Helgarpósturinn - 25.07.1985, Page 2
FRETTAPOSTUR
I
Albert vill selja hlutabréf ríkissjóðs
Albert Guðmundsson fjármálaráðherra hefur boðaö sölu á
hlutabréfum ríkissjóðs í fyrirtækjunum Eimskip, Flug-
leiðum og Rafha og hefur farið fram eignamat á vegum
Fjárfestingarfélagsins á þessum hlutabréfum. Nafnverð
hlutabréfanna í Eimskip er 4,4 milljónir en söluverð sagt
tæpar 48 milljónir. Almennt eru peningamenn svartsýnir á
að einhver geti keypt hlut ríkisins í þessum fyrirtækjum —
því ákvæði eru um að bjóða beri hlutabréfin út á einu bretti,
en ekki í smáskömmtum.
Listmunasali skattakóngur
Guðmundur Axelsson, listmunasali í Klausturhólum, er
skattakóngur Reykvikinga þetta árið. Hann á að greiða hinu
opinbera tæplega níu milljónir króna — og segist sjálfur
vera standandi bit yfir þessum sköttum og raunar ekki trúa
þessari álagningu.
Af fyrirtækjum er það SÍS sem er hæsti greiðandinn. Sam-
vinnuhringurinn á að greiða rúmlega 56 milljónir króna í
skatta. Síðan kemur Reykjavíkurborg næst með 37 milljón-
ir og í þriðja sæti er byggingafyrirtækið Húsasmiðjan hf.
með 32 milljónir.
Skákkeppni milli Norðurlanda og USA
Skákkeppni verður haldin á næsta ári milli úrvalsliðs af öll-
um Norðurlöndum og úrvalsliðs frá Bandaríkjunum. Hvor
keppnisaðili mun senda 10 keppendur til leiks. Tillaga um
þessa keppni var lögð fram og samþykkt á fundi Norræna
skáksambandsins á þriðjudaginn. Reiknað er með að af
þeim 10 skákmönnum sem Norðurlönd senda saman í
keppnina, muni fjórir vera frá íslandi — sem mun raunar
halda keppnina. Þessir fjórir eru: Helgi Ólafsson, Margeir
Pétursson, Jóhann Hjartarson og Jón L. Árnason.
„ÖUum okkar gömlu deilum nú lokið“
Samkomulag hefur nú náðst milli stjórnar Alusuisse og ís-
lenskra stjórnvalda um skattamál svissneska auðhringsins
hér á landi. Af því tilefni lét Sverrir Hermannsson iðnaðar-
ráðherra þau orð falla, að „öllum okkar gömlu deilum“ væri
nú lokið.
Tveir kærðir fyrir nauðgun
Tveir karlar um fertugt sitja nú í gæsluvarðhaldi, kærðir
fyrir nauðgun. Liðlega tvítug kona kærði mennina fyrir að
hafa ógnað sér með eggvopni og komið fram vilja sínum.
Dómur fyrir nauðgun getur numið allt að sextán ára fang-
elsi.
40% reykja aö staðaldri
Nýlega var gerð könnun á reykingavenjum íslendinga. Sú
könnun sýnir að 40% íslendinga reykja daglega. Fólk sem
starfar við sjávarútveg reykir mest, en þeir sem vinna við
landbúnað minnst. Heldur hefur dregið úr reykingum
karla upp á síðkastið.
Foreldrar í Þingholtum mótmæla
Nýstofnaður einkaskóli, sem Reykjavikurborg veitir ókeyp-
is húsnæöi í gamla Miðbæjarskólanum við Tjörnina, hefur
nú valdið því að foreldrar í Þingholtum hafa risið upp og
bent á, að þráfaldlega hafi þeir farið fram á að börn þeirra
þyrftu ekki að þramma alla leið upp í Austurbæjarskóla —
en fengju afnot af nokkrum kennslustofum í Miðbæjarskól-
anum. Sú bæn hefur verið sungin fyrir daufum eyrum. For-
eldrasamtök Þingholta vilja fá svar við því hvernig á þessari
mismunun standi.
