Plógur - 01.01.1907, Side 3
PLÓGUR.
3
taka að sér allar stofnanir og
allan atvinnurekstur, slá eign
sinni á alt það, er einstakir
menn eiga til framleiðslu. Og
ótal hagfræðingar og þjóðfélags-
fræðingar hafa ritað og rætt um
þessa hugsjón. En því miður
eru margir annmarkar á þessari
fögru hugsjón og hefir því hver
farið sína leið, þótt um það
eitt væri að ræða, að ná sama
marki. Þegar hver vill fara sína
leið, er ekki við góðum árangri
af samvinnunni að búast.
Eínn af mestu andlegum mik-
ilmennum, sem nú eru lifandi,
skáldið og siðabótarmaðurinn,
Tolstoi, er jafnaðarmaður (sóci-
alist) í húð og hár, og éru kenn-
tngar hans í þessa átt, hákristi-
legar, enda er hann vel kristinn
maður, þótt hann tilheyri engu
kirkjufélagi.
»Alþýðublaðið« í Reykjavík
segist bera jöfnuðinn fyrir brjóst-
inu og ætla að flytja kenningar
jafnaðarmanna. En annaðhvort
er það, að þeir, sem standa að
baki þessa Alþýðublaðs, skilja
ekki hugsjónina, sem liggur til
grundvallar fyrir hreyfingu þess-
ari í öðrum löndum, eða þá
hitt, að þeir eru of ókunnugir
háttum, kjörum og félagslífi
sinnar eigin þjóðar, yfir höfuð
að tala. .
»Alþýðublaðið« fer þannig af
stað, með kenningu jafnaðar-
manna, að mér líst ekki á blik-
una úr suðri. Hún kemur í
öfugri mynd.
Egliallastaðhugsjónum jafnað-
armanna, en leiðin,sem eg vil halda
til þess að gróðursetja hana í
íslenzkum jarðvegi, er víst alt
önnur. en mér virðist vaka fyrir
mínum kæru vinum í Reykjavík,
útgeföndum »Alþýðublaðsins«.
(Framh.).
Lýðháskólinn á Hvítárbakka.
1 skólanum eru þessir nemendur í vetur.
í eldri deild:
1. Gísli Nikulásson, Angastöðum, Borgarfj.sýslu.
2. Jón Ivarsson, Snældubelnsstöðum, Borgarfj.sýslu.
3. Júlíus Árnason, Hóli, Borgarfj.sýslu.
4. Rannveig Hansdóttir, Hrólfsstöðum, Skagafj.sýslu.
5. Þorsteinn Þorsteinsson, Húsafelli, Borgarfj.sýslu.
í yngri deild:
1. Árni Þorsteinsson, Örnólfsdal, Mýrasýslu.
2. Ásdis Ólafsdóttir, Hattardal, Isafjarðarsýslu.
3. Ásgeir Hjálmarsson, Hvítárholti, Árnessýslu.