Alþýðublaðið - 06.02.1937, Síða 2
LAUGARDAGINN 6. FEBR. 1937.
sgH««&E3BnatHgi§
Asi íhaldsblaðanna
á lágai fiskverði.
Getur pað orðið Jóhanni Þ. Jósefssyni til pólitísks
framdráttar að sjómenn í Vestmannaeyjum séu
neyddir til að selja htgerðarmönnum fisk sinn
fyrir lægra verð en þeir
ITVO DAGA h,aía íhaldsblöð-
fim skrifaið um fiskkaapatil-
ralunir Kiaiupfélags E'yfirðinga' í
Vestmannaeyium og tilraunír
Vfggos Bjöirnssorar bankastjóra
til þiess p® kioma I veg fyrir, að
þær tækjuist, síem Ailþýðublaðið
gerði að umtalsefni í byrjun vik-
unna,r.
Af þessum skrifum er bersýhi-
iegt, að íhalidsblööin berjast fyr-
ir lækkándi fiskveröi, ;veg>.ia
þess að þau telja, að útgerðar-
mönnum sé ekki ofgott að fé-
fletta sjómenn, sem selja þeim
a,fía sinn.
Kaupfélag Eyfirðinga bauðst
til að kaupa fisk sjómannanna í
Vestmannaeyjum fyrir alt að
20% hærra verð en útgerðarmenn
v'ilja kaupa hann fyrir.
Otgerðarmenn, með aðstoð
Viggós Bjömssonar, komu í veg
fyrir það, að sjómenn gætu selt
fiskinn við þessu verði til K. E. A.
K. E. A, ætlaði að flytja fisk-
inn norður og láta vierka hann
þar, og verikalýðisisamtökin í
Vestmannaeyjum höfðu samþykt
það.
Nú hrópa íhaldishlöðin upp
með þau ósannindi, að K. E. A.
geri. þetta til þesis að ná yfirráð-
Unum yfir gja,ldeyrinum.
K. E. A. er í S. í. F. S. í. F.
fíytur út allan verkaðan fisk, og
gjaldeyririnn, isem inn kemur
fyrir hann, fer beint til hank-
anna.
Engínn meðiimur S. f. F. hefir
leyfi til að selja fisk til útlanda,
geta selt hann K. E. A.?
verkaðan eða óverkaðan, nema
með leyfi S. i. F., og getur S. í'. F.
auðvitað sett þau skilyrði fyrir
islíku leyfi, bæði um gjajdeyri
og ajnnað, sem það lystir.
Af þessu geta, menn séð gegn-
um blekkingavef íhaldisblaðanna.
Enda er ástæðan fyrir skrifum
þeirra ekki umhyggjan fyrir
gjaldeyrxsmálunum, heldur hat-
Ur á K. E. A. o,g ástin á va.ldi
útgerðarmanna yfir sjómönnum í
V estm annaey jum.
Pað er athyiglisvert, að á sama
tíma sem íhaldsblöðin eru að
skammast út í K. E. A. fyrir
íiskkaupatilraunir þess í Eyjum,
kaupir Haraldur Böðvars'son á
Akranesi fisk upp og ofan fyrir
7 aura, en þau þegja um það.
íhaldshlöðin eru í þessu sem
öðru að vinna gegn hagsmunum
sjómanna og fyrir útgerðarmenn.
Sjúklingar I HrEssingarhælinu
í Kópavogi hafa beðið Alþýðu-
blaðið að birta ef tirf arandi:
Bókaútgáfan „Heimskringla" í
Reykjavík hefir gefið Bókasafni
sjúklinga í Kópavogi aliar bækur
þær, er hún hefir gefið út. Fyrir
það finnum við okkur skylt að
þakka. Það mundi vel þegið, ef
fleiri tækju upp þa.nn sið. Við
viljum einnig nota tækifærið og
þakka öllum þeim öðrum bókaút-
gefendum og einstökum mönn-
um, sem á einn eða annan hátt
hafa styrkt safnið nú og áður;
það er vafalaust þesis vert, að
láta það ekki ógert.
Bokanardropar
Á.V.R.
