Alþýðublaðið - 22.10.1935, Qupperneq 2

Alþýðublaðið - 22.10.1935, Qupperneq 2
ÞRIÐJUDAGINN 22. OKT. 1935. ALÞYÐUBLAÐIÐ VIRGÍMIA CIGABEISUR zu sik. Pákkínn I{oslcir kr. 1*20 Ritfregn. SKUGGSJÁ, ræöur frá AuckJand i Nýja-Sjálandi eftir J. Krishnamurti. IV. árg. Rey'kjavík, úlgefandi Aðalbjörg Sigur'ðardóttir. Útgefandinn getur þessa: Ræð_- ur þær efíir Krishnamurti, sem hér birtast, voru allar, nema sú síðasta, fluttar á Nýja-Sjálandi í fyrra. Vöktu þær rnikla athygli, og var hefti það, sem þær birtust í, þegar endurprentað á síðast- liðnu hausti.“ Krishnamurti talar margt og mikið við jarðarbúa, endurtekur í sífellu og segir ýmislegt mjög efíirtðktarvert. Hér skulu birt nokkur sýnis- horn úr þessu síðasta hefti: „Frá mínu sjónarmiði eru allar trúarskoðanir, allar fyrirmyndir, aðeins þrándur í götu, af því að þær hindra skilning yfirstandandi augnabliks. — — Samfélagið er ekki annað en einstalklingurinn margfaldaður með þúsundum. — Það ér eins og þér eruð sjálfur. Það kúgar, stjórnar, drottnar, afbakar. — ■- Alt þjóðerni er bygt á því, að fáir menn arðræna fjöldann til þess að hafa mestan hag af fram- leiðslunni. — — Allar þjóðir, allar ríkisstjórn- ir, eru skyldar til að búast við ófriði; þú getur ekki elskað frið og á sama tíma talað um föður- iandselsku. Þú getur ekki talað um bróðerni mannanna og krist- Sndómf í sama orðinu, því að það er hvað upp á móti öðru. — — En liver getur sagt, hvað er þjónustá? — Hermaðurinn, sem er reiöubúinn að drepa þá, sem ráðast inn í land hans, segist þjóna landi sínu. Slátrarinn segist þjóna þjóðfélaginu. Arðræning- inn, sem hefir einokun á fram- leiðsluíækjunum, segist þjóna rík- inu. Prestarnir, sem kúga með trúarbragðaskoðunum, segjast Jrjóna landinu, þjóðfélaginu. — — Þetta er afstaða trúarbragð- anna: Þú getur aldrei fundið sannleikann sjálfur. — Það geta ekki nema einn eða tveir menn, — þess vegna skal ég vera milli- liður og hjálpa þér; á þann veg verð ég droítnari þinn og kúgari. Svona eru einmitt aðferðir trúar- bragðanna. Það eru 'kænlegar ráns- og kúgunár-aðferðir, að undiroka fólkið miskunnarlaust; alveg eins og stóreignamennirnir gera á sínu sviði, — annar flokk- urinn á andlega sviðinu, hinn á því veraldlega. En þegar betur er aðgætt, þá eru báðir miskunn- arlausir arðræningjar." Og fó.lkið, sem hlýddi á Krish- namurti, hrópaði: „Heyr, heyr, he(yr!“ Krishnamurti vill að vér losum af oss hlekkina. Hann segir: „Það eru ekki nema örfáar undantekningar rnanna, sem slíta sig lausa, þá menn nefnum vér Krist, Buddha, Lenin eða X. Y. Z.“ Borðbðnaðar Matskeiðar, ryðfrítt stál 0,75 Matgaffiar, ryðfrítt stál 0,75 Desertskeiðar, ryðfrítt .stál 0,75 Désertgáflár, ryðfrítt stál 0,75 Teskeiðar, ryðfrítt stá’l 0,40 einnig 2ja turna silfurplett með lægsta verði. Einarsson éb EJörnsson, Bankastræti 11. Hagiabyssa, tvíhleypa, nr. 12 til sölu. Ásvallagötu 51. Sparið peninga! Forðist ó- þægindi! Vanti yður rúður í glugga, þá hringið í síma 1736, og verða þær fljótt látnar í. Muníð síma 1974, Fiskbúðin Hverfisgötu 37. Ávalt nýr fisk- ur. Sólberg Eiríksson. Hér sjáið þér ofurlítið af því, | sem Krishnamurti segir og ritar. Nokkurir telja hann sameigna- mann, aðrir heimspeking og einir heimsfræðara. Þeir, sem vilja 'kynnast betur skoðunum hans, þurfa að lesa alt heftið. Málleysur nokkrar hafa slæðst inn i þýðinguna, eins og aö byggja upp, byggja upp öld eft- ir öld, byggja hugsanálíf sitt al- veg upp að nýju. Þetta upp á að fara. Segja mætti að móta hugsanalíf. Þá er kúgunarmeðal óviðkunnanlegt orð. Oft mætti nota kúgun fyrir meðal. Ruglað er saman tvítölu og fleirtölu, og er það átakanlegt. — Skilyrðistengingin er e/, en ekki ef að. Þá er orðið háttur raunalega notað. ( Auðviíað eru þessi lýti smá- •munir móts við þa'ð, sem sæmi- Iega er orðað í kverinu. Hafi