Alþýðublaðið - 05.08.1939, Qupperneq 4
LAUGARDAGINN 5. ÁG. 1939
MGAMLA BIOHR
| Gamall
bragða
refur
Efnismikil og vel leikin
mynd frá Metro Goldwyn
Mayer. Aðalhlutv. leikur
Wallace Beery.
Kominn
taeim.
Halldór Hansen.
FRAM HEFIR UNNIÐ MEIST-
ARAKEPPNINA 11 SINNUM.
(Frh. af 3. síðu.)
svo því, að hafa haft tækifæri
til að sigla og sjá erlend ún'als-
lið keppa, því að það er góður
skóli, og að lokum, og ekki hvað
sízt ábuga og ástundun allra fé-
laganna við æfingar“.
— Hefir Fram þá ekki unnið
fleiri knattspyrnusigra í sumar?
„Jú,“ segir Jón um leið og
hann rennir hýru auga að silfur-
bikar, sem stendur fyrir framan
hann á borðinu. „Þennan bikar
vann félagið á 2. flokks vormót-
inu, og einnig hefir Fram unnið
4. flokks mótið, sem í fyrsta
skipti var háð í sumar, og taka
strákar undir 13 ára aldri þátt
í því.“
Alþýðublaðið óskar Fram til
hamingju með sigrana.
Súðin
var á Norðfirði í gær.
Síensku gestirnir settn
■ét sitt á bæinn i gær.
♦..-.—
Gífurlegur mannfjöldi hlustaði á kórinn
syngja fyrir framan Menntaskólann.
EÐRIÐ var ekki í sínum
sumarskrúða, þegar
hinn sænski K.F.U.M.-karla-
kór, ásamt fleiri farþegum af
Drottningholm, fór austur að
Gullfossi, Geysi og til Þing-
valla, og það, sem verra var,
Geysir gaus ekki.
Um kvöldið hafði karla-
kórinn samsöng í Gamla Bíó
fyrir troðfullu húsi. Þaðan
fór kórinn að Menntaskóla-
tröppunum og söng fyrir
þúsundir Reykvíkinga, og að
lokum hélt Noræna félagið
kórnum samsæti að Hótel
Borg, en klukkan 12 lögðu
gestirnir af stað heimleiðis
með Drottningholm.
Áður en samsöngurinn í
Gamla Bíó hófst, bauð Guð-
mundur Ásbjörnsson fyrir hönd
Reykjavíkurbæjar gesti vel-
komna, Dane fararstjóri þakk-
aði með nokkrum orðum og
Karlakór Reykjavíkur söng
„Hör oss Svea“.
K.F.U.M.-kórinn söng mörg
sænsk lög, en auk þess tvö ís-
lenzk á íslenzku, ,,Ó, guð vors
lands“ og „Brennið þið, vitar“.
Vakti söngur kórsins mikla
hrifningu áheyrenda, og urðu
söngmennirnir að syngja eitt
aukalag, meira gátu þeir ekki
tímaskortsins vegna.
Að samsöngnum í Gamla Bíó
loknum gengu söngmennirnir
fylktu liði að Menntaskólanum
og sungu nokkur lög fyrir þús-
undir áheyrenda. Voru göturnar
þéttskipaðar fólki allt frá
Lækjartorgi að Iðnskólanum,
Amtmannsstígur og Bókhlöðu-
stígur allt að Menntaskólanum
og niður að Lækjargötu, og er
þetta eflaust mesti mannfjöldi,
sem nokkurn tíma hefir verið
kominn þarna saman.
K.F.U.M.-kórinn söng þarna
nokkur lög við fádæma hrifn-
ingu áheyrenda, og ætlaði fagn-
aðarlátunum aldrei að linna,
þegar kórinn ætlaði að hætta.
Söng hann því eitt aukalag til
þess að friða áheyrendurna.
