Alþýðublaðið - 04.02.1939, Side 2
LAUGARDAG 4. FEBR. 1939
Leitið upp-
lýsinga!
HEIMILIÐ, KONURNAR OG BÖRNIN
Ef lesendur blaðsins,
húsfreyjur eða stúlkurn-
ar vilja fá einhverjar upp-
lýsingar um konurnar eða
bömin, eða eitthvað annað
er snertir atvinnu þeirra
eða áhugamál, þá geta þær
sent Alþýðublaðinu fyrir-
spurnir sínar, en bréfin
verða að vera merkt:
Hemilið — konurnar og
börnin. Verður fyrirspurn-
um svarað eins greinilega
og kostur er á. Með slíkum
fyrirspurnum er hægt að
upplýsa ýmislegt, sem fólk
vantar upplýsingar um og
ætti því að nota tækifær-
ið, sem hér er gefið.
ídag hefirfjöldi
barna — dáið.
— „í dag er sagt, að dáið hafi
fjöldi barna.“
Þetta er ein setning, tekin úr
fréttaskeytum blaðanna í þess-
ari viku. Það var verið að
segja frá hörmungum spanskra
flóttamanna, sem nú hafast við
tugum þúsunda saman við
landamæri Frakklands, hælis-
lausir og allslausir.
— Þessi frétt rúmar hyldýpi
af hörmungum, sem enginn get-
ur, nema sá sem séð hefir, eða
reynt hefir, gert sér í hugarlund
hvernig eru í öllum sínum ægi-
leik.
-— Siðmenning okkar er nú
ekki meira virði en svona- Á
þessari öld æða þjóðirnar í
blindu ofstækisfullu hatri hver
gegn annari og heyja blóðugar
styrjaldir.
— íslenzkar konur hafa ekki
mikið að segja af þessu, sem
betur fer. Hér á okkar litla
landi hafa slíkar hörmungar
ekki dunið yfir. En undir niðri
í þjóðlífi okkar finnst þó vísir-
inn að þeim. Það má fullyrða,
að skilyrði séu til fyrir hinu
ægilega pólitíska hatri, sem
leiða þjóðirnar út í hörmung-
arnar, þó að vonir manna séu
þær, að sá vísir kafni og nái
aldrei þroska. Við íslendingar
verðum, ef vel á að fara, að
deila um það sem á milli ber
eins og siðuðum mönnum sæm-
ir, láta rökin og málstaðinn
ráða úrslitum, en ekki kutann,
róginn eða skammbyssuna. —
Okkar þjóð er ekki svo stór
eða um svo mikið að berjast,
að það taki því fyrir okkur, að
taka það eftir erlendum þjóð-
um, sem hatrammlegast er og
ægilegast.
— Logar hins persónulega
pólitíska haturs eru tendraðir
af ofsaflokkunum, sem af mis-
skyldri hugsjónadýrkun gleyma
siðmenningunni, tigna tilgang-
inn, sem réttlæti hvaða vopn
sem er, og stofna til stríðs milli
landsins eigin barna. Allt velt-
ur á því fyrir okkur, að beztu
menn í hvaða flokki, sem þeir
eru, skilji hvert ofsi og hatur
getur leitt, að slíkt þýðir tor-
tíming menningar okkar og
þjóðlegra verðmæta. Það á að
vera heilög skylda ábyrgra
manna að vinna saman að út
rýmingu ofsans og hatursins
úr íslenzkum stjórnmálum. Og
þó er það alls ekki nóg. Allt er
undir því komið, að almenning
ur sýni andlegan þroska, að
hann greini á milli og hafi ó-
brjálaða dómgreind. Að hann
sýni það, að hann vill ekki ofsa,
hatursfull slagorð eða upp-
hlaup, að hann dæmi eftir mál-
stað og rökum. Ef forysta
flokkanna finnur hinar sið-
ferðilegu kröfur almennings í
landinu, þá mun breyting á
verða og stjórnmálabarátta
okkar verða háð, eins og hún
er bezt háð, t. d. í nágranna-
löndum okkar, hjá bræðrum
okkar á Norðurlöndum.
