Nýja öldin - 11.06.1898, Qupperneq 4
196
greiðlega að hafa saman liðið og
seint að æfa það.
Stjórnartíðindi.
— Braðabirgðalög hefir konungur
út gefið um að banna þegnum sín-
um á íslandi að veita lið Spánverjum
eða Bandaríkjamönnum.
— Þingeyjarsýslu hefir konungur
veitt 5. f. m. Steingrími Jónssyni, sett-
um sýslum. þar.
Landshornanna á milli.
— JEngan ís varð „Vesta“ vör við
neinstaðar. — Blíðviðri á norðurlandi j
og austurlandi.
Árnessýslu 8. Júní 1898. — Nú
er kominn væta eftir hér um hil
þriggja vikna norðanbál, og var orð-
in sannarlega þörf á dögg til að
væta jörðina; því hún var orðin afar-
óholl fyrir fénað og að öllu leyti
framfaralaus; þetta þurviðri hefir
því verið ágætt upp á sauðburðinn,
og hefir hann því gengið heldur vel,
miklu betur en maður gat búist við.
Geta má þess, að það er kominn
nýr kaupmaður á Stokkseyri, að nafni
Copland, og hefir hann keypt verzlun
Jóns Þórðarsonar kaupmanns í R.-
vik, sem hann átti þar austur frá, og
óskar margur, að hann bæti eitthvað
fyrir verzluninni í ár, enda heíir
það frétst að hann ætli að selja einum
eyri ódýrara hvert korn-pund, heldur
en Lefoliis verzlun á Eyrarbakka.
Eu jafnframt þyrfti þessi nýi kaup-
maður að fá sér betri búðarsveina,
heldur en hafa verið við þá verzlun
að undanförnu; því að mér er óhætt
að segja að undirkaupmaðurinn þar
er alment ekki sem bezt látinn,
helzt sakir þess, að það er oft
margt verðlagið sama dagin á sama
hlutnum, og kemur það sér mjög
illa; fyrst og fremst kemur það ó-
orði á kaupmanninn og verzlunina
yfir höfuð, og svo hylla menn (hverj-
ir sem það eru) ekkert að sér fólk
með slíku framferði.
Þjóðminningardag á að halda hér
f sumar fyrir þessa sýslu; og er á-
formað að sú hátíð verði Snnudag-
inn 10. Júli, fyrir utan Stóra-Ármót
hér í Hraungerðishreppi. Þar verða
ræður haldnar, hestar reyndir, kapp-
hlaup og glímur, og hyggja því marg-
ir gott til þess dags; því að tilgang-
urinn að þessu fyrirtæki er að vísu
góður, til að létta fólki dálítið upp,
og hrista af sér mókið og deyfðina
sem á mörgum manninum hvílir. En
einn galli finst mörgum vera á þessu,
en það eru þær sníkjur og leiðinda-
betl, sem því fylgir, því að hverjum
sýslunefndarmanni var falið á hend-
ur að safna peninga-samskotum f sín-
um hreppi til verðlaunanna; og hefir
það víst gengið illa sumstaðar, enn
sem komið er, sem er næsta von,
þvi að bændur hafa annað við sína
peninga að gera, heldur en kasta
þeim út fyrir hálfgerðan óþarfa. Eg
veit það, að sumir má ske segja svo,
að það muni engan um fáa aura og
það er að vísu satt, að það er betra
að gefa þá til þessa fyrirtækis, held-
ur en að kaupa sér á flöskuna fyrir
þá, eins og oft vill verða, að það er
látið sitja í fyrirrúmi. En það er
annað, að úr því verðlaun eiga að
vera, að þá finnst mér rétt að vinnu-
hjúin hlaupi nú drengilega undir
bagga, og láti krónur og aura af
hendi rakna til samskotanna, það er
engum áskorðað hvað hann gefi mik-
ið*. Eyrir þjóðminningardeginum
standa: séra Ólafur Helgason á Stóra-
Hrauni, Símon bóndi-Jónsson á Sel-
fossi og Eggert Behediktsson bóndi
í Laugardælum.
Það getur skeð að ég sendi „N.
Ö.“, ef ég hef tíma til, fáar línur
eftir þennan hátíðisdag, sem fréttir
af fyrsta þjóðminningardegi okkar
Árnesinga.
