Alþýðublaðið - 12.03.1936, Síða 3

Alþýðublaðið - 12.03.1936, Síða 3
FIMTUDAGINN 12. MARZ 193ð XLÞÝÐUBtAÐIÐ NtTJA BlÖ Verkamenn og jafnaðarmenn í Danmörku hylla Alpýðu- samband íslands. ID A G bárust ritara Alþýðusambands Islands, Stefáni Jóh. Stefánssyni, eftirfarandi heillaóskaskeyti af tilefni 20 ára afmælis sambandsins: Alþýðusainband fslands, Reykjavík. Kaupmannahöfn, 12. marz 1936. Á tuttugu ára afmæli Alþýðu sambands íslands, allsherjar- samtaka verkamanna og jafnaðarmarma á fslandi, sendir Jafn- aðarmannasambandið í Danmörku því sína bróðurlegu kveðju með þakklæti fyrir ávaxtaríkt starf í þágu sósialismans, beztu óskir um glæsilega framtíð og góða samvinnu milli bræðrafiokk- anna og bræðraþjóðanna á íslandi og í Danmörku. Th. Stauning, Alsing Andersen, Hedtoft-Hansen, €., Kliiwer. Alþýðusamband fslands, Reykjavík. Kaupmannahöfn, 12. marz 1936. Hjartanlegar hamingjuóskir á tuttugu ára afmælmu og beztu óskir um áframhaldandi vöxt og viðgang verkalýðsfélag- anna og Alþýðuflokksins á Islandi. Lifi eining verkalýðssamtak- anna bæði þjóðlega og alþjóðiega. Landssamband verkalýðsfélagamia í Danmörku. Chr. Jensen. Alþýðusamband íslands, Reykjavík. Kaupmannahöfn, 12. marz 1936. Til hamingju með tuttugu ára starfið. Lifi sósialisminn. H. P. Sörensen, „Social-Demokraten“. Önnur heillaóskaskeyti, sem Alþýðusambandinu hafa borizt í dag, verða að bíða þess að vera birt þangað til á morgun. Ummæll Moismannaona Frh. a® 1. sfðvs. Peíer Ibbetson. Lista-vel gerð kvikmynd, eftir einni fegurstu en ein • kennilegustu ástarsögi heimsbókmentanna, skáld- sögu GEORGE DU MAURIER. Aðalhlutverkin eru fram- úrskarandi vel leikin af: GAKY COOPER, ANN HARDING og DICKIE MOORIO. Bönnuð börnum inn'an 14 ára. Karlakór Eeykjavíkur. Alí Mdelfeerg Sýning annað Itvöld kl. 8. Lækkað verð. Aðgöngumiðar sel. ;ir í Iðnó frá kl. 4—7 í dag og eftir kl. 1 á morf ;un. Aðgöngumiðasíni ': 3191. 2307 er símanúrr. srið hjá Ódýru fiskbúðinni, Kh pparstíg 8. — Svartlið- arnir. Spennandi talmynd sam- kvæmt hinni frægu leyni- lögreglusögu eftir „Sap- per“ um æfintýri og af- reksverk lögregluhetjunn- ar RuUdog Drammond. Aðalhlutverkin leika: Ralph Richardson og Ann Todd. Saga þessi hefir komið út í íslenzkri þýðingu í Sögu- safninu og hlotið miklar vinsældir. Börn fá ekki aðgang. 1 Bálfaraíélag fsiands. Innritun nýrra félaga í Bókaverzlun Snæbjarnar Jónssonar. Argjald kr. 3.00 ÆfitiLlag kr. 25,00. Gerist félagar. Geri við alskonar heimilisvél- ar og skrár. H. Sandholt, Þórs- götu 17. Sími 2635. Nýtízku kvendragtir og frakkar eru saumaðir fyrir sanngjarnt verð. Höfum einnig á lager kvöldblússur og pils. Tízkan, Lækjargötu 8, sími 4940. Otto N. Þorláksson, Jónína Jónatansdóttir, Ölaf ur Friðriks- son, Helgi Björnsson skipstjóri, Ágúst Jósefsson, Davíð Krist- jánsson o. fl. Á þessu þingi voru samþykt lög fyrir sambandið og stefnu- skrá og starfsemi næstu mánað- anna ákveðin. Alþýðusambandið var ekki háreist eða völd þess mikil í byrjun, en það sýndi sig, að jarðvegurinn fyrir slíka starf- semi var til og Alþýðusamband- ið óx hraðfara. Starfsemin var aðallega fólgin í tvennu, að vinna þau félög, sem til voru, til þess að ganga í sambandið og stofna ný félög þar sem