Romdropar
Vanilludropar
Citrondropar
Möndludropar
Cardemommudropar
Smásöluverð er tilgreint á hverju glasi.
Öll glös eru meí áskrúfaðri hettu.
Afenglsverzlnn ríklsins.
REYKIÐ
J. fiRUNO’S
ágœta hollenzka reyktóbak,
VERÐ:
AROMATISCHER SHAG.kostar kr. 1,05 V*o kg.
PEINRIECHENDER SHAG .... - - 1,15 - -
Fæst í ðlSnBn verzlmsisesn.
Kosning starfsnaua
bœjarsijðrnar og
lastra netnda.
r! ____
/k BÆJA RSTJÓ RNA RFUNDI í
** gærkveldi fór fram kosning
á starfsmönmim bæjarstjórnar og
föistum nefndum. Kosiin voru:
Fonseti bæjarstjórnar: Guð-
‘mundur Ásbjömsson.
Varaforseti: Bjarni Benedikts-
son.
2. varaforseti: Jóhann ólafsson.
Skrifarar bæjarstjórnar: Jakob
Möller og Jón. Axel Péturisision.
Til vara: Guðmundur Eiríksson
og Guðmundur R. Oddsson.
Bæjarráð: Aðalmenn: Guð-
mundur Ásbjörnsson, Jakob Möll-
er, Bjarni Benediktsson, Stefán
Jóh. Stefánsson, Jón Axel Pét-
ursson. Til vara: Pétur Halldórs-
son, Guðm. Eiríksson, Jóhann Ól-
afsson, Guðm. R. Oddsson, Jó-
hanna Egilsdóttir.
Brunamái anefnd: Guðmundur
Eiríksson, Jóhann Ólafsson, Guð-
rún Jónasson, Jóhanna Egilsdótt-
ir, Guðmundur R. Oddsson.
Bygg ingarnefnd: G uðmundur
Eiríksson, Guðmundur R. Odds-
son. Utan bæjarstj.: Kristinn Sig-
úrðsson, Tómas Vigfússon.
Hafnarstjórn: Jakob Möller,
Jóhann Ólafsson, Jón Axel Pét-
ursson. Til vara: Guðmundur Ei-
iríksson, Bjarni Benediktsson,
Guðim. R. Oddsson. Utan bæjar-
stj.: Hafsteinn Bergþórsson, Sig-
urjón Á. Ólafsson. Til vara:
Hjalti Jónsson, Sigurður ólafsson
gjaldkeri.
Heilbrigðisnefnd: Guðrún Jón-
asson.
Sóttvamarnefnd: Guðrún Jón-
asson.
Stjóm Fiskimannasjóðs Kjaiar-
nesþings: Guðmundur Ásbjörns-
son með 8 atkv., Jón Baldvins-
son fékk 7 atkv.
Verðlagsskrá: Þorsteinn Þor-
steinsson hagstofustjóri.
Stjóm íþróttavaliarinis: Guð-
rnundur Ásbjörnsson.
Stjórn Ef iirlaunasjóðs: Guð-
inundur Ásbjörnsson, Jakob Möll-
er, Jón Axel Pétursson.
Endurskoðendur bæiarreikning-
anna: Þórður Sveimsson próf., Ól-
afur Friðriksson. Til vara: Ari
Thorlacius, Jón Brynjólfsson
skrifst.stj.
Endurskoðandi styrktarsjóðs
verkamannaféiaganna: Guðmund-
ar Eiríksson.
Endurskoðandi fyrir reikninga
íþróttavallarins: Guðmundur Ei-
ríksson.
Stjóm Sjúkrasamiags Rvikur:
Helgi Tómasson, Jakob Möller,
Gunnar E. Benediktsson, Felix
Guðmundsson, Guðm. Ó. Guð-
mundsson formaður Dagsbrúnar.
Skóianefnd Gagnfræðaskólans í
Reykjavík: Bogi Ólafsson yfir-
kennari, Guðni Jónsson magister,
Einar Magnússon kennari Hall-
bjöm Haildórsson prentsmiðju-
stjóri.
KirbjanJ Uípn.
LONDON, 4. febr. FÚ.
