Alþýðublaðið - 29.03.1936, Side 4
SUNNUDAGINN 29. MARZ 1938
H GAMLABfÖ H
sýnir kl. 9:
Stúlkan sem
sagði nei!
Nútíma gamanleikur um
ást og frægð.
Aðalhlutverk:
.CLAUDETTE COLBERT
og
FRED MAC MURRAY.
Alþýðusýningar kl. 5 og 7:
„Úlfamaðurinn44
Síðari kafiinn.
Böm innan 12 ára fá ekki
aðgang.
LEIKKVÖLD
MENTASKÓLANS.
Hakarinn
i
Sevilla
í dag kl. 3 í Iðnó.
Aðgangur 2 kr., öll sæti
nema svalir.
Aðgöngumiðar seldir kl.
1—3 í dag.
Simi 1862.
§
(rtrminfTUJRiiH
SuanskflnaaD
Ef tir Arnold & Baeh.
Fnunsýning í kvöid kl. 8.
Aðalhlutverk:
Friðfinnur Guðjónsson.
Aðgöngumiðar seldir í Iðnó
í dag eftir kl. 1.
Sími 3191.
Leikfélag Reykjavíkur
sýnir Spanskfluguna í kvöld kl.
8. Aðalhlutverkið leikur Frið-
finnur Guðjónsson.
ROOSEVELT <
Frh. af 3, síðu.
þytkir hann sennilega iDf „róttæk-
ur“.
Að lokum hefir verið nefndur
Frank Knox lofursti. Hann er ai-
pektur blaðaútgefandi og harð-
snúinm fjármálamaður. Hann þyk-
alveg nægiiega konservatívur, en
vekur andúð með framkomu sinni.
Roosievelt ber langt af þessum
mönnum, bæði sem persóna og
stjórnmálamaður. Spurningin er
pví sú, hwmig almenningur í
Bandarikjunum lítur á fjármála-
pólitik Roosevelts. Éinnig verð-
ur að gefa gáum að því, hve
miklu fjármagni auðvaldið ræð-
ur yfir.
Klofningur
í báðum flokkum.
1 báðum flokkum ier töluverður
klofningur.
AlÞÝOnBLASIS
Geri við alskonar heimilisvél-
ar og skrár. H. Sandholt, Þórs-
götu 17. Sími 2635.
Ullarprjónatuskur og kopar
keypt hæsta verði gegn pening-
um, eu ekki vörum. Vesturgötu
22. Sími 3565.
Pantið í tíma, í síma 3416.
Kjötverzlun Kjartans Milner.
Fötin á drenginn yðar fást
auðvitað í Fatabúðinni.
Hafnfirðingar! Athugið!
Ef ykkur vantar húsgögn þá
talið við mig. Ég smíða alskon-
ar húsgögn eftir pöntunum. —
Þóroddur Hreinsson, Suðurgötu
19.
Get bætt við nokkrum stúlk-
um í kjólasaumatíma á kvöld-
in. Hildur Sivertsen, Aðalstræti
18. Sími 2744.
•• | flytur úrvals skáld-
sögur eftir beztu höf-
unda heimsins, margskonar skemti-
legan fróðleik o.fl. DVÖL er sérstak-
lega ódýr, kostar aðeins 50 aura á
mánuði fyrir áskrifendur. Afgreiðsla
í Víkingsprenti, siml 2864.
Dvöl
I. O. G. T.
Stúkan Framtíðin nr. 177 held-
ur fund mánudaginn 30. þ. m.
Kosinn fulltrúi á Umdæmis-
stúkuþing.
Víkingsfundur annað kvöld. —
Kosning fulltrúa á umdæmis-
þing. Inntaka. Erindi: Einar
Björnsson.
Orval af fallegum, tilbúnum
Kvenblusum
(Lítið í Vöruhúsgluggana í dag).
—^ **>
Saumastofan Uppsölum, Aðalstræti 18.
