Freyja - 01.08.1900, Page 17
FREYJA
141
NOKKUR ORÐ UM BINDINDI.
[Aðsent j
Lö" þau er samþykkt vora á síð-
íista Manitóba þingi eru kölluð sigur
fyrir bindindis sinna. M& vera að
evo sé. En fullur sigur er það ekki,
jneðan hægt er að kaupa Afengi,
hvað sem þ<ið nú kostar. Og & með-
an það er selt og keypt, heldur það
áfram að vera freisting á vegum
ungmenna vorra.
Sé hægt að koma í veg fyrir þetta,
er eiginlega allt fengið.
En til þess að koma I veg fyrir
það, er tvennt nauðsynlegt. Hvortu-
tveggja máske mögulegt, en annað
óbrvgðult.
Hið fyrra er að afnema vfn með
öllu, hið sfðara, að vernda börnin frá
áhrifum þess.
Sé liíð fyrra mögulegt, er hlð síð-
ara sjálfgjðrt.
En sé því ekki þannig varið, og
hið fyrra sé ómögulegt eða eigi langt
f land, þá er hið síðara eini vegurinn
til að útrýma cfdrykkju, og hennar
ekaðlegu afleiðingum, Og er þá
sjálfsagt að byrja á börnunum.
Alþýðuskólarnir gjöra nokkuð til
þess, með því að kenna þeim skað-
semi áfengra drykkja fyrir heil-
brygði Iíkamans.
Það væri ekki nerna sanngjarnt
aðoetlast til þess, að sunnudagaskól-
arnir gjðrðu sitt bezta til að innræta
börnunum bindindi frá siðferðislegu
sjónarmiði. Yfir höfuð ættu leiðtog-
ar kristni og kyrkju að vera börn-
unum óhneykslanleg fyrirmynd fþvf
efni, þar sem þeir gefa sig sérstak-
lega út fyrir siðapostula, og hafa
fiestum betra tækifæri til þess. Og
síðast en ekki sízt, ætti það að vera
áhugamál Good templara stúknanna
að ná undir sín merki ungdóminuin
meðan hann er enn þá ósýktur af
ofnautn áfengra drykkja. Á ung-
dóminum byggist framtíð bindind-
isins, eins og allra annara framtfðar
málefna.
Bindindisvinirnir eiga að vera vak-
andi einsog hverjar aðrar heilbrygð-
isnefndir. Vakandi og reiðubúnir á
öllum stöðum og tímum til að verja
útbreiðslu þessa óvinar. Fyrsta og
óbrygðulasta meðalið til þess, er að
hafa sem flestar og fjölmennastar
barnastúkur, og vinna af alefli að
útbreiðslu og viðhaldi þeirra. Þá
yrðu hinar eldri stúkur aldrei
mannfáar. Og sé ungtemplara
stúkunum rétt stýrt, svo þær nái til-
gangi sínum, þeim tilgangi, að
kenna börnunum skaðsemi vfn-
nautnarinnar fráöllum hliðum. Láta
börnin fá viðbjóð á ofdrykkjunni,
og er enginn hlutur betur til þess
fallinn, en að sýna þeim mann í því
allra vesælasta ástandi sem ofdrykk-
junni er samfara.Hræra hina fínu og
viðkvæmu strengi barnshjartans
til meðaumkunar við manninn, »em
orðinn er þræll ofdrykkjunnar. Því
allir sem hafa óskerta sómatilflnning
og nokkra sjálfstaiðislöngun, hryll.
ir við þeirri tilhugsun, að. vera við-
bjóðs og meðaumkunar efni annara.
Þá á bindindið sigurinn vísann með
tímanum, hversu slæglega sem lög-
in eru úr garði gjörð, og hversu sem
kring um þau verður farið.
BINDINDIS VINUR.