Alþýðublaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 3
FIMMTUDAGUR 17. ÁG. 1939 ALÞYÐUBLAÐIÐ ALÞÝÐUBLAÐIÐ RITSTJÓRI: F. R. VALDEMARSSON. í fjarveru hans: STEFÁN PÉTURSSON. AFGREIÐSLA: ALÞÝÐUHÚSINU (Inngangur frá Hverfisgötu). SÍMAR: 4900: Afgreiðsla, auglýsingar. 4901: Ritstjórn (innl. fréttir). 4902: Ritstjóri. 4903: V. S. Vilhjálms (heima). 4905: Alþýðuprentsmiðjan. 4906: Afgreiðsla. 5021 Stefán Pétursson (heima). Félaflsdénof tól ALÞYÐUPRENTSMIÐJAN -------------------- Að halda sanai og halda sér saraan. AÐ var bent á það hér i blaðinu í fyrradag, að sök- urn hinna ströngu uppsagnará- íkvæða í sambandslagasamningn- um milli Islands og Danmerkur væri höfuðskilyrðið fyrir því, að hægt væri að segja honum upp, það, að íslenzka þjóðin stæði svo að segja sem einn maður saman um það mál, og að enginn metingur eða .úlfúð milli flokk- anna yrði til þess að sundra 'henni í því. I sama streng hafa öll Onnur blöð íekið, að blaði koinmúnista einu undanskildu. Það hefir strax þessa fáu daga, sem liðnir eru síðan blaðaumræðurnar byrjuðu ttm sambandsmálið, reynt að nota það flokki sínum til fram- dráttar á kostnað annarra með því að bera þeim svik í þessu viðkvæmasta sjálfstæðismáli þjóðarinnar á brýn og reyna á allan liátt að tortryggja heilindi Jieirra í því. Slíkar aðdróttanir eru sannar- J*ga ekki þesslegar, að kommún- istum liggi uppsögn sambands- lagasamningsins né farsæl lausn sambandsmálsins yfirleitt mikið á hjarta. Því að þeir vita það al- v>eg eins vel eins og allir aðrir, að það, sem allt veltur á í þvi máíi, er, að varast alla sundr- ungu og sameina kraftp þjóðar- innar til þess að tryggja þann mikla meirihluta, sem nauðsyn- legur er samkvæmt uppsagnará- kvæðum sambandslaganna, svo að hægt sé að segja sambands- iagasamningnum upp. Allir aðalflokkarnir í landinu, Alþýðuflokkurinn, Framsóknar- flokkurinn og Sjálfstæðisflokkui- inn, hafa lýst því hátíðlega yf- ir að þeir muni beita sér fyrir uppsögn sambandslagasamnings- ins undir eins og lög standa til. Það er þetta þýðingarmikla skref, sem næst er fram undan. Og sá flokkur, sem reynir að sá tor- tryggni og óeiningu meðal þjóð- arinnar í sambandsmálinu, nú þegar á þessari stundu, meðöðru máli, sem ekki kemur uppsögn sjálfs sambandslagasáttmálans við, getur ekkert unnið með því annað en það að tefla lausn sambandsmálsins strax á þessu fyrsta stigi í tvísýnu. Það er af slikri sundrungarstarfsemi, sem þjóðinni stendur hætta á þessari stundu, en ekld af neinurn svik- um svipuðum þeim, sem komm- únistar bera nú öðrum flokkum á brýn. Nauðsyn þess að halda sáman í sambandsmálinu verður yfir- leitt aldrei of oft brýnd fyrir íslenzku þjóðinni. Enfyrirkomm- únistum virðist að vísu, eftir þessar fyrstu tilraunir þeirra til þess að sá úlfúð um sambands- málið, vera ennþá nauðsynlegra iað brýna hitt: að halda sér sam- an. snmarleyfi án leyfis démsmálaráðherr Alþýðusambandsstjórnin hefir sent dóminum mótmæli og skorað á ríkisstjórnina að sjá til þess, að