Alþýðublaðið - 01.03.1936, Síða 4
ggBgggg
SUNNUDAGINN 1. marz. 1930.
GAMLA BlÓ B
sýnir kl. 9:
Lit ða b æjan
Listavel leikin kvikmynd
gerð eftir hinni frægu
skáldsögu W. Somerset
Maugham.
Aðalhlutverkin leika:
GKETA GAKBO og
Herbert Marshall.
Bamasýningar kl. 3 og 5
og alþýðusýning kl. 7, og
verður þá sýnd
SÓLSKIMSBARNIÐ
með Shirley Temple.
ifitstfnt tnUiTIUi
E að þé t imúraii?
Hat
Ef ekki, þá gangið inn á
fundinum í kvöld kl.
S í Iðnó.
Sala inntökuskírteina hefst
í dag eftir kl. 1.
Sírni 3191.
Karlakór Reykjavíkur.
At Heidelberg
verður leikið í Iðnó á
þriðjudagskvöld kl. 8.
Aðgöngumiðar verða seldir
í Iðnó frá kl. 4—7 á mánu-
dag og eftir kl. 1 á þriðju-
dag. — Pantanir sækist
fyrir kl. 3 sýningardaginn.
Aðgöngumiðasími: 3191.
Voruð
pér
að tala um rnynda- jg|
smið?
— Já, einmitt —
— nú þá hafið
þér átt við
Loft
I. O. fi. T.
Framtíðarfundur verður hald-
inn mánudaginn 2 marz. —
Kosning fulltrúa tii þingstúk-
unnar. Félagar f jölmennið.
Sveinafélag Húsgagnasmiða
hélt aðalfund sinn í fyrra-
kvöld. I stjórn félagsins voru
kosnir Guðm. Breiðdal formaður,
Jón Hlíðberg gjaldkeri og Guðm.
Pálsson ritari. I varastjórn voru
kosnir Ólafur B. Ólafss, Tryggvi
Hjálmarsson og Ólafur Guð-
finnsson. Félagið telur nú 55 fé-
laga, og er félagsgjaldið 2 krónur
fyrir 'hverja vinnuviku. Áhugi er
mikill í félaginu og góður starfs-
vilji.
Iðnsamband byggingarmanna.
I dag kl. 10 verður sambands-
þing Iðnsambands byggingar-
manna sett í Baðs ofu iðnaðar-
manna. Félagsmönnum, sem eru í
félögum innan Iön:ambandsins, er
heimill aðgangur meðan húsrúm
leyfir.
Sjötugur
er í dag Benjamín Einarsson
skósmiöur, Selbúðum 1.
lilgnaskifti.
Hefi kaupanda að húsi eða
jörð gegn vörugreiðslu. Húsið
má vera utan Reykjavíkur. Vör-
urnar geta verið það miklar að
hægt sé að byrja verzlun mé#
þeim.
Gísli Björnsson,
Barónsstíg 19. Sími 4706.
alskonar.
Prjónagarn.
Vinnuföt.
Sjófatnaður.
Næríatnaður.
Sokkar.
Manchettskyrtur
o. m. m. fl.
Reynið viðskiftin.
Verzíun
SIG. JÓNSSONAR
Vesturgötu 23.
k
*
\
„Briaifoss"
fer á þriðjudagskvöld (3.
marz) til Breiðafjarðar,
Vestfjarða, Sauðárkróks,
Sigiufjarðar og Akureyr-
ar.
AIÞÝÐUBIAÐIB
í þrotabúi Eimskipafélags-
i ins Fram h.f. verður hald-
inn í Bæjarþingstofunni,
mánudaginn 2. marz n. k.
kl. 10 árd., til þess að taka
ákvörðun um sölu eigna
búsins, sérstaklega e.s.
Columbus.
Skiftaráðandinn í Reykja-
vík 27. febr. 1936.
BJÖRN ÞÓRÐARSON.
SJCKKATIIYGGINGARNAR.
Frh. af 3. síðu.
uði að drepa hið nýja sjúkriasam-
lag.
„Ilvaða læknar eru það?“
Eru ummælin rétt höfð eftir
yður?"
„Nei, aldeilis ekki. Mér hefir
aldrei dottið slíkt í hug, hvað þá
að ég hafi sagt þetta."
Dr. H. T. afneitar
sjálfum sér.
Eins og sést á þessu viðtali, vill
dr. H. T. draga sem mest úr
þieim skoðunum, sem fram komu
í fyrirlestri hans frá vetrinum
1935 og hann mótmælir ákveðið
þeim fjandsamlegu ummælum,
sem höfð eru eftir honum af
læknum úr Læknafélagi Reykja-
víktír.
