsl-
an landvegsflutning. Eormanni falið
að svara bréfinu í samráði við Pjár-
hagsnefndina, ef honum þykir þurfa.
— 3. Erindi frá Einari garðyrkju-
manni Helgasyni, er býðr aðstoð
sína til að skreyta bæinn með jurta-
gróðri, einkum Austrvöll. Vega-
nefndinni falið að láta hreiusa gang-
inn við Austrvöll og gera það sem
þarf til þess að halda við grasinu á
Austrvelli í samráði við Einar Helga-
son, en kostnaðr greiðist af óvissum
gjöldum bæjarins. Að öðru leyti sá
bæjarstjórnin sér ekki fært að taka
til greina tilboð Einars Helgasonar.
4. Ólafr Ámundason verzlunarstjóri
æskir leyfis til að afgirða suinar-
langt til hestaréttar Qöruna fyrir
neðan Brydes-stakkstæði, eins og í
fyrra. Vegan. falið að úthluta svæði
í fjörunni í þessu skyni ef hún og
bæjarfógeti sjá ekkert til fyrirstöðu.
— 5. Beiðni frá Jóni Jónssyni
á Lækjarbakka um 3 dagslát-tur til
túnræktunar við Eúlutjarnarlæk, öðru
hvoru megin norðanvert við þjóðveg-
inn. Sömuleiðis lögð undir sam-
þykki bæjarstjórnarinnar útmæling
undir hús handa sama austanvert
við Eúlutjarnarlæk, er byggingar-
nefnd hefir framkvæmt. Bæjarstjóm-
in vildi hvorugt veita. — 6. Bruna-
bótavirðingar samþyktar: Húseign
landsbankans við Laugarnar (Lauga-
land) 2695 kr., og þvottahúsið við
Laugarnar 1250 kr. Hús Eiríks
Bjarnasonar við Vonarstræti 5470 kr.
Skúr við hús Páls vegfræðings Jóns-
sonar 105 kr. — 7. Stjórn Reykja-
víkr klúbbs leggr til við bæjar-
stjórnina að hún gangist fyrir ávarpi
til konungs á 80. afmæli hans eða
leggi að öðrum kosti fé til kostnað-
ar við útbúning ávarpsins. Bæjar-