Helgarpósturinn - 25.07.1985, Side 19
fréttum um vilja Alberts Guð-
mundssonar fjármálaráðherra til
þess að selja hlutabréf í Eimskip,
Rafha og Flugleiðum á óviðráðan-
legum kjörum, hefur ráðherranum
enn einu sinni tekist að komast í
fréttirnar nánast að tilefnislausu. En
um leið hefur hann vakið athygli á
öðru, sem er hermang íslenska rík-
isins. Þannig er nefnilega, að Flug-
leiðir greiddu á síðasta ári yfir 40
milljónir króna í lendingargjöld á
Keflavíkurflugvelli, og renna þessir
peningar að mestu í ríkiskassann.
Viðhald og snjómokstur á vetrum
og annað í þeim dúr greiðir hins
vegar bandaríski herinn. Það litla
sem við greiðum eru laun nokkurra
starfsmanna í flugturni. í þessu sam-
bandi er bent á þá staðreynd, að ís-
lendingar gætu í raun aldrei haldið
uppi þessum alþjóðlega flugvelli á
Miðnesheiði nema með aðstoð
Bandaríkjamanna. Já, það eru ekki
bara verktakarnir á Vellinum, sem
maka krókinn á hermangi. . .
inn af vinsælustu sólarstöðum
Islendingar fær nú æ verra orð á sig
vegna gífurlegrar aukningar af-
brota, einkum í grennd við Torre-
molinos á Costa del Sol og raunar
víðar á þessari miklu strandlengju. í
enskum blöðum er ekkert verið að
skafa utan af hlutunum, þegar sagt
er frá afbrotum á Costa del Sol, og er
nú yfirleitt vikið að þessari Spánar-
strönd sem Costa del Terror...
Ei
lyrir nokkrum dögum kom til
Reykjavíkur sovéskt skemmtiferða-
skip, sem í sjálfu sér er ekki í frásög-
ur færandi. En með í þessari ferð var
nokkuð forvitnilegur náungi, sem
kom svolítið við sögu þessarar þjóð-
ar á síðasta áratug. Maðurinn heitir
Karl Schiitz, vestur-þýski spæjar-
FREE
STYLE
FORMSKl M
LOREAL
PAfílS
„rrr'r, , . y , v • Já ~ n9Ía lagningarskúmið
SKUM i hánð? frá LORÉAC
og hárgreiðslan verður
leikur einn.
inn sem Ólafur Jóhannesson, þá-
verandi dómsmálaráðherra, pant-
aði fyrir tilstilli Péturs Eggerz
sendiherra til þess að leysa Geir-
finnsmálið. Sagan segir, að hann
hafi nú leyst fátt en þjösnast því
meira. Og núna er hans sérstaklega
minnst fyrir hæfileika sína við að út-
búa reikninga og hafa þá háa. Þegar
hann var hér, bjó hann í svítunni á
Hótel Sögu en skaust alloft heim til
Þýskalands, sýndi fram á allveru-
lega risnu og mun að skilnaði hafa
skilið eftir sig svo svimandi háan
reikning fyrir störf sín, að dóms-
málaráðuneytið hefur ekki enn
þann dag í dag viljað gefa upp hvað
var í raun lagt út fyrir Schútz, Þjátt fyr-
ir spurningar þar að lútandi. í þýsku
blaði lýsti hann því yfir, að hann
hefði „bjargað íslensku ríkisstjórn-
inni" og hafi hann talið sig hafa gert
það, þá er e.t.v. auðveldara að skilja
reikningana háu. ..
RENNDU VIÐ EÐA HAFÐU SAMBAND
22>?8x34 kr. 125 stk.
KANTSTEIIVIM
50x20x5 kr. 65 stk.
HELLUR
40x40 kr. 412 m2
20x40 kr. 437 m2
20x20 kr. 462 m2
BROTSTEINN Kr. 1.066 m2
SEXKANTA HELLUR kr. 448 m2
ÍTl BYGGlNBAVðRURl
BYGGINGAVÖRUDEILD HRINGBRAUT 120 sími 28600 STÓRHÖFÐA sími 671100
l-STEINN kr. 510 m2
ARLEG HANDBOK HUSBYGGJENDA
ER KOMIN ÚT í FJÓRÐA SINN STÆRRI,
OG EFNISMEIRI EN NOKKRU SINNI
Fcest nú í bókaverslunum um land allt
HELGARPÓSTURINN 19