Alþýðublaðið - 26.04.1939, Side 3

Alþýðublaðið - 26.04.1939, Side 3
MIÐVIKUDAGINN 26. apríl 1939 ALÞÝDUBLAÐIÐ Svar frá Án. tíl Jóns Bjarnasonar í Hafnarfírði. ------------ ikh'ÞV&UBLAm® RITSTJÖRI: F. R. VAIjDEMARSSON. í fjarveru hans: JÓNAS GUÐMUNDSSON. AFGREIÐSLA: ALÞÝÐUHÚSINU (Inngangur frá Hverfisgötu). SÍMAR: 4900: Afgreiösla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4902: Ritstjóri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 1196: Jónas Guðmunds. heima. 4905: Alþýðuprentsmiðjan. 4Ö06: Afgreiðsla. ALÞÝÐUPRENTSMIÐJAN ( O-----------------------9 ■p UNDUM alþingis verður nú frestað fyrst um sinn, og er gert ráð fyrir að alþingi komi saman eigi síðar en 1. nóvember í haust. Eins og málum hefir nú skipast í íslenzkum stjórnmáium, er það ekki nema sjálfsögð ráðstöfun að fresta íundum alþingis nú. Hin nýja stjórn, sem nú er tekin við völdum, þarf að fá tíma til að unclirbúa. þau mál, sem hún hyggst að koma fram á aiþingi, og til þess að móta þá stefnu, sem hún hyggst að fylgja í fram- tíðinni, fastar og ákveðnar en enr.þ*a hefir verið gert. Þingið helir að þessu sinni ekki verið aíkastamikið. Engin stórr mái hafa verið fyrir það lögð, er fengið hafa afgreiðslu, nema.lög- in um gengisbreytinguna, og 'var sú eining raunverulega utn af- greiðslu þess, að það tók stuítan tíma. Hins vegar hefir þingið aít frá byrjun borið svip þeirra samningaíiirauna, sem staðið haia yfir og óvissan um hvernig þeim 'þyki mun hafa noitk- þingmenn flytíu ýms þau frum- vörp, er þeir annars myndu hafa gert. Eftir að stjórnin var mynd- uð, breyítist svipur alþingis í nýtt og betra horf, ef svo mætti segja. Þeir fundir þess, sem siðan hafa verið haldnir, eru með öðr- um blæ en fundir þess voru meðan Sjálfstæðisflokkuiinn var í andstöðu við ríkisstjórnina., Þá voru fundirnir fámennir og það, kom fyrir, að af hálfu þess: ;f jokft-s , mættu varla aðrir en þfeir þing- rnenn, sem flytja áttu andstöðu- ræðurnar við frumvörp og til- lögur stjórnarflokkanna. Það los, sem var á þingfundunum, héfir horfið, og þingmenn sækja nú fundina svo að kalla allir. Er sú breyting til batnaðar, og svo mun nú verða framvegis, þegar þing- ið kemur saman aftur. Þó gert sé ráð fyrir því, að þingfundum megi fresta til 1. nóvember, eru allar líkur til, að þingið verði kvatt saman miklu fyr. Veldur því fyrst og fremst það, að af hinni nýju stjórn verð- ur aö krefjast svo rösklegra vinnubragða, að húri haíi aðalmál öll tilbúin eigi síðar en í ágúst- mánuði, og ef hún hyggst að korna fram umbótalöggjöf á þeim sviðum, sem hún hefir talið méginverkeíni sín liggja á, þolir það ekki langan drátt, að sú löggjöf verði sett. Að vísu má ineð svo sterkri stjórn sem nú er tekin við völd- um, gera margar ákvarðanir með ■ bráoabirgðalöggjöf, og er sjálf- sagt að stjórnin noti sér þá leið í þeim málúm, sem fuit sam- komulag næst um milli flokk- anna. * Þegar alþingi nú fer í suihar- frí — sem enginn þó véit hve langt verður, sérstaklega ef ó- friður skellur á — rnunu margir JÓN BJARNASON hefir enn einu sinni fengið inni í Þjóð- viljanum fyrir eina af sínum merkilegu ritsmíðum. Birtist hún 18. þ. m. undir nafninu: Nokkúr orð til hins „trúa þjóns“. Er rit- smíð þessi sérstaklega helguð mér, vegna greinarkorns, sem ég ritaði í Álþbl. 