Alþýðublaðið - 18.10.1938, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 18.10.1938, Qupperneq 3
ÞRBMUDAG 18. OKT. 1838 ALÞTÐUBIAPIÐ Bjðrgunarskiplð Sæbjðrg hefir pegar veltt mörgn skipum og bátum ---- .■ ■—---— Úr skýrslu sklpstjórans. ALÞTÐUBLAÐIÐ EITSTJÓES: r. ft. VALDEMLARSSON. if'CiftÉÍÐSLA: ALÞ.ÝÐDHÚ.SIND (ixmgangur írá Hverflagötu) SÍMAft: 49®0—498«. 49J0: Afgreiðsia, augiýsinga'. (901: Ritstjóm (innTewðar fretiir). t902: Rftaíjöri. 4903: Vilítj. S.Vilhjálma3on(heima) i'J04: F. R. Valdemarsson (heíma) 4905: Aipýöuprentsmiðjan. S906: Afgreiðsla. ' ALÞÝÐDPKENTSftUDJAN „ Síldarsaga“ Vísis. VtSIR gerir á laugardaginn enn eina kátbroslega til- raun til aS halda lífi í hinni fár- ánlegu lygasögu sinni um Am- eríkusíldina. Birtir blaðið afar- langa grein undir fjögra dálka fyrirsögn svohljóðandi: „Síld- arútvegsnefnd hefir týnt kaup- andanum að Ameríkusíldinni. Alþýðublaðið og Tíminn ósam- mála um kaupandann.“ Öll hin langa þvæla blaðsins gengur síðan út á að. sanna fyrri fullyrðingar Vísis um að kaup- ándi síldárinnar væri týndur, og að félagið, sem keypt hefði síld- ina, hafi aldrei verið til eða stofnað eftir að samningurinn var gerður. Síðan leiðir Vísir 2 vitni í málinu og taki menn nú eftir: Hið fyrra er Þjóðviljinn, sem segir frá því daginn eftir að lygasagan hafði birzt í Vísi, „að vafasamt sé, hvort kaupandi síldarinnar gæti staðið við skuldbindingar sínar“. Eins og það sé nokkur nýlunda, að blað kommúnista lepji upp ósannindi íhaldsblaðanna, og þau vitni svo aftur í kommúnista o. s. frv.! — Síðan bætir Vísir því við, að einn af síldarútvegs- nefndarmönnunum hafi viður- kent í viðtali við Vísi, „að ein- liver afturkippur“(!) væri kom- inn í söluna. Þar með er „sönn- unin“ fengin fyrir lygasögunni! Sigrihrósandi segir Vísir, að þar með hafi hann tvö vitni sínum málstað til sönnunar, „og verð- ur það að teljast sæmilegur ár- ' angur þegar á fyrsta degi eftir að greinin birtist"! Litlu verður Vöggur feginn! En nú kemur aðalbomba Vís- is, sem gefið hefir tilefni til hinnar stóru fyrirsagnar. Vísir sannar það, að meðlimum síld- arútvegsnefndar beri ekki sam- an um kaupandann, sem Vísir segir að sé týndur: Alþýðublað- ið hafi það eftir Finni Jónssyni, að samningurinn hafi verið gerður við Mr. Stanley Iller í San Francisco, en Tíminn hafi það eftir Jakobi Frímannssyni, að hann hafi verið gerður við „The North American Herring Co. Ltd.“ „Hvort blaðið lýgur nú?“ segir Vísír heldur borginmann- lega. Þarna sjáið þið, síldarút- vegsnefnd veit ekki hver er kaupandinn, hann er týndur eins og Vísir sagði. Gáfnaljós- unum við blaðið hugkvæmist ekki að verið geti að áðurnefnt félag geri samning með milli- göngu ákveðins trúnaðarmanns, og að þessi trúnaðarmaður geti verið fyrnefndur Mr. Stanley Iller! Nú víkur sögunni að Morgun- blaðinu. í fyrra sumar fóru í- haldsblöðin bæði í sameiningu í mikla herferð gegn síldarút- vegsnefnd og sérstaklega Finni Jónssyni, sem mörgum mun minnisstætt. Þá voru íhalds- blöðin samtaka um lygasögurn- ar og um það að stinga upplýs- ingum og símskeytum frá full- trúa Sjálfstæðismanna í síldar- útvegsnefnd, Sigurði Kristjáns- syni á Siglufirði, undir stól. En nú hefir Mgbl. sýnilega