Hildur Sivertsen.
Aðalfundur
Sjúkrasamlags Hafnarfjarðar og Garðahrepps
verður haldinn í bæjarþingsalnum (gamla bamaskólanum) laug-
ardaginn 4. apríl n. k. kl. 8x/2 s. d.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Fjárhagsmál samlagsins verða sérstaklega til umræðu og
framhaldsstörf þess. Áríðandi að samlagsmenn fjölmenni á fund-
inn og mæti stundvíslega.
Stjómin.
Roiosevelt á tvo mótstöðumenn
innan sins flokks ,sem eru honum
hættulegir. Annar þeirra er A1
Smith í New Yoiik, sem eitt sinn
var forsetakandidat demókrata.
Hinn er Talmagde, ríkisstjóri í
Georgia, sem er foringi kon-
servativra demokrata og er and-
stæðingux Roiosevelts.. Hann reyn-
ir stöðugt að hafa áhrif á það,
að nokkur himna demókratisku
ríkja svíki.
En þrátt fyrir þetta er þó ai-
ment áiitið, að Roosevelt eigi sig-
urinn vísan, enda þótt hann kunnl
að tapa dálitlu fylgi.
Auðvitað getur enn þá ýmislegt
komið fyrir, sem breytir afstöð-
unni við fioraetafeosiningamar.
Þar á meðal má geta hinnar
hlægilegu „Townaend-hreyfingar".
aT“.
Townsend þessi ,sem hreyfingin
er kend við, var áður héraðs-
læknir í sveitaþorpi. Hann hefir
fundið út ,Jkerfi“ til þess að leysa
kreppuna. Þetta „kerfi" er á þá
leíð, að allir, sem fcomnir eru
yfir sextugt fái ellistyFk að upp-
hæð 200 dollara á mánuði. Enda
þótt „fcerfi" þetta sé hreinasta
brjálæði frá upphafi til enda, hefir
það fengið fjölda áhangenda og
þúsundir „Townsend-félaga" hafa
verið stofnuð. Jafnvel þektir
stjórnmálamenn, eins og Borah
öldungaráðsmaður, eru að gera
hosur sínar grænar fyrir þessum
félagsskap.
Það er álitið, að Townsend hafi
fum 2 milljónir áhangenda, og um
20 milljónir manna eiga að hafa
skrifað undir skjal til þingsjns
um að taka upp þetta „kerfi".
Munu nú leiðtogar þessarar hreyf-
ingar skipa áhangendum sínum
að kjósa Roosevelt, snúast gegn
honum eða sitja hjá? Þetta er
mjög spaugiieg hreyfing, sem
getur verið fokin út í veður og
vind, þegar feemur að feosningun-
um, en hún getur líka þá hafa
unnið sér fleiri áhangendur.
En þrátt fyrir alt og alt, er
hin almenna sfcoðun sú, að Roose-
velt vinni glæsilegain feosninga-
sigux.
SVIKÍÐ SMJÖRLÍKI.
Frh. af 1. síðu.
ið verið athugavert við smjör-
líkið, þó hefir fundizt í 4 tegund-
um of mikið af vatni og í einni
tegund aðeins 0,2% af smjöri,
en fyrirskipað er að blanda
smjörlíkið með 3% af smjöri.
Hins vegar komu þessi f jör-
efnasvik í ljós nú við ársupp-
gerð, en þau fundust við að bera
saman skýrslur smjörlíkisgerð-
anna um framleiðslu þeirra og
skýrslur Raxmsóknarstofu Há-
skólans um fjörefnakaup
smjörlíkisgerðanna, en þær
verða að kaupa alt sitt f jörefni
hjá henni.
Vilmundur Jónsson landlækn-
ir átti frumkvæðið að því að
þetta eftirlit var sett á með
smjörlíkisgerðum og einnig að
reglugerð um fjörefnablöndun
var gefin út og að henni var
fyrirkomið þannig að hægt væri
með því móti, sem lýst hefir
verið, að hafa eftirlit með því
að reglugerðinni yrði framfylgt.
