Alþýðublaðið - 26.04.1939, Síða 4
MIÐVIKUDAGINN 26. apríl 1939
6AMLA BfO
Saklansa
skrlfstofnstAlkan.
Afar fjörug og bráðskemti-
leg amerísk gamanmynd,
„EASY LIVING“, um unga
stúlku, sem alt í einu er
gefið: 50,000 dollara skinn-
képa, yndislegur unnustu og
miður gott mannorð.
Aðalhlutverkin leika hinir
fjðrugu og vinsælu Ieikarar:
Jean Anthur og
Bay Mlliand.
Aukamynd:
Pnramount talmyndafréttir.
LEKFÉLAG EEYKJAYÍKUS.
„TENGDA-
PABBI,,
sænskur gamanleikuir í 4 þáttum
eftir Gustaf Geijerstam.
rnnfoiBi á Borgio
klnkkai 8.
Aðgöngumiðar seldir frá kl. 4
til 7 í dag og eftir kl. 1 á
morgun.
*!?s æ&Wi
Súðin
austur um til Siglufjarðar laug-
ardag 29. þ. m. kl. 9 s. d.
Flutningi sé skilað fyrir hádegi
á föstudag.
Pantaðir farseðlar óskast einn-
ig sóttir ekki síðar en á föstu-
dag.
Vinnumiðlunarskrifstofan í
Alþýðuhúsinu hefir úrval af
vistum, bæði í bænum og utan
bæjar, ráðskonustöður í sveit
og vor- og sumarvinnu. Einnig
staði fyrír stúlkur í fiskvinnu
úti á landi. Opið frá 2—5 e. h.
daglega, sími 1327.
íbúð óskast, 2—3 herbergi og
eldhús. Uppl. Njálsgötu 28, kj.
1 stofa og eldhús til leigu í
Hafnarfirði. Upplýsingar í síma
9137.
Kveiki og geri við allskonar
eldhúsáhöld og oliuvélar. Á sama
stað til sölu notuð eldhúsáhöld.
Viðgerðavinnustofan, Hverfisgötu
62.
BÚÐUM LOKAÐ í BERLÍN.
(Frh. af 1. síðu.)
hálfan annan klukkutíma á
föstudaginn kemur og að svo
myndi einnig verða gert um
gjörvalt Þýzkaland, til þess að
allir ættu kost á að hlusta á
ræðu Hitlers í Ríkisþinginu.
Frá Metz kemur fregn um
það, að allir námumenn í Saar,
sem eru orðnir yfir 65 ára gaml-
ir og höfðu verið leystir frá
störfum, hafi nú verið kvaddir
til starfa á ný til þess að vinna
að víggirðingunum á vestur-
landamærum Þýzkalands.
Vinnudagurinn við víggirð-
ingamar er 15 klukkustundir.
Höfnin:
Kolaskipið Caprino kom í morg
un til Kol & Salt. Laxfoss kom
í morgun frá Breiðafirði.
KARAKÚL-DILKURINN.
(Frh. af 1. síðu.)
þeim. Hitt mun mörgum þykja
kynlegra, að blaðið skuli upp-
nefna sína eigin flokksmenn, og
mun það aldrei hafa þekst hér
á landi fyr, að blöð veldu þeim
mönnum, sem að þeim standa,
hin háðulegustu uppnefni. Kall-
ar Vísir þann hluta sjálfstæðis-
manna, sem andvígur var hon-
um í gengismálinu, „Karakúl-
dilk“ og er hugsjúkur yfir því,
að Alþýðublaðið muni hafa til-
hneigingu til nánara samstarfs
við þá menn, sem í þeim hlutan-
um eru, en við Vísi og hans lið,
sem Alþýðublaðinu er því mið-
ur ekki kunnugf um hvaða
„dilks“-nafn hefir hlotið.
Annars er svo að sjá og skilja
á Vísi, að hann sé staðráðinn 1
því að reyna að sundra sem
fyrst þeirri samvinnu, sem til
hefir verið stofnað, og virðist
nú ekki nema herzlumuninn
vanta til þess að Vísir sé aftur
kominn þétt upp að hlið land-
ráðalýðs kommúnista. Blaðið
hefir þegar tekið upp sams
konar afstöðu og kommúnistar
gegn því að efla ríkisvaldið og
velur þeim mönnum hin háðu-
legustu orð, sem telja það ekki
vansalaust að þjóðin skuli verða
að þola þá smán, að erindrekar
erlends kúgunarvalds skuli geta
stefnt í voða friði og frelsi al-
mennings án þess nokkuð sé
hægt að hafast að.
