Nýja öldin - 11.06.1898, Page 2
194
istýj'a. öXjiXDXjkt
kemr út hvern Laugardag
(og oft endrarnœr, alls 72 tölbl. um árið).
Kostar innanlands 3 kr. 50 au. árg. — 90 au.
ársfjórö. (3 mán.). — Erlendis 4 kr. 50 au. —
5 sh. — doll. 1.25 — árgangrinn.
Ábyrgðarmaðr:
Jón Ólafsson,
Laugavegi 10.
Aðal-umboðsmaðr blaðsins, SlgurOr Krist-
JAicsson bóksali, annast söluog útsending.—
Afgreiðslustofa uppi yfir Landsbankanum.
Prentuð í Félagsprentsmiðjunni.
oftast verður landsímanum til bilun-
ar, og hefir þá þekking á eðlishátt-
um jökla, sem hver mentaður maður
hefir, sem lesið hefir góðarjarðeðlis-
lýsingar (physical geography), og ekki
sízt . hafi maður átt kost á að sjá
skriðjökla, þá er það nægt til þess
að geta felt þann óræka dóm, að
þótt auðið só að öllum líkindum að
leggja ritsíma yfir jöklana hak við
Skaftafellssýslur, þá er hitt eins ó-
efað, að síminn stæði þar örstutt,
og að þegar hann bilaði, mundi það
oftast taka fram undir ár að komast
að því að gera við hann.
Af hverju bila landsímar yfir höf-
uð ? — Af því að þeir slitna. En
það gera þeir langoftast af því, að
stengurnar, sem bera símann, falla
um koll fleiri eða færri, einkum aí
ofviðri. Liggi nú síminn yfir jökul,
þá getur bráðnað svo frá stöng, þótt
hún sé grafin í jökul, að hún losni,
og þá skekkist hún eða fellur. En
auk þess mundi hreyftng sú, sem er
á sjálfum jöklunum, iðulega strengja
svo simann, að hann slitnaði. Þótt
síminn sé lagður yfir jökullausa jörð,
þá vita allir, að stengur, sem grafn-
ar eru niður í jörð, losna og skekkj-
ast við frost og leysing þess; geta
og skekst, losnað og enda brotnað í
aftaka-veðrum, og þá slitnar síminn.
Hve lengi er verið að því að bæta
slitinn ritsíma? Hvert slitásjálfum
simanum (þræðinum) má bæta á til-
tölulega fáum mínútum eftir að á stað-
inn er komið með áhöldum; að reisa
hvern fallinn staur eða setja upp
nýjan, er heldur ekki ýkja-langrar
stundar verk eftir að á staðinn er
komið með öll áhöld.
Hve lengi er verið að gera við
hverja símbilun, er því að visu að
nokkru leyti komið undir, hve naikil
bilúnin er, en langmest undir þvi,
hve greiðfært er að komast þangað,
sem bilunin er.
Améríka er með kóflunt vist einna
strjálbygðust þeirra landa, sem sími
liggur um. En sú er þar bótímáli,
að síminn er hvervetna lagður frain
með járnbrautunuin (nema að eins i
borgum inni). Sími er hvergi nema
fram með járnbraut, og engin járn-
braut er sú, að ekki liggi sími henni
samhliða. Bili því síminn, þá er
fljótgert að komast til bilunarstaðar-
ins á járnbrautinni. Á hverri járn-
brautarstöð er einnig ritsímastöð, og
einn maður eða fleiri, sem kunna að
gera við síma, ef hann bilar. £>að
kemur oft fyrir að símar bila; stund-
um af eldi (skógeldi, sléttueldi; hús-
bruna í borgum), en einkum iðulega
á vetrinn í ofsaveðrum. Sé þá fært
um brautina, líður ekki á löngu áður
en bilunin er bætt. En sé þá ófærð,
svo að eimlestir komist ekki um
brautina, verður bilunin að eiga sig
þangað til færi verður svo, að kom-
ist verði til hennar með nauðsynleg
áhöld.
Liggi nú landsími hér á landi um
bygð, gæti þó oft liðið nokkuð þang-
að til bætt yrði bilun, ef svo bæri
undir, því að ekki munum vér geta
haft birgðir af málmþræði og öðr-
um áhöldum liggjandi á hverjum bæ,
né eiga kost hvervetna á mönnum,
sem gert geti að og tekið þá skyldu
að sór að gera að hverri bilun. Enda
getur veður verið svo að vetrarlagi,
að dögum saman sé ekki úti vinn-
andi.
