Alþýðublaðið - 02.10.1936, Blaðsíða 2
PÖSTUDAGINN 2. OKT. 1936.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
ústaðaskifti.
Að
laga nr. 18,
er hér með
tilefni og méð tilylsun til 2. gr.
1901, um manntal i Reykjavík,
skorað á alla húseigendur og
húsráðendur að tilkynna tafarlaust til lögregluvarð-
stofunnar um alla flutninga er eiga sér stað úr húsum
þeirra og í, þar á meðal flutninga, sem orðið hafa
síöan 14. maí s .1., en tnn hafa ekki ,’srið ‘■i.lkyntir.
Eyðublöð fyrir flutningstilkynningar fást á lög-
regluvarðstofunni.
Fyrir vanrækslu á ti'kynningarskvldu verða menn
iátnir sæta sektum lögurn samkvæmt.
t Lögreglustjórinn í Reykjavík, 1. október 1936.
settur.
Spánska stiörnin áfeærir Þýzfea-
laid, ítalíu 09 Portágai fyrir
Þjóðabandalaglnn.
Þízk flatnfnnasitfp hafa fœrt nnnreisflarmðnnnni sferfödrefea,
tlngvélaf, handsnrengjnr, beozin og 011 hagsanleg hernaðargðan
LONDON, 1. okt. FO.
Fulltrúi Spánar í Genf lagði
fram á laugardaginn var ákæru
á hendur ’itjómúm Þýzkalands,
ítalíu og Portúgal, um beina að-
stoð við uppreisnarmenn á Spáni,
og þar af leiðandi brot gegn
hlutleysissanmingnum, en ákæm-
skjalið var ekki 'ýrt fyr en í öag.
Hæm tilkynti, \ð afrit af á-
kæmskjalinu hefði verið sent
stjórnum viðkomandi ríkja, en að
í skjali því, er sent hefði verið
þýzku stjórninni, hefði verið sá
viðbætir, að ekki hefði fengist
nein skýring á því, að tvær stór-
ar Junkersflugvélar væm meðal
flugvéla þeirra, sem uppreisnar-
menn hefðu notað gegn stjóm-
inni, og að einnig hefði orðið
vart við margar aðrar flugvélar í
liði þeirra, er væm ólíkar flug-
vélum spánska fulgflotans, og
bæði hraðfleygari og stærri. Enn
fremur yrði “iugvélafjöldi upp-
reisnarmanna ekki skýrður á ann-
an hátt en þann, aö þeir hefðu
fengið þær frá öðrum löndum.
Þá var einnig bent á það, í
skjalinu til þýzku stjómarinnar,
að stjórnin á Spáni teldi sig hafa
sönnur fyrir því, að þýzk flutn-
ingaskip, þar á meðal skipið „Ca-
memn“, hefði flutt benzín, skrið-
dreka, flugvélar, skotfæri og
handsprengjur til hafna á valdi
uppreisnarmanna.
f dag skutu nokkrir af tundur-
spillum stjórnarinnar á hafnar-
borgir í Marokko. Stjórnin til-
Jkyntti í kvöld, að hersveitir henn-
ar hefðu náð hæðunum utan við
Huesca, og væm nú aðeins hálfa
þriðju mílu frá borginni.
Útboð.
Þeír, sem óska að gera tilboð
um hita- og breinlætiskerfi í hina
nýju bústaði Byggingafélags Al-
þýðu, vitji teikninga og útboðs-
lýsinga til undirritaðs i dag kl.
4 Va á skrifstofu Byggingafélags-
ins i elstu bústöðunum við
Bræðraborgarstig.
öísli Halldórsson.
„Snorrl goði“ vlfl Oræiland.
¥lðfa% vlð einn sfeipverjann nm
leiðangifirinn, landftð, atvinnu«
mál á Grænlandi og kvenfólldð.
(Nl.)
„Em stúlkurnar þarna enn á
selskinnsbrókum ?“
„Nei, þær eru flestar farnar að
ganga í pilsum, en þær kváðu
vera í silkisokkum og silkinær-
fötum, þær, sem enn ganga í sel-
skinnsbrókum, engu síður en hin-
ar, eftir því sem þeir segja, sem
kunnugastir eru.“
„Hvað ætli að tímakaupið sé í
Grænlandi?"
