Alþýðublaðið - 31.03.1939, Page 1

Alþýðublaðið - 31.03.1939, Page 1
Athugið! Það er gamall og græzku laus siður, að láta fólk hlaupa apríl, en gamanið fer að grána, þegar hlaup- in kosta peninga. Tryggið ykkur meiri kaup en hlaup með því að koma á hinn eldfjöruga danzleik F.U.J. í Iðnó á laugardag, EITSTJÓEI: F. R. VALDEMAKSSQN ÚTGEFANDI: ALÞÝÐUFLOKKUBINN XX. ÁRGANGUB FÖSTUDAGINN 31. marz 1939. 76. TÖLUBLAÐ. Munlð danzleik F. U. J. í Iðnó á laugard&gínn kl. 10 e. h. Áðgöagu* miðar kosta aðeins kr. 2.50. Setnr Hltler Pólverjum nrslita> kosti í dag eða á morgnn? _ ■'■■ ■ Stórkostlegur liðsafnaður við þýzku landamærin Óvæntur ráðuneytistund* ur í London i gærmorgun UTANRÍKISMÁLARITSTJÓRI Lundúnablaðsins „Dai- ly Herald“ boðar í blaði sínu mjög alvarlega viðburði í Evrópu í dag eða á morgun. Telur hann sig hafa sterkar líkur fyrir því, að Þýzka- iand muni áður en tveir sólarhringar eru liðnir setja Pól- iandi urslitakosti, sem mjög vel geti leitt til Evrópustyrj- aldar. Það 'er gengið út frá því sem sjálfsögðu, að kröfur Þýzkalands gangi í þá átt, að Pólland sætti sig við innlim- un Danzig í Þýzkaland, og leyfi, að þýzkur bílvegur verði lagður í gegnum pólska hliðið til Austur-Prússlands, eða láti jafnvel pólska hliðið alveg af hendi við Þýzkaland. Það er enginn efi lengur talinn á því> að Þjóðverjar hafi nú stórkostlegan liðsafnað við landamæri Póllands, enda þótt því sé neitað í Berlín. Orðrómurinn um það, að Hitler sé í þann veginn að setja Pólverjum úrslitakosti, styrkist mjög við það, að brezka stjórnin hélt aukafund í gærmorgun, sem boðaður var alt í einu og alveg óvænt í fyrra kvöld. Eftir fundinn var því lýst yfir, að Chamberlain myndi flytja þýðingar- mikla yfirlýsingu í neðri málstofu þingsins kl. 11 f. h. í dag. ÆQir Bitler að híndra Laadinafir Becks? Það hefir verið ákveðið, að Beck utanríkismálaráðherra Pólverja komi í heimsókn til London á mánudaginn, og ganga menn ekki að því grufl- andi, að ferð hans sé fyrirhug- uð til þess að ræða við brezku stjórnina ástandið í Evrópu og möguleikana á hjálp frá Eng- iandi, ef Þýzkaíand skyldi ráð- ast á Pólland. En menn óttast mjög, að Ilitler kunni að hafa í hyggju, að hindra þessa heim- sókn með því að láta til skarar skríða gegn Póllandi nú þegar um helgina. í Varsjá boðaði Moscicki Pól- landsforseti fulltrúa allra tlokka á fund sinn í gærkveldi og stóð fundurinn langt fram á nótt. Engar tilkynningar hafa verið gefnar út um tilefni hans né árangur. ítðium farlnn að standa síugour af yfirgangi Hltlers. KHÖFN í gærkveldi. FÚ. í fregnum frá Varsjá er skýrt frá alltíðum árásum á Pólverja af hálfu Þjóðverja í Efri-Sshle- síu, en ekkert er enn vitað með vissu um sannleiksgildi þeirra fregna þýzku blaðanna, að Pól- verjar haldi uppi árásum á Þjóðverja þar í landi. Fréttaritari Reuters í Róm heldur því fram, að meðal stjórnmálamanna á Ítalíu séu nú miklar áhyggjur yfir sam- komulaginu milli Póllands og Þýzkalands, og er ekki trútt um, að þeim sé farinn að standa stuggur Þýzkalands. Beck. af yfirráðastefnu PHEUSSEN Kort af hættusvæðinu, sem nú er mest talað um. Lengst til vinstri sést nokkur hluti pólska hliðsins til Eystrasalts og Danzig, sem skilja Austur-Prússland frá Þýzkalandi. Göring marskálkur er væntan- Iegur til Rómaborgar fjórða eða fímta apríl, og mun hann þá eiga tal við Mussolini. Göbbels er nú einnig á ferða- lagi. Hann kom til Búdapest í gær í flugvél, en átti þar að- eins skamma viðdvöl. Þó talaði hann við Horthy ríkisstjóra. I dag er Göbbels kominn til Bel- grad. Yfirherforiooi Breta skoð arffrðnska viggirðino- arnar. LONDON í gærkv. F.Ú. Gort, forseti brezka herforingja Alþjóðasamband verkalýðs félaganna krefst bandalags gegn yfirgangi Þýzkalands LONDON í morugn. FÚ. P’ RAMKVÆMDARÁÐ al- þjóðasambands verkalýðs- félaganna (Amsterdaminterna- tionale) hefir gefið út yfirlýs- ingu um alþjóðamálin, þar sem skorað er á Bretland, Frakk- land, Sovét-Rússlaud og Pól- Iand að mynda þegar í stað samband gagnkvæmrar ábyrgð- ar og fullrar, skilyrðislausrar aðstoðar gagnvart sérhverri of- beldisárás. f áskorun þessari er það einn- ig lagt til, að leitað sé samvinnu við Bandarikin. þar sem Roose- velt forseti hafi oftar en einu sinni hvatt til alþjóðaráðsteínu til lausnar hinum alþjóðlegu Walter Citrine, forseti alþjóða- vandamálum, sem