Helgarpósturinn - 03.07.1986, Page 29
Geirs Hallgrímssonar, fyrrum ráð-
herra, væntanlegs bankastjóra
Seðlabankans og formanns Arvak-
urs. Tengdasonur Björns Hallgríms-
sonar er Gunnar Scheving Thor-
steinsson verkfræðingur. Gunnar er
bróðir Davíds Scheving Thorsteins-
son iðnrekanda, en þeir eru synir
Magnúsar Scheving Thorsteinsson,
forstjóra Smjörlíkisgerðarinnar, og
Láru Hafstein, bróðurdóttur
Hannesar ráðherra Hafstein. Davíð
Scheving er framkvæmdastjóri
Smjörlíkis hf. og Sólar hf., er for-
maður bankaráðs Iðnaðarbankans
og á sæti í stjórnum Hafskips sáluga
og Almennra trygginga hf. Bróðir
Magnúsar Scheving Thorsteinsson
vai' Geir Thorsteinsson, útgerðar-
maður og tengdasonur Hannesar
ráðherra Hafstein. Hann var faðir
Kristjönu Millu Thorsteinsson, sem
á sæti í stjórn Flugleiða, og Ragnars
Thorsteinsson útgerðarmanns.
Bróðir Magnúsar og Geirs var Pétur
Jens Thorsteinsson, sem áður hefur
verið nefndur í tengslum við Thors-
ættina. Pétur Jens var auk þess sem
þar kom fram tengdafaðir Eggerts
Briem, sem aftur var tengdafaðir
Péturs Benediktssonar bankastjóra
og alþingismanns, bróður Bjarna
Benediktssonar, fv. forsætisráð-
herra. Tengdasonur Péturs Jens var
einnig Ólafur Þ. Jónsson, stórkaup-
maður. Hans synir eru Friöþjófur
Johnson, tengdasonur Jóns Olafs-
sonar, bankastjóra og alþingis-
manns, Pétur Ó. Johnson, stórkaup-
maður í New York, og Örn Ó. John-
son, fv. stjórnarformaður Flugleiða,
kvæntur Margréti Þ. Hauksdóttur
Thors, Hannes O. Johnson, sem var
framkvæmdastjóri Tryggingar hf.
og Ólafur Ó. Johnson, forstjóri O.
Johnson og Kaaber, stjórnarformað-
ur fjölskyldufyrirtækisins Heimilis-
tæki og stjórnarmaður í Árvakri.
Stjórnarformaður O. Johnson og
Kaaber er aftur á móti Rafn John-
son, sonur Friðþjófs. Friðþjófur var
síðan mágur Ölafs H. Jónssonar,
sem var forstjóri.útgerðarfélagsins
Alliance og sat meðal annars í
stjórnum Samlags skreiðarframleið-
enda, LÍÚ, VSJ og Olís. Hann var
sonur Jóns Ólafssonarj útgerðar-
manns og bankastjóra Útvegsbank-
ans, en sonur Ólafs, Jón Olafsson
lögfræðingur, er nú varaformaður
stjórnar ÓLÍS. Hann og Þórir Odds-
son vararannsóknarlögreglustjóri
eru systkinasynir. Móðursystir Frið-
þjófs Johnson var Borghildur Thor-
steinsson, móðir Elísabetar Óiafs-
dóttur, eiginkonu Hilmars Thors.
Þeirra sonur er Ólafur B. Thors,
fyrrum borgarfulltrúi og núverandi
forstjóri Almennra trygginga hf. og
stjórnarmaður í Seðlabankanum.
Afi Ólafs var Ólafur Björnsson rit-
stjóri, bróðir Sveins Björnssonar for-
seta. Óiafur B. Thors er síðan kvænt-
ur Jóhönnu Einarsdóttur Guö-
mundssonar, en Einar var lengi
stjórnarformaður Eimskipafélags-
ins og í stjórn þess fyrirtækis situr
nú sonurinn Axel Einarsson. Ólafur
er sem fyrr segir forstjóri Almennra
trygginga hf., en einn af aðal stofn-
endum þess fyrirtækis var Kristján
Siggeirsson forstjóri. Sonur hans,
Hjalti Geir Kristjánsson, á einnig
sæti í stjórn Eimskipafélagsins, en
auk þess í stjórn Almennra trygg-
inga, Slippfélagsins, Sparisjóðs
Reykjavíkur og nágrennis, Verslun-
arráðs Islands og áfram mætti telja.