ofboðið hin kjánalega árás Vísis á nefndina og birtir á sunnu- daginn langt viðtal við Jóhann Jósefsson, sem nú á sæti í nefnd inni, þar sem frásögn Vísis er hrakin svo að segja orði til orðs. Fyrirsögn Mgbl-greinarinnar er: „Síldin er að mestu leyti seld. Matéssíldin öll seld“, sbr. áðurnefnda fyrirsögn í Vísi á laugardaginn. Þá segir Jóh. Jós. að sölusamningurinn hafi verið gerður við Mr. Stanley Iller frá San Francisco „sem trúnaðar- og ábyrgðarmanns fyrir New- York-firmað „North American Herring Sales Ltd.“, sbr. það, sem áður var sagt og ummæli Vísis um að kaupandi síldarinn- ar hljóti að vera „hreinasta nátt úrunnar viðundur“. Jafnvel Vísir ætti nú að fara að skilja samhengið. Þá spyr Mgbl. hvort einhver breyting muni hafa orðið á verði Ameríkusíldarinnar til hins verra. ,.Nei,“ segir Jóh. Jós., „þvert á móti.“ Menn geta nú gert sér í hug- arlund hvað mikið hefir verið að græða á síldarsögu Vísis, úr því jafnvel Mgbl. ofbýður svo fíflskapurinn, að það tekur að sér að segja flokksblaði sínu til syndanna. Vísir kann auðsjáanlega mjög illa þessari ofanígjöf Mgbl. og launar Mgbl. með því að hæð- ast að einni af fjólum þess um einhvern söfnuð, sem „syngi sálma á fingramáli“, en segist að öðru leyti muni svara Mgbl. betur seinna. Það verður fróð- legt að sjá áframhaldið á „síld- arsögu“ Vísis. Það, sem komið er af henni, jafnast sannarlega á við beztu fjólur MgbL.og hver veit nema hr. Kristján Guð- laugsson eigi éftir að erfa heið- ursnafnið ,,fjólupabbi“ eftir Valtý. Hann virðist fyllilega eiga það skilið. Áheit á Strandakirkju: 5 kr. frá J.M.S. Akranesi. BJÖRGUNARSKIPIÐ „Sæ- björg“ kom hingað til lands þ. 20. þ. á. og hóf starf sitt nokkru síðar. Skipið hefir því starfað í rúmlega hálft ár og þykir vel við eiga að tairt sé nú grein um björgunarstarf- semi skipsins, eftir skýrslum skipstjórans. Það var orðið all áliðið á vetr- arvertíðina, er „Sæbjörg” fór sína fyrstu ferð út i Faxafló- ann til þess að gegna störfum sínum fyrir fiskiflotann. Þrátt fyrir það auðnaðist henni að verða mörgum til hjálpar, eins og nú skal rakið. Hinn 3. apríl kallaði mb. „Hákon Eyjólfsson,“ sem hefir talstöð, á hjálp, þar eð hann hafði fengið vélarbilun úti við Garðskaga. Brá „Sæbjöörg“ við og kom bátnum til aðstoðar og dró hann til Keflavíkur. Þann 3. maí bað mb. „Ingólfur" frá Keflavík um hjálp. Sagði for- maður „Ingólfs11 að svo mikill leki væri kominn að bátnum, að hann gæti ekki látið vélina ganga. Var enn brugðið fljótt við og „Ingólfur“ dreginn til hafnar í Keflavík. Þann 7. maí tilkynnti mb. „Reynir“ frá Keflavík, að mb. „Óðinn“ frá Reykjavík væri með bilaða vél um 20 sjómílur vestur frá Sandgerði. Var strax farið honum til hjálpar og kom- ið með hann til Reykjavíkur daginn eftir. Eins og kunnugt er, hefir „Sæbjörg“ mjög fullkomna miðunarstöð og getur því ge-fið skipum og bátum nákvæmar staðamiðanir, enda nutu all- mörg skip aðstoðar „Sæbjarg- ar“ í þessum efnum, og skulu hér nefnd nokkur dæmi, tekin eftir skýrslum skipstjórans, Kristjáns Kristjánssonar. „Kl. 11.50 þ. 10. apríl kall- aði lv. „Sæborg“ frá Akureyri og bað um að miða sig. Kl. 15.50 sama dag, bað „Sæborg“ aftur um miðun. Eftir samtali, er náðist af skipstj. á „Sæ- borgu“ taldi hann báðar mið- anirnar góðar. Kl. 9,40 þ. 5. maí bað mb. „Árni Ólafsson“ um að miða sig, og þá um leið m.b. „Örn- inn“ frá Keflavík. Allar þess- ar miðanir reyndust réttar."