svo þýðendur og útgefandi alúðarþakkir fyrir alt það, sem þeir hafa vel, gert og prýðilega. HalUjrímur Jónsson. GUÐÍtíIN GEIRSDÓTTIÍt. Peró t pottmn gerir blæfagran þi ottinn. xzíœnnmmzszzím Málafiutniíigur. Samaingagerðir Stefán Jóh. Stefánsson, Ii æstaréttarmálaf lm. Ásgeir önðmundsson, cand. jur. usturstræti 1. Innheimta. Fasteignasaia. Sfml 3680. Silfurbrúðkaup. Frú Guðný Árnadóttir og Sam- úel Pálsson kaupm., Bíldudal, eiga silfurbrúðkaup í dag. Smíðum alls konar HIJSGÖGN eftir nýjustu tízku. ALFEEÐ & JÚLÍUS, húsgagnavinnustofa, Vatnsstíg 3B. VÖNDUÐ VINNA. *Wir LÁGT VERÐ. „Stanning eða algert stjérnleysi!“ i PamnHrMii f da§ Q TAUNING eða alge t stjórn- íeysij" — það er kjör- orði'ð, sem Alþýöuflokkurinn gengur með til kosninga í Dan- fmöiiku í dag. Og þeir, sem fylgst hafa með aðföium íhaldsflokkanna í Dan- mörku undanfarna mánuði, geta vaila verið í efa um það, að Alþýðuflokkurinn hafi með þess- um einkunnarorðum, sem hann hefir gefi'ð kosningaba, áítunni, Mít naglann alveg á höfuðið. Hjn danska þjóð yrði, ef Staunings >og Alþýðuflokksstjórnarinnar misli við, leiksoppur í höndum innbyrðis sundu :þykkra í; alds- flokka, sem ekkert liafu læ.t á á:um kreppunnar anmað en það, að apa upp Nazisíúkveðjuna þýjku, og enga hugsjón hafa aðra en þá, að rifa niður þær skipu- lagsbreytingar, sem stjórn Staun- ings hefir gert til, þess að yf.r- st.'ga erfiðleika viðskiftakneppunn- ar og tryggja velferð hinna vin:i- pndi stétta í lanclinu. Þeir halda, að Joeir gætu á J;ann hátt komisi aftur í paradís hinnar „f jálsu samkeppni", þar sem engin bönd voru á gróöabralli þeirra. En eins og nú er komið viðskiftaháttum heimsins, myndu þeir með því leiöa algert öngþveiíi yfir þjó'ðina. Stjórn Staunings, sem byggist á samvinnu milli Alþýöuflokksins ins og radikala flokksins, sem er frjálslyndur mentamaima- og smábænda-flo’kkur, hefir nú setið að völdum í sex >og hálft ár. Það er löng stjórnartíð — lengri en þekst befir 'eftir heimsstyrj- öldiha í no’kkru þingræðislandi. Og það hafa verið e.fið ár, því að strax sama árið og stjórnin tók við vöídum, 1029, skall viðskifla- fcreppan á sem síðan hefir herjuð ■ heiminn. Annars staöar hefir hver stjórnin fallið eftír a'ðra fyrir erf- iðleifcum kreppunnar. En Staun- ing hefir, þ:á!t fyrir harðvítuga mótspyrnu þröngsýnna og eigin- gjarn a íhaldsmanna, loi;t þjóð slna roeð einurð og víðsýni út úr öngþveiíi kreppunnar og unnið stórsigur það eina s’kifti, sem kosningar hafa furi'ð fram í stjórnartíð hans, í árslok 1932. Alþýðuflokkurinn jók þá at- 'fcvæðatölu sína Ur 593 000 upp í 661 000 og fékk í fyrsta skifti í sögu sinni eins mörg átkvæði og þingsæti í dans’ka þjöðþinginu eins og stórkaupmanna- og stór- atvinnurefcenda-flokkurinn, sem kannast við íhaldsnafnið, og stór- bændaflokkurinn, sem kallar sig í vinstri flokk, báðir til samans. Og þó var viðskiftakreppan í | Ðanmörfcu þá upp á sitt allra versta. Verðfalliö haföi neytt óteljandi iðnaðarfyrirtæki til að loka, og íala atvinnulausra verka- manna var af þeirri ástæðu komin íupp í 200 000. Og verðmæti út- fluttra landbúnaðarafurða hafði síðan 1929 falli'ð úr 1400 milljón- um króna nióur í 830 milljónir. Það var fyrir afkomu dönsku þjóðarinnar sérsta'klega alvarlegt, því að andvirðið á útfluttum landbúnaðarafurðum: svmákjöti, eggjum, smjöri og nautákjöti, nemur 80°/o af verðmæíi alls út- fluínings f.