Alþýðublaðið - 09.08.1935, Page 1

Alþýðublaðið - 09.08.1935, Page 1
DTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKURINN RI fSTJÖRI: F. R. VALDEMAR3SON 203. TÖLUBLAÐ FÖSTUDAGINN 9. ÁGOST 1935. XVI. ÁRGANGUR I»að er hagkvæmt að gera kaupin í KAUFFÉLAGI REYKJAVlKUR. Landráðaskrií fhaldsmanna verða rannsðknð og stððvuð. BlððU0 bornarastvriðld ð Frakklandi Lavalstjórnin ©r þegar á undanhaldl Frunavarp nm oplnbera fréttastotn ríkisins, er annast fréttasendingn frá Bandinn og ðflnn erlendra frétfs, verðnr lagt fyrir næsta ping. Jafnaðarmenn og kommúnistar krefjast Þess að Þingið komi saman tafarlaust. SAMKVÆMT ingum, sem hafa borist um landráðaskrif haldsmanna hér til erlendra blaða sem sagt var frá hér í blaðinu í gær, má nú telja fullvíst, að óhróðursgrein „Tidens Tegn“ um fjárhagsástandið á íslandi, og greinin til „Times“, sem aldrei birtist, hafi verið send þessum blöðum af einum og sama íhalds- imanni hér í ðænum. Öll rök hníga pví að pví að tilgáta Alpýðublaðs- ins í gær sé rétt, að „Times“ hafi verið send greinin héðan að heiman, samhljóða eða svipuð ó- hróðursgreininni í „Tidens Tegn“, og að báðar greinarrmr hafi verið sendar til hieimsblaðanna með vit- und og ráði Sjálfstæðismajina hér. Gangur málsins virðist pví hafa verið sá, að Miorgunblaðið hafi vitað, að greinin var komin til „Times“, að pað hafi talið víst, að hún hefði verið birt. Morgun- blaðið skýrir frá því í morgun, að verzlunarmanni hér í bænum hafi í símtali heyrst vera talað 'um „Times“ í sambandi við orð- róm um fjárhagsörðugleika á Is- landi. Meira þurfti blaðið ekki til þess að geta skýrt nákvæmlega frá innihaldi greinar, sem hefði birzt í „Times“ um yfirvofandi fjárhagshrun á Islandi. Blaðlð hefir aldrei getað fært neinar erlendar heimildir fyrir pessum nákvæma fréttaburði sín- um um efni greinarinnar. Pað hlýtur því að hafa fengið upp- lýsingar um það frá höfundi greinarinnar hér heima, ef því hefir ekki verið kunnugt um efni hennar þegar frá upphafi. Máiið verður rannsakað. Ritstjórar Morgunblaðsnis hljóta því að geta gefið alveg fullnægjandi upplýsingar um uppruna og höfund greinarinn- ar, og því sjálfsagt, að þeir verði yfirheyrðir manna fyrstir Engin síld á Siglufirði. Margir hafa enn ekki fengið handtak aðgera EINKASKEYTl TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS. SIGLUFIRÐI í morgun. NGIN síld er enn hér á Siglu- firði. Niokkur skip komu inn í nótt með dálítinn slatta af síld, 1—300 mál, er þau höfðu fengið við Langanes. Var það sett í bræðslu. I dag er norðanáttt og illviðri og engin síld úti fyrir svo vitað sé. Togarinn „Sindri“ fór í morg- un með ,troll“ og ætlaði að reyna það hér úti fyrir. Ástandið er að verða mjög í- skyggilegt. Margt aðkiomufólk er enn ekki farið að fá handtak að gena og er því hér alveg alls- laust. Frétíaritari. Morgunblaðið skorar í morgun á Alþýðublaðið að fylgja kröfunni um rannsókn í þessu máli fast fram, „svo að trygt verði, að landráðamenn, sem hér kunni að finnast, þurfi ekki að kvíða hús- næðisleysi.“ Alþýðublaðið mun verða við þessari áskorun, og getur glatt Morgunblaðið með því, að rann- sókn verður hafin í málinu mjög bráðlega og ráðstafanir gerðar til þess að koma frámvegis í veg fyrir það, að erlend blöð birti fleiri óhróðursgreinar um landið frá ábyrgðarlausum pólitískum of- stækismönnum, eins og þeim, sem hér hafa verið að verki. Opinber fréttastofa ríksins. Alþýðublaðið hóf fyrst allra blaða hér máls á því fyrir skömmu, að nauðsyn væri að borna hér upp opinberri frétta- stofu ríkisins til að annast alla opinbera fréttastarfsemi, bæði öflun erlendra frétta og frétta- sendingar héðan til útlanda. Þessi tillaga hefir fengið mjög góðar undirtektir hjá þeim, sem þetta mál skiftir sérstaklega. JÁRNIÐNAÐARDEILAN er að harðna. -lárnsmiðanemar, sem verkstæð- iseigendur hafa látið vinna á verkstæðunum síðan deilan hófst lýstu í ífyrradag yfir samúðarverk