Helgarpósturinn - 03.07.1986, Blaðsíða 18
SKÁK
Hugmynd flýgur
Líklega er hreinn og tær frum-
leiki ákaflega sjaldgæfur. Hug-
myndir koma ekki skyndilega al-
skapaðar fram á sjónvarsviðið
eins og Aþena úr höfði Seifs, þær
eiga sér einhvern aðdraganda, eru
oft endurómur einhvers sem höf-
undur þeirra hefur heyrt eða séð,
þótt hann sé kannske búinn að
gleyma því fyrir löngu og ímyndi
sér að hann hafi sjálfur fundið það,
einn og óstuddur. En menn eru
ákaflega mislagnir við að vinna úr
þeim efniviði sem í huganum býr
og mikill frumleiki getur falist í því
að raða þekktum hugmyndum
saman á nýjan og óvæntan hátt.
Um þetta eru dæmin deginum
ljósari. Fyrir nokkru rakti ég hér í
þættinum fræga skák Morphys er
hann telfdi í Parísaróperunni árið
1858 og sýndi síðari dæmi þar sem
lokaflétta Morphys hafði orðið
öðrum innblástur.
Nú vildi svo til að ég rakst á
grein í norska skákblaðinu þar
sem vikið er að þessari sömu fléttu
og áhrifum hennar á síðari tafl-
mennsku manna. Það er Jonathan
Tisdall sem greinina ritar, en ein-
hverjir lesenda muna sjálfsagt eft-
ir honum frá því að hann tók þátt
í skákmótinu í Vestmannaeyjum
síðastliðið sumar. Jonathan er af
norsku bergi brotinn og er nú flutt-
ur heim til Noregs og skrifar í
norska skákblaðið. Hann rekur
þar eina skák sína og bendir á
hvernig hann hafi fengið hug-
myndina að glæsilegri fléttu sinni
frá Morphy.
Skák Tisdalls er lifandi dæmi um
það hvernig hugmynd fær nýja
vængi og flýgur áfram. Það er öld-
ungis óvíst að honum hefði dottið
fléttan í hug hefði hann ekki þekkt
skák Morphys, en í höndum hans
eykst hún og magnast og verður
stórglæsileg.
En nú er kominn tími til að Iíta
á frummyndina og úrvinnslu Tis-
dalls. Fyrst kemur frummyndin.
Það er Morphy sem hefur hvítt en
gegn honum tefla samráðsmenn-
irnir Isouard greifi og Brúnsvíkur-
hertorgi. Myndin sýnir taflstöðuna
þegar flugeldasýningin er í þann
veginn að hefjast.
1. Hxd7! Hxd7 2. Hdl De6
3. Bxd7+ Rxd7 4. Db8 + ! Rxb8
5. Hd8 mát.
Og þá er komið að skák Tisdalls,
hún var tefld í London árið 1982,
eg styðst við skýringar Tisdalls
sjálfs.
Tisdall — Lee
Sikileyjarleikur
01 d4 e6 02 e4 c5
03 Rf3 cd4 04 Rxd4 Rf6
05 Rc3 Bb4
Svartur velur bratta leið sem
sjaldan er farin, en hefur þann
kost að hvítur er á ókunnum slóð-
um.
06 e5 Re47
En hér villist svartur sjálfur. Rd5
er betra. „Nú vissi eg,“ segir Tis-
dal, „að hvítur á að ná betra tafli,
en hafði óljósar hugmyndir um
hvernig hann ætti að fara að því“.
Tisdall notaði því mikinn tíma á
næstu leiki.
07 Dg4! Rxc3 08 Dxg7 Hf8
09 a3 Rb5 +
9—Ba5 10 b4 Bb6 11 Bg5 Dc7 12
Bh6 leiðir til vinnings og sama er
að segja um 9 — Db6 10 ab4 Dxd4
11 Bh6. Það sem ríður baggamun-
inn er hve svartur er veikur fyrir á
svörtu reitunum og hve hervæð-
ing hans er skammt komin.
10 ab4 Rxd4 11 Bg5!
Enn ratar hvítur réttu leiðina.