- Ennfremur var „Sæbjörg“ kölluð til aðstoðar á ýmsum öðrum sviðum, eins og sjá má af eftirfarandi: „Kl. 12,10 þ. 3. apríl kom op- inn vélbátur og bað um hjálp, til þess að ná upp fyrir sig net- hnút. Var hann aðstoðaður við það og dreginn til lands. Kl. 13,35 þ. 2. apríl kallaði bv. „Belgaum" frá Reykjavík og bað um að taka fyrir sig veikan mann í land. Þegar kom- ið var til „Belgaum,11 það mun hafa verið um 3—4 sjómílur í vestur frá Garðskaga, dæmdist ófært að taka sjúka manninn á milli skipa.“ Þ. 10. maí hætti ,,Sæbjörg“ störfum í Faxaflóanum, en 24. júní fór .hún norður fyrir land til þess að starfa þar yfir síld- veiðitímann. Því eins og kunnugt er, stundar megnið af ísl. fiskiflotanum veiðar fyrir Norðurlandi yfir sumarið. Fyrir Norðurlandi var skipið til 22. september, en þá kom það til Reykjavíkur. Daginn eftir fór „Sæbjörg11 aftur til starfa sinna 1 Faxaflóa og var þar til 4. okt. en þá hætti hún störfum í svip og er nú verið að hreinsa vél skipsins. Tímabilið frá 10. júní til 4. október var „Sæbjörg11 á leigu hjá Skipaútgerð ríkis- ins. Hér fara á eftir útdr. úr skýrslum skipstjórans um björgunarstörf .,Sæbjargar“ fyrir Norðurlandi: Þriðjudaginn 2. ágúst kl. 20.50 kom ,,Sæbjörg“ að skip- inu „Artur & Fanney“ þar sem það lá fyrir akkeri, uppi und- ir landi, út af Bangastöðum. austan við Tjörnes, með stykki úr nótinni í skrúfunni og gat sig ekki hreyft og því alveg hjálparlaust. Skipstj. á skipinu bað um hjálp til þess að kom- ast til hafnar, svo hægt væri að losa úr skrúfunni, og síldar- farm, sem það hafði innan- borðs, um 350 mál. Skipið hafði legið þarna frá kvöldinu áður. og var talstöðvarlaust. Var það dregið inn til Akureyrar og gekk vel. Laugardaginn 30. júlí heyrð- ist kall frá vélbátnum „Þorgeir goða,“ er bað um aðstoð björg- unarskipsins, þar eð þeir lægju hjálparlausir, með bilaða vél, framundan Þursaskeri á Skaga- firði. Brá „Sæbjörg“ við og kom bátnum til hjálpar og dró hann til Siglufjarðar. Miðvikudaginn þ. 27. júlí var haft samband í gegn um tal- stöðina við vélbátinn „Gull- topp“, sem var með bilaða vél og hjálparlaus og bað um að- stoð „Sæbjargar,11 sem kom honum til hafnar á Siglufirði. Þ. 19. júlí kl. 21 var „Sæ- björg“ stödd úti af Skagaströnd, heyrðist þá kall frá vélbátnum „Hannes lóðs“ frá Vestmanna- eyjum, um það að vélbáturinn „Herjólfur“ væri með bilaða vél á Skagafirði og óskaði eftir að- stoð björgunarskipsins. Var strax lagt af stað og þegar „Sæ- björg“ kom að „Herjólfi“ lét hann reka skammt vestur af Hólmaskeri. Var komið drátt- artaug um borð og báturinn dreginn til Siglufjarðar. Gjiafir til Slys;avamiafélags Is’ands. Frá Gtu'ðin. ólafss., Stakkhiolti, Ólafsvík, kr. 40,00. Frá kviemm- deild verkamaamaféliaigsiins Fram á Seyðisfirði, kr. 116,02. Frá skipshöfninni á e .s. Selfossd kr. 59,00. Frá skipshöfninni á e. s. Brúarfossi kr. 61,50. Kærasr þakk- lr. — J. E. B. Innflntninpr bjgg- ingarefna. —O— Byggingaiðnaðarmenn og verkamenn þessa bæjar vantar erlent byggingarefni fyrir