Að öðrum kosti hefði þetta eft-
irlit orðið miklum örðugleikum
bundið því að sjálfar fjörefna-
rannsóknimar eru erfiðar og
kostnaðarsamar.
Sú reynsla, sem þegar er
fengin af framkvæmd eftirlits
með smjörlíkisgerðum hefir
fært mönnum heim sanninn um
það, hve nauðsynlegt það er, að
eftirlit með öðrum neyzlu- og
nauðsynjavörum komist sem
I DAG
Næturlæknir er í nótt Hall-
dór Stefánsson, Lækjargötu 4,
sími 2234.
Næturvörður er í nótt í
Reykjavíkur- og Iðunnar-apó-
teki.
MESSUR:
Kl. 11 í dómk., B. J.
Kl. 2 barnaguðsþjónusta, Fr. H. !
Kl. 5 í fríkj., Á. S. i
Kl. 2 í Hafnarfj.k., J. Au.
ÚTVARPIÐ:
10,50 Morgimtónleikar: a)
Dvorák: Symfónía, nr. 5; b)
Tschaikowsky: Píanó-konsert í
b-moll. 12,00 Hádegisútvarp.
13,00 Enskukensla, 3. fl. 13,25
Esperantókensla. 15,00 Miðdeg-
istónleikar frá Hótel Island.
17,00 Messa í dómkirkjunni (s.
Friðrik Hallgrímsson). 18,30
Bamatími: a) Saga (Margrét
Jónsdóttir kennari); b) Böm
skemta. 19,20 Hljómplötur:
Létt, klassisk lög. 19,45 Fréttir.
20,15 Erindi: NewYork (Ásgeir
Ásgeirsson alþingismaður). —
20,40 HQjómplötur: Sönglög úr
ópemm, eftir Donizetti. 21,05
Upplestur: Upphaf breskrar
verzlunar á íslandi (Sigurður
Skúlason magister). — 21,30
Danzlög (til kl. 24).
Á MORGUN:
Næturlæknir er Valtýr Al-
bertsson, Túngötu 3, sími 3251.
Næturvörður er í Reykjavík-
ur- og Iðunar-apóteki.
ÚTVARPIÐ:
7,45 Morgunleikfimi. 8,00 Is-
lenzkukensla. 8,25 Þýzkukensla.
12,00 Hádegisútvarp. 19,20
Þingfréttir. 19,45 Fréttir. 20,15
Erindi: Þættir úr stjórnmála-
sögunni 1896—1918, VI, (Þor-
steinn Gíslason ritstjóri). 20,40
Einsöngur (Einar Markan) með
orgel-undirleik. 21,05 Erindi:
Gengið á Öræfajökul (Guð-
mundur Einarsson myndhöggv-
ari). 21,30 Utvarpshljómsveitin
(Þór. Guðm.): Alþýðulög. 22,00
Hljómplötur: a) Chopin: Noc-
turne í F-dúr; b) Schubert:
Strok-kvartett, Op. 125, nr. 1
(til kl. 22,30).
Deildarstjórar Dagsbrúnar
og F. U. J. féiagar eru beðnir
að mæta í diag1 fcl. 2 í K.-R.-hús-
inu. Mætið stundvíslega.
Músikklúbburinn.
Næsti konsert Músikklúbbsins
er á miðvikudaginn kemur (1.
apríl) kl. 9 á Hótel ísland.
Matsveina- og veitingaþjóna-
félag íslands
hefir nýlega lökið við að kjósa
stjórn fyrir næsta starfsár. For-
maður var feosinn Steingrímur Jó-
fiannesson, varaformaður Ludvig
Petersen, ritari Hjörtur Nielsen,
gjaldberi Friðsteinn Jónssom og
meðstjómandi Sig. B. Gröndal.
