Alþýðublaðið - 22.12.1935, Blaðsíða 1
ARABISK AR
N Æ T U R,
úrvals æfintýri
úr
Þúsund og einni nótt.
Kr. 6.00.
Góð jólagjöf.
XVI. ÁRGANGUR
SUNNUDAGINN 22. DEZ. 1935.
315. TÖLUBLAÐ
RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON g § tJTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKÆRINN
verkf allið er f yrírf ram tapað
Bilaeigendnr fá engar tilslakanir
h|á ríkisstfórninni og Alþingi.
SérleyfishafarDir
hata brotið sérleyfissamn-
ingana og verða gerðir
ábyrgir fyrir gað.
ÞÖ að verkfall bifreiðaeigenda og bifreiðastjóra
hafi enn ekki staðið nema einn dag, er þegar sýnt
orðið að það hlýtur að enda með algerðum ósigri allra
þeirra, sem til þess stofnuðu, enda kom það í Ijós,
strax og verkfallið var hafið, að megn mótspyrna var á
móti því meðal bifreiðastjóra sjálfra. Mun f jöldi þeirra
þegar í upphafi hafa séð, að það getur engan árangur
borið.
__ Alþingi og ríkisstjórn munu ekki hvika í neinu frá
teknum ákvörðunum, hvort sem hið svokallaða verkf all,
sem háð er fyrir fjárhagslegum hagsmunum bifreiða-
eigenda og pólitískum hagsmunum íhaldsins, stendur
lengur eða skemur. Hins vegar mun verða látin fara
fram rannsókn á því, hvort bifreiðaeigendur, sem
bundnir eru samningum við ríkisstjórnina um sérleyfi
til fólksflutninga, hafi ekki brotið af sér þá samninga
með þáttöku sinni í verkfallinu.
hefir fengið kærkomið tækifæri til þess að stöðva atvinnubóta-
vinnuna og þar að auki alla vinnu við Sogið.
5. Að Aiþýðusambandið og þingmenn Alþýðuflokksins hafa
heitið bifreiðastjórum aðstoð til þess að ná verulega bættum
kjörum á margvíslegan hátt, svo sem með hækkuðu kaupi og
betri sidpulagningu á þeim atvinnurekstri, sem þeir eiga lífsaf-
komu sína uiidir.
Að öllu þessu athuguðu lítur Alþýðusamband ísiands svo á,
að verkfall þetta sé ósvífin árás á afkomu verkalýðsins og póli-
tískt herbragð íhaldsmanna, nazista og kommúnista til þess að
sundra hinum skipulögðu allsherjar samtökum verkalýðsins inn-
an Alþýðusambandsins og hindra umbótastarfsemi Alþýðuflokks-
ins, og skorar því á aíla meðlimi verkalýðsíélaga innan Alþýðu-
sambandsins, að halda áfram störfum sínum, og styðja á engan
hátt, hvorki beint eða óbeint þetta vanhugsaða og gerræðisfulla
verkfall og árás þá, sem með því er gerð á atvinnuaukningu fyrir
verkalýðinn í landinu.“
l
Italir nndlibúa ðrðs
ð Egiptaland frá Libyn.
0 '
E>eir hafa nú helmingi meiri her par
heldur en Englendingar á Egiptalandi.
Þegar verkfallið hófst í gær
kl. 12 á hádegi kom það í ljós að
fjöldi bifreiðarstjóra var mjög
ófús að taka þátt í því. En þeim,
sem fyrir verkfallinu stóðu
tókst að stöðva þá með aðstoð
allmargra nazista- og kommún-
istastráka, sem flyktust um að-
algöturnar og stóðu fyrir bílun-
um. Lögreglan hafði engin af-
skifti af þessum viðburðum
enda mun enginn hafa óskað
þess, aðrir en þeir, sem hafa
vonað, að verkfallið gæfi tilefni
til slagsmála á götunum. Engu
að síður báru kommúnistar þau
rakalausu og illkvitnislegu ó-
sannindi út um bæinn í gær, að
ríkisstjórnin hefði fyrirskipað
að koma hér upp ríkislögreglu
á ný. Alþýðublaðið getur full-
vissað bæjarbúa um það, að það
fleipur er gersamlega tilhæfu-
laust.