13. þ. m. Og þótt það kunni að leiða til þess, að J. B. verði enn aftur að setja nafn sitt við álíka grein og fyrri greinar sínar, þá æíla ég samt að svara honum nokkrum orð- um. En um leið vil ég segja það, að þetta verður í síðasta sinn, sem ég hreyfi penna vegná þessarar deilu okkar, því að það geta þó verið takmörk fyrir því, hve langt maður vill hrekja and- stæðingasína út í ósómann. I. YRST nokkur orð um Hafn- arf jarðardeiluna: Hafnarfjarðardeilan var ekki urn kaup og kjör, ekki.um kaup- taxta né viðurkenningu verka- iýðsfélags, ekki um réttindi né fríðindi verkalýðnum til handa. Deilan var, eins og ég gat um í fyrri grein minni, pólitískt upp- þot nokkurra óheillavænlegra ó- róaseggja gegn Afþýðuflokknum og Bæjarútgerðinni. Þossir þokka piltar gátu ekki unt verkamönn- um fyrirtækisins að vinna í friði. Þess vegna stofnuðu þeir til vand ræðanna. Verkamannafélag Hafn- arfjarðar, sem samið hafði við Bæjarúígerðina, var á allan hátt löglegur aðili, og allir félagar þess voru á einu máli um það, að vinna við fyrirtækið væri sjáif sögð. Og það var einungis þroska þessara verkamanna að þakka, að ekki kom til handalögmáls og meiðsla. Það vita allir Hafnfirðingar, að ef Bæjarútgerðin hefði ætlað sér að 'iáta vinna, meðan á deilunni stóð, þá var það alls ekki á valdi þeirra. jábræðra Jóns að hindra það. Helgi Sigurðsson stóð að vísu einatt uppi á „krana“ og hélt öðfu hvoru eina af sínum alkunnu ræðum, og nokkrar 1- haldssálir hímdu hokinmannlega í kririg og hrópuðu heyr. En þetta var aðeins skrípaleikur. Hefðu Alþýðuflokksverkamenn- irnir, með því að hefja vinnu, viljað béra ábyrgð á því, að þess- ir „krana“-kappar færu sér að voða, þá er ekkert vísara en það, að kempurnar hefðu harla skjót- það. mæla, að þö störf þess í löggjafarmálunum séu minni að vöxtum en margra fyrri þinga, hafi þáð þó verið eitt hið merk- asta þing, er setið hefir hér á landi. Er þar með átt við þá einstæðu tilraun, sem það hefir gert tii aukinnar samvinnu þeirra flokka, sem harðast hafa deilt á umliðnum ámm, og með því fyrst og fremst reynt að sameina þjóð- ina til sameiginlegra átaka um hin aðsteðjandi vandamál. Þetta alþingi hóf þá samvinnu, og það verður að miklu leyti þess hlut- verk að halda henni áfram og efla hana, þegar það kemur sam- an að nýju. Svo virðist, sem nokkrir þing- manna þeirra, er lýst hafa sig fylgjandi stjórnarsamvinnunni, séu ekki enn búnir að átta sig á því,' að „nýir siðir koma með nýjum herrum“, og halda enn áfrarn hinum fornu væringum. Væ;i óskandi, að sumarið, sól- skiffið og þingfríið hefði þau á- hrif á þá, að sá „vanki" yrði (horfinn í haust. lega lotið lágt. En verkamenn í V. H. vissu, að þeirra var að hafa vit fyrir þessum vandræða- mönnum, og þess vegna létu þeir þá þenja lungun á „krananum" Eftir eigin vild. Og forráðamenn Bæjarútgerðarinnar vildu heldur bíða og sjá hverju fram undi, jafnvel þó fyrirtækið tapaði á því, heldur en stofna þeim hand- bendum Héðins í hættu. Og finst mér satt að segja, að J. B. ætti freijiur að þylja þeim þakkar- gjörð fyrir það, en bera þá öll- um illum sökum. En sennilega er það of mikil sanngirni að ætlast til slíks af honum. „Hafnarfjarðardeilan var .... . . um það, að Skjaldborgarfor- ustan klauf v. m. f. Hlíf ... segir J .B. Honum er sannarlega ekki klígjugjarnt, þótt hann damli ögn á ósannindum. Verkalýðssamtökin í Hafnar- eru um 30 ára gömul. í þessi 30 ár hafa verkamenn, sem voru í Alþýðufl.,- haft á hendi for- ’ustu í þessum samtökum, og jafn