Fótboltinn
Fram er efst í 1. deild karla á íslandsmótinu í knattspyrnu.
Fram er með 22 stig, ÍA (Akranes) hefur 20 stig, Valur 18
stig, ÍBK 16, Þór 16, KR 15, Þróttur 13, FH 10, Víðir 9 og Vík-
ingur rekur lestina með 3 stig.
• Byssumaður gengur laus í Reykjavík. Maðurinn skaut úr
haglabyssu um helgina inn í bústað starfsfólks bandaríska
sendiráðsins við Laufásveg — og hefur síðan ekkert til hans
spurst.
• Talað er um offramboð á peningum hjá reykvískum verð-
bréfasölum þessa dagana. Framboð þetta stafar af því að al-
mennt eru spekúlantar trúaðir á hækkandi verðbólgu,
rýrnandi fé í bönkum og þar með nauðsyn á f járfestingu af
öðru tagi.
• Jón Oddsson hrl. hefur kært Jónas Kristjánsson ritstjóra
DV fyrir ummæli í leiðara DV sl. þriðjudag. í leiðaranum tal-
ar Jónas um ,,lögregluofbeldið“ og segir m.a.: „. . . Starfs-
maður lögreglunnar sem dæmdur var, framdi ofbeldið í
vinnutímanum. . .“ Jón Oddsson vísar í kærunni „til fleiri
óvandaðra skrifa þessa Jónasar," og þar með til ákvæða í
hegningarlögum um síbrotastarfsemi.
• Loðnuveiðar eru nú að hef jast. Útgerðarmenn og áhafnir
eru að gera bátana klára í slaginn — sem hefst við Jan May-
en þann 1. ágúst.
• Borgarráð hefur samþykkt fyrir sitt leyti að kaupa
Kröfluvirkjun af ríkissjóði fyrir H70 milljónir kr. Áður
hafði Akureyrarbær samþykkt kaupin og því allir eignarað-
ilar Landsvirkjunar tilbúnir að yfirtaka þessa merkilegu
virkjun.
• Mokafli hefur verið á Vestfjörðum síðan í maí. Sumir skip-
stjórar hafa sagt að þeir muni ekki eftir annarri eins þorsk-
gengd á þessum slóðum.
Skoðanakönnun
25% ÍSLENDIN
GARÐ HOMM
30% óttast smit a
Helgarpósturinn hefur látið gera
skoðanakönnun, þar sem leitað
var álits íslendinga á því hvort þeir
væru hræddir við að smitast af
AIDS. I framhaldi af því voru Iagð-
ar fram spurningar er lúta að af-
stöðu fólks til kynhverfra. Niður-
staðan er sú, að 30% íslendinga
eru hrædd við að smitast af AIDS,
en 70% eru ekki hrædd.
I framhaldi af þessari spurningu
var spurt hvort fréttir af sjúk-
dómnum AIDS hefðu breytt af-
stöðu íslendinga til kynhverfra, en
því hefur verið haldið fram, að
opinberir aðiljar hafi valdið hálf-
gerðri móðursýki með ummælum
sínum.
Skoðanakönnunin afsannar, að
fréttaflutningurinn hafi breytt af-
stöðu fólks til kynhverfra að
nokkru ráði. Þannig sögðu 17,3%
að fréttir um AIDS hefðu breytt af-
stöðu sinni til kynhverfra en
82,7% sögðu, að fréttir hefðu ekki
breytt afstöðu sinni.
Loks spurðum við svo um af-
stöðu íslendinga til kynhverfra og
gáfum fólki kost á að lýsa fimm
meginviðhorfum.
