Alþýðublaðið - 13.03.1920, Side 2

Alþýðublaðið - 13.03.1920, Side 2
2 ALf*ÝÐUBLAÐIÐ væri ekki eins herfilega hirðulaust og þaS er. Því þó til séu heiSar- legar undantekningar, þá er þaS visl, aS margt fólk hefir nó sýnt ófyrirgefanlegt tómlæti í því, aS liefta títbreiSslu veikinnar. ÞaS aem mest á reiS, ef nokkurs las- leika varS vart, var aS fá læknir til aB tírskurSa, hvort um inflú- «nzu væri aS ræSa eSa ekki, ef avo var, átti auSvitaS aS sóttkvía. En einmitt ótti viS þau litlu óþæg- índi, sem af því myndu leiSa, liefir komiS fólki til aS sækja ekki læknir. ÞaS er gamla sagan, hugsa bara um sjálfan sig, en -ekkert um afleiSingar gjörSa sinna gagnvart öSrum. Og gæti fariS -svo, aS stí ábyrgð, sem fólk tekur aér á herðar með slíku háttalagi, yrði ærið þung, því enginn getur sagt um, hverju slíkt kann að valda. Það er ekki nóg að fólk -hugsi sem svo, að veikin breiðist tít hvort eð er. Það er um að gera að tefja fyrir henni. Og ef til vill hefði mátt lánast að eyða henni með Öllu, ef aðeins væri við samviskusamt og skynsamt fólk að eiga. Eg vil nú alvarlega skora á fólk, að gæta hér eftir þeirrar sjálfsögðu skyldu sinnar, að breiða ntí ekki veikina tít fyrir hand- vömm og hirðuleysi. Ná í lækni, ef um minsta lasleik er að ræða, sem líkst geti inflúenzu, og láta aðra ekki hafa samgang við htís aín, fyr en víst er hver veikin sé. Það mega líka allir vera vissir um það, að fjöldi fólks fylgist með gangi veikinnar, og hvert þaö heimili er sýnt hefir vísvitandi hirðuleysi, verður hlífðarlaust kært til sakar og sóttvarnar. Lögin eru ströng og ábyrgðin gagnvart meðbræðr- unum þung. Gramnr. Um dagion og yegino. Inílúenzan breiðist töluvert tít. í gærkveldi voru 55 htís sýkt og &2 sjúklingar alls. í gær hafði htín breiðst tít með mesta móti, þar eð 21 htís hafði bæzt við. Alstaðar er htín mjög væg ennþá og er jafnvel btíist við, að þettasé ekki stí reglulega inflúenzupest, sem geisaði hér í fyrra, heldur aðeins venjuleg infltíenza. Aug-lýsin g-ar. Auglýsingum í blaðið er fyrst um sinn veitt móttaka hjá Guð- geir Jónssyni bókbindara, Lauga- vegi 17 (bakhús). Sími 286 og á afgreiðslunni á Laugavegi 18 b. Auglýsingaverð í blaðinu kr. 1,50 cm. dálksbr. Samverjinn sendi 63 mönnum mat heim í gær. Úr sóttkví var slept í gær nokkrum af þeim, sem fyrir var- tíðarsakir var haldið inni vegna gruns um inflúenzu, en ekki höfðu sýkst. f dag og á morgun losna fleiri. í sóttkví er fjöldi manna settur daglega, þeirra, sem heim vilja komast. Eru Mentaskólinn, Sótt- vörn og Franski spítalinn notuð til þessa, en hrekkur ekki til. Yestflrðir hafa verið settir í bráðabirðasóttkví vegna þess, að skip héðan hefir haft samgang við firðina eftir að inflúenzan kom hér upp, Auglýsingu, um sérstaka til- högun á samgöngum, milli sýktra, grunaðra og ósýktra landshluta, vegna inflúenzu, hefir stjórnarráðið ntí gefið út. Eru þar, meðal ann- ars, reglur um hvernig ferma skuli og afferma skip. Talsímasaraband við Norður- land kemst aö líkindum á í dag eða á morgun. Fiskiskipið „Milly“ kom inn í gær með 4000 fiskjar. Haíði skipið ekki orðið fyrir neinum áföllum í undangengnum ofsa- veðrum. Egill Skallagrírasson kom í nótt frá Englandi. Erlend ixiynt. Khöfn 8. marz. Sænskar krónur (100) — kr. 124.00 Norskar krónur (100)—kr. 109.75 Þýzk mörk (100) — kr. 7.25 Pund sterling (1) —kr. 22.60 Dollars (100) — kr. 625.00 | Hreinar línur. Jakob sýnir Iit. Flokkaskiftingin hér í bæ er, eins og menn vita, annars vegar auðvaldsstefnan með Morgunbl. í broddi fylkingar, hins vegar alþýðu- stefnan, sem hefir Alþýðublaðið fyrir málgagn. En utan þessara flokka er enn þá fjöldi manna, þc að stöðugt minki sá hópur. Vísir,. sem við öll tækifæri heldur fram meira eða minna grímuklæddri auðvaldsstefnu, hefir leitast við að hæna að sér flokksleysingja í bæn- um, með því að þykjast berjast fyrir „almennum, frjálslyndum skoðunum“(!), sem hvorki heyri undir alþýðustefnu né auðvalds- stefnu. Það var tilgangur minn meö greininni: „Það kemur engum við“, að fá hreinar pólitískar línur, með því að koma fram með mál, þar sem annars vegar væru bersýni- legir almennings hagsmunir, en hins vegar einungis hagsmunir auðvaldsins, og knýja ekki aðeins Morgunblaðið, heldur líka hið póli- tiska viðrini Jakob Möller, ritstjóra Vísis, til þess að taka opinberlega afstöðu. Eg hélt því fram, að al- menningur ætti að hafa eftirlit með stjórn atvinnuveganna, þar sem einstaklingar hefðu stór- atvinnurekstur. Þetta eftirlit væri ekki það sama og ef landstjórnin tæki undir sig allan atvinnuiekst- ur, heldur að mismunandi skorður yrðu settar við misbeitingu þess valds, sem einstaklingar hafa nú sem umráðamenn framleiðslutækj- anna, alt eftir ástæðum í hvert sinn. Ástæðurnar fyrir þessu væru að allir atvinnuvegir landsins væru samfeld heild, sem við yrð- um að sjá um að væri í sem beztu lagj, og lýðstjórn ætti að ríkja jafnt á sviði atvinnuveganna sem á hinu pólitiska sviði. Tók eg til dæmis um hve hættulegt væri að láta stjórn atvinnuveg- anna algerlega afskiftalausa, brall Sláturfélagsins með kjötið og síld- artítgerðarmanna og kaupmanna með síldina, sem valdiö hefði miljónatapi fyrir landið. Tilgangi mínum með greininni er ntí náð. Morgunblaðið tók þeg- ar í stað afstöðu gegn hagsmun-

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.