— Við eigum að berjast fyrir
fullkomnu frelsi allra, jafnrétti
allra, atvinnu handa öllum. Við
eigum að ala upp frjálsa mennt-
aða kynslóð í okkar litla landi og
bannfæra hatur og óhrein vopn.
—- Reynsla annara þjóða á að
nægja okkur og um hana fáum
við að heyra á hverjum einasta
degi.
— íslenzkar konur eiga að
bera uppi merki friðarins meðal
landsins barna. Þær eru mikils
ráðandi og geta þó ráðið meiru
ef þær vildu. Aukið vald ykkar
konur — og beitið því í þágu
mannúðar, friðar og réttlætis.
Sa.
Á grímuballinu.
Allar danskar konur
eiga að læra hússtjórn.
-----O—----
Um hendur danskra húsmæðra
fara árlega 2 milljarðar króna.
DANIR eru í þann veginn
að koma á hjá sér alhliða
húsmæðranámi, þannig að all-
ar konur fái kenslu í öllu, sem
lýtur að hússtjórn.
í dönskum blöðum er skýrt
frá því, að árlega fari um hend-
ur danskra húsmæðra um 2
milljarðar króna og bent á
hve geysilega þýðingarmikið
það sé fyrir afkomu þjóðarinn-
ar, að húsmæðurnar eða hjálp-
arstúlkur þeirra kunni sem
bezt með þetta fé að fara.
Hér á landi er lítið um hús-
mæðrafræðslu. Soffía Ingvars-
dóttir hefir hvað eftir annað
skrifað hér í blaðið um nauð-
syn á því að settur væri hér
upp starfsstúlknaskóli, en það
mál hefir ekki fundið náð fyrir
augum bæjarstjórnar. Það mun
láta nærri, að um 66 milljónir
króna fari árlega um hendur ís-
lenzkra húsmæðra og hjálpar-
stúlkna þeirra, og er því ekki
síður ástæða fyrir okkur ís-
lendinga að gefa þessu máli
gaum en Dani.
Tilætlun Dana er að setja á
stofn þriggja ára ókeypis hús-
mæðraskóla víðs vegar um
landið fyrir allar ungar stúlkur
á aldrinum frá 14—20 ára.
Skólarnir eiga að vera bæði
dag- og kvöldskólar. í hverjum
bekk á að kenna 100—150
kenslustundir. Kenslunni á að
haga í höfuðatriðum eins í öllu
landinu, þannig að ungar
stúlkur, sem flytjast úr einum
stað í annan, eigi hægara með
að halda áfram náminu.
Auk þess er til þess ætlast, að
framvegis verði krafist ýtar-
legra bóknáms af eldri stúlk-
um, er leggja stund á hús-
mæðranám, og er gert ráð fyrir
5 mán. námskeiðum, enda séu
þau einkum sótt af stúlkum, er
áður hafa lokið námi við hina
fyrirhuguðu húsmæðraskóla.
Hinn opinberi styrkur til
Spakmœli um ástina
Helmingurinn af æfi konunn-
ar er von, hinn helmingurinn
er umburðarlyndi.
M. A. Townsend.
Menn fá fljótt leið á falleg-
um konum, en aldrei góðum.
Montaigne.
Konan hlær þegar hún getur,
og grætur þegar hún vill.
Rússneskt spakmæli.
húsmæðraskólanna er jafn-
framt stórum aukinn, enda
gert ráð fyrir, að % nemend-
anna njóti nú ríkisstyrks, í stað
þess að áður hefir aðeins helm-
ingur þeirra verið styrktur.
í milliþinganefndinni, sem
undirbjó þetta frumvarp, hefir
einnig verið rætt um mentun
húsmæðraskólakennara, og er
líklegt að námstími í hús-
mæðrakennaraskólum verði
lengdur upp í 3 ár, í stað
tveggja ára nú.
Gert er ráð fyrir, að hús-
mæðrakennaraskólarnir verði
gerðir jafnir einkakennaraskól-
um með tilliti til ríkisstyrks.
Aukast þá fjárframlög til
þriggja slíkra skóla, sem nú
eru í Danmörku, um 48 000 kr.
á ári.
