Alþýðublaðið - 21.11.1935, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 21.11.1935, Blaðsíða 4
FIMTUDAGINN 21. NÓV. 1885 ■ G AMLA BIO ■ Strandið hamingjusama. Hrífandi og bráðskemtileg- ur gamanleikur með músik og söngvum. Aðalhlutverkin leika: Bing Crosby og Carole Lombard. El Krlstrún í flamravik ob hltnnafaðirinn. Sýning í kvöld kl. 8 Lækkað verð. Aðgöngumiðar seldir í dag eftir kl. 1. „Sko8B2-Sseiiio“ eftir Matthías Jochumsson Sýning á morgun kl. 8. Aðgöngúmiðar seldir í dag kl. 4-7 og á morg- un eftir kl. 1. Sími 3191. Fljót afgreiðsla. — Tek að mér, eins og áður, allar breyt- ingar á raflögnum og nýjar lagnir. Jón Ölafsson, lögiltur rafvirki. Verkstæði Týsgötu 3. Sími 1705. I* 0« G« T*. Fundur verður haldinn í Þing- stúku Reykjavíkur annað kvöld (föstudag kl. 8% síðd.) Pétur G. Guðmundsson flytur erindi: Starfshættir Reglunn- ar. uttwmmzimímí Nýslátrað folaldakjðt, Kjötbúðin, Týsgötu 1. Sími 4685. mmmumimiu mimmmsmimi á morgun í portinu hjá Von Langaveg 55 mææææææægaaæ Skugga-Sveinn var leikinn á sunnudaginn við svo mikla aðsókn, að næstum allir miðar seldust daginn áður, og margir urðu frá að hverfa. Kl. 3 var nónsýning á Æfintýri á gönguför, Sýndi Leikfélagið pað í tilefni af 50 ára afmæli stúkunnar Einingin og til ágóða fyrir hana. — Annars hefðu ver- ið tvær sýningar á Skugga-Sv. pann dag. Næsta sýning á honum verður á föstudaginn kl. 8. AIÞÝSUBUBD SVIK EYJÓLFS. (Frh. af 1. siðu.) „Reykjavík 16. nóv. 1935. Vér höfum áður sent yður afrit af skýrslum Sigurður Pét- urssonar um rannsóknir hans á mjólk mjólkurstöðvarinnar, þar sem ’kom í ljós, að mjólkinni frá plötupasteurnum var mjög ábóta- vant. Vér óskuðum þá, við for- stjóra yðar, að undinn yrði bráður bugur að, að koma þessu í lag, en samkv. samtali við Sig- urð Pétursson er þetta óbreytt enn, þrátt fyrir tilraunir þær, er gerðar hafa verið til þess. Það er því augljóst, að fá verður ný tæíki hið bráðasta í stað þessa plötupasteurs, og væntum vér, að pöntun á þeim verði gerð nú þeg- ar, þar sem svo lítur út sem mjólkin sé a]ls ekki gerilsneydd í áhaldi þessu, sem nú er. Vér verðum að líta svo á, að yður beri ekki greiðsía á öllu geril- sneyðingargjaldi meðan svo er. Mjólkursölunefndin óskar skil- ríkja frá yður fyrir hádegi þ. 18. þ. m. fyrir því ,að þér hafið gert ráðstafanir til þess að panta það sem með þarf í stað þess, sem bersýnilega er óhæft til geril- sneyðingar í mjólkurstöð yðar. Virðingarfyllst. , F. h. Mjóikursölunefndm. Susinbjörn Högnason. Til Mjólkurfélags Reykjavikur.“ Bréf þetta sannar, eins og menn sjá, að það liðu margir dagar, frá því að E. J. var kunnugt um að svik hans voru orðin uppvís, þangað til að hann gerði nokkuð til að stöðva þau, og að hann gerði það ekki fyr en hann var knúinn til þess af Mjólkursölunefnd. STRfÐIÐ f ABESSINfO. Frh. af 1. síðu. nokkurn veginn vist, að hann sé nú byrjaður ferðir sínar til vig- stöðvanna og fari í flugvél. í (dag er sagt, að flugvél hans hafi sést á sveimi yfir Djidjiga, og er bú- ist við, að hann hafi farið á fund herforingja síns á þessum stöðv- um, til að ráðgast við hann um það, hvernig skuli haga mótstöðu Abessiníumanna á þessum slóð- um. Fregn frá Addis Abeba herm- ir, að Abessiníumenn séu að safna liði milli Amba Alagi og Makale, og að þeir muni ekki ætla að bíða eftir því, að italir geri árás, held- iur hefja sókn á hendur þeim, áð- ur en þeir fari lengra suður í landið. Fí á bæjarst jó marf undi i Hafnarfiiði i fyrra- dag. í fyrra dag var