Á kirkjuþingi ensku biskupa-
kixlkjunnar í idag var rætt um af-
stöðu kiiíkjunnar til stríðs.
Bisikupinn af Winchester lagði
fram ályktunartillögu þess efnis,
að kristnir menn gætu nieð góðri
samvizku boðið sig fram til her-
þjónustu til þess að vernda Land
sitt, eða til þess að viðhalda al-
þjóðlegu öryggi, og í þágu friðar-
ins.
Biskupinn af Birmingham var
algerlega á móti þessari ályktun-
sirtillögu og sagðist álíta að kristn
ir menn gætu ekiki tekið þátt í ó-
friði, án þess að brjóta í Ibága við
iqgmál guðs.
Kvðlds
heldur Jafnaðarmannafélag Reykjavíkur í kvöld, laugardaginn 6, febrú-
ar í Alþýðuhúsinu „íðnó“. Skemm unin hefst klukkan 9. e. h.
Til skemmtunar vei
©
1. Karlakór Alþýðu syngur „Internationale“
2. Ræða: Sigurður Einarsson
3. Talkór F U. J. Verkefni: „Máttur samtakanna'
4. Upplestur
5. Karlakór Alpýðu
6. Dans. Hljómsveit Blue Boys.
Aðgðngi&iiiIðaF seldir i fiHné eftir kl. 4 f dag,
Alpýðafálk! Sæklð ykkar eigin skemmtanire
SkemmtlneVndln.
„FótbrotIð“
f BlðlJSlInm.
Sjónarvottinura raissýnist
Síðastliðinn þriðjudag fliutti
Moiguinblaðið fregn um slys, er
viidi til í Bláfjöllum á sunniur j
daginn. Frásögnin um þiennaxx at- I
burð ter mjög orðum aukim, en
biaðið hafði að beimildarmiaxini
sjó,narvott að slysinu og hefði
því mátt búast við, að rétt befði
vierið frá skýrt. Ég vil því leyfa
mér að biðja Alþýðublaðið að
Leiðrétta það sem hér er rangt
farið mieð. Morgunblaðið mun
einnig birta samskioiniar Leið-
réttinigu.
M.agnús Gíslas'On féll fram af
skafli, sem eftir sjónhendingu
mun viera 3—4 m. að hæð, og v;a,r
það nægilega hátt til þess að or-
saka meiðsli, þiar sem snjór var
mjög harður, en hefði hinsvegar
verið um 20 m. háa hengju að
ræða, ter tæpLega hægt að trúa
því, að hann hiefði lifað það af.
Þrátt fvrir pað, að vel hefði
getað farið svo, að Magnús hefðj
hlotið beinbrot af því falli, sem 1
hann fékk, vill svo vel til, og
tnun það gLeðja alla, jsem *til
þiekkja, að um slíkt er ekki að
•wæða. Hann viar að vísu fluttur á
Landsoí alann, t'.l þiess að fá tekma
af honum Röntgenmynd, en síð-
an farið með ha,nn heim og hef-
ir hann dvalið heima síðan. —
Myind sú, sem tekin var sýnir
ekkert bxiot, og hefir Magnús að-
eins hlotið slæmt mar á hæl og
nokkur meiðsli á tám. Hann er nú
farinn að klæðast og mun innan
fárra daga geta farið til vijnnu
sinnar.
Ég treysti því, að ég mæli fyr-
ir munn allra, siem skíSiaíþróttinni
, unna, þegar ég áfelli harðlega þá
menn, sem gera sér gaxnian að
því, að ýkja svo stórkostlegia sem
hér hefir verið gert, um þau ó-
höpp, sem kunna að vilj.a til á
skíðaferðum. Slíkir nxenn vinna
sikíðaíþróttinni stóxt ógagn, þiar
siem vitað er að fjöldi fólks fyll-
. ist af ótta við að láta börn sín
fana á skíði, þiegiar það heyrir um
j stórslys, sem aögð eru að gerist
nxieðal skíðamanna.
Ólafur Porsteinsson.
