Plógur - 01.02.1907, Síða 8
16
PLÓGUR.
Vér höfum í áskorun vorri um samskot til Ingólfs-
myndar aðallega snúið oss til Reykvíkinga, en höfum
nú orðið varir við nokkra óánægju út af því, víðs-
vegar um land. Óska menn að allir landsmenn í
sameiningu reisi mynd Ingólfs, og kannast forgöngu-
mennn samskotanna við að sú ósk sé réttmæt, þar
sem Ingólfur var ekki að eins frumbyggi höfuðstað-
arins, heldur einnig frumbyggi landsins og frægastur
allra landsnámsmanna, eins og Landnáma segir.
Vér snúum oss þvi nú til sérhvers íslendings,
eldri og yngri, karls og konu, með áskorun um að
takast í hendur og leggja fram hver sinn skerf, svo
að líkneski Ingólfs Arnarsonar geti — helzt á komandi
vori — risið á Arnarhóli og talað til Ingólfsniðja
hinu þögula máli um dáð og drengsskap.
Ing'ólf snefndin:
Jón Halldórsson. Knud Zimsen. Magnús Benjamínsson,
gjaldkeri nefndarinnar.
Magnús Blöndahl.
Sveinn Jónsson.