Alþýðublaðið - 11.12.1935, Side 4
MIÐVIKUDAGINN 11. DBZ. 1B3S
■ GAMLSBIÖ ■
sýnlr kl. 9
La Cocaracha
Mexikanski dansinn, tekinn
í eðlilegum litum, með nýrri
aðferð, svo það er hrein-
asta unun á að horfa.
áamir riddarar.
Gamanleikur sem gerist á
16. öld, leikinn af hinum
góðkunnu skopleikurum úr
„Rio Rita“:
Wheeler og Woolsey.
Músíkklúbburinn
beldur danzleik með stuttum
hljómleikum á undan fyiir fé-
lagsmienn og hljómsveit sína laug-
ardaginn 14. dezember kl .9 á
Hótel ísland. Aðgöngumiðar á
kr. 2,00 fást í Hljóðfærahúsinu
og hjá K. Viðar. Félagsmönnum
ier heámilt að taka með sér einn
gest. Menn sýni félagsskírteini.
U&MUI KTUITUII
„SknaBa-Sseinn"
eftir Matthías Jocumsson.
Sýning á morgun kl. 8
Aðgöngumiðar seldir
í dag kl. 4—7 og á
morgun eftir kl. 1.
Lækkað verð.
Sími 3191.
„Dettifoss“
fer á fösudagskvöld (13. des)
í hraðferð vestur og norður.
Aukahöfn: Önundarfjörður.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi.
„BrAarfoss“
fer á föstudagskvöld um Vest-
mannaeyjar, til Leith og Kaup-
mannahafnar.
Farseðlar óskast sóttir fyrir
hádegi sama dag.
I. O. G. T.
Stúkurnar „Dröfn“ og „Frón“
halda sameiginlengan afmæl-
isfagnað næstkomandi fimtu-
dagskvöld 12. þ. m., kl. 8y%
síðd. í Góðtemplarahúsinu.
Sameiginleg kaffidrykkja.
Einsöngvar, Gamanvísur,
Bögglauppboð, D^jiz (gömlu
og nýju danzarnir) með góðri
hljómsveit. — Bögglum veitt
móttaka kl. 6—9 sama dag.
Allir templarar velkomnir
með gesti sína. Aðgöngumið-
ar afhentir við innganginn.
Skemtinefndin.
ILÞtBUBLABID
I DA6
DÖMAR
Frh, af 1 .síðu-
var sama dag dæmdur í 60
daga fangelsi, skilorðsbundið,
og 1340 króna skaðabætur fyrir
árás á mann, sem bjó í sama
húsi og bakarinn og hann réð-
ist á, og veitti all-mikla áverka,
í ölæði. Hefir sá, sem varð fyr-
ir árásinni verið óvinnufær síð-
an, og voru honum því dæmd-
ar svo háar skaðabætur.
Þá hefir maður, sem dæmdur
hefir verið 6 sinnum áður, ver-
ið dæmdur í þriggja mánaða
fangelsi fyrir þjófnað; og tveir
ungir menn í 15 og 30 daga
fangelsi fyrir þjófnað og svik.
FUNDUR
Frh. af 1 .síðu.
isma \oru í yfirgnæfandi meiri
hluta á fundintim, og varð pað
þess valdandi, að fundarboðendur
neituðu algierlega að láta ganga
til atkvæða um ályktun, sem for-
maður ungra jafnaðarmanna bar
fram. Óttuðust íhaldsnnenn það,
sem raunar hefði orðið, að á-
lyktunin yrði samþykt með yfir-
gnæfandi mieirihluta.
STBfBIB
f ABESSlNfU.
Frh. af 1. síðu.
verði það keisaranum mjög dýrt
spaug ef hann verður að beygja
sig í þessu máli.
Frá Róm kemur fregn um
það, að Mussolini muni verða
fús til að ræða um frið, ef hon-
um eru ekki boðnir það sem
hann kallar „óviðunandi úrslita-
kostir“ heldur sé málinu haldið
á samningagrundvelli.
Kólera í ítaiska
hertium í Somali-
landi.
LONDON, 10. des. FÚ.
Sagt er, að kólera hafi brotist
út meðal ítalskra hermanna í
ítalska Somalilandi.
Undanfarið hefir verið kvart-
að um það, að erfiðlega gengi
að koma flutningum, sérstak-
lega matvælaflutningum, til
abessinsku hermannanna í
norður-Abessiníu. Nú hefir
þetta starf verið falið sérstök-
um embættismanni í Addis Abe-
ba. 1 suður-Abessiníu eru minni
vandræði með flutninga, þar
sem landið þar er miklu auð-
veldara yfirferðar fyrir inn-
fædda menn.
Addis Abeba í stöð-
ugum ótta við ít-
alska loítárás.
LONDON 11. des. F.U.