ekkert var áður fyrir. Þetta hvoru tveggja var mjög erfitt og þegar ég lít yfir þetta 20 ára starf þá verð ég að viðurkenna, að erfiðleikarnir hafa verið geysilegir og alveg ótrúlegt að það skuli hafa tekist að sigrast á þeim flestum, en það skal ég líka taka fram, að það hefir tek- ist fyrir þær fórnir, sem alþýð- an hefir lagt á sig og það geysi- mikla starf, sem þúsundir al- þýðumanna um landið alt hafa látið í té. Hér í Reykjavík bar þó lengi framan af mest á starf- semi Fulltrúaráðs verkalýðs- félaganna, en það breyttist er árin hðu og Alþýðusambandið efldist. Eins og ég gat um áðan voru línurnar milli minna pólitísku flokka ekki skýrar um það leyti, sem alþýðusambandið var stofn- að. Varð það meðal annars því valdandi að t. d. Sjálfstæðis- flokkurinn leytaði kosningasam- viimu við verkamannasamtök- in og að sú samvinna tókst t. d. 1916. Auk þessa töldu margir, að sósíalistisk verkalýðsstarf- semi ætti hér engan jarðveg, og tóku því stofnun sambandsins ekki alvarlega, en brátt kom að því, að línurnar skýrðust og þá um leið hófst andstaðan og bar- áttan harðnaði, enda komu fyrir tveir atburðir, er skerptu stétta- baráttuna, sjómannaverkfallið 1916 og baráttan fyrir togara- vökulögunum. Verkalýðsfélög- in fóru nú að gera hærri og á- kveðnari kröfur og þeim var altaf mætt af hálfu atvinnurek- endanna með ákveðinni and- stöðu, er leiddi oft til verkfalla, sem um leið var svarað með verkfallsbrjótum, hvítu liði og lögreglu. En verkamenn létu bart mæta hörðu og lenti oft í hreinum og beinum slagsmálum. Þeta stafaði af því, að andstæð- ingar verkalýðssamtakanna trúðu því, að þeir gætu lagt þau í rústir, en eftir að þeir hafa nú sannfærst um að þetta er ekki hægt hafa slíkar vinnudeilur ekki verið eins harðvítugar. Enda er Alþýðusambandið nú orðinn öflugasti félagsskapur- inn í landinu og ákvarðanir þess eru sem lög fyrir meira en heil- an tug þúsunda manna um land alt. Við höfum rekið starfsemi okkar með stefnu að settu marki og að því marki hefir ver- ið unnið hiklaust í þessa tvo ára- tugi. Hver alþýðumaður getur sagt sér það sjálfur hvernig kjör alþýðunnar væru ef AL- þýðusambandsins hefði ekki notið við bæði í verklýðsmálum og stjórnmálum. Alþýðusam- bandið hefir líka staðið af sér alla storma og jafnvel þá, sem lamað hafa alþýðusamtök ann- ara landa, og má í því sambandi nefna sprengingarstarfsemi kommúnista, sem alveg hefir verið kveðin niður hér. Það er ekki hægt í stuttu við- tali að telja upp öll þau mörgu mái, sem Alþýðusambandið hef- ir beitt sér fyrir og hafa mark- að tímamót í baráttu alþýðu- samtakanna. En í mnri starf- semi sambandsins hafa það ver- ið merkustu viðburðirnir, er sambandið stofnaði dagblað, Al- þýðublaðið, 1919, setti á fót skrifstofu fyrir sig, réði fastan erindreka og sérstakan fram- kvæmdastjórar enda hefir sam- ........ — ...—■ bandið verið mjög heppið í vali fastra starfsmanna sinna. Að síðustu vil ég segja þetta um framtíðina: Alþýðusambandið stendur nú orðið á svo traustum grundvelli, að honum verður ekki haggað úr þessu. Alþýðusambandið mun halda áfram að hafa vax- andi áhrif á afkomu verkalýðs- ins og þar með á afkomu allr- ar þjóðarinnar. Aður var það eingöngu miðað við verkalýðinn og stétarlegar dægurkröfur hans. Nú er öll starfsemin mið- uð við það, að verkalýðurinn taki völdin í landinu og stjórni því fyrir atbeina Alþýðusam- bands lslands.