Plógur - 30.04.1903, Blaðsíða 4

Plógur - 30.04.1903, Blaðsíða 4
28 En þessar konur koma sjaldan út í fjós, og þekkja lítið til meðferð- ar á kúm, en vita þó svo mikið, að „það sem áður hefur gefist vel" er gott og gilt, en það, sem nýtt er og óþekkt (í Rvík), er ó- haýandi. Þetta er í höfuðstað landsins! — Því má ekki gleyma. Um sauðburðinn. Það er sá tími af árinu, sem smalinn þarf að sína einna mesta árvekni og nákvæmni, því margs er að gæta þá, unglambanna og að hálfberum sauðkindum, sem geta farist fyrir vangæzlu eða hand- vömm, ef smalinn er ekki nógu árvakur. Það er tvöfaldur skaði ef ung- lamb ferst. Það er fyrst og fremst lambið sjálft, og svo missist gagn af móðurinni. Smalinn verður að vita hvar hver ær er um sauð- burðinn, og hvernig henni líður. Þó má ekki reka féð mjög sam- an, því það háir því, nema ef illa lítur út með veður. Bezt að ærn- ar séu að öðru leyti sem frjálsast- ar í þeim högum, sem valdir eru handa þeim um burðinn, því ekki ætti að láta geldfé vera með þeim ef þess er kostur. Ekki gerir það lömbunum mikið til, þótt kalt sé, séu þau full og heilsugóð. Er reynsla fyrir því, að lömb, sem handvolkuð eru til muna, verði langrírust og óharðgerð. Óþarfi að láta lömb inn, nema í mjög slæmum veðrum, enda óráð- legt, nema húsin séu því hreinni og loptbetri. Ef ærnar mjólka vel, er gott að mjólka lítið eitt úr þeim eptir burðinn, því sem lömbin leifa; verða þær þá betri til mjólkurs að sumrinu. Eins þarf að hafa gát á því, að toga niður úr spen- unum límið fyrir burðinn, eða mjólka úr þeim, ef til þeirra er fallið. Vantar mikið á, að þessa sé alstaðar vel gætt. Opt fá líka ær illt í júgrin af því, að vanhirða er höfð á þeim um burðartímann. En til hvers er að tala um þetta og annað einsf Við slíku skella menn „skolla eyrunum". Enda margir farnir að hætta við að færa frá, meta lítils sauðamjólkina. Sagt er, að einn af ráðanautum Búnaðarfélags íslands telji bænd- um trú um, að það sé ein bezta kynbótin að færa ekki frál — Z. Arðurinn af því að mjólka kýr með Hege- lundsaðferðinni er býsna mikill- Tilraunir í þessa átt hefi eg gert á 16 kúm í Rvík í vetur og nið- urstaðan orðið sú, að mjólkurauk- inn er peli í hvert mál að með- altali. Ef gert er nú ráð fyrir, að kýrin mjólki í 300 daga (flest- ar mjólka lengur) þá er mjólkur- aukinn 75 þottar á ári úr hverri kú, og þessi mjólk er sex sinnum feitari en önnur mjólk úr sömu skepnu, eptir útlendum rannsókn- um að dæma; líkindi til þess, að

x

Plógur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.