Snemma í morgun var í Addis
Abeba gefið merki um, að flug-
vélar væru að nálgast, og að
íbúamir skyldu við því búnir,
að forða sér, ef til loftárásar
kæmi. 1 borginni ríkti fullkom-
in regla, á meðan á því stóð,
að flugvélanna væri vænst. En
kl. 8 voru þær ókomnar, og gert
ráð fyrir, að um skakka eftir-
tekt hefði verið pö ræða.
Blóðugir bardagar
fyrir norðan Doio.
OSLO, 10. dez. FB.
Frá Addis Abeba hafa borist
fregnir um það, að snarpar or-
ustur hafi verið háðar allan dag-
inn i gær á suðurvígstöðvunum.
Miest var barist fyrir norðan Dob,
og ier talið, að 1600 menn, þar
af 700 Italir, hafí fallið eða særat
í bardögunum. (NRP.)
FLUGVÉLARSLYS )
j Frh. af 1 ,síðu.
| Ellefu manns fórust.
LONDON 11. des. F.U.
Flugslys það, er varð í gær
i Suður-Englandi, er belgisk
flugvél hrapaði til jarðar og 11
manns biðu bana, er hið stór-
kostlegasta, sem komið hefir
fyrir í Englandi.
Flugvélin hafði stöðugt sam-
band við Croydon flugvöllinn,
þar til örstuttu áður en slysið
vildi til, og ekkert gefið til
kynna, að neitt væri að. Eftir-
litsmaður flugstjórnarinnar, er
farið hefir til að skoða flakið
af flugvélinni ,og rannsaka or-
sökina að slysinu, hefir ekki
komist að neinni niðurstöðu um
það, hvað hafi valdið því, að
flugvélin fórst.
Munið mæðrastyrk nefndina.
„Ég vil lifa litla jólin mín við
ljósið það ,&em skín í barnsins
augum; þar finst mér inn svo
fritt og bjart að sjá, að frelsis-
boði gæti þangað ratað, og enn
þar minnir heit og þögul þrá
á þúsund ára bróðurríki glatað."
Skrifstofa mæðrastyrksnefndar-
Innar í Þingholtsstræti 18 er opin
á hverjum degi kl. 3—6; simi 4349
— Gjöfum ;er veitt móttaka þar á
þessurn tíma.
Peningagjafir
til Vetrarhjálparinnar.
Árni Árnason 10 kr. N. N. 25
kr., Ingvar Isdal 10 kr„ frá
Áma, Gyðu og Nönnu 50 kr.,
O. N. 3 kr., A. M. 2 kr., Snæv.
A. 10 kr., J. A. 5 kr. — Kærar
þakkir. F. h. Vetrarhjálparinn-
ar, Stefán A. Pálsson.
M. A.-kvartettinn
syngur í Nýja Bíó í kvöld kl.
7,15. Breytt söngskrá. Einnig
syngur kvartettinn nýtt lag eft-
ir Sigvalda Kaldalóns, tileinkað
kvartettinum.
Næturlæknir er í nótt Páll
Sigurðsson Hávallagötu 15. Sími
4959.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfs-apoteki.
Veðrið: Hiti í Reykjavík 3
stig. Yfirlit: Lægð yfir Norður-
Grænlandi, en háþrýstisvæði
um Noreg og Bretlandseyjar. —
Utlit: Suðvestan kaldi og smá-
skúrir.
UTVARPIÐ:
15,00 Veðurfregnir.
19,10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
19,45 Fréttir.
20,15 Erindi: Um íþrótta-
kenslu (Lárus Rist kenn-
ari).
20,40 Hljómplötur; Endurtek-
in lög.
21,05 Erindi: I sveit í Austur-
Bayem (Knútur Am-
grímsson kennari).
21,30 Hljómsveit útvarpsins
(dr. Mixa): a) Adagio
úr kvintett í F-dúr, eftir
Bruckner; b) Symfonia
pastorale, eftir Tartini.
21,55 Skýrsla um vinninga í
Happadrætti Háskólans.
Danzlög.
Dagskrá alþingis í dag:
í sameinuðu þingi er framhald
2. umræðu um fjárlögin og at-
kvæðagneiðsla. Fundur í samein-
uðu þingi hófst kl. 2.
I efri deild: ekju- og eigna-
skattur, vömtollur og lokunartími
sölubúða.
í neðri deild Lax og silungs-
veiði, alþýðutryggingar, þingsköp
alþingis, útgerðarsamvinnufélög,
klaksjóður, heimild fyrir rikis-
stjórnina til að reisa klakstöðviaí
og til eignamáitís, í því skyni, ný-
býli og samvinnubygðir og Ferða-
skrifstofa ríkisins.
La Cucaracha
heitir myndin, sem Gamla Bíó
sýnir um þessar mundir. Er
myndin tekin með alveg nýrri
upptökuaðferð og sýnd í eðlileg-
um litum.