Mjög jákvæðir gagnvart kyn-
hverfum reyndust 14%, fremur já-
kvæðir 11,3% eða samtals rúm
25%, mjög neikvæðir voru 17,3%,
fremur neikvæðir 15,9% eða sam-
tals rúm 33%. Yfir allt landið voru
41,4% hlutlausir.
Það er einmitt þessi síðasta tala,
sem er e.t.v. athyglisverðust. Þess-
um hópi má líkja við þá, sem eru
óákveðnir, þegar t.d. er spurt um
fylgi stjórnmálaflokkanna. Að
vísu er hlutlausi hópurinn alls ekki
allur óákveðinn, en af svörum
fólks að dæma er stór hluti hinna
hlutlausu á báðum áttum. Karl-
maður úti á landi svaraði þessu
SKÁÍS
Þessi skoðanakönnun var gerð
dagana 6. og 7. júlí sl. Hringt var
í 800 einstaklinga, 18 ára og eldri,
með jafnri skiptingu milli kynja,
samkvæmt tölvuúrtaki, sem unn-
ið var eftir skrá Landsímans um
símnotendur. Úrtakið skiptist í
þrjú aðalsvæði, þ.e. Reykjavík
með 306 einstaklinga, Reykjanes
182 einstaklinga og landsbyggðin
312 einstaklinga. I þessari skoð-
anakönnun var reynt að kanna
hvort Islendingar væru hræddir
við að smitast af sjúkdómnum
AIDS; hvort fréttir um sjúkdóminn
hefðu breytt afstöðu fólk til kyn-
hverfra (homma og lesbía), og í
framhaldi af því hver afstaða fólks
væri almennt til kynhverfra.
Gengið var út frá 5 meginviðhorf-
um (mjög jákvæð afstaða, fremur
jákvæð afstaða, hlutlaus afstaða,
fremur neikvæð afstaða, mjög nei-
kvæð afstaða) og voru hinir
spurðu beðnir að velja sjálfir hvað
lýsti best þeirra eigin afstöðu til
kynhverfra. Þessi flokkun var
gerð til að auðvelda úrvinnslu og
ber að hafa það í huga þegar nið-
urstöðurnar, sem birtast í með-
fylgjandi töflum, eru skoðaðar.
Tafla I
Eru íslendingar hræddir við að smitast af AIDS?
Reykjavík Reykjanes Landsbyggðin Allt landið
Hræddir 72 27.0% 54 34.4% 88 30.2% 214 29.9%
Ekki hræddir 195 73.0% 103 65.6% 203 69.8% 501 70.1%
Svara ekki 39 - 25 — 21 — 85 —
Prósentutölurnar sýna hlutfall þeirra sem svöruðu
Tafla II
Hafa fréttir um sjúkdóminn AIDS breytt afstöðu íslendinga til kynhverfra?
Reykjavík Reyk anes Landsbyggðin Allt landið
Hefur breytt 37 13.9% 33 21.0% 54 18.6% 124 17.3%
Ekki breytt 230 86.1% 124 79.0% 237 81.4% 391 82.7%
Svara ekki 39 — 25 — 21 - 85 —
Prósentutölurnar sýna hlutfall þeirra sem svöruðu
Tafla III
Afstaða íslendinga til kynhverfra
Reykjavík Reyk anes Landsbyggðin Allt landið
Mjög jákvæð 23 8.6% 27 17.2% 50 17.2% 100 14.0%
Fremur jákvæð 25 9.4% 21 13.4% 35 12.0% 81 11.3%
Hlutlaus 132 49.4% 62 39.5% 102 35.1 % 296 41.4%
Fremur neikvæð 55 20.6% 24 15.3% 35 12.0% 114 15.9%
Mjög neikvæð 32 12.0% 23 14.6% 69 23.7% 124 17.3%
Svara ekki 39 ' - 25 - 21 - 85 —
Prósentutölurnar sýna hlutfall þeirra sem svöruðu
2 HELGARPÓSTURINN