Alþýðublaðið - 31.05.1939, Síða 2
MIÐVIKUDAG 31. MAÍ 1939 ALÞÝÐUBLAÐ8Ð
drottmnfflll. veggir hallarinnar voru úr ís. Þar voru yfir hundraS salir
” og sá stærsti náði yfir margra súlna svæði. Þeir voru lýstir
af norðurljósum, — en þeir voru tómir og jökulkaldir.
í miðjum stóra salnum var frosið vatn, en ísinn var brotinn í ótal mola, en þeir voru allir
jafnstórir. Og á miðju vatninu sat Snædrottningin. —
Óli litli var blár af kulda, en hann fann ekki.til kuldans, því að Snædrottningin hafði kyst
úr honum kuldahrollinn og hjarta hans var nærri því orðið að ísmola. Hann ýtti á undan
sér nokkrum ísmolum og reyndi að búa sér til ýmsar myndir úr molunum.
Morræim æskulýður að
Laugarvatni i sumar.
Á skíðum um
hátíðina.
AÐ er orðinn fastur liður
í starfsemi Ferðafélagsins
að efna til skemtiferðar til Snæ-
fellsness um hvítasunnuna. Að
þessu sinni tóku 75 manns þátt
í förinni þangað, sem var sú sjö-
unda í röðinni.
Veðurspáin s.l. laugardag var
alt annað en lokkandi til sjó-
ferðar og jökulgöngu, og hefir
veðurspáin eflaust átt sinn þátt
í því, að ekki tóku fleiri þátt í
Snæfellsnesför Ferðafélagsins.
Þrátt fyrir rok, rigningu og
veðurspá var þó lagt af stað,
því aldrei er vonlaust um að úr
rætist þó illu sé spáð.
Til Stapa var komið í slag-
veðursrigningu og roki. Óð
ferðafólkið aurinn og bleytuna
til samkomuhúss staðarins.
Komu menn sér þar fyrir á
gólfinu og yfirleitt þar sem eitt-
hvert gólfrými var, því alt var
betra en að tjalda á rennvota
jörðina og eiga að sofa þar.
Á hvítasunnudag var gengið á
Snæfellsjökul. Tóku þátt í
þeirri göngu rúmlega 30 manns
og gengu allir, að tveim und-
anteknum, jökulinn á skíðum.
Segir fararstjórinn, Kristján
Skagfjörð, að færið hafi aldrei
verið jafnslæmt og að þessu
sinni, en hann hefir alt af tekið
þátt í þessum hvítasunnujökul-
ferðum Ferðafélagsins. Hafði á
laugardagskvöldið rignt á jök-
ulinn og frosið á eftir. Reyndist
mjög erfitt að stjórna skíðunum
á svellinu, en þó gekk alt slysa-
laust.
Á annan í hvtíasunnu var
gengið vestur að Lóndröngum
í ágætasta gönguveðri, glaða
sólskini og golu.
Um kvöldið var svo Snæfells.
nesið kvatt og siglt til Reykja-
víkur.
Til bæjarins var komið um
miðnætti og varð mörgum
Reykvíkingnum starsýnt á
þessa útiteknu ferðalanga, þar
sem þeir þrömmuðu frá skips-
fjöl með skíðin sín á öxlinni.
Hvað gera Reykvík-
iisgar fjrrir skátana?
—o—
Allir Reykvíkingar þekkja
skátana og bera til þeirra hið
fyllsta traust, og um það verður
ekki deilt, að skátastarfið hefir
hin blessunarríkustu uppeldis-
áhrif á börnin og unglingana.
Ef vanda ber að höndum, eru \
allir tryggir undir vernd skát-
anna. Tapist einhver eða eitt-
hvað, er skátanna leitað, hvort
sem um er að ræða smávægilega
hluti, eða ef menn fara villir
um heiðar og háfjöll. Þetta veit
hvert mannsbarn í Reykjavík,
og margir hafa notið aðstoðar
skátanna og umhyggju þeirra
er veikindi hafa að steðjað eða
vanda að höndum borið.
Félög og góðgerðastofnanir
og kirkjusöfnuðir Reykjavíkur
hafa ávalt beitt skátunum fyrir
sig, þegar mikið hefir þótt við
li'ggja.