“ SIGUKJÖN A. ÖLAFS- SON, ALÞINGISMAÐUR: IGURJÖN Á. ÓLAFSSON, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur sagði meðal ann- ars: „I 20 ár hafa í dag landssam- tök íslenzka verkalýðsins lifað. Þann 12. marz 1916 var Al- þýðusamband Islands stofnað. Sjómanafélag Reykjavíkur, er þá hét „Hásetafélag Reykjavík- ur“ var eitt meðal þeirra félaga, er stofnuðu það, þá 4 mánaða og 20 daga gamalt. Fram á þenna dag hefir Sjómannafélag- ið verið annað öflugasta félag- ið í þeim samtökum. Við sjó- mannafélagar getum því horft aftur í tímann og glaðst yfir þeim árangri, sem náðst hefir í þróun verkalýðshreyfingarmnar fyrir atbeina Alþýðusambands- ins og sem við sjálfir höfum ver- ið með í að skapa. Sambandið hefir haft mörg og erfið hlut- verk með höndum öll þessi ár. Það hefir vakið verkalýðinn á hinum ýmsu stöðum til vitund- ar um mátt sinn og rétt, stofn- að félög á stöðum, þar sem ekk- ert var til, verndað þau og hjálpað til betra líft, til meira starfs, það hefir skapað sam- starf og skilning milli hinna ýmsu félaga og ólíkustu starfs- greina. Með mætti hiima eldri og stærri félaga hefir það knúið í gegn hagsmunamál hinna smærri og óþroskaðri. Það má með sanni segja að það hafi ver- ið vemdari hinna veiku og smáu, gegn drottnunarvaldi og yfirgangi þeirra, sem völdin hafa haft og fjármagninu ráð- ið. Innan þjóðfélagsins er sam- bandið búið að viirna sér það traust og álit meðal verkalýðs- ins, að enginn karl eða kona innan hinna félagslegu samtaka mundi óska að það hyrfi úr sög- unni, nema hinir fáu meðal ang- urgapanna, er fremstir standa meðal kommúnistanna, svo mik- ið hagsmunasamband er Al- þýðusambandið fyrir hvern ein- asta vinnandi mann og konu. I 20 ár hefir það verið að vinna sér þetta traust. Fyrir óþrjót- andi elju einstakra manna, markvissa, gætna og vitra for- ustu, fyrir trúnað og fómfýsi margra verkalýðsfélaga við þá stóru hugsjón, að sameina allan verkalýð, hefir þetta tekist. 1 dag gleðjumst við öll, sem verkalýðssamtökunum unnum, yfir sigmm þeim er sambandið hefir unnið, yfir því feikna starfi, sem það hefir int af hendi, í þágu íslenzka verkalýðs- ins, öll þessi ár, yfir því sjálfs- trausti er það hefir vakið í brjóstum þúsunda karla og kvenna með boðun um mátt samtakanna, boðun um nýja lífsstefnu, er sækir fram til betra og fullkomnara lífs fyrir hina smáðu og hrjáðu. 1 nafni Sjómannafélags Reykjavíkur þakka ég Alþýðu- sambandinu alla veitta aðstoð á liðnum árum, holl ráð og leið- beiningar, góða samvinnu og næman skilning á þörfum og kjörum sjómanastéttarinnar. Óska ég og vona að það traust, sem hún hefir ávalt notið og þau áhrif, sem hún hefir haft á málefni sambandsins megi haldast um ókomin ár. í dag óska ég og allir unnend'iu' alþýðusamtakaima þess, að næstm 20 árin færi veifcalýðmvm ekki minni sigm en hin liðnu 20 órin hafa gert, og Alþýðuaambandið færi alþýðunni í landimi ekki minna menningarstarf á næstu tviehmu' tugunum en það hefir gert á þeim tíma, sem liðinn er.