Plógur - 01.01.1907, Side 6

Plógur - 01.01.1907, Side 6
6 PLÓGUR. ungis hugsuð ögn — stærðfræð- islegur depill. Ef vér hugsum oss að vér svo getum safnað öllum þessum óendanlega smáu ögnum í eina heild, þá verður hún eins stór og ögnin var, áð- ur henni var sundrað. En þótt vér gætum safnað í eina heild í huganum ótal stærðfræðislegum deplum, þá yrði hún þó aldrci sýnileg — einungis stærðfræðis- legur depill — hugsuð ögn, því að vekkert kemur af cngn«. Demókrítos heldur því fram, að þessar frumagnir, sem al- heimurinn ergerður úr, hafistærð, þyngd, en séu þó óskiftanlegar. Upphaf og endir alls í náttúr- unni stafi frá þeim breytingum, sem frumagnirnar verði fyrir og niðurröðun þeirra innbyrðis. í andrúmsloftinu segir hann, að þessar frumagnir séu smæn’i en annarsstaðar í tilverunni. Þegar maðurinn andi loftinu að sér, þá berist þær í lungun og það- an um allan líkamann. Þessar frumagnir eru sál mannsins. Epikuros heimspekingur (f. 340 f. Kr.) fylgdi skoðun Demókrit- osar en bætti ýmsu við kenn- ingar hans. Kenning Epikúros- ar er sú, að frá eilífð haíi verið »tómt rúm«, auður endalaus geirnur. En í þessu tóma rúmi voru þó til ótal frumagnir, sem höfðu stærð, þyngd og ákveðinn skapnað. Af því að þessar frum- agnir höfðu þyngd, hreyfðust þær í byi-jun með jöfnum hraða niður í hið tóma rúm. Af tilviljun hreyfðust frumagnirnar frá lóð- rétti'i braut og lenti þeim því saman. Afleiðingin af þessari gagnkvæmu snertingu frumagn anna varð sú, að þær lentu í einni bendu, hi'ingiðu, og mynd- aðist þannig heimurinn af til- viljun í þessari hríngiðu. Sál mannsins er ódauðleg, því að dauðinn er ekki annað en dreifing frumagnanna. Guðii'nir eru ó- tal margir og hafa þeir skapn- að manna, en líkami þeirra er gerður úr hinum smá- gjörðustu frumögnum. Þeir búa í rúmi því, sem er á millihim- inhnattanna, ei'u ódauðlegir og liarla sælir. Lucretius, eitt af höfuðskáld- um Rómverja (f. 99 f. Kr.) hefir samið bók þá er nefna mætti á íslenzku: „Um náttúru hlutanna". Hann fylgir kenningu Epikúros- ar. Á þeim grundvelli byggir hann upp alla tilveruna, og skil- ur upphaf og endi, líf og dauða, hreyfing og kyrð. Á miðöldunum lá þessi frum- agnakenning að mestu leyti í þögn. Þá var lítið hugsað um vísindi, önnur en þau, sem vel samrýmdust við rit kirkjufeðr- anna, biblíuna og bréf páfans. Sá var hver villutrúarmaður talinn, sem lét í ljós sjálfstæða skoðun á lögmáli náttúrunnar. Þegar nýja öldin rann upp, með morgunroða menningar- innar, fóru hugsandi menn álfu

x

Plógur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.