En liggi síminn yfir fjöll og firn-
indi, þá getur hver maður sagt sér
sjálfur, að það geta liðið vikur, að
vór ekki segjum mánuðir, þangað til
auðið er að brjótast í ófærð upp i
óbygðir með þungan flutning (málm-
þráð, staura, ef til vill marga o. s. fr.)
til þess að komast á staðinn, þar
sem bilunin er, og gera við hana.
Island verður víst, þegar það fær
landsíma, eina landið % heimi, sem
hefir langar landsímalagningar án járn-
brauta eða nokkurra annara vega fram
með símalínunum.
Hvenær sem landsími bilar hér hjá
oss, megum vér því búast við, að
símasambandið slitni hér um lengri
tíma en títt er nokkurstaðar ann-
arstaðar í heimi.
Að bilanir muni koma hér fyrir á
landsíma engu siður en annarsstaðar
í heimi, er auðvitað, og við hverja
slíka bilun verða einhverjir hlutar
landsins (smærri eða stæm eftir því
sem á stendur) að slitna úr síma-
sambandi við umheiminn. Þá er
spumingin, hvort er eðlilegra, að fyr-
ir því verði ýmist hinir eða þessir
þýðingarminni staðir út, um land, eða
að það verði höfuðstaður landsins?
Og má þá ekki gleyma þvi, að liggi
þráðurinn upp á Austurlandi og endi
hér í Reykjavík, þá verður það
Reykjavík, sem ávalt missir sam-
bandið við umheiminn, hvenær sem
landsíminn bilar, og hvar sem bilun-
in verður.
Verði þráðurinn aftur lagður upp
í Herdisarvík (sem líklegust mun
vera til þess), þá er örskamt þaðan
yfir land hingað, og sá vegur greið-
fær á öllum tímum árs. Reykjavik
hefði þannig ýtrustu trygging fyrir
óslitnu símasambandi við útlönd árið
um kring. Og Reykjavík er aðset-
ursstaður innar innlendu stjórnar
alls landsins, og komið gæti það fyr-
ir, að það gæti komið landinu illa
að „in æðsta stjórn íslenzkra mála“,
sem föðurlandsást „Bjarka11 er svo
umhugað um að halda kyrri í Höfn,
só slitin úr sambandi við höfuðstað Is-
lands. Eða á það kannske að vera
ein aukablessun valtýskunnar ?
Reykjavík hefir mest viðskifti við
útlönd allra bæja á landinu, og mest
viðskifti við alla landshluta innan-
lands, bæði verzlunarviðskifti og
stjórnleg viðskifti. Reykjavík er eini
kaupstaðurdandsins, sem jafnan hef-
ir Ísfria höfn og því sjálfkjörin til
að verða heildsölu-forðabúr landsins
undir eins og hún kemst í simasam-
band við heimsmarkaðinn. Reykja-
vík hefir beinastar, greiðastar og
hraðastar samgöngur við alla lands-
hluta, og sé landsími bilaður, ,þá
komast bréf lang-hraðast og örugg-
ast þaðan út um alt land.
Alt þetta veldur því, að enginn
einn staður annar á íslandi liggur
jafn hagfeldlega fyrir alt landið í
heild sinni.
Auðvitað kemst landsimi á, þótt
sæsíminn liggi hingað1, og aðrir
landshlutar fá hans því öll þau not,
sem auðið er af honum að hafa.
Hvað til þess kemur, að Bjarki
getur ekki hugsað sér annað en að
það liði mannsaldur áður, er ekki
gott á að gizka. Vér sjáum ekki,
að það þyrfti að taka lengri tiina að
leggja laudsíma frá Reykjavík til
Austurlands, en að leggja hann frá
Austurlandi til Reykjavíkur. „Aftur
og fram er leiðin jafn-löng“, eins og
Ihsen segir.
Það er ekki svo mikið um, að
Bjarki geti haft rótt eftir það sem
Dr. V. G. hefir skrifað upp til ís-
lands um málið. Bjarki segir, að
„Norræna málþráðafélagið miklamuni
fáanlegt til að leggja“ landsíinann,
ef það fái vissu fyrir „100 þúsund
eða lítið á annað hundrað þúsunda
króna styrk frá Islands hendi“. —
En Bjarki segir þetta ósatt.
Dr. V. G- hefir skrifað svo:
„Við rannsókn reyndist svo við
lauslegd1 áætlun, að landlínur þær,
sem ég vildi fá (frá Austurlandi til
1 *) Annaðhvort ritslmi eða málsimi (tele-
fón), eins og Hj. Siy. bendir á i „íslandi“
siðasta og vér höfðum þegar áður bent á.
*) Auðkent af Dr. V. G. sjálfum.