Aðalfundnr
Bókbindarafélags Reykjavíkur
var haldinn í Baðstofu Iðnaðar-
manna í fyrrakvöld. Stjóm fé-
iagsins var enduitoosin, en hana
skipa þeir. Jens Guðbjörnsson
form., Guðgeir Jónsson gjaldikeri
og Sveinbjöm Arinbjarnar ritari.
í l.-maí-nefnd voru kosnir: Jens
Guðbjömsson, Aðaísteinn Sig-
urðsson og Guðgeir Jónsson.
fyrst á, enda ganga lögin, sem
samþykt voru um það á síðasta
þingi í gildi í byrjun maí n. k.
og er nú verið að vinna að reglu-
gerð um framkvæmd þeirra,"
Smyglað á-
fengi finst i
flutningaskip-
inu „Varhaug*4.
Lögreglan í Vestmannaeyjum
ifann í fyrrakVöldi í flutniingaskip-
inu Varhaug 12 lítra af spírltus
og iy2 lítra af portvíni. Var á-
fengið falið undir gólfi í slkipmu.
Kyndarinn Alfred Eike játaði að
eiga áfengið. (FO.)
Reybhyltingar
og Hvítbekkingar.
Munið skemtifundinn í Varð-
arhúsinu í kvöld kl. 9. Hverjum
félaga heimilt að hafa einn gest.
úwiww'.W'uk '"”"j • v.
NfJA Blö BIE
Greifínn frá Hoate
Christo.
Amerísk tal- og tónmynd
samkvæmt hinni heims-
frægpi skáldsögu með sanxa
nafni, eftir Alexander
Dumas.
Aðalhlutverkin leika:
ELISSA LANDI og
ROBERT DONAT.
Sýnd í kvöld kl. 5, 7 og 9.
Lækkað verð kl. 5.
Náttúrufræðifélagið
hefir samfcomu mánud. 30. þ.
m. kl. 8i/2 e. m- i náttúrusögubekk
Mentasikólans.
Bróðir minn og mágur
Björn Jónsson trésm.
andaðist í sjúkrahúsinu Sólheimar 28. þ. m.
Sæunn Jónsdóttir. Grímur Jónsson.
Laugaveg 124.
Jarðarför kommnar minnar
Valgerðar Tómasdóttur
fer fram frá dómkirkjunni þriðjudaginn 31. marz og hefst með
húskveðju ú heimili okkar, Ásvallagötu 11, kl. iy2 e. h.
Bjarni Benediktsson.
Elsku sonur okkar og bróðir
Jón Einarsson,
sem andaðist 24. þ. m., verður jarðsunginn frá heimili okkar Þórs-
götu 15, kl. 1 y2 e. h., þriðjudaginn 31. marz.
. \
Ragnheiður Halldórsdóttír. Einar Jónsson og systkini.
Litli, hjartkæri drengurinn okkar
S i gm ar
andaðist 28. þessa mánaðar.
Margrét Guðjónsdóttir, Sigurbjöm Ásbjörasson,
Þverveg 4, Skerjafirði.
Sökum þess að við mistum
tal- og kvikmyndatæki
okkar í brananum í Keflavík, óskum við eftir að fá tilboð í slík
tæki ásamt lýsingu á þeim.
.1
Tilboðin sendist undirrituðum.
F. h. Keflavíkur Bíós
Karl Guðmundsson.
AðvörnUo
Að gefnu tilefni tilkynnist hér með að verzlunin
„Pöntunarfélagið" Laugavegi 46 er oss með öllu óvið-
komandi.
Félagsmenn vorir eru því hér með aðvaraðir um
að láta nafnið ekki villa sig.
Pðntnnartélag
verknmanna.
10 eða 15 stk. Appelsínur fyrir 1 krónu. Drifandi Laugavegi 63, sími 2393,