Plógur - 01.01.1905, Blaðsíða 1
PLOGUR
LANDBÚNAÐARBLAÐ
„B6ndi er bústólpi.0 „Bú er landsstólpi.0
VII. árg. Reykjavík janúar 1905. M 1.
Kæru lesendur Plógs,
Um leið og eg óska ykkur öll-
um gleðilegs árs, nota eg tækifær-
ið til að minnast á blaðið.
Plógur er nú 6 ára gamall.
Hann er ekkert stórblað og lætur
ekki mikið yfir sér, en hann hefur
yfirleitt notið hylli lesenda sinna,
annars væri hann fyrir löngu dauð-
ur. En það er a|drei hægt að
gera svo ölhim líki Einn vill
þetta og annar hitt. - - Blöðin
mega aldrei taka mikið tillit til
þess, hvað kaupendunum geðjast
bezt að. Þau verða fyrst og fremst
að vita hvað þau vilja, og fylgja
því svo fast fram. En það sem
þau eiga að vilja, er að franifylgja
því ósleitilega, sem þau vita sann-
ast og réttast, og þjóðfélagsheild-
inni fyrir beztu. En það fer ekki
alltaf saman, að það sé einmitt
það, sem lesendum blaðanna geðj-
ast bezt að, allra sízt fjöldanum.
Og ef það skyldi verða ofan á,
þegar allt kemur til alls, að þau
blöð eigi enga framtíð, sem haldi
sína fyrirfram ákveðnu braut, án
þess að taka tillit til þjóðviljans,
þá tel eg það betra heldur en
hitt, að blöðin einungis lifi afþví,
að aka seglum eptir vindi í hverju
máli, eptir því, sem þeim er kunn-
ugt um, að bezt á við í það og
það skiftið með tilliti til þjóðvilj-
ans. Nei. Plógur skal fyr hætta
tilveru sinni, en að hann svíki lit,
svíki það málefni, sem hann heiur
hingað til barizt vel fyrir, og álit-
ið sina helgustu skyldu, að fram-
fylgja af beztu sannfæringu.
Nýlega hefur Plógur fengið bend-
ingu frá einutn gömlum og góð-
um kunningja sínum, að snúa nú
við biaðinu í tveim þýðingarmikl-
um málum, sem sé í búnaðarskóla-
og gaddavírsmálinu, af því að ó-
hætt sé að fullyrða, að allir skyn-
sömustu bændur séu í þeim mál-
um andstæðir Plóg. — En það sé
mikilsvert fyrir framtíð blaðsins,
eins og annara blaða, að fylgja
stefnu meiri hlutans.
En Plógur fylgir framvegis þeirri
skoðun í þessum málum sem öðr-
um, sein hann hingað til hefur
fylgt. Plógur vill ekki vera nein
„krossrella“ eða „vindhani". —
Og stefna blaðsins er nú sú sama
og þegar það hóf göngu sína fyrst.
— Um þetta getur hver maður
sannfærzt, sem flettir upp í Plóg,
og lítur á framkomu hans frá því
fyrsta.