Farþegar
með e.s. Dettifoss í gær-
kvöldi: Steingrímur Guðmunds-
son, Ólafur Einarsson, Dagný
Einarsdóttir, Ölafur Jónsson,
Haraldur Sigurðsson, Frú Sig-
urðsson, frk. Sigríður Back-
mann, Guðmundur Jónsson, Ás-
geir Ólafsson, Richard Noah,
Komila Kristjánsd., Brynjar
Eydal, Dóra Halldórsd.
Köngulóin
heldur Cabarettsýningu á
föstudagskvöldið. Á þessari
sýningu verður danzað, en
annars skemta þar flestir sömu
menn og áður; Friðfinnur, út-
varpskvöldsleikendumir o. fl.
Skipafréttir:
Gullfoss fór frá Leith í dag
áleiðis hingað. Goðafoss er á leið
til Hamborgar frá Hull. Brúar-
fo&s er í Reykjavík. Dettifoss er
í Reykjavík. Lagaifoss er á leið
til útlanda frá Fáskrúðsfírði. Sel-
foss kom frá útlöndum í gær-
kveldi. Drottningin er í Kaup-
mannahöfn. Island fer í kvöld
kl. 6 vestur og norður. Esja fór
í gæifcveldi kl. 10Va í hringferð
austur um land. Súðin er í
Reykjavík.
Höfnin:
Sindri kom frá Englandi í gær-
dag. Andri tófc hér ís og fór
á veiðar í gæikveldi. Þýzkur tog-
ari kom i morgun að fá sér kol
og vistir. Otur fór á veiðar í
dag.
Tilkynning.
Ég sendi öllum góðum borgur-
um þessarar borgar ósk um gleði-
teg jól og treysti þeim beztu að
senda mér eitthvað smávegis fyr-
ir jólin handa mér og hesti mín-
um. Oddur Sigurgeirsson, Odd-
höfða, Flughöfninni.
■ NfJA BIO n
Hvíta íjflfeiagio.
(The White Parade).
Ámerísk tal- og tónmynd
frá Fox-félaginu.
Aðalhlutverkin leika:
Lorette Joung,
John Boles,
Dorothy Wilson o. fl.
Myndin gerist að mestu
leyti á nýtísku sjúkrahúsi
í New York, og er hugnærn
saga um starf hjúkrunar-
kvenna.
Aukamynd:
Talmyndafréttir.
Svartlistar-skemtun
var haldin í Oddfellow-húsinu
á sunnudaginn var að tilhlutun
Menningarfélags prentara. Prent-
arar og aðrir, sem vinna að hinni
svörtu list, komu þar saman og
skiemtu sér við: ræðu, sem Jón H.
Guðmundsson prentari, formaður
Menningarfélags prentara, flutti,
draugasögu eftir ungau prentara,
Guðm. K. Eiríksson, sem Friðfinn-
ur Guðjónsson prentari las upp.
Gunnar Sigunmmdsson prentari
söng nokkur fögur einsöngslög og
Óskar Guðnason prentari las
kímnisögu eftir Mark Twain. Síð-
ast var siftginn danz, og lék
hljómsveit Karls Runólfssonar
tónskálds og f. prentara fyrir
danzinum.
Hvíta fylkingin
lxeitir amerísk tal- og tón-mynd.
sem Nýja Bíó sýnir um þessar
mundir. Gerist myndin meðal
hjúkrunarnema á nýtízku sjúkra-
húsi í New Yoric.
Þýzki sendikennarinn
dr. Iwan, flytur í kvöld fyrir-
lestur í háskólanum um „Deuts-
che Gebirge“. Fyrirlesturinn
hefst kl. 8,05 og er lokið kl. 8,50.
Alúðarþakkir fyrir hluttekninguna við andlát og útför móður-
systur okkar,
Ingibjargar Ásmundsdóttur, frá Odda.
Guðrún Reykholt. Ásmundnr Guðmundsson.
Helgi Guðmundsson. Guðmundur Guðmundsson.
Jarðarför litla drengsins okkar,
Stefáns Karls,
er andaðist 5. þ. m. fer fram frá fríkirkjunni föstudaginn 13. þ.
m. og hefst með bæn á heimili okkar, Spítalastíg 1, kl. 1 e. h.
Valgerður Stefánsdóttir. Erlingur Klemensson.
VðrnbílastðOinl Dróttnr
Framhaldsaðalfundur verður fimtudaginn 12. des.
1935 (annað kvöld) kl. 8 e. h. á stöðinni.
STJÓRNIN.
HannifcjSt til iólanna
verður eins og fyr bezt að kaupa hjá okkur.
__c-i. , ■ ------1 ■• • “ ■ '
Pantið í síma
1080
2678
4241
Samband ísl. samvinnufélaga.