Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 2

Helgarpósturinn - 12.06.1986, Side 2
HAUKUR í HORNI A LISTAHATÍÐ 86 „Menn koma víst alveg nýir menn út af þessari sýningu á Kjarvalsstöðum ... UNDIR SÓLINNI Reykjavíkurfall og Akureyrar Góður vinur minn var að rölta heim af dansleik á dögunum (eða nóttunum sem hér hæfir betur). Göngulagið var skiljanlega svo- lítið skringilegt — og skröltandi til hnjálið- anna, sagði hann mér síðar að sér hefði fund- ist. Og honum fannst fleira þessa ferðanótt. Meðal annars að hann hefði séð bananahýði utan í kantsteini á leiðinni, samt ekki aiveg viss, potaði því laust í það með spræku fót- boítasparklöppinni frá því í gamla daga norður á Ólafsfirði. Forvitnin að drepa hann etns og allíáf. Það fór eins og svo margir brandarar ganga út á; lappirnar upp í loft og afgangur- inn niður, í þessari röð: Fyrst ysti hnúi hægri handar, svo öll höndin með sérstökum vinkli á olnboganum, loks kæruleysislegur búkur- inn — og að lokum nam hægri kinn við sjálf- an kantsteininn sem gaf þó þann möguleika að sjá bölvað upphafið að þessu falli. Hann lýsti öllu framangreindu fjálglega fyrir mér þessum nokkrum dögum síðar sem ég nefndi áðan. Brotnaði auðvitað. Helvíti illa. Einn hnúi hægri handar í mél — efsti á litla putta, sem samkvæmt rannsóknum síðari ára er einna mikilvægastur í gripi manns og annarri notk- un þessara sniðugu útlima. Ólafsfirðingurinn sem ég hef verið að segja ykkur frá hérna að ofan útskrifaðist úr sínu námi nokkrum sólarhringum eftir að þetta leiðinda atvik henti hann. Reyndar grunar mig að hann hafi verið að halda upp á próflokin klukkustundirnar á undan því og þar sé að leita frumorsakar þess sem verða vildi, svo maður breyti nú fingrasetningunni yfir í félagsfræðilegri háttu. Orðinn fullnuma myndhöggvari úr Mynd- listar- og handíðaskólanum. En það er senni- lega eini skóli landsins sem hefur tekið upp á þeim andskota að snúa heiti sínu við, svona upp úr þurru. Hét til langs tíma Handíða- og myndlistarskólinn sem er auðvitað langtum ljóðrænna en öfuga nafnið sem nú er notað. Útúrdúr. Myndhöggvarinn sagði mér svo, kominn Tromsö og Hammerfest. Ég man það núna að ég var eitt sinn fána- beri á sautjándanum norður á Akureyri, barn að aldri. Ég held ég hafi ábyggilega ver- ið ylfingur um það leyti, man að minnsta kosti að ég náði aldrei skátastiginu því mamma sagði mig úr hreyfingunni þegar höfðinginn sendi fríðan flokk sinn nestislaus- an í kvöldvökuleiðangur lengst upp í fjall, hafði eitthvað misreiknað sig á matarþörf manna, bléSsaöUi kallinn. En sem sagt, þennan sautjánda fyrir fjölda ára bar ég stöngina í skuði — eins og fána- festingin heitir víst á skátamáli — inn Hafn- arstrætið og hringinn í kringum Ráðhústorg- ið, sem ég hef aldrei skilið að skuli ekki hafa verið stafsett á dönsku alveg frá byrjun, sömuleiðis Drottningarbrautin. Og þegar við loks námum staðar við ræðupallinn, mynd- uðum við æfða skeifu, sem var svo pottþétt man ég, að það hefði mátt heyra hríslinginn fara um bakið á okkur strákunum, ef þessi feitlagni bæjarstjóri hefði verið heldur lág- værari í púltinu. Við stóðum þarna beinstífir, með stangirn- ar í nákvæmlega fjörutíu og fimm gráður frá grönnum brjóstkössunum, allir sem einn, hróðugir föðurlandsvinir. En svo gerðist slys- ið, jafn óvænt og asnalega og næstum tveim- ur áratugum síðar þegar myndhöggvarinn datt í Reykjavíkinni. Einn okkar ylfinganna — ekki ég — hvítnaði skyndilega í framan og lærin sömuleiðis neðan stuttbuxnanna, einkanlega þó hnjákollarnir, sem urðu næst- um alhvítir. Svo nálgaðist hann gangstéttarhellurnar, skringiiega hægt, en samt jafn beinstífur og við þessir uppréttu sem eftir voru. Fáninn snart foldina fyrst, svo hann og blóðnasirnar. Þessi afleiðing fallsins þurfti endilega að rauðka vitlausan hluta þjóðfánans, sem við ylfingarnir vorum með á hreinu eftir ítrekað- ar rúðustrikanir. Þessi drengur, sem féll þarna á sautjándan- um, er núna kafaralærður. með diplómið upp á vasann, að sér hefði fundist hann vera í vægast sagt viðeigandi múnderingu við þessa útskrift í lífi sínu, ef haft væri í huga starfsheitið sem hann hefði nú rétt til að kalla sig . .. Múnderingin já; jakkaföt og gifs. Og þetta vinsæla hráefni hefðbundinna myndhöggv- ara einmitt steypt utan um þá hönd sem venjulegt fólk er vanið á frá barnæsku að heilsa með, til dæmis, og kannski þéttast þegar þar kemur í jarðvist þess að skóíastjóri réttir því hramminn í hinsta sinn sem nema. Þá er kveðjan líka hvað áhrifaríkust og mörgum veikgeðja hætt við að klökkna. En það var víst eitthvað annað uppi á ten- ingnum hjá Ólafsfirðingnum okkar og skóla- stjóra hans. Hið innra með sér emjuðu þeir af hlátri, á þessu alvarlega augnabliki, yfir því að eini myndhöggvarinn sem útskrifaðist frá skólanum þetta ár skyldi vera í gifsi, nauðug- ur viljugur . . . En svona er lífið. Núna er sumar í Reykjavík og reyndar flestum öðrum stöðum landsins þar sem morgunverk fólks eru að skafa snjó af bílrúð- unum. Sautjándinn er í nánd og menn farnir að veðja um vindstigafjöldann og milli- metramagnið af skúrum þennan annars skemmtilega blöðrublásna dag, sem víðast er prýddur flöggum í skökkum fánalitum. Menn hafa ekki ennþá áttað sig á því að skrúðgöngur henta ekki Laugavegi frekar en karnivöl Kaupmannahöfn, hvað þá Osló, 2 HELGARPÓSTURINN

x

Helgarpósturinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helgarpósturinn
https://timarit.is/publication/47

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.