Helgarpósturinn - 03.07.1986, Side 17
Allar byggingavömr á einum stað.
Hvar?
Við Stórhöfða, rétt norðan við
Vesturlandsveg, á móts við Grafarvog.
Aðkoma?
Þú ekur upp Ártúnshöfðann og beygir
Höfðabakkann til vinstri. Áður en komið er
að Gullinbrú, beygir þú til hægri og ert þar
með kominn á Stórhöfðann. Einnig er
hægt að aka áfram Vesturlandsveg og
beygja til vinstri á móts við Vog.
Þú villist ekki, allt er greinilega merkt.
Hvaðfæst?
Svarið er einfalt: Hér færðu allar
byggingavörur. Alltfrá litlum nagla upp í
heilu sumarhúsin. Smávörur,
handverkfæri og rafmagnsverkfæri.
Málning og lökk, fúavarnarefni og
málningarverkfæri. Miðstöðvarofnar, rör
og fittings úr plasti og jámi. Hreinlætistæki,
blöndunartæki, og flísar. Einangrunarefni
og milliveggjaefni. Vegg- og
loftklæðningar, parkett og annað gólfefni.
Innihurðir og uppsettar eldhúsinnréttingar.
Gangstéttartiellurog hleðslusteinn.
Hvar skyldi úrvalið vera meira?
Komdu við í JL Byggingavörum, nýrri stórverslun við Stórhöfðann.
BYGGINGAVORUR
Stórhöfða, Sími 671100
HELGARPÓSTURINN 17