an verið sá kjarni í félagsskapn- um, sem mest og bezt barðist fyrir heill og hag alþýðunnar. Oft var þessi barátta hörð og ströng. Merkið var hafið þegar skilningur verkafólksins sjálfs var mjög takmarkaður. En með þraut seigju sinni og elju tókst for- ustusveitinni að vekja fólk til skilnings á nauðsyn samtakanna. Hverjum þrándi í götu var velt úr vegi. Atvinnurekendur, sem lengi vel ekki vildu viðurkenna félag fólksins, urðu brátt að láta undan síga fyrir samtökunum. Og þegar horfið var að því að allir verkamenn yrðu að vera í HÉf. þá tókst svo giftusamlega stjórn félagsins, að litlir árekstr- ar urðu, enda þótt sú ráðabreytni kæmí illa við marga. Félagið varð skjólogskjöldur allraverka- manna bæjarins, og fórustan var þannig að lítið bar á óánægju, þótt menn með ólíkustu skoðanir væru félagar. Þannig varð Hlíf undir forustu Alþýðufl.verkamannanna traust og öruggt félag, sem allirhlutu að taka tillit til. Það varð fyrst á síðustu árum, þegar kommúnistar og klofnings- menn Héðins tóku að reka er- indi sín í Hlíf, að félaginu fór að hnigna að miklum mun. Hin- ir reyndu og traustu félagar létu þetta ráðalag afskiftalííið í fyrstu Mörgum þótti samt, að útlit væri fyrir, að félagið hlyti varanlegt tjón af íhlutun þessara verka- lýðsmálavitringa. Sú varð og raunin á. Þegar þeir klofningsmennirnir komust tií valda í féiaginu í vet- ur með aðstoð íhaldsins, og fóru að reka erindi íhaldsatvinnurek- endanna á þann hátt að vísa burt úr félaginu ýmsum þeim Alþýðuflokksmögnnum, sem uro 30 ára bil höfðu barizt fyrir rétt- . indum fólksins, var ástandið orð- ið svo óþolandi, að allir verka- menn í Alþýöufl. sáu, að við svo búið mátti ekki standa. — Þá stofnuðu þeir V. H. Sannleikurinn er því sá, að já- bræður Jóns flæmdu beinlínis burt úr félaginu um 200 verka- menn, sem staðið höfðu þar i fylkingarbrjósti og ávalt reynst hinir nýtustu félagar. Gegnirþað furðu, að J. B. skuli leyfa sér að hafa orðið klofning á vörum um aðra, svo mjög sem þeir félagar hans eru sekir um glappa skot og gæfuleysi í sambandi v'íö það orð. Sýnir það óskamm- feilni hans og algert skeytingar- leysi um rétt og rangt. Það dylst engum Hafnfirðingi, sem hugsar með heilbrigðri skyn- semi um verkalýðsmál, að ef skeið þeirra sálufélaga J. B. er ekki senn á enda runnið, þá mun sú blika, sem af þeirra völdum er komin á loft upp í verkalýðs- málefnum bæjarins, verða að því þykkni, sem seint mun rofna. Það er því engin furða, þó að J. B. sé hrifinn af hetjuverkum sinum og sinna félaga!! II. Ó að þessi nýja ritsmíð J. B. sé sízt þokkalegri en páskahugvekja hans, þá er það samt svo, að ekki treystist hann til að vera eins taumlaus í að- dróttunum sínum um atvinnukúg- un á hendur forráðamönnum Bæj arútgerðarinnar. — I páskahug- vekju sinni kallaði hann þá „níð- inga“, sem skriðið hefðu saman til þess að „svelta“ verkamenn í hel“. — Nú birtir hann nöfn nokkurra manna, sem „mest bar á, að ekki væru telmir í vinnu hjá Bæjarútgerðinni og h. f. Rán“ — Undanhaldið er augljóst. En svo óhönduglega tekst til fyrir honum með þessa menn, sem hann nefnir, að sumir þeirra eru einatt í vinnu hjá Bæjarút- gerðinni og bæjarfélaginu, ef nokkuð er hreyft við verki. Sýn- ir það gjörla, hversu honum hef- ir verið afar óhægt um vik, þeg- ar hann átti að finna orðum sín- um einhvern stað. — Er enginn furða, þótt kappinn sé kominn í rökþrot, svo mjög sem hans málflutningur var fyrir neðan all- ar hellur. — En um það vildi ég segja eins og stendur á einum stað: „Enginn bað þig orð til hneigja . . .