Fóru kórfélagarnir beina leið
frá Menntaskólatröppunum í
samsæti Norræna félagsins að
Hótel Borg. Voru þar saman
komnir um 500 Svíar og íslend-
ingar, þ. á m. Karlakór Reykja-
víkur, til að fagna þeim. Eftir
að te hafði verið drukkið og
brauð borðað bauð Guðlaugur
Rósinkranz gesti velkomna og
talaði um vináttubönd þau, er
tengdu Svía og íslendinga og
hér kæmu fram í heimsókn-
um K.F.U.M.-kórsins nú og í
fyrra í heimsókn K.F.U.M.-leik-
fimimannanna. Á eftir ræðu
Guðlaugs Rósinkranz risu all-
ir úr sætum og sungu — „Du
gamla, du fria“.
Þá bauð séra Bjarni Jónsson,
formaður K.F.U.M. hér í
Reykjavík, alla hina erlendu
gesti velkomna, og að lokum
sagði hann: „Komu ykkar hing-
að þökkum við, því að við vitum,
að hún er merki trúfastrar vin-
áttu okkar í milli.“
Þá mælti rektor Ham-
mér nokkur orð, og sagði
hann m. a.: „Koma okkar
hingað hefir auðgað okkur að
minningum. Við stöndum í mik-
illi þakkarskuld við íslendinga
fyrir móttökurnar. Strax á
bryggjunni í morgun, þegar ís-
lenzki kórinn söng fyrir okkur,
fundum við þá hlýju og þann
vináttuhug, sem alls staðar hef-
ir mætt okkur í dag. Ég þakka
hjartanlega fyrir móttökurnar
og bið guð að blessa ykkur öll.“
Enn fremur héldu ræður
H. Dane, og afhenti hann
séra Bjarna Jónssyni sænskan
fána að gjöf handa K.F.U.M., og
enn fremur gaf hann Guðlaugi
Rósinkranz og séra Friðrik
Friðrikssyni heiðursmerki K.F.
U.M.-kórsins. Þá talaði formað-
ur Bandalags íslenzkra karla-
kóra, Ólafur Pálsson, og að lok-
um þakkaði söngstjórinn Lid-
stam móttökurnar.
Á milli ræðanna sungu Karla-
kór Reykjavíkur og hinn sænski
K.F.U.M.-kór nokkur lög, en
klukkan 12 lauk samsætinu, og
gengu þá allir fylktu liði niður
að bryggju, þar sem bátar frá
Drottningholm biðu eftir
sænsku söngmönnunum, og eft-
ir að skipzt hafði verið á kveðj-
um og húrrahrópum, sigldu Sví-
arnir úr höfn.
Útbroiðið Alþýðublaðið!
Vaskleg bjorgun
úr sjávarMska.
BÁT með tveim mönnum á
hvolfdi á Reykjarfirði í
gær, og var það snarræði og
þreki annars mannsins að
þakka, að ekki hlauzt slys af.
Mennirnir voru vinnumenn
Carls Jensens kaupmanns á
Reykjarfiðri.
Voru þeir staddir við bólfæri
neta, sem þeir voru að vitja um,
— þegar alda reið undir
bátinn og hvolfdi honum. Menn-
irnir heita Bernodus Ólafsson
og Jóhannes Jensen. Er Jóhann.
es ósyndur, en Bernodus syndur.
Gat Bernodus komið félaga
sínum að duflinu og síðan á kjöl
og haldið honum þar, þangað til
hjálp barst.
Færeyskur bát
ur ferst.
IFYRRADAG sökk færeysk-
ur bátur á Vopnagrunni.
Hafði hann fengið góðan afla og
var mjög hlaðinn fram. Kom þá
kvika og gekk yfir bátinn, svo
að hann gekk undir sjó að fram-
an og var alveg sokkinn eftir
fáar mínútur.
Tveir Færeyingar voru í bátn-
um og náði annar í ár, en hinn í
belgi, og gátu þeir haldið sér á
floti og gefið merki íslenzkum
báti frá Bakkafirði, er var nær-
staddur. Bjargaði hann mönn-
unum og fór með þá í togara,
er var þar nálægt. Fengu menn-
irnir þar þurr föt, og síðan fór
báturinn með þá til Bakkafjarð-
ar.
Formaður á íslenzka bátnum
er Þórhallur Jónsson kennari.
(FÚ.)
Magons Nilssen um
fslenzka Algýðuflokk
inn.
KHÖFN í gærkveldi. FÚ.
JRSKA stjórnarblaðið „Ar-
beiderbladet“ birtir viðtal
við Magnus Nilssen stórþingS-
forseta um stjórnmálaástandið
á íslandi.