Um það, hvort þau ummæli eru
rétt eftir honum höfð, vil ég ékk-
ert segja, en doktorinn hefir mót-
mælt þeim. Hins vegar er ekki
við því að búast, að maður, sem
svikist að opinberri stofnun sem
flugumaður, en samt sem trúnað-
armaður almenniings, til þess að
leggja hana í rústir, færi að skýra
frá fyrirætlunum sínum íopinberu
blaðaviðtali. En fyrirlestur hans
liggur opinberlega fyrir, og að
þar séu birtar skoðanir hans, a.
m. k. eins og þær voru í fyrra
um þetta leyti, er ekki hægt að
véfengja, og þá er hann algerlega
andvígur því fyrirkomulagi, sem
nú hefir verið tekið upp í hin
nýju lög um sjúkratryggingar, og
vill að S. R. sé lagt undir yfirráð
L. R.
Reynslan verður að skera úr
um það, hvort dr. Helgi Tómas-
son verður heill í starfi sinu i
stjórn hins nýja samlags, og hún
sker um leiö úr því, hvort dr.
Helgi Tómasson er ódrengur, sem
tekur að sér stjórn í hinu nýja
sjúkrasamlagi undir fölsku yfir-
skini gagnvart almenningi. Hverju
hann hefir lofað Sjálfstæðis-
flokknum, er kaus hann til þessa
starfs, kemur málinu ekki við á
þessu stigi málsins.
Ég vildi gera þetta mál
að opinberu máli vegna
þess, að alt bendir til að
hér ætli Sjálfstæðisflokk-
urinn að láta umboðsmenn
sína fremja óheyrilegt
skemdarverk á stórkost-
legu mannúðar- og velíerð-
armáli allrar alþýðu, og
að sjálfsagt er að almenn-
ingur sé viðbúinn öllu.
Það er kunnugt að S jálfstæð-
isflokkurinn er í raun og veru
andvígur öllum alþýðutrygging-
um, en það er jafnframt orðið
Ijóst að hann þorir ekki opin-
berlega að hef ja baráttu gegn
þeim.
Ætlar hann nú að beita Iævís-
legum aðferðum til að eyði-
leggja þessa einu grein trygg-
inganna, .... sjúkratrygginguna,
sem hann hefir afl til að eyði-
leggja af því að hann hefir
meirihluta í stjórn Samlagsins?
Menn verða að trúa því, sem
þeim þykir trúlegast, fylgjast
með öUu sem gerist í þessu máli
og vera við öllu búnir, því að
það er sannarlega fullkomin á-
stæða til þess.
VUhjálmur S. Vilhjálmsson.
Alt Heidelberg
var leikið á föstudagskvöld
fyrir troðfuilu húsi og við ágætar
viðtökur. Næsta sýning verður á
þriöjudagskvöld.
I DAG
Næturleeiknir er í nótt Bjarni
Bjarnason, Leifsgötu 7, simi 2829.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapótekl
MESSUR
Kl. llí dómkirkjunni, séra B. J.
— 2 bamaguðsþjónusta, sr. Fr. H
— 5 í fríkirkjunni, séra Á. S.
— 2 1 frík. Hafnarfj., 9éra J. Au.
< OTVARPIÐ
10,50 Morgrmtónleikar: a) Schu-
mann: Píanókonsert í a-moll; b)
César Franck: Symfónía i d-moll.
15 Miðdegistónleikar frá Hótel Is-
land.. 18,30 Barnatími. 19,20 Ein-
Iieikur á píanó (Ární Björnsson).
19,45 Fréttir. 20,15 Upplestur:
Sögukafli (Halldór Kíljan Lax-
niess). 20,40 Hljómplötur: Lög
úr óperunni „Madame Butterfly",
eftir Puccini. 21,05 Trúmálaerindi,
IV: Kirkjan og þjóðfélagsmálin
(séra Björn Magnússon). 21,40
Kantötukór Akureyrar syngur (frá
Akuneyri). 22,05 Danzlög til kl. 24.
60 ára afrnæli
Ásgríms Jónssonar.
1 tilefni af því, að Ásgrimur
Jónsson málari verður sextugur
næst komandi miðvikudag, hafa
nokkrir unnendur málaralistarinn-
ar stilt út nokkmm úrvals-mál-
verkum meistarans í Málaranum,
Bankastræti 7 hér í bænum. —
Málverkin verða að eins til sýnis
þar í dag.