„Mér var sagt, að karlmanns-
kaup væri 17 aurar í Góðvon.
En þess ber að gæta, að alt er
þarna fram úr skarandi ódýrt.“
„Eiga nokkrir Grænlendingar
vélbáta?“
„Já, það kvað vera til, en það
er norðar, í Sykurtoppi og Hol-
steinsborg, því það eru Siglu-
fjörður og Vestmannaeyjar þeirra
Grænlendinganna. — Grænland
er ennþá lokað land, og það er
ekki nema á fjóram stöðum, sem
skip mega taka vatn, og þó ekki
nema með sérstöku leyfi í hvert
skifti."
„Hvernig leizt þér þarna á
landið?"
„Það er ansi hrjóstrugt. Ég sá
aðallega krækiberjalyng, og dá-
lítið af bláberjalyngi. En inni í
fjarðardölum er grösugt; þar var
bygð Islendinganna til forna. Mér
fanst það, sem ég sá, mjög líkt
og Sigurður Breiðfjörð lýsir því:
Landið hátt við lýða próf
litur grænn ei prýðir.
Það er grátt af geitarskóf,
gamburmosa og víðir.
Þess má geta, að það er svo
aðdjúpt við grænlenzku firðina,
að ]bað má festa vélskip við land
svo að segja hvar sem er.
Einn Islendingur á heima rétt
hjá Góðvon; hann heitir Sigurð-
ur, og er að mig minnir austan
úr Grímsnesi. Hann stendur fyrir
fjárbúi stjórnarinnar og hefir 400
fjár. Þar læra Grænlendingar
fjárrækt, það er þriggja ára nám,
en að því búnu fá þeir 2000 kr.
rentulaust lán til þess að byggja
sér bæ fyrir, og 40—50 kindur,
sem þeir svo borga smátt og
smátt með öðmm kindum. Ann-
Ódýrt! Ódýrt!
Smjörlíki 75 aura stk.
Kaffi, frá 85 aur. pk.
Export 65 aura: stk.
Bóndósir, allaír teg. 85 aura stk.
Brekka,
Bergstaðastr. 35 og Njálsgötu 40.
Sími 2148.
VII kaopa
kreppulánasjóðsbréf,
veðdeildarbréf og
hlutabref í Eimskipa-
félagínu.
Upplýsingar i sima 3652
milli kl. 11—12 og 4-6
Vinna. Frá deginum í dag er
öll vinna í fabrikkunni niðursett.
Kemisk hreinsun á karlmannaföt-
úin, áður kr. 7,50, nú kr. 6,50.
Ffnalaugin Lindin, Frakkastíg 16.
Sími 2256,
Dívanar, fjaðradýnur, striga-
dýnur og dívanviðgerðix. Fneyju-
götu 8.
NÝ SVIÐ og mör til sölu, ó-
dýrt. Tekið á móti pöntunum í
slma 2393.
er þjóðfrægt fyrir gæði.
Munið 1 krónu máltíðirnar.
Heitt & Kalt.
ars Islendings er getið, en það er
Ágúst ólafsson héðan úr Reykja-
vik. Hann er aðal vélaeftirlits-
maður stjórnarmnar og hefir
undir sér endilangt Grænland.
Hann kemur heim í vetur um
nýjársleytið."
„Þú varst í Gottu-leiðangrin-
um, Frederiksen, til Austur-Græn-
lands, svo nú ertu búinn að sjá
landið bæði að austan og vestan.
Nú langar þig víst ekki að fara
oftar?“
„Jú, mig langar fjandi til þess
að koma upp á jökulmiðjuna; ég
held það sé svo rólegt þar.“
Um leið og Frederiksen stendur
upp til að fara, segir hann: „Ég
er þeirrar skoðunar, að mjög sé
vafasamt að Islendingar fái
nokkru sinni Grænland aftur.
Þess vegna tók ég þetta með mér
handa þér, það er þinn partur af
Grænlandi." Að svo mæltu tók
hann fram stóran stein og rétti
mér; tók ég við honum fegins
hendi, og býst ég ekki við að ég
fái meira af Grænlandi en þetta.