Stiklað á stóru
Ljóst er að upptaining sem þessi
gæti orðið ærið löng og að ofantöld
lýsing er aðeins til að gefa lesendum
ófullkomna vísbendingu um hin
miklu ættartengsl sem greina má
meðal leiðandi manna í íslensku at-
hafnalífi. Margt kemur sjálfsagt á
óvart, annað ekki. Ferðalagið um
völundarhús ættartengslanna gæti
orðið enn lengra og þá kæmi margt
fleira athyglisvert í ljós. Við ljúkum
samantekt þessari á nokkrum fróð-
leiksmolum til viðbótar.
— Stefán Hilmarsson, bankastjóri
Búnaðarbankans, er sonur Hilmars
Stefánssonar, bankastjóra Búnaðar-
bankans. Stefán er tengdasonur
Kjartans Thors, sem var mágur
Viggós Björnssonar, bankastjóra Út-
vegsbankans. Stefán og Jón Adolf
Guöjónsson, aðstoðarbankastjóri
Búnaðarbankans, eru systrasynir.
— Jóhannes Nordal, bankastjóri
Seðlabankans, og Bjarni Bragi Jóns-
son, aðstoðarbankastjóri Seðla-
bankans, eru skyldir; afi Jóhannes-
ar var Jón Jensson háyfirdómari en
afi Bjarna var bróðir Jóns, Bjarni
Jensson. Bjarni Bragi, Hallvaröur
Einvarösson fráfarandi rannsóknar-
lögreglustjóri og Halldór Jónatans-
son, forstjóri Landsvirkjunar, eru
systkinasynir.
— Annar aðstoðarbankastjóri
Seðlabankans er Björn Tryggvason.
Hann er bróðir Agnars Tryggvason-
ar, framkvæmdastjóra hjá SÍS, og
Þórhalls Tryggvasonar, bankastjóra
Búnaðarbankans, en faðir þeirra
var Tryggvi Þórhallsson, fv. forsæt-
isráðherra.
— Björn Hjartarson, útibússtjóri Út-
vegsbankans, er sonur Hjartar
Hjartarsonar, forstjóra Reyrplasts
og stjórnarformanns í Fjárfestinga-
félagi Islands og Almennum trygg-
ingum. Hjörtur og Bjarni Benedikts-
son fv. forsætisráðherra voru
kvæntir systrum. Bróðir þessara
systra var Anton B. Björnsson, faðir
Markúsar Arnar útvarpsstjóra.
Annar bróöir þeirra var Haraldur
BJörnsson, framkvæmdastjóri S.
Arnason og co., formaður stjórnar
Sveins Egilssonar hf.
Af fleiri
tengdasonum
— Helgi Bergs, bankastjóri Lands-
bankans, er sonur Helga Bergs for-
stjóra og bróðir Jóns H. Bergs, for-
stjóra Sláturfélags Suðurlands. Jón
H. Bergs er tengdasonur Magnúsar
Scheving Thorsteinsson forstjóra og
þá um leið mágur Davíðs Scheving
Thorsteinsson, forstjóra og for-
manns bankaráðs Iðnaðarbankans.
— Tengdasonur Vilhjálms Þórs,
fyrrum ráðherra og Seðlabanka-
stjóra, er Hilmar Fenger, sonur
Johns Fenger stórkaupmanns og
Kristjönu Zoéga. Hilmar er fram-
kvæmdastjóri Nathan og Olsen hf.
og á sæti í stjórn Tollvörugeymsl-
unnar og Verslunarráðsins áður
fyrr.
— Tengdasonur Svanbjörns Frí-
mannssonar, seni einnig var Seðla-
bankastjóri, er Ásgeir Thoroddsen,
sonur Gunnars Thoroddsen.
Afi og amma Gunnars Thorodd-
sen voru Kristín Briem og Valgarö
Claessen, en þeirra sonur var Eggert
Claessen, bankastjóri og stjórnar-
formaður Eimskips um árabil. Bróð-
ir Kristínar var Ólafur Briem og
tengdasonur hans var Björn Þóröar-
son fv. forsætisráðherra, faðir Þórö-
ar Björnssonar, sem nú víkur úr
sæti ríkissaksóknara fyrir Hallvaröi
Einvarössyni. Eiginkona Gunnars, -
Vala, er dóttir Asgeirs Ásgeirssonar
forseta. Bróðir Gunnars, Jónas
Thoroddsen, var tengdasonur
Magnúsar Guömundssonar ráð-
herra. Systir Gunnars, Sigríöur
Thoroddsen, átti Tómas Jónsson
borgarlögmann, en sonur þeirra er
Jón G. Tómasson, einnig borgarlög-
maður.
— Davíð Oddsson borgarstjóri er
kvæntur Ástríði Thorarensen og um
leið tengdasonur Þorsteins S. Thor-
arensen borgarfógeta og Unu Peter-
sen, sem var dóttir Hans Petersen
kaupmanns.