“' Kempan Jón virðist taka það mjög nærri sér, að ég sagði í fyrri grein minni, að mér væri vel við stjúpdóttur hans, sem fengið hefir vinnu í Alþýðubrauð gerðinni. Ég hafði ekki hugmynd um, að þetta Væri honum því- líkt tilfinningarmál. — Þetta var líka alveg óþarft af mér. — Og fyrst það hæfir hann svo mjög í hjartastað, þá bið ég hann af- sökunar, því að mér var alls ekki kunnugt um tilfinningar hans á þessu sviði. — En þetta er líka það eina, sem ég bið hann af- sökunar á. Vitanlega á J. B. ómögplegt með að ganga fram hjá þeim dæmum, sem ég tók í fyrri grein minni um það, hvernig ásakanir hans um atvinnukúgun væru al- gerlega gripnar úr lausu lofti. Hann viðurkennir meira að segja, að Alþýðuflokksmenn ráði ekki í atvinnu eftir pólitík. í páskahug- vekjunni var Skjaldborgin ekki sek um minna en að „svelta and- stæðinga sína í hel“H Hann lær- ir, Jón. Þá vill J. B. halda því fram, að ég hafi kallað hann óhlutvandan náungá. Því fer svo fjarri. Ég ræddi í grein minni urn skyldur starfsmanna við fyrirtæki alment, og mintist í því sam- bandi á það, að Héðinn Valdi- marsson myndi una því illa, ef einhver ó’nlutvandur náungi fremdi njóshir við fyrirtæki hans, B. P. En hitt datt mér ekki í hug, að kalla J. B. óhlutvandan náunga, þótt hann væri svo ó- gæfusamur að taka þátt í tilefn- islausu uppþoti gegn fyrirtæki, sem hann hafði unnið hjá í fimm ár. En ef hann finnur sig knúðan til þess að vera í ætt við þann óhlutvanda, þá er það mér að meinalausu. J. B. birtir vottorð um það frá verkstjóra Bæjarútgerðarinnar, að hann hafi reynst dugandi verkamaður þau 5 ár, sem hann vann þar. Hann má sannarlega vera mér þakklátur, ef hann hefir fengið tilefni til þessa vottorðs I fyrri grein minni. Það var meira en ég hefði getað. Og ég get vel unt honum þess, að birta á prenti þetta' vottorð, þar sem verkstjórinn segist ekkert hafa „haft að setja út á vinnu hans.“ III. ÉR ER ekki ljúft að taka það aftur, sem ég sagði í fyrri grein miiíhi, að þeir Héðins- sinnar í Hafnarfirði þektu aldrei nein ráð. Þó verð ég að gera það, því að J. B. hefir í hinni nýju ritsmíð sinni sýnt það mjög vel og ljóslega, að þeir kunna að vísu vissa tegund ráða. Skal ég nú skýra þetta nánar. Hinn 25. marz birtist í Þjóð- viljanum frásögn frá fundi í AI- þýðuflokksfélagi Hafnarfjarðar, sem haldinn var sunnudaginn áður. Frásögnin er frámunalega tuddalegt príl, aðeins kjánalegur samsetningur um ræðumenn fundarins, útúrsnúningur úr ræð- um þeirra, harla ómerkilegt plagg. — Og eru fingraför for- manns þeirra Héðinssinna svo glögg á greininni, að ekki verður um villst. Nú hefir J. B. opinberað, í hvaða tilgangi þessi ritsmíð var samin. Hún var skrifuð í þeirn tiigangi að rægja og ofsækja rit- ara Alþýðuflokksfélagsins. „Hann var sterklega grunaður um að hafa skrifað grein Þjóðviljans,” segir J. B. Hefir nokkur maður nokkru sinni vitað klaufalegri á- sökun?! Ég kann Jóni þakkir fyrir þessa yfirlýsingu. Hún er svo tegundarhreint dæmi um vinnu- brögð .og starfsaðferðir þeirra fé- laga. Fyrst svíkja þeir einhvern óhlutvandan náunga inn á fund félagsins, láta hann lepja í sig það sem fram fer, laga það eftir eigin geðslega geðþótta, senda blaði sínu þessa þokkalegu fram- leiðslu, og bera það