Þrátt fyrir samfylkingu
íhaldsmanna, nazista og komm-
únista á aðalgötum bæjarins,
voru bílar í gangi í allan gærdag
úti um bæinn og út úr honum,
þótt allar fastar ferðir féllu nið-
ur.
Til slagsmála kom hvergi svo
vitanlegt sé. Hins vegar gripu
forráðamenn verkfallsins til
þess úrræðis að taka hluti úr
vélum ýmsra bíla, af ótta við
það, að ekki væri hægt að
stöðva þá á annan hátt.
Fjöldi hestvagna sást á göt-
unum allan síðari hluta dagsins
og margir fluttu nauðsynjar sín-
ar, kol og fleira á hestvögnum.
Vinnandi bíl-
stjðrnm er otað
fram fyrir hags-
mnnibilaeigenda
Viðtal við Bjarna
Bjarnason, fyrv.for-
mann „Hreyfils“
Alþýðublaðið átti í gærkveldi
viðtal við Bjama Bjarnason, sem
var formaður bifneiðastjórafélags-
ins „Hreyfill“ frá því að það var
stofnað og þangað til í fyrrinótt,
að hann sagði af sér vegna á-
gneinings innán félagsins um
vefkfallið.
„Ég vil fyrst og fremst," sagði
Bjami, „leiðrétta þann misskiln-
ing, sem ég befi orðið var við í
bænum, að þeir einir bifreiðastjór-
ar, sem vinna hjá öðrum, standi
að verkfallinu.
Verkfallið er ekki hafið vegna
þeirra, því að benzínskatturinn,
sem verkfallið snýst um, getur
ekki á neinn hátt ient á þeim.
Hér er um hagsmuni þeirra að
ræða, sem eiga bílana, og af-
staða mín og stjórnarinnar var
því sú, að það væri ekki fyrst og
fremst þeirra bifreiðastjóra,
sem vinna hjá öðrum, að lýsa
verkfallinu yfir, heldur bílaeig-
enda.
Það eru því hagsmunir at-
vinnurekenda og bílaeigenda,
sem hafa sigrað innan félagsins.
Þeim hefir tekizt að nota hina
vinnandi bifreiðastjóra fyrir
sína hagsmuni í þessu máli og
otað þeim út í verkfallið, en
sjálfir standa þeir á bak við,
hvort sem þeir vilja kannast við
það eða ekki, enda munu sumir
þeirra hafa fulla ástæðu til þess
að hafa sig ekki í frammi.
Atburðir þessara síðustu daga
hafa yfirleitt fært mér heim
sanninn um það, að bifreiða-
stjórar, sem vinna hjá öðrum,
og bílaeigendur, jafnvel þótt
þeir eigi ekki nema einn bíl eða
jafnvel part í bíl, eiga enga sam-
leið.“
Til dæmis um heilindi at-
vinnurekenda og íhaldsmanna í
þessu máli, sagði Bjami blaðinu
ennfremur frá því, að Eyjólfur
Jóhannsson hefði lofað stuðn-
ingi sínum við verkfallið, en
þegar á átti að herða mat hann
þó meira hagsmuni sína af því
að selja mjólk í bæinn og sendi
bíla sína austur í Mosfellssveit
eftir kvöldmjólkinni.
Sérleyfishafarnir
hafa rofið samninga
sína við ríkisstjórn-
ina og verða gerð-
ir ábyrgir fyrir.
Meðal þeirra atvinnurekenda,
sem ætla sér að hafa hag af
þessu verkfalli, eru nokkrir hinna
stærstu bundtiir sámningum við
fí'kisstjórnina, þar eð þeir "hafa
sérleyfi til fólksflutninga innan
bæjar og utan. Þiessir stærstiu
sérleyfishafar eru Strætisvagnar
Rey'kjavíkur h. f., Steindór Ein-
arsson, Bifreiðastöð Reykjavíkur
og Bifreiðastöð íslands.