bæjarstjórnar- fundur í Hafnarfirði. Þetta var það helzta, sem gerðist: Koísið var í áfengisvarnanefnd. og hlutu kosningu: Guðmundur Jónasson, Jóhann Tómasson, ól- afur Thordarsen, Sigurgeir Gísla- son, Kristinn Magnússon og Guð- rún Einarsdóttir. Fyiir fundinum lá erindi frá Sigurgeir Gíslasyni um fjárstyik úr bæjarsjóði til Góðtemplara- reglunnar í Hafnarfirði í tilefni af 50 ára afmæli hennar. Erind- inu var visað til fjárhagsnefndar. Þá var úthlutað ellistyik og komu til úthlutunar 5912,02 kr„ og var þvi skift milli 210 gamal- menna. 70 ára afmæli á á morgun Guðjón Brynjólfs- son verkamaður, Baldursgötu 3. Kristrún í Hamravík verður leikin í kvöld við lækk- að verð. Næsta sýning verður á sunnudagskvöld. Mænuveikin eykst á Akureyrii Barnaskðlanam hefir verið lokað. Barnaskóla Akúreyrar var lok- pð í gær og ákveðið að honum skuíi vera lokað fyrst um sinn í eina viku vegna mænusóttar. Hafa þrjú ný tilfelli af mænu- sótt komið. Uni 30 tilfelli hér f bænnm. Alþýðublaðið átti í morgun tal við Magnús Pétursson héraðs- lækni og sagði hann, að alls væru nú mænusóttartilfellin hér í bænum orðin rúmlega 30. En síðan síðasta tilfellið kom upp, eru nú liðnar rúmar tvær vikur. Maðnr tekinn fyrir áfengissölu við iögreglustöðina Nýlega voru lögregluþjónar á söngæfinga í hinni nýju lögreglu- stöð og sáu þá út um glugga að maður nokkur var að selja á- fengi í Hafnarstræti. Nokkrir lögregluþjónar brugðu þegar við og tóku manninn fast- an. Heitir hann Axel Þorsteinsson og á heima á Bakkastíg 5. Hefir hann nú verið dæmdur í 500 króna sekt og 15 daga fang- elsi. Verkbanu og vei kfall vlð hðfgglna i Glasgow. LONDON, 20/11. (FO.) Fjögur þúsund hafnarverka- jnenn í Glasgow hafa neitað að hverfa aftur til vinnu með þeim skilyrðum, sem atvinnurekendur við höfnina setja, ien atvinnurek- endur buðu þeim, að vinna skyldi hafin aftur, gegn því, að verka- menn hættu smáverkföllum, sem ekki væru ákveðin af hafnar- verkamannasambandinu, og gegn því, að þeir tjáðu sig ánægða með núgildandi vinnusamninga. Þau skip, sem hafa beðið af- jgreiðslu í Glasgow síðan í gær- morgun, fara ef til vill til Liver- pool, ef verkbanninu verður ekki þflýst í nótt. Eitt þeirra er haf- sikip, nýkomið frá Indlandi, með 3000 smálesta farm. Um það bil, sem verið var að senda þessa frétt, barst fregn um það, að atvinnurekendur hefðu lofast til þess, að láta vinnu hefj- ast aftur á föstudagsmorguninn. gegn því, að hafnarverkamenn vildu ganga inn á það, að stofna ekki til verkfalla nema með sam- þykki verkamannasambandsins. Sonja Henie fær ekki að sýna skaufa- listir sínar á Italíu! KALUNDBORG, 20/11. (FÚ.) ítalska stjórnin hefir lagt bann við þvi, að íþróttamenn og lista- menn frá þeim ríkjum, sem taka þátt í refsiaðgerðunum, megi vinna fyrir sér með list sinni á Italiu, eða koma opinberlega fram fyrir peninga. Norska stúlkan Sonja Henie, sem er heimsmeistari í skauta- hlaupi, er fyrsti listamaðurinn, sem bann þetta hittir, en hún var fyrir nokkru komin til Italíu til þess að sýna þar listir sínar. 1 DAG Næturlæknir er í nótt Hall- dór Stefánsson, Lækjargötu 4. Sími: 2234. Næturvörður er í nótt í Reykjavíkur og Iðunnarapóteki. Veðrið: Hiti í Reykjavík 8 st. Yfirlit: Grunn lægð fyrir suð- vestan og vestan land. tJtlit: Suðaustan og austan kaldi. Rigning öðru hvoru. ÚTVARPIÐ: 15,00 Veðurfregnir. 19,20 Þingfréttir. 19,45 Fréttir. 20.15 Erindi: Trúarbrögð Abessiníumanna (Sig- urður Einarsson). 