11 ... Db6
11 — Rxc2+ 12 Kdl kemur ekki til
greina. 12 Bd3?!
Hér mæla skákfræðin með 12
Bh6! Dxb4+ 13 c3 Rf5! 14 cb4
Rxg7 15 Bxg7 og hvítur stendur
greinilega betur að vígi, hann á
biskupaparið, er betur hervæddur,
ræður svörtu reitunum og getur
sótt að staka h-peðinu.
12 ... Rf5?
Svartur sér að með þessu móti
eftir Guðmund Arnlaugsson
opnast sjötta röðin og drottningin
kemst til varnar. En hann sér ekki
nógu langt — og það er honum
vorkunn. Best var 12 — d5 eða 12
— d6. Þá á hvítur góð sóknarfæri
en ekki er auðvelt að rekja vinn-
ing.
13 Bxf5 ef5 14 0-0-0 Dg6
Það var á þennan leik sem svart-
ur hafði sett allt sitt traust. Er nú
nokkur leið til að komast hjá
drottningakaupum og stendur
svartur þá ekki upp með unnið
tafl? En nú kemur kveikjan frá
Morphy til sögunnar, Tisdall segir
að sér hefði naumast komið næsti
leikur hvíts í hug, ef hann hefði
ekki munað óljóst eftir þessari
gömlu klassísku skák.
15 e6t!
Nú eru góð ráð dýr: 15 — fe6 16.
De7 mát, 15 — de6 Hd8 mát, 15 —
Dxg7 16 ed7+ Bxd7 17 Hhel +
Be6 18 Hd8 mát eða loks 15 —
Dxg7 16 ed7+ Rxd7 17 Hhel +
De5 18 Hxe5+ Rxe5 19 Hd8 mát.
Svartur reyndi því
15 ... d5 16 Hxd5 Rc6
17 e7! Rxe7
17 Dxg7 18 Hd8+ Rxd8 19 ed8H
mát, einu sinni enn!
18 Hd8 +! Kxd8 19 Dxf8 +
og svartur gafst upp.
SPILAÞRAUT
♦ 6
D-10-4
O Á-K-10-7-6-5-2
* 7-3
♦ Á-10-5-4-2
Á-k-7-6-5
❖ 3
+ Á-K
Sagnir:
suður vestur norður austur
1 spaði pass 2 tiglar pass
3 hjörtu pass 4 tiglar pass
4 hjörtu pass 5 hjörtu pass
6 hjörtu pass pass pass
Vestur lætur laufadrottningu,
sem við tökum með ás. Báðir and-
stæðingar fylgja lit þegar þú tekur
á hjartakóng. Austur lætur gosann
þegar hjartanu er spilað í annað
sinn og fylgir lit með gosanum.
Hvernig höldum við áfram?
Hingað til hefir allt gengið vel.
Séu trompin skipt 2—3, er mögu-
leiki á að taka alla slagina. En okk-
ur nægja tólf slagir. Hvaða leið er
öruggust?
Lausn á bls. 10.
LAUSN Á KROSSGÁTU
r • • . L . . H ‘0 • '0 • s • • .
L £ / K U R fí • B fí s ú N u . 7 .
fí\R L fí /< / • Is K £ R fí ■ fí N S fí S
SJ' L L fí . F\fí R / N . T U 6 r . T
rt) fí /< fí L fí 0 s fí r\' ’fí T fí K / s> • m U
R Æ|Ð fí N • s S • F\Ú S S . R Æ F / L L ö R
• í-\R <L • 'fí K fí L L • K / S fí N - R Ú m . T
• S\L fí U r fí . ‘fí s m £ 6 / N • fí s / N U
• 'kUI - T /i P fí V m\fí R R . G R1/ K K • E N
fí u\- B fí L fí R • \fí u F ú s fí • IS r R 'fí / N
• R\ft\U N\L /n Ú L L U N fí • o\/< h fí T T /
* R\U\N U - K fí F\L fí R . F '0\T\U R . T fí L
• S\K fí rt\ m l R N fí R U [F Ll m\fí\N * B fí i? fí
18 HELGARPÓSTURINN