En hverjir muna nú skáta-
hreyfinguna og afrek hennar?
Skátana vantar húsnæði og
þeim er það höfuðnauðsyn. Hús-
næðisvandræðin eru farin að
standa skátastarfi bæjarins fyr-
ir þrifum.
Nú eru góð ráð dýr. Skát-
inn venst sjálfsafneitun og
fórnum. Reykjavíkurskátarnir
áttu góðan og stóran skála ná-
lægt Lögbergi, sem þeir hafa
gist í og dvalið í að sumrinu.
Skálinn er hið myndarlegasta
hús. Nú hafa þeir fórnað skála
þessum í happdrætti íyrir hús-
byggingarsjóð sinn. í nokkra
mánuði hafa skátarnir gengið
um og boðið. happdrættismiða
sína, en þeim hefir orðið lítið
ágengt. Ennþá hafa ekki selst
happdrættismiðar fyrir þeirri
upphæð, sem húsið er metið á.
Reykvíkingar, þér, sem á einn
eða annan hátt hafið notið
hjálparstarfs skátanna og þér
hinir, sem trúið á störf þeirra
og nauðsyn þessa ágæta félags-
skapar, miðasalan heldur áfram
í dág og fram á síðari hluta
dags á morgun (1. júní), en
dregið verður um kvöldið.
Reykvísku skátarnir hrópa á
hjálp yðar og ennþá er tæki-
færi til að hlýða kalli þeirra.
Laugarnesskóla, 30. maí ’39.
Jón Sigurðsson.
/
Tímarit iðnaðarmanna.
Annað hefti 12. árgangs er ný-
komið út. Efni: Ullariðnaður á
Islandi, eftír Halldóru Bjarna jótt-
ur, Atvinnubætur fyrir iðnaðar-
menn, eftir Sigv. J. S., Iðnað-
urinn á Norðurlöndum, eftir Art-
hur Nordlie o. m. fl.
Guðmundur Gíslason læknir
er kominn til Málmeyjar >og hef
í hyggju að dveljast þar um
skeið og leggja stund á hús-
dýrasjúkdóma á húsdýralækn-
ingastofnun prófessors Hilding
Magnussons, en það er mjög
þekt stofnun á þessu sviði F.U.
ÚtbreiðiS Alþýðublaðið!
"MJ ORRÆNA æskulýðsmótið
verður haldið að Laugar
vatni 27. júní til 4. júlí.
Mót þetta er haldið að tilhlut-
un hinnar svokölluðu Viggby-
holmsnefndar í Svíþjóð. Sams
konar mót hafa áður verið hald-
in í öllum hinum Norðurlönd-
unum og í Eistlandi. Tilgangur-
inn með mótum þessum er að
æskufólk Norðurlandanna kynn
ist og fái af eigin sjón og reynd
að kynnast atvinnulífi, félags-
málum og menningu Norður-
landaþjóðanna allra. Á mótinu
verða allmargir fyrirlestrar
fluttir, umræðufUndir og
skemtisamkoma, auk þess verða
farnar ferðir að Gullfossi,
Geysi, til Þingvalla og fleiri
staða. Fyrirlestra munu flytja
Hermann Jónasson forsætisráð-
herra, Sigurður Nordal prófess-
or, Stefán Jóh. Stefánsson ráð-
herra, Jónas Jónsson alþingis-
maður, Thor Thors alþingis-
maour, dr. Einar Ól. Sveinsson,
Árni Eylands ráðunautur, og
Ólafur Björnsson hagfræðing-
ur. Auk þess munu nokkrir er-
lendir fræðimenn og stjórn-
málamenn flytja þar fyrirlestra
og hefja umræður um ýms
merk mál. Um 30 ungra manna
frá Danmörku, Finnlandi, Nor-
egi og Svíþjóð hafa þegar sótt
um þátttöku í mótinu. Eru það
aðallega stúdentar, ungir kenn-
arar og lýðskólafólk, karlar og
konur. Þeir íslendingar, sem
óska að taka þátt í mótinu,
sendi umsóknir sínar fyrir 10.
júní til ritara móttökunefndar-
innar, Guðl. Rosinkranz yfir-
kennpra, Ásvallagötu 18, og gef.
ur hann nánari upplýsingar um
mótið.