20,40 Útvarpshljómsveitin (Þórarinn, Guðmundss.): Norræn lög, eftir Selim Palmgren. 21,05 Lesin dagskrá næstu viku. 21.15 Upplestur (Böðvar frá Hnífsdal. 21,30 Tónverk Markúsar Krist- jánssonar (Einar Mark- an, Gunnar Sigurgeirs- son og Baldur Andréss.). Danzlög. Borgarafundur áfNorðfirði sam- pykkir áskorun til Alpingis. NESKAUPSTAÐ, 20/11. (FÚ.) LMENNUR borgarafundur var haldinn í Neskaupstað síðastliðið laugardagskvöld að tilhlutun Vemlýðsfélags Norð- fjarðar. Fyrsta dags’krármál var sundhallarmál bæjarins. Samþykt var að Skora á þingmenn kjör- dæmisins að beita sér fyrir 6000 kr. fjárveitingu á næstu fjárlög- um gegn jafnháu framlagi frá Neskaupstað. Annað dagskrármál var sjáv- arútvegsmálin. Samþykf var áskorun um af- nám Verðjöfnunar- og Markaðs- leitarsjóðsgjalds og endurgreiðslu þeirra gjalda. Skorað var á al- þingi að veita 250 þús. kr. styrk úr Bjargráðasjóði til viðreisnar sjávarútveginum og bjargar al- þýðu á Austfjörðum. Samþykt var áskorun til þings og stjórnar þess efnis, að hlut- ast verði til um að gjaldeyris- nefnd láti útgerðarmönnum í té nægan gjaldeyri til fiskilínu- kaupa erlendis, ög um að fiski- eigendur á Austfjörðum fái leyfi til að flytja fisk til Norðurlanda og annara hugsanlegra markaðs- staða. Þriðja dags’krármál var ríkis- útgáfa skólabóka. Samþykt var áskorun til al- þingis um að afgreiða lög í !sa:m- ræmi við tillögur Vilmundar Jóns- feonar 1 þvi máli. J Loks var samþykt að krefjast þess, að % hlutar tökna ríkis- sjóðs úr Neskaupstað renni í fiæj- arsjóð safcir fjárhagsvandræða bæjarins. Fundurinn var mjög fjölmennur og stóð frá kl. 20 um kvöldið til kl. 3 um nóttina. Heimild frt. útv. i Neskaup- stað, en heimild hans frá fundar- stjóra og fundarritara. Alls-herjar félags- shapar allra fiski- maona verðnr stofnaðnr í Noregi. OSLO, 20. nóv. Nefnd sú, sem verzlunarráðu- neytið skipaði til athugunar á ýmsum málum viðvíkjandi fisk- veiðunum, leggur m. a. til, að ali- ir fiskimenn, sem taka þátt í fisk- veiðunum við strendur landsins. verði þáttakendur í þeim félags- skap fiskimanna, sem stofnaður er samkvæmt lögum þar um, ier innihalda ákvæði um sölu, rekst- ur og innkaup. Meirihluti nefnd- Isfisksala. Þórólfur seldi í Hjull í gær 900 vættir fyrir 770 sterlingspund. NYJA BlO HH Þeir sem guðir- nir tortíma. Stórfengleg amerísk tal- og tónmynd, arinnar leggur til, að innflutn- ingsbannið á fiski verði g-ert víð- tækara og einnig bannaður inn- flutningur á lifandi fiski. E.nn fremur að verzlunarráðuneytið skipi fimm manna nefnd, sem sjái um útflutning og sölu á lifandi fiski. Loks er lagt til, að skipuðj verði nefnd manna til þess að athuga og koma fram með til- lögur um aukna notkun síldar- mjöls og fiskmjöls (torskemel) utan lands og innan. Bifreiðastj.fél. „Hreyfill“ heldur fund í Iðnó uppi kl. 12 i nótt, en e’kki á Hótel Borg eins og auglýst var. Áðvörun. Ég aðvara hér með foreldra barna um, að iáta ekki börnin sín hlaupa fram fyrir bíla. Ég hefi oft séð ljótt í því efni. — Oddur Sigurgeirsson, Odd- höf ða. II eftirtektarverð bók. Skáldsaga eftir GUNNAR M. MAGNÚSS. Þetta er stórmerkileg bók, lýsing á lífi og kjörum ungra og gamalla, fátækra og ríkra Reykvíkinga um aldamótin. 188 bls. — Kostar aðeins 4 kr. Notið eingðngo SVEA eldspýtnr. Fást í oiinm verzlnnnm Hárvötn A, V. R Eau de Portugal Eau de Cologne Eau de Quinine Bay Rhum Isvatn Reynið þau og sannfærist um gæðin. Smekklegar umbúðir. Sanngjarnt verð. AFENGISVERZLUN RIKISINS

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.