— Hallgrímur Sigurösson, forstjóri
Samvinnutrygginga, er sonur Sig-
uröar Kristinssonar, sem var for-
stjóri SÍS og ráðherra. Hallgrímur
og Hjördís B. Kvaran eru systkina-
börn, en hún átti Finn Kristjánsson,
kaupfélagsstjóra á Húsavík, og eru
þau foreldrar Tryggva G. Finnsson-
ar, forstjóra Fiskiðjusamlags Húsa-
víkur. Þá eru systkinabörn Hjördís,
Hallgrímur og Ólafur Kvaran rit-
símastjóri, en hann átti Ingibjörgu
Benediktsdóttur, systur Hallgríms
Benediktssonar (H. Ben.), sem auð-
vitað var faðir þeirra Geirs og
Björns Hallgrímssona.
Með þessari ef til vill langsóttu
tengingu samvinnhreyfingar og
einkaframtaks látum við þessari
ferð um völundarhús ættartengsl-
anna lokið að sinni.
Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra er
tengdasonur Jónasar Rafnar, stjórnarfor-
manns Seðlabankans, en Jónas hefur
um árabil verið einn áhrifamesti fjármála-
maður landsins.
Halldór H. Jónsson hefur verið kallaður
íslandsmeistarinn í stjórnarsetu, er meðal
annars stjórnarformaður Eimskipafélags-
ins og ÍSAL. Hann er tengdasonur Garð-
ars Gíslasonar stórkaupmanns. Sonur
Garðars, Bergur G. Gíslason, var lengi
stjórnarformaður Flugfélags islands og í
stjórn Flugleiða og situr auk þess í stjórn
Árvakurs.
Davíð Oddsson borgarstjóri er tengda-
sonur Þorsteins Thorarensen borgarfó-
geta og Unu Retersen, sem var dóttir
Hans Petersen kaupmanns.
Sigurður Helgason, stjórnarformaður
Flugleiða. Faðir hans, Helgi Hallgríms-
son, Sveinn Valfells eldri, forstjóri
Steypustöðvarinnar, Baldvin Dungal, for-
stjóri Pennans, og Soffía Haraldsdóttir,
eiginkona Sveins M. Sveinssonar ( Völ-
undi, eru systkinabörn. Bróðir Soffíu er
svo Jónas Landsbankastjóri Haralz og
systir Bergljót Haralz, mágkona Jónasar
G. Rafnar, stjórnarformanns Seðlabank-
ans.
Geir Hallgrfmsson, fyrrverandi forsaatis-
ráðherra og stjórnarformaður Árvakurs
— útgáfufélags Morgunblaðsins — verð-
ur nú Seðlabankastjóri. Bróðir Geirs,
Björn Hallgrimsson, situr í stjórnum fjöl-
margra fyrirtækja, en hann er tengdafaðir
Gunnars Scheving Thorsteinsson, bróð-
ur Davíðs Scheving Thorsteinsson iðn-
rekanda.
Davíð Scheving Thorsteinsson iðnrek-
andi er sonur Magnúsar Scheving Thor-
steinsson forstjóra og Láru Hafstein,
bróðurdóttur Hannesar ráðherra Haf-
stein. Bróðir hans, Gunnar Scheving
Thorsteinsson verkfraeðingur, er tengda-
sonur Björns Hallgrímssonar, forstjóra H.
Ben., bróður Geirs. Afabróðir Davíðs og
Gunnars var Th. Thorsteinsson, einhver
auðugasti og umsvifamesti kaupsýslu-
maður landsins á sínum tíma, tengdason-
ur og meðeigandi Geirs Zoéga. Sonur
hans var Geir Thorsteinsson útgerðar-
maður og tengdasonur Hannesar ráð-
herra Hafstein. Bróðir Th. Thorsteinsson
var síðan Rétur Jens Thorsteinsson, sem
stofnaði Milljónafélagið með Thor Jen-
sen.
Jóhannes Nordal Seðlabankastjóri er
sonur Sigurðar Nordal prófessors. Afi
Jóhannesar var Jón Jensson háyfirdóm-
ari og bróðir Jóns var Bjarni Jónsson, afi
Bjarna Braga Jónssonar, aðstoðarbanka-
stjóra Seðlabankans. Bjarni Bragi er son-
ur Jóns Hallvarðssonar og er hann, Hall-
varður Einvarðsson, nýskipaður rlkissak-
sóknari, og Halldór Jónatansson, fram-
kvæmdastjóri Landsvirkjunar, systkina-
börn.
HELGARPOSTURINN 29