Vísir er nú orðinn eins og
Þjóðviljinn blað ofbeldisins og
öfganna. Hann einblínir á í-
myndaða hagsmuni kaup-
mannastéttarinnar einnar sam-
an. en virðist hvorki. sjá né
skilja, að til þess að sú stétt geti
lifað og starfað, þurfa einnig
aðrar stéttir að eiga sinn til-
verurétt, sitt frelsi og sína af-
komumöguleika.
Vísi væri réttast að endur-
skoða sem fyrst afstöðu sína til
þeirra samkomulagstilrauna,
sem tekist hefir að koma á, því
þó Alþýðublaðið hafi ekki löng-
un til að óska Vísi „gleðilegs
sumars“ oftar en einu sinni á
sama árinu, er það of ömurleg
tilhugsun ef Vísir á eftir að
hafna á sama bekknum og
landráðalýður kommúnista, en
til þess benda allar líkur nú, að
þangað muni blaðið lenda þrátt
fyrir alla ,,prúðmenskuna“ og
,,hógværðina“, sem því hefir nú
borist í svo „stórum“ stíl.
SKRÍPALEIKUR KOMMÚN-
ISTA. (Frh. af 1. síðu.)
borgarastéttarinnar og hættu-
legasti andstæðingur alþýðunn-
ar. (Br. Bj. formaður .,inn á
við“: „Sem hann líka er.“ St. J.
St.: „Já, ég veit það að þessi
þingmaður er enn á gömlu lín-
unni frá Moskva, þrátt fyrir
það þó að hann hafi nú innbyrt
Héðin Valdimarsson.“) Mér
finst ekki taka því fyrir komm-
únista, að hamast út í Alþýðu-
flokkinn, þó að hann hafi skip-
að mann í sömu stjórn og Sjálf-
stæðisflokkurinn á menn í —
þeir hafa sjálfir í mörgum
verkalýðsfélögum gert banda-
lag við Sjálfstæðisflokkinn
gegn Alþýðuflokknum og ekki
orðið flökurt af. Þá hafa þeir
og hafið samstarf við flokkinn
í bæjarmálefnum.
Meðan á ræðu St. J. St. stóð,
úthverfðist Héðinn. Og er hann
tók til máls, helti hann sér yfir
Alþýðuflokkinn. Var því ekki
svarað, mörgum fyrirspurnum
hans til ríkisstjórnarinnar var
heldur ekki svarað. E. Olg. tók
aftur til máls og óð elginn lengi,
en síðan sagði Þorsteinn Briem
nokkur orð og þar með lauk
umræðunum,
Var síðan gengið til atkvæða
! Hvað segir ||
fröken klukka
|! Þeoar klukkannl verö ji
ur flýtt.
ITVJTJÖG MARGIR hafa Ú
L"-i. spurt um það, jj
hvernig yrði farið með
ij „Frk. Klukku“ ef klukk- j;
unni yrði flýtt. Klukkunni !;
j j verður flýtt á miðnætti I;
j! næstkomandi sunnudags- ;;
jj nótt. Verður hún þá færð ;|
!; fram um eina stund. jj
I; Það er von að menn
spyrji um Frk. Klukku 1 jj
!; þessu sambandi, en maður- jj
;; inn, sem ræður yfir henni j;
;; á sjálfvirku stöðinni og j;
;j verndar hana, skýrði Al- I;
jj þýðublaðinu svo frá í !;
jj morgun, að Frk. Klukku !;
j! yrði líka flýtt — og það ;j
j; væri enginn vandi. ;j
Leikfélag Reykjavlkiir:
Frurasýniag á Tengda
pabba aaaað kvðld.
SIÐASTA viðfangsefni L. R. á
þessu leikári verður sænskur
gamanleikur eftir Gustaf Geijer-
stam (f. 1858, d. 1909) en hann
var eitt af höfuðskáldum Svía í
lok síðustu aldar.
„Tengdapabbi“ mun hafa ver-
ið eitt af vinsælustu leikritum
hans enda ekki undarlegt því að
' hin góðláta græskulausa sænska
kýmni kemur þar fram í ríkum
mæli.
Frumsýning verður á morgun
og hefir verið vandað til sýn-
ingarinnar eftir föngum, meðal
annars eru búningar samkvæmt
þeirri tízku sem var um alda-
mótin, en leikurinn gerist á þeim
tima, þó aö hann gæti alveg
eins vel gerst í dag.