þ. æ. ö.
Danzleik
heldur skemtiklúbburinn „Cari-
iOca“ í Iðnó ó laugardagskvöldið
og hefst kl. 10 e. h. Hljómsveit
Aage Lorange spilar. Aðgöngu-
miðar fást í Iðnó frá kl. 4 á
laugardag.
Hjálparstöð Liknar
fyrir berklaveika, Templara-
simdi 3, er opin mánudaga og
miðvikudaga kl. 3—4 og föstu-
daga kl. 5—6.
Hefi flntt
bókbandsvinnustofu
mina af Brekkustíg 7
á Hávallagðtu 53
(kjallara).
Dorst. Síflat björoss.
Sími 4334.
Iláttvirtum Löskiftavinum sælgætisgérðarinnar „Gleym
mér ei“ tilkynnist hér með, að ég hefi xelt Lakkrísgerðinni
h.f. í leykjavík jaílgætisgerð mína „Gleym mér ei“.
Ég vii nota tækifærið til þess að þakka hinum mörgu
\’iðskiftamömium hér bænum og úti um '«nd fyrir ýðskift-
in á umliðnum ámm og vænti þess, _ið viðskiftavinir verk-
smiðjunnar ’áti hina nýju eigendur njóta sama velvilja og
trausts, sem verksmiðjan hefir notið undir minni hand-
leiðslu.
Reykjavík, 10. sepf.ember '936.
Pr. sælgætisgerðin „Gleym mér ei“
Guðjón Jóiissoifi.
Samkvæmt ofanrituðu höfum við undirritaðir keypt sæl-
gætisverksmiðjuna „Gleym mér ei“, og munum við framvegis
frcmleiða hinar góðu og þektu sælgætisvömr verksmiðjunn-
ar á.sama gmndvelli, sem verið hefir, og væntum við vin-
samlegra viðskifta allra kaupmanna og kaupfélaga á land-
inu, og munum vér kappkosta að gera viðskiftin sem Nag-
kvæmust fyrir báða eðila'.
Reykjavík, 30. september 1936.
Lakkrísgerðin h.f. i Reykjavík.
Vitastíg 3. Sími 2870.
Byggin^afélag Alþýðu.
Lokagreiðsla
á framlagi íbúðakaupenda í nýju verkamannabústöðun-
um á að fara fram fyrir 6. þ. m. Greiðslum er veitt mót-
taka á skrifstofu félagsins dagana 1., 2., 3. og 5. þ. m.
kl. 5Va til 7 síðdegis.
Félagsstjórnin
Hanstmarkaðir K. F. U. M
d
verður haldinn í hinu nýja húsi félagsins við Amtmannsstíg
föstudag, laugardag og sunnudag, 2.-4. okt., og hefst alla dag-
ana kl. 3 síðd. (gengið inn frá Mentaskólaportinu.)
Á föstudag.og laugardag verða seldar flestar nauðsynjavörur,
svo sem matvæli, alls konar búsáhöld, hreinlætisvörur, vefnaðar-
vörur, skófatnaður, bækur o. m. m. fl. — Vörurnar eru allar nýjar
og seldar með sérstöku tækifærisverði, Gerið haustinnkaupin því
á Haustmarkaði K. F. U. M.
Á sunnudag hefst hlutavelta kl. 3 síðd. á sama stað. —■
Þar verða margir góðir drættir að vanda. Engin núll. Ekkert
happdrætti.
Fyrsta flokks veitingar verða alla dagana á miðhæð hússins
kl. 3-11.
Bögglar með sælgæti o. fl. fyrir börn verða seldir við ýmsu
verði.
Aðgangur að hlutaveltunni er kr. 0,50 fyrir fullorðna og 0,25
fyrir böm. — Drátíurinn kostar 50 aura.
Gjöfum á haustmarkaðinn er veitt móttakla í húsi K. F. U. M.
tii hádegis á laugardag. Einnig má tilkynr.a bær í sima félagsins,
3437, og verða þær þá sóttar.
Sækið haustmarkað K. F. U M. 2.-4. október.
Gengið inn frá Mentasköluportinu.