Samkvæmt tillögu nefndar-
innar eru hin árlegu útgjöld
ríkisins til húsmæðrafræðslu á-
ætluð 3,5 millj. kr-, þar af 2,1
millj. til kennaralauna,
MÍÐDE GISVERÐIR
IÐDEGISVERÐIRNIR eru ætlaðir fyrir 6 manna fjölskyldu
Framvegis verða hér á síðunni birtar ýmis konar matar-
uppskriftir, sem konur ættu að klippa út og geyma.
M
MÁNUDAGUR:
Makkaronimjólk.
Mjólk lVt 1.
Vatn Vz 1.
Makkaroni 80 gr.
Salt 2 tesk. slf.
Makkaroni er brotið í smá-
bita, látið út í þegar mjólkin
og vatnið sýður, hrært í þar til
suðan kemur upp. Soðin í 20
mín., saltað um leið og súpan
er tekin af eldinum.
Hvít kjötstappa.
í þennan rétt er gott að nota
kjötleifar.
Kartöflur 750 gr.
Kjötsoð 6 dl.
Soðið kjöt 250—400 gr.
Salt 1 tesk. slf.
Pipar % tesk,
Negull Vt tesk.
Lárviðarlauf 3 stk.
Laukur 1 stk.
Kartöflurnar eru flysjaðar
hráar, skornar í þunnar sneiðar
og soðnar í kjötsoðinu í 15 mín.
Kjötið saxað á fjöl og sett út í
ásamt kryddi. Ef kjötsoðið hefir
verið vel saltað, má ekki láta
salt eins og til er tekið í upp-
skriftinni. Laukurinn er saxað-
ur og settur saman við um leið
og kjötið. Suðán látin koma
upp. Borðað með soðnum gul-
rófum eða öðru grænmeti.
ÞRIÐJUDAGUR:
Eggjamjólk með eggjahvítu-
bollum.
Mjólk iy4 1.
Vatn Vz 1.
Salt 1 Vz tesk. slf.
Eggjarauða 2 st.
Kartöflumjöl IV2 matsk. slf.
Sykur 50 gr.
Rommdropar 15 dropar.
Bollur:
Eggjahvita 2 st.
Sykur 2 tesk. slf,
Eggjarauða, sykur, kartöflu-
mjöl og krydddropar er hrært í
súpuskálinni, þar til það er orð-
ið að þéttri froðu. Mjólk og
vatn soðið, saltað og því svo
hrært saman við eggjarauðurn-
ar í skálinni.
Bollurnar: Eggjahvíta og 2
tesk. sykur er harðþeytt, látið
út í súpuskálina strax eftir að
mjólkinni hefir verið helt upp,
lok lagt yfir í 2—3 mín. áður en
súpan er borin á borð,
Fiskur á fati.
Fiskur 1 % kg.
Salt 3 tesk. slf.
Pipar Vi tesk.
Smjörlíki 125 gr.
Brauðmylsna 4 matsk. slf.
Fiskurinn (bezt ýsa) er slægð-
ur, þveginn, flattur, roðflettur
og skorinn í sundur. Steikarfat
er strokið með smjörlíki,
brauðmylsnu, salti og pipar,
blandað saman, fiskinum dyfið
í þetta, og síðan raðað á fatið.
Smjörlíkinu er skift í smá bita,
og það látið ofan á fiskinn hér
og þar. Bakað í vel heitum ofni
þar til fiskurinn er orðinn ljós-
brúnn. Borið fram á sama fat-
inu. Bezt er að nota föt úr eld-
föstum leir, því venjuleg
steikarföt þola ei hitann í ofn-
inum.
MIÐVIKUDAGUR:
Kartöflusúpa.
Vatn iy4 1.
Kartöflur 250 gr.
Selleri 100 gr.
Mjólk V2 1.
Smjörlíki 20 gr.
Hveiti 20 gr.
Salt 2 tesk. slf.
Kartöflur og selleri er þveg-
ið, skorið í þunnar sneiðar.
Soðið í saltvatni í 20 mín. Þá
er öllu hrært í gegnum gatasíu,
látið í pottinn aftur með mjólk-
inni og súpan jöfnuð með
hveitibollu, þ- e. smjörlíki og
hveiti hrært vel saman og því
er svo hrært saman við súp-
una með þeytir. Krydduð með
salti eftir bragði.