Bladindismála-
fuodir.
Stúkan Frón boðar til fnida
í Keflavík og á Strðnd á
Rangárvðilum.
ISUMAR boðar stúkan Frón
nr. 227 hér í bænum tii
tveggja funda um bindindis-
málin. Verða þeir haldnir í
Keflavík sunnud. 11. júní og á
Strönd á Rangárvöllum sunnud.
2. júlí. Á fundum þessum fara
fram umræður um áfengismál-
in, og munu verða gerðar álykt-
anir um þau. Enn fremur verða
flutt erindi: 1) Um skaðsemi á-
fengis fyrir manninn, frá lækn-
isfræðilegu sjónarmiði séð. 2)
Um Regluna og bindindismálin
yfirleitt.
Allir menn eru boðnir og vel-
komnir til þessara funda, en sér
staklega eru Suðurnesjamenn
boðnir til fundarins í Keflavík,
og Rangvellingar til fundarins
á Strönd.
Fundirnir munu hefjast með
guðsþjónustu, og verður mess-
að í Keflavíkurkirkju og í
Oddastaðakirkju.
í Keflavík annast St. Leiðar-
stjarnan nr. 240 móttökurnar,
og á Strönd og í Odda st. Gró-
andi nr. 234.
í sambandi við hvorn fund
efnir st. Frón til kvöldskemtun-
ar, með fjölbreyttri skemtiskrá.
Á undanförnum árum hefir
st. Frón haldið nokkra slíka
fundi. Eru fundir þessir tilraun
til að safna saman þeim kröft-
um, sem hlyntir eru bindindis-
hreyfingunni, til sameiginlegr-
ar sóknar gegn áfengisbölinu,
og á st. Frón þakkir skyldar
fyrir það framtak. Er þess að
vænta, að fjölmennt verði á
fundum þessum, og árangur af
þeim geti orðið sem mestur, til
framdráttar bindindismálunum
í landinu.
Útbreiðið Alþýðublaðið!
RIDER HAGGARD:
KYNJALANDIÐ
Spennandi frá upphafi til enda, 528 bls. í stóru broti.
KOSTAR AÐEINS KR. 3,00.
Rider Haggard er heimsfrægur fyrir Afríkusögur sínar.
Margir kannast við Náma Salómons og Hvíiramannaland,
sem báðar hafa komið út á íslenzku. Kynjalandið er ein af
beztu sögum Rider Haggards.
Fæst í afgreiðslu Alþýðublaðsins, Hverfisgötu 8, Rvík.
MAÐURINN SEM HVARF
47.
hefðihefði því verið auðvelt að sjá hvort hún passaði í yðar
skammbyssu eða ekki, — þér getið því afsannað að skotið
hafi verið úr yðar byssu, svo framarlega að unt sé að finna
hana og leggja hana fyrir réttinn til athugunar.“
Skelfileg hræðsla greip Ilku allt í einu. Hún greip um kverk-
ar sér eins og hún væri að kafna.
„Hvað segið þér! — Gæti ég sannað sakleysi mitt, ef ég að-
eins hefði ekki gert þá heimsku að henda skammbyssunni,“
stundi hún. — „Ó, ó, — hvaða hræðilegur misgáningur hefir
þetta verið!“
Markham horfði á hana hvast og rannskandi. — Hún er
ágætis leikkona, hugsaði hann. Hann gat ekki grunað, að þetta
var ef til vill í fyrsta skifti á æfinni, sem Ilka kom til dyr-
anna eins og hún var ltlædd — uppgerðarlaust.