ca. kr. 170 000 00, til þess að geta tryggt sér 7 mánaða atvinnu, og bíða nú eftir svari fjármála- ráðherra og gjaldeyris- og inn- flutningsnefndar um það, hvort. innflutningur verði leyfður fyr- ir þessa upphæð. Hér er um vetraratvinnu að ræða fyrir mikinn f jölda manns. í sambandi við þetta mál er rétt að spyrja, hvort rétt sé, sem heyrst hefir, að skipsfarm- ur sé nýkominn til einnar verzl- unar hér austan fjalls, og að gamlar og nýjar birgðir verzl- unarinnar séu svo miklar af aðeins einni tegund af bygging- arefni að nemi að minsta kosti kr. 10.00 á hvern íbúa sýsl- unnar. í Reykjavík er mikil þörf fyrir byggingarefni, og eiga fyrnefndir iðnaðarmenn og verkamenn lífsafkomu sína und ir því, að þetta byggingarefni fáist nú þegar. En í sýslu þeirri, þar sem hinar miklu birgðir eru sagðar fyrirliggjandi, fer sama og engin byggingarstarf- semi fram fyr en næsta sumar. Ef þetta er svo, lítur út fyrir að hér sé illa farið með gjald- eyri þjóðarinnar. Þar sem eng- in byggingarstarfsemi fer fram lítur út fyrir, að miklar bii*gð- ir séu fyrirliggjandi. En 1 Reykjavík, þar sem mikil bygg- ingarstarfsemi fer fram allt ár- ið, og áríðandi er, að birgðir séu til á hverju hausti, þar er nú alger vöntun á nauðsynleg- asta byggingarefni. Fulltrúar bankanna í gjald- eyrisnefnd, sem munu standa fastast á móti því, að bygging- ariðnaðarmenn fái nú viðunandi úrlausn mála sinna, mega bú- ast við því, að að því komi. að þeir verði krafðir reiknings- skapar um fyrri ráðstafanir sín- ar í gjaldeyrismálum iðnaðarins og þá ekki sízt um það sem hér greinir að ofan. Iðnaðarmaður. Auglýsið í Alþýðublaðinu. Mý békaverslnn Bókauerslun Isafolöarprentsmiðiu Rusíursírceti 8 er opnuíl á djig. fásl afliar fl®Ie»i®lkar ítesekiir, eldri og yiisgri. ESnn« ffremnr noJkftmirt nrrásl aff rltffilngnin og pappfirivðffum ffyrlr ©krifsioffnr og skóla. Samlámis koma ói 0 uýar ÍBækiar: 1. Islensk úrvalsljóð V. (Benedikt Gröndal). Úrvalsljóðin eru þegar orðin svo vinsæl, að óþarft er að mæla með þeim, en auk þess hafa ljóðmæli Benedikts Sveinbjarnarsonar Gröndals verið ófáanleg um margra ára skeið. 2. Nero keisari, eftir Arthur Weigall. Þýtt hefir Magnús Magnússon ritstjóri. Þetta er söguleg skáldsaga og tal- in afbragðsverk í sinni röð. 3. Gegnum lystigarðinn, ný skáldsaga eftir Guðmund D aníelsson frá Guttormskag'a. Guðmundur hefir hlotið svo lofsamleg ummæli fyrir fyrri bækur sínar, að búast má við að margur sje forvitinn að sjá þessa bók hans. 4. Og* árin líða, þrjár sögur eftir Sigurð Helgason. 5. Ástalíf, eftir Pjetur Sigurðsson erindreka Allir íslendingar kannast við hreinskilni og bersögli Pjeturs Sigurðs- sonar, og mun því margan fýsa að heyra hvað hann hefir að segja um þau málefni, er hann tekur fyrir í þess- ari bók sinni. 6. Bombi Bitt og jeg, þýtt hefir Helgi Hjörvar. — Allir, ungir og gamlir, muna eftir sögtmni af Bombi Bitt, sem Helgi Hjörvar las í útvarpið á síðastliðnum vetri. U nglingar um land alt hafa óskað eftir að bókin yrði prent- uð, og er því fullvíst að henni verður vel tekið. Komið rakleflii ð Bókauenslun ísafolöarprentsmiðju SJ rssgi S§ Sími 4527. Ausieirstræti §ími 4527f

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.