Or höfuðstaðnum
Bcejarstjórnarfundr 20. f. m. —•
1. Ealið vegan. að verja alt að 300
kr. af fé þvi er til hreinlætis er
veitt, til þess að reisa salerni og
mígindi (pissoir) fyrir almenning. Af
hreinlætisfjárveiting skal og taka
það fé, sem þarf til að halda hrein-
um þarfindahúsum þessum. — 2.
Launabótar-mál Þorv. Bj. lögrelgu-
þjóns til 2. umr. Samþ. till. fjárhags-
nefndar að fresta málinu þar til
samin verður áætlun næstafjárhags-
tímabils. — 3. Tveim lóðarbeiðslum
(Odds Halld. undir skúr, og Sam.
01. undir hjall) vlsað til byggingar-
nefn. - 4. Samþ. brunab.virðingar:
hús Torfa Vigfússonar 1940 kr.;
Sveinbj. Björnssonar 1G60; Magnúss
Vigfússonar 1207 kr.; — 5. Birt að
afgirt hafi verið á landssjóðs kostn-
að land Lauganesspítala.—• 6. Birtur
úrskurður amtmanns, að fatækraflutn-
ingsg]ald Bvikur 1897 skuli vera 30
krónur. — 7. Samþ. eftir óskvegan.
að verja megi alt að 150 kr. til að
girða og þurka Kringlumýri. —
Jón landritari Magnússon, settr bæ-
jarf., stýrði fundi í fjærveru form.
— Allir á fundi nema Ól. Ól. og
Magn. Benjamínsson.
*) Handhægt ráð til að fá dálítið til
að létta verðlaunskostnaðinn, er það, að
láta hvern, sem keppa vill um þau,
greiða ofurlítið gjald. — Peir sem vilja
geta og gefið smíðisgrip eða aðra muni
til verðlauna. Litlar, snotrar silfur-
medalíur (með ágröfnu letri) eru vel
valin verðlaun oft. Ritstj.
— Dánir. 19. f. m. Þorkell sonur
Þórðar Guðmundssonar (fyrl „Glas-
gow“). —- 20. f. m.: ungfrú Sigríður
Símonardóttir hér í bæ. Stúkan
„Einingin11 (Ó. R. G. T.), sem hún
var meðlimur í, gerði útför hennar.
— Rausnarlega gerði G.-T.-stúk-
an „Einingin“ við unga systurstúku
á Sauðárkróki, sem er að reisa sér
hús — gaf henni 50 kr.
f Emil H. Chr. Tvede lyfsali and-
aðist hér í bæ 8. þ. m. 34 ára gl.,
eftir langa og þunga legu, mjög vin-
sæll maður og vel látinn. Hann
var af ætt (sonarsonur ?) Tvede, er
sýslumaður var í Múlasýslu,
vinnur ull fyrir menn fljótt og vel.
Afgreiðslumenn eru:
t Rvík: kaupm. Jón Þórðarson
— Akran.----G-uðm. Ottesen
— Borgarn. verzl. Borst. Einarssou.
Ullarsendingar með strandferða-
skipunum merkist skýrt:
Verksmiðjan Álafoss.
pr. Reykjavík.
auk nafns eiganda.
Frekari upplýsingar gefur
Halldór Jónsson
[69—2 s. jl. 2 s. ág.J Álafossi.
Nýkomnar vörur
í verzlun Ben. S. I’órarinss.: ágætur
ostur, ltirsotocrj a
saft, Itanol, pip-
ar, G-amli .Oarls-
berg' aftappaður í Khöfn og
margar tegundir af
myndarammatré.
Nýútkomið er:
frá Vogi.
Ljóðmælasafn þetta er 136 siður
í stóru 8 bl. broti, mæta-vel vandað
að prentun og á ágætan pappír. í
því eru andlitsmyndir af höfundin-
um og af dr. Kuchler, og einnig
tvær landslagsmyndir frá Þýzka-
landi á heilli síðu hver.
Kostar £3 ítrónur og
fæst í Reyltjavik hjá höfundinum
og bóksölnnum. [70].
Við HarmÓBÍkur
gerir Jón Magnússon (hjá Hirti
snikkara, Þingholtsstræti 21). [71.
Tvö blöð í
næstu viku.