Þessir bifreiðaeigendur hafa af
skiljanlegum ástæðum reynt að
láta líta svo út, að þeir væru ekki
beint við verkfallið riðnir, og einn
þeirra, Strætisvagnar, lýsti því
mteira að segja yfir á fundi bif-
reiðastjóranna í fyrrinótt, að hann
stæði á leingan hátt að þvi, og að
hann myndi halda uppi fólks-
fiutningum, nema vagnarnir yrðu
stöðvaðir af verkfallsmönnum.
Hins vegar er kunnugt, að þeir
hafa allir tékið þátt í undirbún-
inigsfundum bifreiðarstjóranna og
auðvitað ekki latt þá á nokkurn
hátt, og vitað er, að sumir þeirra
hafa beinlínis hvatt þá til verk-
fallsins.
1 gær þegar stöðvunin fór
fram, þurfti ekki nema einn eða !
tvo sendimenn frá forsprökkum
verkfallsins til þess að þeir
stöðvuðu alla bíla sína, enda
þótt hjá hverjum einasta þeirra
væru margir bifreiðastjórar,
sem vildu halda áfram vinnu.
I sérleyfissamningum þessara
herra við ríkisstjómina eru ský-
laus ákvæði um það, að þeim
beri skylda til, „að fullnægja
Frh. á 4. síðu.
ElNKASKEYTl TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gærkveldi.
RÉTTARITARI enska
” blaðsins „Daily Tele-
graph“ í Rómaborg hefir
skýrt blaðinu frá því, að
ítalska stjórnin sé að und-
irbúa að senda nýjar her-
sveitir vopnaðar bryn-
vögnum til hafnarborgar-
innar Benghasi í Libyu, á
norðurströnd Afríku, hið
allra fyrsta. Þessi undir-
búningur er tekinn sem ó-
tvíræð hótun af hálfu
ítölsku stjórnarinnar um
að ráðast á Egiptaland, ef
olíubannið yrði samþykt
gegn ítalíu.
Það er ekki nákvæmlega
kunnugt, hve mikinn her
ítalir hafa nú í Libyu. En
þeir, sem bezt þekkja til,
telja, að hann muni vera
helmingi stærri en sá her,
sem Englendingar hafa á
Egiptalandi.
Mussolini vonar að
geta seinna samið
upp á Parísarskil-
málana.
Símsikieyti frá París herma, að
embættismaður í ítalska utaurjk-
ismálaráðuneytinu hafi látið svo
um mælt, að ítalsika stjómin muni
ekki senda neitt svar við frið-
artillögum Lavals og Hoares eftir
þietta. Hins vegar muni Musso-
lini gera kröfu til þess í fram-
tíðinni, þ'egar til friðarsamninga
toemur, að þiessar tillögur verði
troknar upp aftur sem samnings-
gmndvöllur.
Abessiníumenntóku
10 skriðdreka og 28
vélbyssur herfangi
í orustunum við
Takasse.
Símstoeyti frá London segja, að
stjómin í Addis Abeba hafi gefið
út opínbera yfirlýsingu um, að
Abiessiníumenn hafi unnið stór-
jsigur í byrjun þessarar viku hjá
Enda Selassia, skamt vestur af
Afcsum, nekið ítali á flótta og
tefcið mikið herfang.
Er ’talið, að hér muni átt við
orusturnar, sem fram hafa farið
við Takassefljótið.
í tilkynningu stjómarinnar í
Addis Abeba segir, að Abes-
siníumenn hafi tekið 7 Itali, auk
margra innfædra manna frá
Erithreu, til fanga, og náð 10
skriðdrekum, 28 vélbyssum, 2
vopnuðum flutningavögnum og
2 úlföldum á sitt vald.
Aðrar fréttir frá Abessiníu
segja, að hersveitir Abessiniu-
manna séu komnar inn í úthveifi
MakaLeborgar, og eigi hermeam
Ras Seyoums þar og í umhverfi
borgarijnnar í stöðugum og blóð-
ugum skærurn við ítalska herinn.