falli með járnsmíðasveinunum. Er þá allur járniðnaður í bæn- um stöðvaður fullkomlega nema hjá Landssmiðjunni, sem hefir nóg að gera og hefir bætt við mönnum síðan deilan hófst. Hafa atvinnurekendur þó reynt allar mögulegar leiðir til að vinna stöðvaðist í Landssmiðj- unni m. a. með því að láta efnis- sala neita smiðjunni um ýmis- legt nauðsynlegt efni. Sýnir það nauðsyn þess, að Landssmiðjan verði aukin og bætt, svo að hún geti orðið það fullkomin, að hún geti ein og ó- hindruð haldið rekstri sínum á- Tetknn á islenzknm saltfiski í Eanpmanna- böfn? OSLO, 8. ágúst. FB. Nokkrir danskir kaupmenn, sem hafa viðskifti við Islend- inga, áforma að hefja verkun saltfisks á Amager. Verða sett- ir þar upp þurkreitir. Fyrst um sinn er ráðgert að kaupa og verka 6000 smálestir saltfisks og ráðgert að selja hann til Miðjarðarhafslandanna, sem „danskan saltfisk". En ef einhverjir skyldu vera sem ekki hafa séð þessa þörf enn þá, þá ætti þessi síðasti frétta- burður íhaldsins til útlanda, að hafa sannfært þá um nauðsyn slíkrar fréttastofu. Skylt er að geta þess, að Morg- unblaðið hefir þegar frá upphafi tekið þessari hugmyndvel oglýs- ir nú fylgi sínu við hana í Smorg- un. En vonandi er, að íhaldsblöðin hér virði slíka fréttastofu meira, heldur en þann vísi til frétta- stofu, sem hér er nú starfandi. Sú fréttastofa sendi út fyrir nokkr um dögum tilkynningu um það, að frétt Morgunblaðsins um að ritstjórnargrein hefði birzt í „Tim- es“ um yfirvofandi fjárhagshrun á Islandi væri uppspuni. En Mgbl. er ekki farið að birta þessa til- kynningu enn. Og Vísir, sem birti hana, heldur enn áfram að tala í slúðurgreinum ritstjórans um greinina í „Tirnes", sem hann veit að aldrei hefir birzt, sem sönnun þess, hve djúpt landið sé sokkið fjárhagslega undir stjórn núverandi valdhafa. Frumvarp um stofnun frétta- stofu ríkisins mun verða lagt fyr- fr alþingi í haust, og væntir Al- þýðublaðið þess, að það fái óskift fylgi blaðanna hér. fram hvað sem í skerst meðan hún nýtur trausts verkalýðsins. Atvinnurekendur hafa loks reynt að fá véhtjórana til að framkvæma það verk, er járn- smiðirnir í Stálsmiðjunni hættu við hálfklárað, en vélstjórarnir munu enn hafa neitað þeirri mála- leitun. Munu þeir kinoka sér við að kalla yfir sig andúð og fjandskap allra verkalýðssamtaka í landinu, þv að þeir geta þurft á velvild þeirra og stuðningi að halda eins og aðrir vinnandi menn. Giías Hðlm með- gengnr ekki. Elías Hólm, sem staðinn var að áfengissölu á Þingvöllum um sið- ustu helgi situr enn í gæzluvarð- haldi. Hefir hann enn ekki meðgengið að hafa selt áfengi og mun því verða haldið í gæzluvarðhaldinu fyrst um sinn. Færeyskt skip leit^ ar hafnar vegna mislinga. Færeyska skútan Ekliptika frá Klakvík kom til Patreksfjarðar í gærkvöldi til þess að leita læknis. Tólf menn á skipinu voru veikir af mislingum. EINKASKEYTI TIL ALÞÝÐUBLAÐSINS. KAUPMANNAHÖFN í jmiorgun. Œ IMSKEYTI frá Frakk- ^ landi herma að á- standið þar sé stöðugt að verða alvariegra og alvar- iegra. Menn eru hættir að tala um kröfugömgur og eimstaka götubardaga. Það er alment viðurkent að borgarastyrjöid geysi í landinu. Það virðist svo sem stjórn Lavals hafi þegar séð sitt óvænna, því að hún gaf í gær út nýja fyrirskipun, sem tekur aftur ákvörðunina um að laun opinberra starfs- manna skuli lækkuð um 10%, og mælir svo fyrir að launalækkunin skuli ekki nema meiru en 3%. En það er ekki sjáanlegt, að þessi fyrirskipun hafi orðið til þess að friða land- ið. Þvert á móti. Óeirðirnar haf alogað upp að nýju sérstaklega í Brest og Toulon og götubardagarnir milli uppreisnarmanna og her- liðs stjórnarinnar verið háðir af meiri grimd en nokkru sinni áð- ur. Þrír féllu og fjöldamargir særðust í Touion í gær, Eftir því sem sagt er í opin- berum tilkynningum stjórnar- innar féllu 3 í bardögunum í Toulon í gær, en 30 særðust, þar af 17 svo hættulega, að sumum þeirra er ekki hugað