síðan út um alt, að ritari Alþýðuflokks- félagsins hafi nú verið þeim svo hjálplegur að skrifa þetta. Það þarf meira en meðal óhlutvendni og illgirni til þess að geta fengið sig til slíks. Þetta eru ráðin, sem þeir kunna, jábræður Jóns. Rógur og níð um andstæðingana, illgirni og óhlutvendni er þeirra evan- geUum, svo sem J. B. hefir nú réttilega opinberað. Hann ætti framvegis að muna, Jón, það sem máltækið segir: „Sá er fugl- inn verstur, sem .. IV. Á FER nú J. B. að ræða um sannleikann. Flestir vilja nú róa. Hann segir, að skáldin hafi alt frá. dögum Ara fróða til Þor- steins Erlingssonar brýnt það fyrir þjóðinni, að víkja ekki áf vegi sannleikans. Þetta er rétt hjá honum, þó að ég hafi nú aldrei lesið neitt af „skáldskap“ Ara, og viti sömuleiðis um skáld eftir daga Þorsteins, sem halda því sama fram. En hitt er jafn rétt, að mörgum mönnum hefir gengið illa að tileinka sér þessi heilræði skáldanna, og gefur grein Jóns tilefni til að ætla, að sumum gangi það erfiðlega enn. J. B. ræðir mikið um syni ál- þýðunnar, og þykist sjáanlegti hafa eitthvert úrslitadómsvald um þau efni. Hann hefði nú átt að spara sér það. Mín skoðun hefir jafnan verið sú, að hver og einn, sem leggja vill málefnum verkalýðsins lið, þurfi að sýna það I verki, aó. hann sé dugandi maður. Því bet- ur mun málefnum alþýðunnar skila áfram, því betur sem þeir, er teljast liðsmenn alþýðusamtak- anna, reynast í störfum sínum, hvar sem þeir eru settir og hver sem störf þeirra eru. Og á slíkum tímum sem þessum, er það bein- línis skylda allra, sem alþýðunrií unna, að þéir leggi það eitt til málanna, sem nýtilegt er, en ali ekki á óráðum, eða hafi um hönd þá starfsemi, sem með öllu er 6- alandi og óferjandi. Bjargráð þeirra Héðinssinna í Hafnarfirðí eru ekki það fyrirferðarmikil, að þeir hafi nokkurt vald til þess að dæma þá menn, sem reyna að finna leiðir til hjálpar verkalýðn- um á þessum vandræðatímum. J. B. ræðir um það, að þeir, sem um verkalýðsmál fjalla, þurfi að þekkja kjör alþýðuppnar, lifa við „fátækt og erfiðléíka“. Ég vil nú segja þaö, að ég þoli alveg samanburð við J. B; í þess- um efnunf; óg ætti hann áð vita það vel. * En hvað myndi Héðinn ValdÞ marsson segja um speki þessa þjóns síns. Hann verður að gera svo vel að leggja niður starf sitt við fyrirtæki sitt, B. P., og taka að lifa við kjör alþýðunnar, „fá- tækt og erfiðleika”. „Eða þá • í öðru lagi að slá af baráttu sinni um bætt kjör fjöldans, fórna hug-; sjónum sínum fyrir þægilegt líf.“ (Sbr. gæin J. B.) — Skal ég ékki amast við, þótt J. B. kveði upp þennan dóm um foringja sinn. V- "O k al lar mig „trúan þj ón “ .^ Ég kann því ekki illa! Ég hefi aldrei gert kröfu til ann- ars en aÖ vera þjónn þeirra sam- taka, sem færðu fjöldanmn betra líf, meiri heill og hamingju. Og ég óska þess beinlínis, a"ð. ég reyndist sem trúastur þjónn þessara samtaka. Hér að framan hefir verið sýnt fram á, hversu þeir klofnings- menn Héðins hafa reynst óþariir þjónar alþýðusamtakanna i Hafnarfirði. Þeir hafa splundraö samtökunum og blásið í glÓBðlu ósamlyndis og upplausnar. Þar hefir J. B. skipaK’ sér i sveit. Hafnarf. 23/4. ‘39. Án. REYKJAVÍK Má láta i póst ó> frimerkt Ég undirritaður óska að gerast kaiipmdi ALÞÝÐDBLAÐSINS NEB SUNNDDABSBLAÐI Nafn Heimili Staða .... ÚtfylliS miðann, klippið hann út úr blaðinu og látiS í póst.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.