Þvottakvennafél. Freyja
heldur afmælisfagnað sinn í
K-R-húsinu kl. 8Va í kvöld. Ágæt
skemtiskrá.
VESURT-ISLENZKUR
VERKALÝÐSFORINGI
Frh. af 3. síðu.
verkamannafélaga jámbrautar-
manna. Hlóðust samfagnaðar-
skeyti að heiðursgestinum úr
mörgum áttum; meðal annars
bámst honum kveðjur frá at-
vinnumálaráðherrum Bandaríkj-
anna og Canada, og frá ekki færri
en níu öldungaráðsmönnum
Bandaríkja. Luku ræðumeno
miklu lofsorði á starfsemi Fljóz-
dals í þágu félagsskapar hans og
verklýðshreyfingarinnar amerisku
í heild sinni, og fóm jafnframt
fögmm orðum um hann persónu-
lega. Eirikum var til þess tekið,
hversu vel og fagurlega Green
forseta Verklýðssambandsins hafi
mælzt í garð heiðursgestsins.
Starfsférill Fljózdals er því að
sama skapi glæsilegur og störf
hans hafa orðið ávaxtarík í þaxfir
stéttarbræðra hans. Ekki er held-
ur langt að leita skýringarinnar á
því, hvers vegna hann hefir hafist
úr réttri og sléttri verkamanns-
stöðu í rrjestan virðingarsiess með-
al samverkamanna sinna. Hann
hefir verið trúr sjálfum sér og
umbótahugsjónum þeim, sem
hann gekk á hönd snemma æfinn-
ar. Og sú trúfesti hefir gert sögu
hans æfintýrið um fátæka sveita-
piltinn íslenzka, sem varð hæfur
og virtur málsvari hundruð þús-
unda starfsbræðra hans, járn-
brautarmanna í Norður-Ameríku
og enn víðar um lönd.
eru aUa ee/tl að keppa að
takmarkinu — en ná þvi
aldrei
— en með
15-FÓTO
er takmarkinu náð -
með því að fullnæg'ja
úekum og kröfum
sdmennings.
M er pl
að hafa gott almenn-
lngsállt — en það hefir
I
15-FÓTO
það er mór óhsett að
segja.
loftor, kgl.
NÝJA BlÓ B1
Kona
þrátt fyrir alt.
Amerísk tal- og tónmynd
skemtileg og snildarvel
leikin af:
Buth Chatterton,
George Brent,
Loíb Wilson o. fl.
Aukamyndir:
FRA JABÐARFÖR
GEORGS V.
BRETAKONCNGS
og
CHAPLIN
1 NÝRRI STÖÐC.
Tónskopmynd, leikin af :
Charlie Chaplin og
Ben Turpin.
Böm fá ekki aðgang.
Sýnd í kvöld kl. 7 og 9.
Lækkað verð kl. 7.
Á barnasýningu kl. 5
verður sýnd hin gullfallega
og skemtilega mynd
Litli ofurstinn.
Leikin af undrabaminu
Shirley Temple.
Jarðarför
Valdísar Ölafsdóttur
fer fram þriðjudaginn 3. marz og héfst kl. 1 e. h. á SeljavegiTf
Jarðað verður frá þjóðkirkjunni.
Foreidrar og systldni.
Myndlistafélag íslands
heldur
Kvoldskemtun
í K. R.-húsinu í kvöld kl. 9. — Mörg góð skemtiatriði svo sem:
Erindi: Freymóður Jóhannsson málari.
Einsöngur: Einar Markan.
Upplestur: Ingibjörg Steinsdóttir leikkona.
Gamanvísur: Bjami Bjömsson.
Síðast verður danzað. — Ágæt hljómsveit.
Aðgöngumiðar seldir eftir kl. 1 í K. R.-húsinu.
Komið og skemtið ykkur í K. R.-húsinu.
Nefndin.
Rússlandsför.
Þeir Dagsbrúnarmenn, sem óska þess að fara til Sovét-Rúss-
lands í næsta mánuði sendi umsóknir þar um til stjómar félags-
ins fyrir 10. marz.
Ath. Fargjöld og uppihald verður ókeypis.
Stjómin.
Húseigendnr.
Látið ekki gusta lengur inn með hurðum og
gluggum. Við þéttum þá fullkomlega með
málmþéttilistum, sem hafa þrotlaust fjað-
urmagn. Leitið nánari upplýsinga.
Trésmiðlan FJðlnlr,
við Bröttugötu. Sími 2336.
10, 15 eða 20 stk. Appelsínur fyrir 1 krónu. Drifandi Laugavegi 63, sími 2393.