Alþýðublaðið - 25.02.1927, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 25.02.1927, Blaðsíða 4
4 «LBÝÐVBLAÐIÐ Nýbomlð! alls konar emaillevörur svo sem: Skolpfötur 3 kr. Þvottagrindur 2 kr. Þvottabaiar fl. stærðir. Mjólkurfötur fl. stærðir. Mjólkurbyttur fl. stærðir. Gassuðuvélarnar eftirspurðu. o. m. fleira. H. P. Diius. 50 aura. 50 aura. LJúffengar og kaldar. Fást nlls staHar. I lielMslllu kjá Tóbahsverzlnn tslands h.í. EvKeuifi sfiimskeyfi* Khöfn, FB„ 24. febr. Bretar hræddir við Rússa. Frá Lundúnum er símað: Mót- mæli brezku stjörnarinnar út af undirróðri þeim gegn sér, sem Bretar þykjast verða fyrir af hendi Rússa í Kina, hafa verið birt, og hóta Bretar þar jafnvel að slíta stjórnmálasambandinu við Rússa, ef þe|r hætta ekki slíku. Nicaraguariki beiðist yerndar Bandarikjanna. Frá Lundúnum er símað: Við því er búist, að Bandaríkin takist á hendur vernd (protectoraté) yfir Nicaraguaríki. Heíir Dias, forseti í Nicaragua, farið þess á leit við Bandaríkjastjórn. ■Dm dagiaiEs wegÍMn. Næturlæknir er í nótt Kjartan ólafsson, Lækjargötu 4, uppi, síini 614. Alþýðuflokksfundur í Báruhúsinu í kvöld byrjar kl. 8VÍ>. Umræðuefni er fcersla kjör- dcigsins o. fl., og láta flokksmenn væntanlega ekki á sér standa að koma og gera sitt til að verja réttindi sín. — Öllum alþingis- • mönnunum hefir verið boðið á fundinn. Frú Kristjana Hafstein, ekkja Péturs amtmanns Haf- steins, móðir Hannesar heitins Hafsteins og systir Tryggva Gunnarssonar bankastjóra, andað- |ist í gær hér í bænum, rúmlega níræð. Fullur af fiski koin nýlega inn ti! Hafnarfjarð- ar vélarbáturinn, sem keyptur var þangað um daginn frá Siglufirði. Austanpóstur fer héðan á sunnudáginn. ísfisksala. „Eiríkur rauði" seldi í gær afia isinn í Englandi fyrir 1291 stpd. „Munkarnir á Möðruvöllum“ verða leiknir í kvöld, og er að- gangseyrir lækkaður. Guðspekifélagið. Fundur verður í kvöld kl. 8U í Reykjavíkurstúkunni. Éfni: Kraftaverkamern á 4. öld e. Kr. Lik rekið. Lík. Páls Sigurðssonar frá Háfi, er drukknaði í haust á vélbátnum „Baldri", hefir rekið í Knararnesi og var flutt hingað með Suöftr- landi í dag. Frá Seyðisfirði var skeytið „Afli á Hornafirði" í 'þlaðinu í gær sent fréttastöfunni 22. febr. Gleymdist að geta þess. Ppjáffiss* er ,,MjaI!ar“-dropinn. Togararnir. „Þórólfur" kom í morgun af veiðum með 108 tn. lifrar og „Ot- ur“ með 90. Búist er við, að „Njörður" og „Tryggvi gamli“ fari á veiðar í dag. Aflafrétt Línuveiðarinn „Ölafur Bjarna- son“ af Akranesi aflaði í einni veiðiför 140 skippund fiskjar. Hann kom með afiann í fyrra dag til Akraness. Formaðurinn er Bjarni Óiafsson. Skipafréttir. „Lyra“ fór í gærkveldi kl. 8 til Vestmannaeyja og Noregs. Varðskipið „Þór“ kom í morgun frá Vestmánnaeyjum til að fá kol og vistir. í gærkveldi kom salt- skip úr Hafnarfirði með 700 smá- lestir, sem eftir voru, til Hall- grims Benediktssonar & Co., en mest af farminum hafði verið til Hafnarfjarðar. Bifreiðar rekast á. 1 morgun rákust á tvær bif- reiðar á mótum Aústurstrætis og Pósthússtrætis. Brotnaði framhjól á annari þeirra. Síðan tókst svo illa til, er önnur bifreiðin fór aft- ur á bak, að hún rakst á ljós-' kersstaurinn hjá Pósthúsinu og braut hann. För hún þó hægt, og virtist það fremur stafa af öað- gætni bifreiöarstjórans en kæru- leysi, að hún lenti á staurnum. Veðrlð. Frost 1 8 stig. Átt ýmisleg, austlaig á Suðurlandi, fremur hæg. Víðast þurt veður. Loftvæg- isiægð við Suðíir-Grænland, en hæð fyrir norðan island. Otlit: Gott veður; Ollábreœsla á reióhlólism. Það er ekki nóg, að reiðhjól sé kallað gljábrent. LakMð á að halda gljáannm og ekki fara af. ^skið þér að fá reið- hjólið yðar gljábrent og gert við það, þá komið og sjáið reiðhjóí, sem eru gljáhrend. Sjáið og þéi munuð sannfærast um, að Reiðhjólaverkstæðið Örmlnn, Laugavegi 20, simi 1161, framleiðir að eins fyrsta flokks vinnu. Sokkar — Sokkar — Sokkar. frá prjónastofunni Malin eru ís- lenzkir, endingarbeztir, hlýjastir. Veggmyndir, fallegar og ódýr- ar, Freyjugötu 11. Innrömmun á sama stað. Olafur Thors þóttist í gær vjlja draga i efa, að verkamannafélagið „Dagsbrún" kærði sig um næturfriðun. Nú getur hann séð, ef hann er sjá- andi á aniiað en eigin ímyndanir, hver vilji verkamannanna er. Hermannaklœdid ameríkanska — níðsterkt, í reiðföt, drengja- föt o. fl. fæst að eins í Vöru- búðinni, Laugavegi 53, sírni 870. Skúfasilkið, 4 kr. og 80 í skúf- inn. Vörubúðin, Lvg. 53, sírni 870. Vinnukona óskast í vist til 14. maí. Bröttugötu 4 í Hafnarfirði. Lágt verð helzt enn þá á öllum vörum í Vörubúðinni, Laugavegi 53, sími 870. Stúlka óskast í vist hálfan dag- inn. Uppl. í dag og á morgun kl. 5 -9 e. h. í Vonarstræti 8B. -------------------F---•---------- Nœrföt seljast enn með lága verðinu. Sterk tegund frá 5 kr. settið. Barnasokkar í öllurn stærð- um. Barnanærföt með sama lága verðinu. Vörubúðin, Laugavegi 53, sími 870. Saltkjötið a5 Dala-dilkunum bragðast bezt. Verzl. „Örninn“, Grettisgötu 2, sírni 871. Gott íslenzkt smjör og vel bar- inn freðfiskur er við allra hæfi; fæst í verzl. „Örninh“, Grettis- götu 2, sírni 871. Nýkomin stór og góð egg og hvitkál ódýrt. Verzl. „Örninn“, Grettisgötu 2, sími 871. Rjómi fæst i Alþýðubrauðgerð- inni. Verzlið við Vikar! Það verður, nntadrýgst.____________________ Kttsljórl og ábyrgðaniaaður HallbiOiB Halldórsgop,____ Alþýðuprentsmiðjan.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.