Alþýðublaðið - 16.02.1927, Síða 1
©effið úf aff AlpýðsafflekkifiMsw
1927.
Kaupdellan.
Reykjavíkurtogarar peir, sem til
Hafnarfjarðar fóru, fengu par
enga afgreiðslu, og sýndu verka-
menn Hafnarfjarðar stéttarbræðr-
um sínum hér í bæ með pessu
samúð á drengilegasta hátt. Það
parf ekki að óttast, að Reykjavík-
urtogarar fái aígreiðslu í Hafn-
arfirði; það pýðir ekkert fyrir út-
gerðarmenn að senda skipin þang-
að.
Félag íslenzkra botnvörpuskipa-
eigenda hefir í dag auglýst við-
bótar-kauptaxta, sem nær til
kvöklvinnu frá kl. 6 e. h. til kl. 10
'le. h., er pað vill greiða með kr.
2,00, næturvinnu frá kl. 10 e. h.
til kl. 6 f. h. með kr. 2,50 og
helgidagavinnu kl. 10 e. h. til kl.
6 f. h. með kr. 2,50. Þetta er blá
helgidagsnóttin, sem við er átt,
en auglýsingin minnist með engu
orði á dagvinnu á helgum dög-
um.
Evlenti sfimskeyfL
Khöfn, FB., 14. febrúar.
Masað um vígbúnaðartakmark-
anir.
Frá París er simað: Stjórnin í
Frakklandi er andvíg pví, að
styðja tillögu Coolidge Banda-
ríkjaforseta um fund til pess að
ræða um takmörkun vígbúnaðar
á sjó, par eð Þjóðabandalagið
starii að undirbúninga alpjóða-af-
vopnunarfundar. Enn fremur tel-
ur frakkneska stjórnin nauðsyn-
legt, að takmörkun herbúnaðar á
sjó og landi fylgist að.
Ætla auðvaldsrikin að siga
Pólverjum á Rússa?
Frá Moskwa er símað: Her-
málaráðherra Rússa óttast, að Pól-
land og Eystrasaltsríkin áformi
að hefja ófrið gegn Rússum með
stuðningi Englendinga. Flokksping
stjórnarflokksins heimtar herinn
efldan.
Khöfn, FB„ 15. febrúar.
Georg Brandes veikur
Georg Brandes er hættulega
veikur. Var hann nýlega skorinn
upp vegna þarmasjúkdóms [sbr.
Alpbl. í gær|.
Striðsæði stórveldanna.
Frá Lundúnum er símað:
Stjórnin í Italíu er andvíg til-
lögum Coolidge Bandaríkjaforseta
um fundarhald viðvíkjandi flota-
málum stórveldanna. Búist er við
pví, að Coolidge reyni að ná
Miðvikudaginn
samningum við Bretland og Jap-
an urn petta mál, án hluttöku
Frakklands og ítalíu.
Járnbrautarslys á Bretlnadi.
Frá Hull er símað: Járnbraut-
arslys varð skamt frá borginni.
Átta menn biðu bana, en fjörutíu
særðust.
Bretar sleipir ákomu.
Frá Hankow er símað: Samn-
ingatilraun peirra O’Malley, full-
trúa Breta, og Chen, utanríkisráð-
herra Kantonstjórnarinnar, virðist
aftur lokið án pess, að nokkur
árangur yrði af.
Innlend tíðmdi.
Akranesi, FB., 15. febr.
Sjóróðrar og heilsufar.
Bátar hafa ekki róið undanfarna
daga vegna gæftaleysis, pangað
til í gær að allir bátar réru og^
fiskuðu ágætlega. Einn bátur, mb.
Víkingur, varð að afhausa til pess
að koma aflanum fyrir. Heilsu-
far gott.
Sandgerði, FB„ 15. febr.
Bátar hafa ekki róið undanfarna
daga vegna slæmra gæfta, en í
gær fóru 3 bátar á sjó og öfluðu
misjafnt, einn dável. í dag er út-
synningur, hvast og ekki sjóveð-
ur, enda engir bátar á sjó. Heilsu-
far dágott.
Skrítinn erlendur frétta-
flutningur.