Nilssen lætur í ljós, að bæði
fagleg og stjórnmálaleg skipu-
lagning íslenzka Alþýðuflokks-
ins sé mjög sterk og að gera
megi ráð fyrir því, að klofning-
ur sá, sem nú á sér stað, verði
bráðlega yfirunninn.
Dýzkt skólaskip kem
ur tii íslands.
1 Þýzka herskipið „Horst-Wess-
el“, sem heitir eftir þeim er orti
nazistasönginn, kemur hingað til
Islands í þessum mánuði og verð
ur hór í 11 daga.
Fyrir nokkru síðan barst utan-
ríkismálaráðuneytinu beiðni um
það frá utanríkismálaráðuneytinu
þýzka, að skólaskipið rnætti heim
sækja Island, og svaraði utanrík-
ísmálaráðuneytið þeirri beiðni ját
andi í gær.
„Horst-Wessel“ mun koma hér
19. þ. m. og dvelja hér til 30.
Enn er ekki vitað, hvort skipið
verður hér í Reykjavík allan tím-
«nn.
Kaupið Alþýðublaðið!
f DA«
Næturlæknir er í nótt
Grímur Magnússon, Hringbraut
202, sími 3974.
Næturvörður er í Laugavegs-
og Ingólfsapóteki.
ÚTVARPIÐ:
19.45 Fréttir. 20,10 Veðurfregnir.
20,20 Hljómplötur: Létt kórlög-
20,30 Upplestur (Þorsteinn Ö.
Stephensen). 20,55 Hljómplötur:
a) Slafnesk lög b) gamlir dans-
ar. 21,35 Danslög. 21,50 Frétta-
ágrip. 24,00 Dagskrárlok.
Á MORGUN:
Helgidagslæknir er Alfred Gísla
son, Brávallagötu 22, sími 3894.
Næturlæknir er Halldór Stef-
ánsson, Ránargötu 12, sími 2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
ÚTVARPIÐ:
11.45 Veðurfregnir. 11,50 Hádeg-
isútvarp. 18,40 Útvarp til útlanda
(24,52 m.). 19,30 Hljómplötur:
Létt löig. 19,50 Fréttir. 20,10 Veð-
urfregnir. 20,20 Hljómplötur: Sylv
íu-dansarnar eftir Delibes. 20,35
Gamanþáttur: Jón úr Kotinu í
heimsókn hjá Guðbjörgu grann-
konu. 20,55 Einsöngur (frú Elísa-
bet Einarsdóttir). 21,10 Einleikur
á píanó: Sónata eftir Hallgrím
Helgason (Gerhard Oppert). 21,35
Kvæði kvöldsins. 21,40 Danslög.
2J.50 Fréttaágrip. 24,00 Dagskrár-
lok.
Á MÁNUDAG:
Helgidagslæknir er Páll Sig-
urðsson, Hávallagötu 15, sími
4959.
Næturlæknir er Jón G. Nik-
ulásson, Hrefnugötu 5, simi 3003.
Næturvörður er í Reykjavíkur-
og Iðunnarapóteki.
ÚTVARPIÐ:
11,00 Veðurfregnir. 12,00 Hádeg-
isútvarp. 16,00 Veðurfr^gnir. 19,30
Hliómplötur: Létt lög. 19,45 Frétt-
ir. 20,10 Veðurfregnir. 20,20 Hljóm
plötur: Göngulög. 20,30 Sumar-
arþættir (Valtýr Stefánsson rit-
stjóri). 20,50 Frídagur verzlunar-
manna: Ávörp, ræður og söngur.
22,05 Fréttaágrlp. Dagskrárlok.
Eimskip:
Gullfoss er í Vestmannaeyjum,
Goðafoss er á leið til ísafjarðar,
Brúarfoss fer frá Leith í dag,
Ðettifoss er í Hamborg, Lagar-
foss er í Kaupmannahöfn, Sel-
foss kemur hingað kl. 9 í /kvöld.
Drottningin
kom til Kaupmannahafnar i
morgun.
Sundhöllin
verður lokuð á mánudaginn
kemur.
80 ára afmæli Hamsuns.