“ JÖHANNA ^ EGILSDÖTTIR: TÓHANNA EGILSDÓTTIR, for- ' nxaður V, K. F. Framsófcn, sagði: { „Verfcakvennafélagið „Fram- sófcn“ ex eitt af þeim félögum, er myndaði Alþýðusamband islands árið 1916 og hefir alla tíð síðan tielkið virkan þátt í störfum þess og stefnu og verið talið eitt af steiíkustiu þáttum f samstarö, al- þýðunnar. Milli V. K. F. „Framsókn“ og Alþýðusambandsins hefir alla tið verið hið ákjósanlegasta sam- starf, og hefir félagið notið margs bonar stuðnings Alþýðusam- bandsins á undanförniun árum þegar það hefir þurft þess með. Til þess að sem beztur árangur náist af störfum veifcalýðsfélag- anna til hagsbóta fýrir verkalýð- inn og alla alþýðu, þá er lifsnaiuð- syn að góð sameining ríki inaan hvers einstaks félags og milli té- laganna. Og um fram alt að hver einasti einstaklingur geri sér ljóst, að hin eina sanna samfylk- ing verkalýðsins og alþýðunnar í landinu er: Alþýðusamband tslands. V. K. F. „Framsókn" óskar Al- þýðusambandi Islands til ham- ingju með 20 ára afmælið, og vonar, að starf þess megi verða jafn giftudrjúgt í framtíðinni eins og það hefir verið hingað til.“ GUÐM. Ö. GUÐMUNDSSON: UÐM. Ö. GUÐMUNDSSÖN, formaður verkamannafé- lagsins Dagsbrún, segir: „Við Dagsbrúnarmenn mun- um í dag minnast Alþýðusam- bands Islands í tilefni af 20 ára forustu þess, í öllum sameigin- legum málum verkalýðsins og alþýðunnar allrar, hér á landi. Með stofnun Alþýðusam- bandsins hefst sá þáttur í sögu alþýðusamtakanna, sem gert hefir þau að heilsteyptasta og áhrifamesta félagsskap í land- inu; undir forustu þess hafa kjör alþýðunnar batnað stór- kostlega frá því sem áður var. Vegna forustu og stuðnings Alþýðusambandsins hafa hin smærri verkalýðsfélög út um landið getað bætt kjör meðlima sinna svo mikið, að í stað von- leysis, sem áður var, horfa þeir nú bjartari augum á framtíðina. Undir forustu þess hafa alþýðu- félögin í hinum stærri kaupstöð- um landsins tekið að sér for- ustuna í öllum sameiginlegum málum kaupstaðarbúa. Við Dagsbrúnarmenn höfum með samstarfi en undir forustu Alþýðusambands Islands, gert verkamannafélagið Dagsbrún að ósigrandi félagsheild reyk- vískra verkamanna. Verkamannafélagið Dagsbrún þakkar Alþýðusambandinu 20 ára trausta forustu fyrir bætt- um kjörum íslenzkrar alþýðu og heitir því fylsta samstarfi og stuðningi reykvískra verka- manna á ókomnum árurn í bar- áttunni fyrir fullkomnum sigri hinna vinnandi stétta.“ Frh. á 4 síðu. Konan mín, Vaígeréur Tómasdóttir, andaðist á Landsspítalanum í gær. Bjarni Benediktsson. Félag nngra jalnaðarmanna heldur fund annað kvöld (föstud.) kl. 8% e- m. á Hótel Skjald- breið. Fundarefni: 1. Félagsmál. 2. Erindi: Pétur G. Guðmundsson. 3. Upplestur: K. G. 4. ? ? ? 5. Önnur mál. Félagar fjölmennið! STJÓRN F. U. J. Mesta og falI@R«ste úrwalið af allskonar bólstruðum húsgögnum. 3. Hðsgagnaverzlun Bejrhjaviknr. Sfúkrasamlag Reykja- viknr tilkynnir: Á fundi, sem haldinn var í Samlaginu 1. þ. m. var þetta meðal annars ákveðið: Að til þess að mæta tekjuhalla síðastliðinn árs, greiði hver hluttækur sam- lagsmaður kr. 3.00 í aukagjald. Þess er fastlega vænst að samlagsmenn greiði gjald þetta sem allra fyrst, og helst fyrir lok þessa mánaðar. Stjórn S. R. ftaupið Alpýðublaiíii.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.