Plógur - 01.03.1907, Blaðsíða 8

Plógur - 01.03.1907, Blaðsíða 8
24 PLÓGUR. Spurningar og svör. 1. Gerir það hrossum ílt—- háir þeim að hýsa þau að sumrinu? (P. J.) Svar: Það getur verið vafa- samt hvort réttara er, að hýsa hross eða láta þau vera úti. Fer þetta eftir ýmsu. Efhross- in hafa mikla vinnu, hafa þau ekki nógan tíma til að éta, ef þau eru hýst. Og ef bithagar eru vondir þá þurfa þau lengri tíma til þess að fylla sig, að velja nýtilegt gras, en þar, sem nóg er af góðum grastpgund- um." Yíðast hafa heimahross svo litla vinnu og góða beit, að betra væri að láta þau vera inni í nátthögum eða kvíum 5—6 tíma áð nóttinni. Þann tíma liggja hross oft, og rápa svo til ógreiða. En taðið undan þeim er líka mikilsvirði. Þó getur svo farið, að áburð- urinn undan þeim, sé ekki jafnmikils virði og sú verktöf, sem stafar af því, að láta hross- in inn og út. Ef unglingar geta hirt hrossin, er lítið annað þaríara geta gert, þá er öðru máli að gegna. 2. Eg á 100 ferh. faðm. garð, sem altaf fyllist af arfa á sumrum. Hvernig á eg að los- ast við þennan óþokka? (P. J.) Svar; Ur því að arfinn er 'einusinni kominn í garðana er annað hægra en að uppræta hann. Moldin öll er full aí arfafræinu, og þótt garðarnir séu reittir vel, kemur arfinn strax aftur. Væri því reynandi að sá ekki í garðinn eitt ár, og lofa arfanum að vaxa dálítið; slá svo arfann vel og brenna honum. Mætti þannig að lík- indum slá garðinn þrisvar að sumrinu. En gæta verður þess, að slá arfann, áður en veruleg fræmyndun byrjar. — Næsta ár eru líkur til, að fá arfa frjókorn hafi falist eftir. En ný arfafræ geta á ýmsan hátt borist í garðinn; en minna kveður að þeim, ef garðurinn er svo vel hirtur. Með moð- salla berst arfafræ í garðana, hvort sem moðsallinn er beinlínis borinn í þá eða óbeinlínis saman við áburðinn. Og allur arfi í kringum haug- ’stæði og matjurtagarða, fæðir af sér fræ, sem annaðhvort beinlínis eða óbeinlínis berst svo í garðana. Þegar garðar eru hreinsaðir (reittir), ríður á að uppræta arf- ann vel, þ. e. taka hverja arfajurt upp með rótum, því að annars vex aríinn upp af rótunum, sem eftir verða í moldinni. Æskan, barnablað með myndum, ritstj. Fr. Friðriksson, fæst hjá Guðnx. Gamalíelssyni. Ritstjóri og ábyrgðarmaönr. Siguröur F*ór61ísson. Hvítárbakka. Gutenberg.

x

Plógur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Plógur
https://timarit.is/publication/38

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.