1 öllum blöðum Noregs var
skáldjöfurinn Knud Hamsun hyllt
ur í gær' í tilefni af 80 ára af-
mæ!i hans. Birta blöðin langar
og ítarlegar greinir um bók-
menntastörf hans. Ósköpin öll af
heillaóskaskeytum og bréfurn
hefir borizt að Nörholmen við
Grimstad, en þar er heimili
skáldsins. Tuttugu og þrjú þýzk
skáld hafa sent Hamsun ávarp.
Hitler sendi Hamsun heillaóska-
kkeyti. Gyldendal hélt daginn há-
tíðlegan með því að gefa út vand
að úrval af ritgerðum Hamsuns
frá því hann gerðist rithöfundur
og til yfirstandandi tíma. Ham-
sun er á bílferðalagi ásamt konu
sinni, og voru þau, seinast er til
þeirra fréttist, í Kongsvinger.
ÍÍRP.
I. O. fl. T.
mm ntm bm
Jesette & Co.
Hraðfyndin og svellandi fjör-
ug mynd frá FOX-félaginu.
Aðalhlutverkin leika hinir
vinsælu leikarar:
Simone Simon,
Don Amache og
Robert Young.
ST. VIKINGUR nr. 104. FundUr
mánudagskvöld á venjulegum
stað og tima. Vígsla embætt-
ismanna o. fl.
Aukamynd:
TALMYNDAFRÉTTIR.
Hraðferðlr B. S. A.
Alla daga nema mánudaga.
um Akranes og Borgarnes. — M.s. Laxfoss annast sjó-
leiðina. Afgreiðslan í Reykjavík á Bifreiðastöð ís-
lands, sími 1540.
Bifreiðastilð Akiireyrar.
20 STK.
PAKKINN
KOSTAR
KR.l-.50
ií_
COMMÁNDER ,
Á
VIRCINIA
CICARETTUR
SundtaðUfnni
verður lokað mánudaginn 7. þ. m.
Bann.
Vegna sjúklinga, og annarra ástæðna, er öllu óvið-
andi fólki bönnuð berjatínsla í landi heilsuhælisins
á Vífilsstöðum.
Ráðsmaður heilsuhælisins.
SILDARSÖLTUNIN OG MORG-
UNBLAÐIÐ
Frh Æf 1. siðu.
áður tryggt sér, að stöðvarnar
væru löggiltar.
Telur blaðið, að ástæðan fyr-
ir þessari endurnýjuðu aðvörun
hafi verið sú, að Ásgeir Péturs-
son og Ingvar Guðjónsson hafi
byrjað söltun á 1000 tunnum í
Raufarhöfn, en þar er ekki lög-
gilt síldarsöltunarstöð. Og svo
bætir blaðið við þessari klausu,
sem er í allri sinni heimskulegu
illgirni eins og hún væri klippt
út úr Þjóðviljanum:
„Svo virðist sem síldarút-
vegsnefnd álíti síldarsöltunina
ganga of vel. En hún er þá ein
um þá skoðun.“
Síldarútvegsnefnd fer hér að-
eins að landslögum — og sjálf
hefir hún ekki samið þau lög.
Vill Mgbl. ekki láta menn fara
að landslögum? Annars hefir
það hvað eftir annað komið 1
ljós í skrifum Mgbl. undanfarin
ár, að blaðið telur einstaka út-
gerðarmenn geta þegar þá lyst-
ir, farið eftir eigin geðþótta um
síldarsöltun og aðra meðferð
síldarinnar. Hefir þó borið einna
minnst á slíkri heimsku í þessu
blaði í sumar.
Ifmsóknir nm styrk
úr Dansk- isiandsk
Forbnndsfond.
SAMKVÆMT lögum um
„Dansk-Islansk Forbunds-
íond“ verða I ár veitt 20,000
krónur samkvæmt tllgangi sjóðs-
ins.
Umsóknir um styrki verÖa aÖ
vera skrifatar á dönsku, og veröa
aö fylgja því nákvæmar upplýs-
ingar. Námsmenn veröa að nota
eyðublöð, sem Kaupmannahafnar
háskóli gefur út í þessu skyni.
Umsóknir ber að senda fyrir 1.
september til stjómar „Dansk-Is-
landsk Forbundsfond".