Hann stóð á fætur og sagði hörkulega:
„Mér þykir leiðinlegt að þurfa að segj anokkur alvöruorð
við yður, frú mín. En það er óumflýjanlegt. Það er sannan-
legt að þér elskuðuð ekki eiginmann yðar og voruð og eruð
ástfangnar í öðrum. Maður yðar vissi um þetta. — Fyrir
nokkrum mánuðum síðan'kom hann öllum sínum eignum í
peninga, svo hvarf hann burt úr borginni og skömmu síðar
hurfuð þér einnig á burt. Þótt þér neitið því get ég sagt yður
og sannað, að þér bjugguð á veitingakrá einni í námunda við
Painted Post, og biðuð þess að hann kæmi þangað til að sækja
bifreið sína, sem hann hafði fengið geymda á vagnastöðinni
þar. Þér voruð á hælum hns kvöldið sem hann kom og sótti
bifreiðina og ókuð á eftir honum u ppveginn í áttina til Al-
pinabrúarinnar. Það eru allar líkur til að álíti að hann hafi
haft öll auðæfi sín meðferðis þetta kvöld. Og í gær fékk ég
vitneskju um, eins og ég hefi áður sgt, að slysið varð honum
ekki að bana, heldur skammbyssukúla. Ályktunin, sem maður
hlýtur að draga af þessum forsendum, liggur í ugum uppi.
Þér höfðuð ástæður til þess að myrða mann yðar og höfðuð
ávinning af því. Og þér höfðuð óvenjulega gott tækifæri til
þess. Auk þess vitum við um fjölda mörg smáatriði. sem
benda í sömu átt. Og svo má ekki gleyma því, að þér hafið
viðurkent að hafa átt sams konar vopn og það, sem Blake
var myrtur með. Ef þér hafið ekki skilið mig til fulls —“
Ilka hristi höfuðið. Hún sat sem magnþrota og mállaus.
„Ég verð því að álíta það óumflýjanlega skyldu mína að
láta taka yður fasta — ákærða fyrir morð.“
Konan virtist vera orðin að steingervingi, lömuð af skelf-
ingu. — Markham gaf lögregluþjóninum, sem stóð fyrir aftan
hana og verið hafði vottur að yfirheyrslunni, bendingu.
„Gerið svo vel að setja frú Blake í varðhald,11 skipaði hann.
„En segið fangavörðunum að hún verði að mæta fullri kurt-
eisi og þeir verði að ábyrgjast að henni sé sýnd öll nærgætni.“
T^TÆSTA dag fluttu öll blöð borgarinnar stórar og feitar
fyrirsagnir á fyrstu síðu, er skýrðu frá því að Ilka hefði
verið handtekin.
Jim Blake, sem var önnum kafinn norður í Toronto við að
byggja upp hina nýju tilveru sína, las hvert orð. — Honum
varð afar bilt við er hann sá hvörnig málin höfðu snúist.
Þetta ætlaði þá að verða afleiðingin af allri hinni miklu fyr-
irhöfn hans. Þetta var hræðilegt áfall, sem hann hafði aldrei
búist við. Fortíð hans hfði risið upp eins og afturganga og
ásótti hann nú að því er virtist í því augnamiði að gereyði-
leggja þaulhugsuð og vandlega framkvæmd áíorm hans.
Frá því að hann kom heim til Toronto eftir jarðarförina,
hafði hann yfirstjórn hlutafélagsins í öllum greinum og með
snilli sinni og viðskiftaþekkingu aflaði hann jafnóðum nýrra
og ágætra viðskiftavina og kunningja. Deginum áður en hon-
um barst fregnin um handtöku og fangelsun Ilku hafði hann
þegar að fullu keypt alla hluti tveggja félga sinna í firmanu
og var nú einkaeigandi þess. Með því hafði hann trygt sér
að framvegis gat hann ráðstafað fé sínu og notað fyrirtæki
sitt á hvern hátt, sem honum sýndist, án þess að eiga von á
að þurfa að svara nokkrum spurningum. Og innan skamms
gæti hann því byrjað á því að framkvæma hin miklu fram-
tíðaráform sín.
En þrátt fyrir alt. sem á undan var gengið, fann hann til
meðaumkunar með Ilku, og honum var það ljóst, að hann
myndi fara aftur til New York og gefa sig fram, ef það yrði
nauðsynlegt til að bjarga lífi heennar. En hann gat ekki trú-
að því að hún yrði dæmd. Honum virtist alt málið bygt á
svo lausum grundvelli. Og auk þess var hún óvenjulega fög-
ur kona. Hvaða kviðdómur myndi geta staðist töfrafegurð
hennar? — Nei, innan lítils tíma myndi hún verða látin laus
aftur.
Hann ásakaði sjálfan sig fyrir að gæta þess ekki, að láta
iwknanömnn í Chieago útvöga sér lík einhvörs, sem dáið