Helgarpósturinn - 02.10.1981, Qupperneq 1
Blað 2
hpbamósturínn
• Tölvurnar flytja með
sér hljóðláta byltingu
sem á eftir að gjörbréyta
daglegu lífi okkar
• Hinn hefðbundni
vinnustaður gæti leyst
upp og flust inn á
heimilið sjálft
•Helgarpósturinn kynnir
ýmsar þessara nýjunga
sem nú eru til sýnis i
Kristalsal Hótel Loftleiða
HVERNIG VERÐUR SKRIF-
STOFA FRAMTÍÐARINNAR?
Tækniöldin hefur verið að'
hvolfast yfir okkur síðustu árin
með svo miklum hraða að mörg-
um finnst nóg um. Og erum við
þó aðeins á byrjunarstigi.
Meira að segja í Bandaríkjun-
um finnst mönnum ekki nóg að
gert. I nýlegri grein eftir John E.
Wang segir að kostnaður við
skrifstofuhald í Bandaríkjunum
hafi tvöfaldast síðustu 10 árin og
þó jókst framleiðni skrifstofunn-
ar aðeins um 4% samanborið við
90% f ramleiðniaukningu í tækni-
væddum iðnaði. Ef ekkert er
f rekar að gert næstu 10 árin, seg-
ir Cunningham, verður skrif-
stofukostnaður kominn yfir 1
trilljón dollara 1990.
Þó hef ur þróun tölvutækni ver-
ið mjög ör síðustu 20-30 árin. (
grein, sem Frosti Bergsson
tæknifræðingur hjá Kristjáni Ó
Skagf jörð ritaði í Iðnaðarblaðið,
bar hann tövluþróunina saman
við bílaiðnaðinn. Ef bílaiðnaður-
inn hefði vaxið jafn ört og tölvu-
iðnaðurinn hefur gert, kostaði
bíll í dag ca. 50 cent, færi um göt-
ur bæjarins á hraða Ijóssins og
væri svipaður á stærð og eld-
spýtustokkur og bensínnotkun
væri ca. O.ll/JOO km.
„Pappirslausar”
skrifstofur
Nú er aukin áhersla lögð á
tölvuvæðingu skrifstofunnar og
að sögn Frosta eru menn farnir
að tala um ,,pappírslausar"
skrifstofur sem framtíðarsýn.
Og þegar er farið að koma í Ijós
hvert stefnir.
Tölvur til ýmiss konar tölvu-
vinnslu teljast orðið til algengra
skrifstofutækja hér á landi og þó
erum við um 5 árum á eftir ná-
grannalöndum okkar í tölvuþró-
un. Þar er víða jafnframt orðin
almenn notkun á tölvum til texta-
vinnslu, en til skamms tíma hef-
ur íslensk leturgerð staðið í vegi
fyrir slíkum tækjum hér. Nú
hefur fundist lausn á því vanda-
máli og f jölmörg fyrirtæki hafa
undirbúið innflutning á texta-
vinnslubúnaði, bæði með sérstök-
um tækjum og sem hugbúnaði til
notkunar í þeim tölvum sem f yrir
eru. Jafnframt opnast ýmsir
möguleikar, svo sem á því sem
kallast „Electronic mail" á
enskri tungu, sem þýða má „raf-
eindapóstur".
Verðið lækkar en
getan eflist
„Að mínu mati er þetta engin
bylting, heldur þróun," sagði
O+tó A. Michelsen forstjóri IBM á
fslandi, en það fyrirtæki hefur
lengsta reynslu í innflutningi á
tölvum. „Sú þróun er hins vegar
mjög ör," bætti hann við. „Tölv-
an hefur bæði lækkað mjög i
verði og fyrirferðin hefur
minnkað verulega. Til dæmis má
nefna, að menn sem fengu hjá
okkur tölvur f yrir nokkrum árum -
og koma núna til að endurnýja
þær, f á helmingi ódýrari tölvu og
þrisvar sinnum öf lugri. Auk þess
hefur rekstraröryggi aukist
verulega. I heimi sívaxandi verð-
bólgu þá er gaman að geta boðið
vöru sem svo er ástatt með."
,,Hægt að gjörbreyta
heiminum”
Ennþá sér enginn fyrir endann
á þessari þróun. „Með tilkomu
tölva er hægt að gjörbreyta
heiminum," segir Frosti Bergs-
son. „Hægt verður að leysa upp
hefðbundna vinnustaði. Vinnu-
staðurinn verður nú heimilið
sjálft og þar með verður hægt að
ná stórum sparnaði. Oll ferðalög
í lágmarki, minni orkunotkun,
minni þungaiðnaður, sparnaður í
skrifstofu- og verksmiðjubygg-
ingum."
Breytingin sem tölvuþróunin á
eftir að valda, getur sem sagt
orðið engu minni en iðnbyltingin
olli. Samt hefur lítil umræða ver-
ið um þessa þróun hér á landi,
hvernig eigi að notfæra sér hana
og hvernig eigi að draga úr nei-
kvæðum áhrifum hennar. Með
námstefnu Stjórnunarfélags (s-
lands og Stjórntæknifélags Is-
lands, sem haldin var að Hótel
Loftleiðum i gær, var nokkuð
bætt úr því. Þar voru saman-
komnir ýmsir sérfræðingar i
tölvumálum, forsvarsmenn fyr-
irtækja og fleiri. En þessi þróun
varðar alla og fyrir aðra þá, sem
vilja kynna sér við hverju má bú-
ast hér á landi í nánustu f ramtíð,
verður sýriing á hluta þess skrif-
stofubúnaðar sem er að koma á
markaðinn, hér í Kristalssal, og
stendur hún fram til 6. október.
Meðal þess sem þar gefur að
líta eru ritvinnslutæki, mynd-
senditæki, „rafeindapóstur", ör-
skyggnutæki og diktafónar. A
næstu síðum verður í stutt^
máli gerð grein fyrir helstu nýj-
ungunum, sem á boðstólum
verða í skrifstofutækjum næstu
árin.