STAMPEN.
Fjórir útlendingar
reknir frá Addis
Abeba fyrir njósnir.
KALUNDBORG, 21. des. FO.
Fjórum útlendingum hefir
verið vísað á brott úr Addis
Abeba, vegna þess að þeir eru
grunaðir um að reka njósnar-
starfsemi fyrir Itali. Ekkert er
látið uppi um þjóðemi þessara
manna, né heiti.
Gríska stjórnin leit-
ar ráða h já V enizelos
LONDON, 21. dez. FB.
Frá Aþenuborg er símað, að
Geoig konungur og Demerdzis
forsætisráðberra ætli að kalla alla
leiðtoga stjórnmálaflokkanna í
landinu á sinh fund, þ. á. m.<
Venizelos, til þess að leita álits
þeirra um, hverju svara skuli orð-
semdingu Breta um aðstoð, «f
Italir skyldu ráðast á brezka flot-
ann á Miðjarðarhafi, vegna skuld-
bindinga, sem af leiði fram-
kvæmdum í samræmi við sátt-
mála ÞjóðabandaLagsins.
(United Press). .
Hauptmann verður
lífiátinn 13. janúar.
EINKASKEYTI TIL
ALÞÝÐUBLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gæikveldi.
AÐ hefir nú verið ákveðið
fyiir fult og alt, að Bruno
Hauptmann, sem dæmdur var fyr-
ir ránið á bartii Lindberghs, skuli
tefcimn af lífi í rafmagnsstólnutn
þ. 13. janúar næst komandí.
STAMPEN.
Masaryk fær full
forsetalaun æfilangt.
EINKASKEYTI TIL
ALÞÝÐU BLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gæikveldi.
^OIMSKEYTI frá Prag hierma,
^ að þing Tjiekkóslóvakiu hafi
i dag samþyfct í einu hljóði, að
Masaryk fyrrverandi forseti, skuli
halda fullum forsetalaunum æfi-
lansl.
STAMPEN.
Danski landmæl-
ingamaðurinn P. P.
Jensen látinn.
EINKASKEYTl TIL
ALÞÝÐU BLAÐSINS.
KAUPMANNAHÖFN í gæikveldi.
ANDM ÆLINGAMAÐURINN
P. F. Jensen, oberstlautinant,
andaðdst skyndilega I dag 65 ára
að aldri. STAMPEN.
Stjórn Alþýðusambands Islands kom saman á
fund í gærkvöldi og samþykti þar í einu hljóði eftir-
farandi ávarp til verkalýðsins:
Avarp til verkalýðsins
frá Alpýðasambandi
Islands.
„1 tilefni af verkfalli því, sem bifreiðaeigendur hafa hafið, Iýsir
Alþýðusamband Islands þessu yfir:
1. Að verkfallið er ólöglegt, þar sem það er hafið þvert ofan
í lög og reglur Alþýðusambands Islands.
2. Að verkfallið er ekki hafið út af verkakaupi eða vinnu-
kjörum bifreiðastjóra, heldur er það fyrst og fremst pólitískt og
er því beint gegn löggjafarvaldinu.
3. Að verkfallið stefnir að því, að draga stórkostlega úr
framlögum til atvinnubóta og aiuiara opinberra verklegra fram-
kvæmda og er því beinlínis árás á hagsmuni megin þorra þeirra
manna, sem mynda Alþýðusambandið.
4. Að verkfallið er undirþúið og skipulagt af fjandmönnum
verkalýðsins, atvinnurekendum og flokki þehra, Sjálfstæðisflokkn-
um með aðstoð kommúnista og nazista, í þeim tilgangi að rjúfa
samtök verkalýðsins og undirbúa þannig árás á þáu með Iauna-
lækkunum og stöðvun atvinnutækjanna, eins og nú þegar hefir
sýnt sig, þar sem íhaldsmeirihlutinn í bæjarstjórn Reykjavíkur