Leikendur eru þessir: Emilía
Borg, Regína Þórðardóttir, Þóra
Borg, Alla Möller, Hulda Larsen,
Anna Einarsdóttir, Kolbrúrí
Bjarnadóttir, Alfred Andrésson,
Brynjólfur Jóhannesson, Valur
Gíslason, Gestur Pálsson, Indriði
Waage, sem einnig er leikstjóri.
Flupfregnir um
Grœnland.
Frá fréttaritara Alþýðublaðsins
K.höfn í morgun.
RÁ NEW YORK hefir
borizt flugufregn um það,
að til stæði að Bandaríkin í
Norður-Ameríku keyptu Græn-
land af Danmörku.
Dönsk stjórnarvöld lýsa því
yfir, að þau viti ekki til, að
nokkuð slíkt hafi komið til
mála.
og vantraustið felt með 141 at-
kv. gegn 4. Þrír þingmenn voru
fjarverandi, Thor Thors, Gísli
Guðm., Jóh. Möller. Órólega
deildin í Sjálfstæðisflokknum
gerði svohljóðandi grein fyrir
atkvæði sínu:
„Með tilvísun til yfirlýsingar
þeirrar, sem 8 þingmenn úr
Sjálfstæðisflokknum gáfu við
stjórnarmyndunina, sé ég ekki
ástæðu til þess að lýsa van-
trausti á ríkisstjórninni um
sinn, — og segi því nei.“
f DAO.
Næturlæknir er í nótt Axel
Blöndal, Eiríksgötu 31,. sími 3954.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
OTVARPIÐ:
19.10 Veðurfregnir.
19,20 Þingfréttir.
19,50 Fréttir.
20.15 Erindi: Um Sturlungaöld,
VIII. .(Árni Pálsson próf.).
20,45 Orgelleikur i dómkirkjunni
(Eggert Gilfer).
21.10 HljómplötUr:
a) Islenzk sönglög.
b) 21,35 Þjóðlög frá ýmsum
löndum.
22,00 Fréttaágrip.
22.15 Dagskrárlok.
Félag ungra jafnaðarmanna
heldur fyrri aðalfund sinn í
kvöld kl. 8V2 í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu. Á dagskrá fundar-
ins lögboðin aðalfundarstörf, er-
indi Friðfinnur Ólafsson, Árroði
og starfstilhöguninni 1 .maí.
Skemtifundur Ármanns.
verður á föstudaginn kl. 9 í
Oddfellow. Hefst með kaffisam-
drykkju. Verða þar sýndar
skuggamyndir þar spila og
syngja félagarnir Ólafur Beinteins
son og Sveinbjörn Þorsteinsson.
þar verða sagðar þjóðsögúr með
teiknimyndum og einnig sagðar
draugarsögur og margt fleira til
skemtunar. Farfugladeild félíigs-
ins sér um skemtiatriði.
Kvenfélag Alþýðuflokksins
heldur skemtifund annað kvöld
jíl. 8V2 í Alþýðuhúsinu við Hverf-
isgötu. Fyrst verða rædd ýms
áríðandi félagsmál, siðan sezt að
kaffidrykkju og verður skemti-
skráin fjölbreytt. Sýnd verður
kvikmynd og listdanz, auk þess
upplestur. Þetta verður síðasti
fundur félagsins á þessu vori og
er þess fastlega vænst að konur
fjölmenni.
Háskólafyrirlestur.
Franski sendikennarinn J.
Haupt lýkur fyrirlestraflokki sín-
um um franskar skáldsögur á
jl9. öld í kvöld kl. 8 með því að
lesa upp úr sögum eftir Alp-
honse Daudet.
Amerisk skyndifrægð.
heitir myndin, sem Nýja Bíó
sýnir um þessar mundir. Er hún
frá United Artists. Aðalhlutverk-
in leika Carole Lombard og Fred-
ric March.
Eimskip:
Gullfoss er á Bíldudal, Goða-
foss er í Hamborg, Brúarfoss er
i Kaupmannahöfn, Dettifoss er
á leið til Grimsby, Selfoss er á
leið til Rotterdam.
Unga fsland,
marzheftið er nýkomið út. For-
síðumyndin er af Birger Ruud,
er hann svífur af stökkpallinum
í Hveradölum. Þá er smásaga
Bræðurnir Mowgli, eftir Rudyard
Kipling, þýdd af Jakob Hafstein,
Vinir vorsins, framhaldssaga eft-
Ir Stefán Jónsson 0. m. fl.