á Danmörku, þannig að það er fyrst og fremst fyrir þær, að Danmöik fær þann er- : lenda gjaideyri, sem hún þarf til þess að ge a gert innkaup sín í útlöndum á hráefnum til iðnaðar- ins og öðrum nauðsynlegum varningi. Verzlunarj fc.uðurinn við úílönd fór því ískyggilega versnandi. Og ofan á alt annað bættist, að landbúnaðurinm var j refcinn með tapi og bændurnir sukku dýpra og dýpra í skulda- fenið. Það var upp úr þessum vandræðum versta kreppuársins, að nokkrum hálfnazistiskum stór- bændum >og aðalsmönnum tókst að stofna hin svonefndu „Bænda- samtök“ — Landbrugernes Sam- menslutning eða L. S., eins og þau eru venjulega kölluð — á móti stjórninni árið 1932. Öllum þorra hinna vinmandi stétta var þó þegar þá orðið ljóst, að það var stjórn Stounings og Alþýðuflokknum og verkalýðs- samtökunum, sem stóðu á bak við hana, að þakka, að yfirvofandi neyð hafði þrátt fyrir alt verið afstýrt. Verkalýðssamtökin reynd- ust nægilega sterk til þess, að standa á móti öllum launalækk- unum meðal þ>eirra verkamanna, sem vinnu höfðu. Og þ>eir hafa öll kreppuárin haldið þeim til- tolulega háu launum, sem þeir höfðu áður en kreppan skall á. Fyrir faglærða verkamenn í Kaupmannahöfn mámu þau laun og nema enn 80 krónum á viku, en 68 krónum fyrir ófaglærða. Enda er það sannast orða, að hvergi í heiminum eiga verfca- menn í dag við betri kjör að búa en í Danmöiku. Þeim at- vinnulausu hjálpaði stjórnin aftur á móti með stórkostlegri fram- lengingu á atvinnuleysisstyrknum, sem nemur um 100 krónum á mánuði, og áður óh-eyrðum fjár- framlögum tii opinberra fram- fcvæmda. Jafnframt þessu hljóp stjórnin undir bagga með bændunum bæði með beinum fjárframlögum >og afurðasöluiögum, sem trygðu þeim viðunandi verð á korni, og kjöti á innlenda mark- aðinum. En í kreppumálum bændanna var við ramman reip að draga, því að bændurnir í Danmörku eiga ekki annað sam- an en nafnið. Það eru 1100 stór- jarðeigendur í landinu, 100 000 meðalbændur og alt að því 100 000 húsmenn, og margir iiinna síðast nefndu verða, aúk búskap- arins, að leita sér launavinmu til þess að getá lifað. Hiagsmunir þessara stéttarbrota eru því töluvert ólífcir. Það lætur að líkindum, að stjórn Staunings taldi sér skyld- ast að hjálpa smábændunum. Og fyrir þá valt meira á því að létt væri á þeim vaxtabyrðin og skuldabyrðin, heldur en verðið væri hækkað innanlands á af- urðum eins og korni, sem þeir ekki framleiða en þurfa að kaupa. En stjórnin var neydd til þess að semja um þetta, eins og raunar alt annað, við íhalds- ftokkinn og stórbændaflokkinn. Því að enda þótt þeir væru í minnihluta í þjóðþinginu, höfðu þeir og hafa enn, sakir úrelts kosningafyrirkomulags meiri hluta í efri deild danska þings- ins, landsþinginu, sem er kosið eftir alt öðrum reglum en þjóð- þingið, og gátu .þannig stöðvað alla kreppulöggjöf stjórnarinn- ar, ef þeir ekki þóttust fá nógu mikjið fyrir sinn snúð. Þeir not- uðu þessa aðstöðu til þess að tryggja stórbændunum í „vinstri“-flokknum bróðurpart- inn af þeirri kreppuhjálp, sem danska landbúiiaðinum var veitt. Og þeir notuðu hana líka til þess að velta kostnaðinum af kreppuhjálpinni með neyzlu- sköttum af sér yfir á hið breiða bak þjóðarinnar. Stjórnin varð að ganga inn á slík kaup, þótt henni væri það nauðugt, til þess að allir fengju þó eitthvað og fjárframlög hennar til atvinnu- leysisstyrkja og opinberra fram kvæmda yrðu ekki skorin nið- ur af lándsþinginu. Það er ekki hennar sök, heldur landsþings- ins og íhaldsmeirihlutans þar, að ekki hefir verið hægt að létta vaxtabyrðina og skulda- byrðina á dönsku smábændun- um enn þann dag í dag. Stauning og stjórn hans var það fuilkomlega ljóst, að at- vinnuleysisstyrkurinn var að- eins bráðabirgðahjálp og af- urðarsölulögin aðeins byrjunar- ráðstöfun til þess að yfir- vinna afleiðingar viðskifta- kreppunnar. Innflutningshöftin og innflutningsskamtanirnar, sem kreppan hafði í för með sér á erlendum mörkuðum, fyrst og fremst á Englandi, sem hefir verið langstærsti kaupandi danskra landbúnaðarafurða, sýndu að engin von var til þess, að verzlunarjöfnuður landsins við útlönd yrði réttur við með auknum útflutningi. Það varð að takmarka innflutninginn að

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.