Dr. Njtels Nielsen
er farxnn til London og heldur
þar tnæstkomandi mánudag fyrir-
lestur í konunglega landfræðlfé-
laginu enska, The Royal Geo-
graphical Socíety, um raxxnsókn-
arför isína til Vatnajökulsi, og
sýnir þar myndir þær, er hann
tók á Islandi. (FÚ.)
fsafjörður:
Þrjú íshús: Eitt
hraðfrystihús.
RJÚ af fjóram íshúsum fsa-
f j arð arkaup sta2 ar hafa
vierlð isameimxð ög þeim breytt í
hraðfrystihús.
Tók það til starfa 19. f. m. og
getur fryst 18 smálestir af fiski
á sólarhring. Húsið hefir keypt
fisk af bátum i verstöðvumum.
Þrjátíu manns hafa unnið. Fisk-
urinn er ætlaður fyrir Ameríku-
markað. Ishússtjóri er Helgi Ket-
ilsson, en formaður félagsins,
sem nefnist íshúsfélag ísfirðinga,
er Árni Gíslason yfirfiskimats-
maður. Fiskimálanefnd hefir
styrkt fyrirtækið með 30 þúsund
króna láni.
Samvinnufélagsbátarnir
fara á veiðar.
Bátar Samvinnuféiagsins búast
nú á veiðar. Bærinn ábyrgist 40
þúsund króna reksitrarlán nxeð
veði í 6 hiuturn vetrar- og vor-
vertiðar. Eftirstöðvar greiðast, ef
nokkrar verða, af síldveiði. Auk
þessa greiðár bærinn tvo og hálf-
an eyri fyrir hvert kílógram af
fiskii, sem veiddur verður undir
Jökli eða sunnar og fluttur verð-
ur heim til verkunar í bænurn.
Bærinn hefir einnig ábyrgst hlut-
tryggingu á þrem smærrii bátum
alt að 75 krónum á hlut á mán-
uði.
Fisbsala Norðmsnna til
ítalin rex á ný.
KAUPMANNAHÖFN, 4/2. (FÚ.)
Svo virðist, sem fisksala Norð-
mainna til ítalíu sé nú aftur að
ganiga greiðara; siðustu daga
hafa fjögiur skip lagt af stað frá
Noregi með fullferini af harð-
fiski til ítalíu.
Slysið á Eskifirði.
Pilturinn Einar Sigurjónsson í
Eskifirði, er særðist geigvænilegui
skotsári yfir ofan hægra auga 29.
f. m., er nú að dómi læknis tal-
inn úr allri hættu, og líður hon-
um vel. (FÚ.)
Vélbáturínn Báran á Heliissandi,
7 smáiestir að stærð, eign
bræðranna Daníels og Einars ög-
mundissona, slitnaði úr festum
í norðaustan hvasisviðri 1. þ. m.
og barst til lands. Brotnuðu siður
bátsins við kjölinn og stefnið.
(FÚ.)
Fyrir sprengidaaion:
Híðíiísblapanlr
Hálfbaunlr
Vsktoríubalúnir
Gulfrófur
Gulrætur
Saltkjöt
Pðntunarfélag
Skólayörðustíg
0,80 pr. kg.
0,80 pr. kg.
0,80 pr. kg.
0,25 pr. kg.
0,70 pr. kg.
1,40 pr. kg.
verkamanna,
!. — Sími 2108.
óskast i gas-
kolafarm.
Útboðsskilmálar fást á
skrifstofu gasstöðvar-
innar
GasstöðvarstjónuD.
Ég hefi til leigu nú þegar eða
14. xnaí stóra sólrlika stofu með
öllum þæginidiUm, mjög heppilega
t. d. fyrir þá, sem vimna í Raf-
tækjaverksmiðjunni nýju. Hall-
steinn Hinriksson, Tjarnargötu
11, Hafnarfiröi, sími 9285.
Kaupum tóm Va kg. glös undan
sultu, mega vera Loklaua, á 10
aura stk. Kjötbúð Rieykjavítoitr.
Vesturgötu 16.
Geri við saumavélar, alls kon-
ar heimilisvélar og skrár. H.
Sandholt, Klapparstlg 11. Sími
2635,