líf. Bar- dagarnir ....voru ....afarharðir, Verkamennirnir rifu upp götu- steinana og vörðu sig með þeim á móti árásum hinnar vopnuðu lögreglu' og herliðs. Borgarhlut- arnir, sem barizt var í, hafa orð- ið fyrir stórskemdum, gang- stéttir verið rifnar upp, rúður brotnar og húsgögn, sem notuð haf verið til virkisgerðar, liggja í rústum á götunum. Stjórnin tilkynnir, að herinn og lögreglan hafi orðið yfir- sterkari í viðureigninni og frið- ur hafi verið kominn á í Toulon í gærkveldi. Riddaraliðið og ríðandi íögregla ræðst með brugðníim sverðum á verkfallsmenn í Brest. Yfir huudrað særðir. í Brest voru götubardagarn- ir háðir af ennþá meiri grimd en í Toulon. Þar hafa laun 6000 verkamanna, sem vinna við skipakvíar flotans verið lækkuð tvisvar sinnum á þessu sumri, fyrst um 4% og síðar um 10%. Verkamennirnir hafa neitað að vinna við slík kjör, og svo að segja öll vinna hefir verið lögð niður í Brest, til þess að styðja þá gegn launalækkunarherferð stjórnarinnar. Æsingarnar náðu hámarki sínu í gær, þegar fjöldinn gerði áhlaup á dómshöllina til þess að frelsa fangana, sem teknir hafa verið í óeirðunum undanfarna daga og fluttir þangað. Þá sló í blóðugan bardaga við varðlið- ið og hver einasti gluggi á bygg- ingunni var brotinn. Yfirvöldin sendu riddaralið og ríðandi lög- reglulið til þess að hrinda árás- inni, og það réðist með brugðn- um sverðum inn í mannf jöldann. Það er enn þá óvíst hve mikið manntjón hefir orðið í þessari blóðugu viðureign, en það er opinberlega viðurkent, að yfir 100 manns hafi særst meira eða minna hættulega. Yerkföliin á Atlantshafs- skipunwm halda áfram. Það var tilkynt í gærkvöldi, að tekizt hefði fyrir milligöngu siglingamálaráðherrans að koma á sættum 1 verkfallinu á Atlantshafsskipunum í Le Havre og Rouen. En símskeyti sem þaðan hafa borizt í morg- un, sýna að verkfallinu hefir LONDON 9. ágúst. F.B. AMKVÆMT áreiðanlegum heimildum hefir Stanley Baldwin forsætisráðherra í hyggju að fara til Genf um þ. 7. n. m., en um það leyti hefst ráðsfundur Þjóðabandalagsins út af Abessiníudeilunni. Samuel Hoare, utanríkismálaráðherra Bretlands, og Anthony Eden, Þjóðabandalagsmálaráðherra Bretlands, verða fulltrúar á ráðsfundi bandalagsins Hin fyrirhugaða Genfarför Stanley Baldwin gefur ótvírætt til kynna hversu mikla áherslu Bretar leggja á að fá Abessiníu- deiluna leysta friðsamlega, því að höfuðtilgangurinn með för Baldwins þangað er að beita áhrifum sínum til þess að sættir takist. (United Press.) enn ekki verið aflýst. Öll skip- in, sem stöðvuð hafa verið, þar á meðal stórskipin „Norman- die“, „Columbie", „Champlain", liggja enn í höfn, án þess að snert hafi verið við vinnu á þeim. I Lorient var haldinn afar fjölmennur fimdur hafnar- verkamanna í gærkvöldi til þess að taka ákvarðanir um samúð- arverkfall, en nánari fréttir þaðan eru ókomnar enn. Ástandið er yfirleitt talið á- kaflega alvarlegt og ófyrirsjá- anlegt, hvaða viðhurðir kunna að gerast á Frakklandi næstu daga. STAMPEN. Jafnaðarmenn og kommúnistar krefj- ast þess að þingið verði kallað sam- an tafarlaust. BERLlN, 8. ágúst. FIJ. Jafnaðarmenn og kommún- istar í Frakklandi kref jast þess Bretar ákveðnir á móti | öllum ítölskum landvinn- ingum í Abessiníu. OSLO, 8. ágúst. FB. Vegna svæsinna ummæla í garð Breta hefir Bretastjórn séð sig knúna til þess að senda ítalíustjórn opinber mótmæli. Fregnir, sem ekki hafa verið staðfestar herma, að Bretar sé fúsir til þess að fallast á, fyrir sitt leyti, að Italir verði ein- hverra forréttinda aðnjótandi í Abessiníu, en ekki komi til mála að þeir fái neitt abessinskt land til umráða eða eignar. Island kom í morgun. nýjum upplýs- Alþýðublaðinu í- þegar rannsókn verður hafin í þessu máli. Járnsilðadellan harðnar. Járnsmiðanemar hafa lýst yfir verkfalli. Frh. á 4. síðu. Baldwlu Ser til GenS pegar Abessímudellam verðui* rædd.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.