Norska stórþingið
mun bráðlega taka til umræðu
tillögu þá, sem fram hefir kom-
ið um fljótandi síldarverksmiðju
við ísland. Er tillagan á þá leið,
að ríkið ábyrgist hálfa milljón
króna i þessu skyni og leggi
fren alt at 100 þúsund krónu.
á ári næstu 5 árin, ef halli verð-
ur á rekstrinum. F.Ú.
Portúgalsmenn
hafa ákveðið að auka fiskiflota
slnn 0g gera út veiðileiðangur
til Grænlands i vor með einu
móðurskípi qg nokkrum veiðiskip
um. F.Ú.
3 fermlDBortðskur
seldar fyrir aðeins kr.
8.0010.00 og 12.00
allar með buddn og
speglS.
2 drengjaveski úr
egta skinni seld fyrir
aðeins 4.26 og S.00
filsvarandi bndd*
ur frá l.OO.
Aðeins petta verð
til flmtndagskvðlds.
HljóðfærahAsið.
NYJA Eið
Amerísk
skyndifrægð.
(Nothing Secred)
Amerísk skemtimynd frá
UNITED ARTISTS, par sem
óspart er dregið dár að því
hvernig máttur auglýsing-
anna getur á svipstundu
gert menn að nokkurskonar
þjóðhetjum í Ameriku.
Aðalhlutverkin leika af
miklu fjöri:
Carole Lombard og
Fridric March.
Myndin er öll tekin í
legum litum.
eðli-
Aukamynd:
MIck)ey í sumarfríi.
Mickey Mouse-teiknimynd.
Jarðarför
Guðmundar Bjarnasonar
klæðskerameistara fer fram frá dómkirkjunni fimtudaginn 27.
þessa mánaðar klukkan 10 árdegis.
F. h. aðstandenda.
Sigm. Halldórsson.
THkfUtag frð starfseni Sljrsanrnafé-
lagsias, ir annast sljrsavarnir ð landi.
Þeir Reykvíkingar og Hafnfirðingar, sem pantað hafa
brunabjörgunarbönd hjá oss, fá þau afgreidd næstu daga.
Nýjum pöntunum veitt móttaka á skrifstofu Slysa-
varnafélagsins, sími 4897.
Aukið öryggi á heimilum yðar og pantið strax bruna-
kaðla með hemluútbúnaði og belti. Kosta aðeins 18 krón-
ur uppsettir.
Sendir út um land gegn póstkröfu. í Hafnarfirði tek-
ur Erlendur Halldórsson á móti pöntunum.
SLYSAVAKNAFÉLAGIÐ.
A.V.R
* Rommdropar.
Vanilludropar.
Citrondropar.
Möndludropar.
Cardemommudropar.
Smásöluverð er tilgreint á hverju glasi.
Öli glös með áskrúfaðri hettu.
Áfenglsverzlun rikisfns
BRÉF.
(Frh. af 2. síðu.)
ur, að það væri það versta, sem
hann hefði komizt í, að svara
óþekkum götustrákum. Oft
hef ég orðið var við, að það er
satt. Bezta ráðið er að anza þeim
ekki. Að lokum þetta: Um
verkalýðsfélagið máttu skrifa
svo mikið sem þú vilt, ég hræð-
ist ekki handskrift þína, enda
kemur það ekki mál við mig.
Ég er, sem betur fer, þar í
engri stjórn, það sem þú skrifar
um það satt og ósatt, verður að
teljast ádeila á formann þess,
sem þú heldur að sé þinn
flokksbróðir í pólitík, og mun ég
hafa ráð gamla mannsins, að
anza þér ekki meira.
Að endingu vil ég leiðrétta
einu villuna, sem er í fyrri
grein minni, enda þótt þú tak-
ir það sérstaklega fram, að það
sé rétt, en þar sem bréf mitt var
skráð s.l. febrúar, hefir mér
orðið á að segja ósatt og er það
blöðum og útvarpi mikið að
kenna. Við nánari upplýsingar
hefir það komið í ljós, að annað
barnið, sem var í tölu þessara
ellefu, var strax látið strika sig
út af stofnendaskránni, svo
gemsinn er þá eftir allt saman
ekki nema einn af tíu.
í apríl 1939.
Grindavík, 1 apríl 1939.
Árni Helgason.
ÚtbroiðiÖ Alþýðublaðið!