á döfinni sambandsins og einn af leiðtog- eru, um ensku verkalýðsfélaganna. ráðsins og aðrir brezkir herfor- ingjar eru nú á ferð í Frakk- landi. I dag skoðuðu þeir Maginot- línuna og aðallega hinar ramm- byggilegu viggirðingar við Metz. Kanaða reiðubúið ver]a sig i éfriði LONDON í morgun. FÚ. í kanadiska þinginu gaf for- sætisráðherrann, MacKenzie King, í gær yfirlýsingu varð- andi afstöðu Kanada, ef til ó- friðar skyldi koma. Hann kvað enga ástæðu vera til þess að gera ráð fyrir því, að Kanada myndi halda sér ut- an við málin, ef ráðist yrði á brezka heimsveldið. Kvað hann kanadisku stjórnina hafa fult traust til karla og kvenna landsins um, að þau myndu reiðubúin til að verja landið og standa á móti hverju því ríki, sem ógnaði frelsi landsins og sjálfstæði eða stefndi að því að leggja undir sig heiminn. Forsætisráðherrann lét svo um mælt. að útboð hermanna til þjónustu handan við At- lantshafið væri hvorki nauð- synleg né gagnleg ráðstöfun, og myndi þetta ekki verða gert, meðan frjálslyndi flokkurinn færi með völd. Hann sagði, að afstaða Kanada myndi ekki verða bundin neinum sérstök- um lagaákvæðum, heldur myndi hún ákveðast af skoðun- um og afstöðu þjóðarinnar sjálfrar. Kanada ber, sagði hann, sjálfs sín vegna og vegna Bandaríkjanna, að vera eins sterkt og framast er unt, svo að landið megi vera fært um að verjast, ef til árása skyldi koma. Alpýðnílokknrlnn hefir svarai Framsóknarflokknnm. Flokkurinn setur ákveðin skilyrðl fyrir því að ganga tii samstarfs. A LÞÝÐUFLOKKURINN tilkynti seint í gærkveldi svar sitt til Framsóknarflokksins, út af málaleit- un hans um aS Alþýðuflokkurinn taki þátt f þriggja flokka stjórn og samstarfi um ýms mikiivæg og aðkall- andi vandamál. Var svar Alþýðuflokksins á þá leið, að ekki hafi fengisi meirihluti innan stjórnar Alþýðuflokksins um að ganga til slíks samstarfs á óbreyttum þeim grundvelli og þeim skil- yrðum, sem komið hafa fram í bréfum þeirn og viðræðum, sem fram hafa farið milli fiokkanna um þessi mál. Hinsvegar var það jafnframt tilkynt Framsóknar- flokknum, að Alþýðuflokkurinn gæti gengið til slíks samstarfs, ef fullnægt yrði ákveðmmi skilyrðum, sem Alþýðuflokkurinn mundi setja, og væri flokkurúm reiðubúinn til að ræða um þau skilyrði við Framsókn- arflokkinn ef þess yrði óskað. Verðnr lebrnn endnrkos- inn forselt Frakklanis? Franska Sldungadeildin skorar á hann aO gefa kost á sér á nf. LONDON í morgun. FÚ. XJ1 RANSKA öldungadeild- in samþykti í gærkveldi áskorun á Lebrun forseta að gefa sig fram til forstakjörs að nýju, en 7 ára kjörtíma- bil forsetans er nú því nær útrunnið, og eiga báðar deildir franska þingsins að koma saman til forsetakjörs í Versailles þ. 5. apríl. Herriot — sem lýst hefir yf- ir því, að hann muni ekki gefa kost á sér til forsetakjörs — átti í gærkveldi tal við Lebrun forseta Frakklands ásamt for- seta öldungadeildar franska þingsins. Talið er, að upp sé komin hreyfing innan allra stjórnmálaflokka um það að reyna að fá Lebrun til að gefa kost á sér til endurkosningar. Franska fulltrúadeildin sam- þykti í gær ályktun, þar sem látin var í ljós samúð með Ték- kóslóvakíu. Þetta hefir vakið talsverða gremju í Þýzkalandi, og er stjómin í Berlín sögð hafa í hyggju að senda frönsku stjórninni mótmælaskjal út af þessu. UtanrikisráðberraJapana boðar sendlherra Breta, Banðarikjanna og Frakka ð sinn fnnd. LONDON í gærkv. F.Ú. Arita, utanríkismálaráðherra Japana, hefir boðið sendiherrum Breta, Bandaríkjamanna og Frakka í Tokio á fund sinn á morgun, til viðræðu um áríðandi mál. Það er ekki látið uppi, hvert umræðuefnið verður. Lebrun Frakkaforseti. Lnfí-Hansa telnr sig engflfl órétti beitt ð íslandi. KHÖFN í gærkveldi. FÚ. WVLTHER, forstjóri þý/Jca flugfélagsins Lufthausa, hefir í viðtali við „Berlingske Tidende" látið í ljós, að þa8 hafi orðið Lufthansa talsverð vonbrigði. að íslenzka stjómin neitaði félaginu um lendingar- staðarétt, þar sem það hafði gjarnan viljað koma upp póst- flugferðum milli Reykjavíkur og Trawemiinde. Hann bætir við, aS Þýzka land hafi þó enga ástæðu tll að kvarta, þar sem þessí sama regla sé látin ganga jafnt yflr öll ríki. f Siglufirði er um þessar mundir dálitill þorskafli á grunnmiðum. Hrogn kelsaveiði er góð, og allgóð skarkolaveiði innfjarða.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.