Dagsetningum skeyta breytt í
„Mgbl.“
12. p. m. barst blöðunum hér
fréttaskeyti um ríkiserfðastappið
í Rúmeníu. Fiutti Alþbl. pað skeyti
sama dag. „Mgbl.“ aftur á móti
birtir skeytið fyrst í dag (mið-
vikud. 16.). Þetta myndi hvar sem
er þykja nokkúð sein fréttaaf-
greiðsla hjá dagblaði. Þó er pað
eftirtektarverðast, að „Mgbl.“ læt-
ur svo, sem skeytið hafi verið sent
frá Khöfn í gær og því eðlilegt,
að það birtist par fyrst í dag.
Það stendur nefn.il. i skeytabálki
með yfirskriftinni „Khöfn, 15.
febr. FB '21.“ þó að það sé sann-
anlega rangt, því skeytið er sent
frá Khöfn 11. p. m. Það væri
nógu gaman að vita, hví „Mgbl.“
er með pennan skollaleik Við les-
endur sína. Er öll framkoma
blaðsins vlð kaupendurna jafnein-
læg? Sé svo, pá er „Mgbl.“ engu
betra en pau erlendu skrum- og
skvaldurs-blöð, sem pað er að
«
16. febrúar.
39. tölublað.
„Daosbrðnaru-menn!
Fundur verður haldinn í kvöld kl. 8 i
Bárubúð.
Fundarefni: Kaupffjaldsmálið.
Mætið allir, félagar! — Félagar einir |fá aðgang.
Stjérnln.
Lágt v e r ð!
Kvensokkar frá 75 aurum. — Karlmannasokkar frá 50 aurum. —
Karlmanna-nærbolir frá 2,25. — Kven-bolir frá 75 aur. — Karl-
manna-ullarpeysur 7,00. — Kven-buxur frá 1,90. —Hlý millipils
frá 4,00. — Karlmanna-frakkar frá 10 kr. — Kven-kápur frá 10
kr. — Sterkar skóreimar 10 aura parið. — Karlmanna-taubux-
ur frá 8,00. — Karlmanna-vetlingar frá 1,00. — Stórir ullar-
treflar frá 2,50. — Flúnel frá 80 aurum mtr. — Hárnálar 4
aura búntið. — Barna-nærföt. — ísaumaðir dúkar. — Smá-
vörur ofl. ofl. — Afsláttur af öllu pessa viku. Þá fer nú verð-
ið að verða lágt.
Vðrnbúðin,
Laugavegi 53. Sími 8^0.
Verkamannastígvél,
Inniskór, Skóhlífar eru í beztu og ódýrustu úrvali í
skóverzlun Jóns Stefðnssonar, Laugavegi 17.
Karlmanna«sokkar
frá prjénastofunni Malín eru seldir hjá Gunnpór-
unni í Eimskipafélagshúsinu, og hjá Eiríki Hjartarsyni
Laugavegi 20 B. (Klapparstígsmegin).
V. K. P. „Framsðkn“
heldur fund fimtudaginn 17. febr. kl. 8 ‘/s e. m. í Ungmennafélagshúsinu.
DAGSKRÁ:
Jón Baldvinsson álpm. talar um þingmál. Auk pessa rætt um ýms fél-
agsmál. Mætið stundvíslega. — Fjölmennið!
St|órnin.
stæla, að pví er til heilindanna og
áreiðanlegleikans kemur. Það er
auðvitað ekki nema smávægilegt í
pessu sambandi, að Averescu
forsrh. í Rúmeníu er kallaður
A'venescu í skeyti „Mgbl.“, en það
er ekkert tiltökumál slíkt í pví
blaði.
sendar með loft-
skeytatækjum.
Undir umsjón hins nofntogaða
brezka sálarrannsóknarmanns, Sir
Oliver Lodge (myncl hans í sýni-
kassa blaðsins), ætla 6 fræðimenn
að gera tilraunir tii að . senda
hugsanir með loftskeytatækjum.
Loka peir sig inni í herbergi, sem
ekkert samband hefir við um-
heiminn, og ætla peir svo að
Hugsanir
Aðvörun!
Eftir 1. marz verða öll sjóklæði
(viðgerð), sem eru eidri en priggja
mánaða, seld fyrir áföllnum
kostnaði.
Sjóklœdagerðin.
r ■
reyna að koma hugsunum sínum í
útvarpið tækjalaust, en auðvitað
eru hugsanirnar ráðnar fyrir fram
og skjalfestar. Tilraunin fer fram
í dag.
„Inflúenzan“ í Svíþjóð
er nú í rénun að pví leyti, að
sjúklingum fækkar. Hins vegar er
veikin nú mannskæðari. Sérstak-
lega hefir hún verið áköf á Lapp-
mörk. („Skánska Socialdemo-