Helgarpósturinn - 12.06.1986, Blaðsíða 5
eik/beyki 21.500,-eða 4-000,- út og 4000,-
á mánuði í 6 mánuði
90x195
Ókeypis heimakstur
uppsetning á Stór-
Reykjavíkursvæðinu
eik/beyki 1 9.900,-eða 3000,-út og 4000,-
á mánuði í 5 mánuði
u
I austinu við Vesturgötu var
veitt greiðslustöðvun til tveggja
mánaða nú í vikunni. Eftir því sem
HP veit best vinnur Ómar Halls-
son veitingamaður nú að því að ný-
ir hluthafar komi inn í fyrirtækið og
verði eignaraðilar að 49% Naustsins
en Ómar haldi sínum meirihluta
með 51%. Þar á bæ telja menn að
með því megi aflétta greiðslustöðv-
uninni mjög fljótlega. Lausafjár-
staða fyrirtækisins hefur verið erfið
en reksturinn að öðru leyti mjög
tryggur, segja sömu heimildir okkur.
Heimildamenn HP úr hópi lögfræð-
inga og veitingamanna segja að
skuldir fyrirtækisins séu miklar. A
hinu hafa menn furðað sig að jafn
gamalgróinn staður skuli eiga í
rekstrarerfiðleikum og eru ekki á
eitt sáttir um ástæður þess. Pví er
haldið fram að hvers kyns innri erf-
iðleikar og ör skipti á starfsfólki séu
meginástæður þess að ekki er hægt
að reka þennan „arðvænlegasta"
veitingastað borgarinnar. Aðrir hafa
bent á að með miklum fjölda nýrra
staða hafi Naustið einfaldlega orðið
undir, Ómar Hallsson veitingamað-
ur hafi keypt staðinn á vondum tíma
vegna hárra vaxta og í ofanálag lent
í erfiðleikum með annan rekstur.
Greiðslustöðvun á Naustinu er því
að sumra áliti ekki merkilegri en
erfiðleikar mjög margra annarra
veitingastaða, svo sem Lækjar-
brekku sem fékk greiðslustöðvun
um síðutu áramót og Hellisins
sem varð gjaldþrota á dögunum. . .
ER BÍLLINN
ÍLAGI
Á GÖÐU verði
STARTARAR
Original japanskir
varahlutir í flesta
japanska bíla.
BíLVANGURsf
HÖFÐABAKKA 9 5ÍMI 687300
A
Akureyri var að sjálfsögðu
mikill fögnuður í herbúðum krata
eftir kosningasigurinn þegar flokk-
urinn bætti við sig tveimur mönn-
um. Jón Baldvin formaður sendi
Aslaugu Einarsdóttur 3. manni á
lista flokksins skeyti morguninn eft-
ir kosningar og endaði skeytið með
orðunum „með von um viðreisn“
o.s.frv. Strax á mánudeginum var
farið í viðræður við sjálfstæðismenn
og gengu þær mjög vel og ágrein-
ingsmál leyst á ljúfan hátt. En morg-
uninn eftir að búið var að ganga frá
samstarfssáttmála flokkanna komu
boð frá Jóni Baldvin um að kratar á
Akureyri skyldu fara sér hægt í
samningaviðræðunum, kosningar
væru framundan og heill flokksins
væri í veði. í raun var Jón að segja
við Gísla Braga Hjartarson og
Frey Ófeigsson að hann kysi
vinstra samstarf, t.d. líkt og í Hafnar-
firði. Bæði Freyr og Gísli Bragi
munu hafa orðið illir yfir slíkum
„ordrum" að sunnan. . .
KSina málið sem kratar og sjálf-
stæðismenn ræddu og voru ekki alls
kostar ásáttir um var bæjarstjóra-
starfið. Kratar höfðu bitið í sig að
það skyldi hljóta Sigfús Jónsson,
en íhaldið stakk upp á Ingimundi
Sigurpálssyni, bæjarstjóra á Akra-
nesi. Haft var samband við Ingi-
mund og mun hann hafa tekið þessu
líklega. En kratar voru fastir fyrir.
Brandarinn í málinu er sá, að það
orð liggur á Ingimundi að hann sé
krati af lífs náð .. .
Lítil dellusaga um Bergman:
Þetta var víst ekki í fyrsta sinn sem
sá mæti maður kemur til íslands.
Hann mun fyrst hafa kynnst landi
og þjóð fyrir nokkrum áratugum,
við höldum að það hafi verið vetur-
inn 1956. Nú var Reykjavík módel
’56 ekki glæsileg borg með brögg-
um sínum og bakhúsum, og ekki
varð veðrið heldur til að fegra ásýnd
hlutanna, því grámyglan, hríðin og
muggan var allsráðandi þessa daga
sem meistarinn dvaldi hérna. Hann
mun því hafa snúið heim óskaplega
þunglyndur og það vita allir áskrif-
endur íslenska sjónvarpsins að
Bergman hefur gert óskaplega
þunglyndislegar myndir síðan • ■ -
HARÐVIÐARRUM
. y.;
Eik eða beyki, hjónarúm eða einstaklingsrúm, með tvöföldum svampdýnum á frábærum kjörum
Stærð Viðarteg. Staðgr.verð Lánakjör með vöxtum
170x195 eik/beyki 42.500,- eða 5000,- út og 5000,- á mánuði í 9 mánuði
1 50x195 eik/beyki 39.500,-eða 5000,- út og 5000,- á mánuði 18 mánuði
INiiVAn UUUTLN^
GRENSÁSVEGI 3, 108 REYKJAVÍK, ÍSLAND, SÍMAR 681144 & 33530
HELGARPÓSTURINN 5