Hvítkálsbögglar.
Beinlaust kjöt 500 gr.
Hveiti 30 gr.
Kartöflumjöl 30 g'r.
Laukur 75 gr.
Salt 2V2 tesk. slf.
Pipar y4 tesk.
Mjólk 2Vz dl.
Hvítkál 1 lítið höfuð.
Vatn 6 dl.
Salt 1V2 tesk. slf.
Hveiti 25 gr.
Smjörlíki 25 gr.
Kjötið er saxað í vél með
lauk, hveiti og' kartöflumjöli 6
til 8 sinnum. Mjólkinni þá
hrært saman við, má ekki láta
meira en tvær til þrjár mat-
skeiðar í einu til að byrja með
og hræra vel á milli, svo deigið
aðskiljist ekki. Þegar öll mjólk-
in er komin saman við, er
deigið kryddað með salti og
pipar. Hvítkálið er látið í sjóð-
andi vatn og blöðin síðan losuð
gætilega frá leggnum, svo þau
rifni ekki.Ein matskeið af kjöt-
deigi er látin á hvert blað, sem
svo er vafið saman, og bundið
um með hreinum bómullar-
þræði- Látið í sjóðandi saltvatn
og soðið í 15—20 mín. Böggl-
unum þá raðað á fat, bandið
leyst af, og soðið jafnað með
hveitibollu (sjá uppskrift af
kartöflusúpu). Lítið eitt af sós-
unni er látið yfir bögglana á
fatinu, hitt er borið fram í
sósukönnu.
Kennarinn: Við köllum jörð-
ina, móður jörð, getur þú sagt
mér, hversvegna við höfum
hana kvenkyns?
Nemandinn: Það er líklega
af því að enginn veit aldur
hennar.
Eins og allir vita, tíðkast nú
mjög að sauma í föt, kjóla,
blússur, peysur og jafnvel
kápur. Hér eru skíðaf'öt með
útsaumuðum jakka. Saumað
er í hann með sama garni og
er í háleistunum og' vetlingun-
um, það er reirt ullargarn í
rauðum, grænum, gulum og
bláum litum, sömuleiðis er
saumað í húfuna, sem er úr
sama efni og fötin. Jakkinn er
með rennilás og 4 vösum, og
saumaður kantur á þá eins og
á barmana og í handvegina.
Andlitssnyrting:
Feit |huð.
SETJIÐ sundhettu á höfuðið
til þess að hlífa hárinu.
Þvoið andlitið úr heitu vatni,
og kælið það því næst vel með
ísköldu vatni í eina mínútu. Sé
slanga með vatnsdreifi í báð-
herberginu, þá notið hana við
kælinguna, en að öðrum kosti
kaupið þér togleðursslöngu með
vatnsdreifi, og setjið hana í
samband við baðkerið. Ef þér
hafið ís við hendina, þá er
sjálfsagt að nota hann fremur
en kalda vatnið. Þér takið þá
grisju (Gaze), vefjið henni um
ísmola og núið honum um and-
litið þéttingsfast, sérstaklega
vel meðfram nefinu beggja
vegna, þar sem húðin er opn-
ust. Þetta endurtakið þér þang-
að til þér kennið kuldafiðrings
í húðinni-
Að þessu loknu löðrungið þér
yður rösklega 30 sinnum á
hvora kinn (blásið út gúlinn á
meðan). Á þennan hátt fáið þér
æskuroða á vanga. Þessu næst
vætið þér baðmullatrhnoðra í
undanrennu eða áfum og rjóð-
ið vel alt andlitið, þerrið það
ekki, heldur látið mjólkina
þorna inn í hörundið.
Að lokum þvoið þér yður úr
(Frh. á 4. síðu.)
FEGURÐ OG TÍZKA. —
breytileg —
Tískan er
en fegurð er
alltaf tízka-
ARMEN-
permanent.
andlits- og handsnyrt-
ing, hár- og augna-
brúnalitun, eykur feg-
urð yðar og er alltaf
nýjasta tízka.
C
ARMEN,
verður snyrtistofa yðar.
Lvg. 64. — Sími 3768.