réttarfriið verði þegar afturkallað. SÚ ákvörðun Félagsdóms að leggja niður öll störf um tveggja mánaða tíma hefir, sem búast mátti við, vakið töluverða óánægju þeirra, sem væntu góðs af setningu lag- anna um stéttarfélög og vinnudeilur. Með lögum þessum, sem verkalýðsfélögin áttu sjálf verulegan þátt í að móta, var þess vænzt, að á öruggari og friðsamari hátt yrði leyst úr öllum ágreiningsmálum en áður hafði átt sér stað. Það, sem einkum var lögð áherzla á við setningu þessara laga var það, að sem fyrst yrði bundinn endi á deilur þær, sem upp kynnu að koma. Er það beinlínis tekið fram í lögunum, að allir frestir skuli vera sem stytztir og skuli dómurinn jafnframt gæta þess, að mál tefjist ekki að óþörfu. Er augljóst, að með þessum úrskurði um tveggja mánaða sumarfrí hefir dómurinn þver- brotið þessi skýlausu og sjálfsögðu ákvæði. Háll út af kaupl neta- bætlngarmanna frestað yfir sildvelðitfmann! Er Félagsdómur tók sér þetta langa sumarleyfi, lágu fyrir dóminum að minnsta kosti 4 mál sem öll þörfnuðust skjótrar af- greiðslu. Eitt þessara mála snérist um það, hvaða kaup skyldi greiða netabætingarmönnum yfir síld- veiðitímann nú í sumar. Kom mál þetta fyrst fyrir í Félags dómi þann 16. maí s.l. Þrátt fyrir mótmæli málflutnings- manna Alþýðusambandsins, — veitti Félagsdómur fresti í þessu máli hvað eftir annað, sam- kvæmt beiðni Eggerts Claes- sens, sem mætti fyrir hönd vinnuveitenda. Fór svo að lok- um, að Félagsdómur kvað upp úrskurð um, að málinu skyldi frestað til 4. sept. n.k., og er því ekki að vænta endanlegs úr- skurðar fyrr en löngu eftir að allri síldarvinnu er lokið. Gat þessi framkoma Félagsdóms hæglega orðið til þess, að fólk fengist ekki til vinnunnar, og geta allir væntanlega séð, hvaða þýðingu það gat haft fyrir af- komu síldveiðanna. Út af þessu máli samþykkti stjórn Alþýðusambands íslands nú nýlega eftirfarandi ályktun: „Sambandsstjórn ályktar, að mótmæla þeirri samþykkt Fé- lagsdóms, að taka réttarfrí, og krefst þess yfirleitt, að af- greiðslu mála sé hraðað svo mjög, sem föng eru á, og að frestir séu alls ekki veittir um- fram brýnustu nauðsyn. Jafnframt skorar sambands- stjórn á ríkisstjómina, að hlut- ast til um, að ákvörðun dóms- ins um réttarfrí verði afturköll- uð tafarlaust og að dómurinn gæti þess að afgreiða mál án dráttar, eins og til er ætlazt.“ Réttarfriið tekið i al- geru heimildarlejrsi. Þjóðviljinn, sem af skiljan- legum ástæðum er eina blaðið, sem reynt hefir að mæla þessu framferði Félagsdóms bót, hefir nýlega haldið því fram, að dóm- urinn hafi hér hagað sér ná- kvæmlega eins og aðrir dómstól- ar — og sé hann í rauninni ekkert ámælisverðari en aðrir dómstólar landsins. Um þetta er það að segja, að Félagsdómur er einstæður dóm- stóll í íslenzku réttarfari og ekki hliðstæður öðrum dómstól- um í landinu. Starfssvið hans er að skera úr deilum, sem rísa HraðferOir B. S. A. AUa daga nema mánndaga. um Akranes og Borgarnes. — M.s. Laxfoss annast sjó- leiðina. Afgreiðslan í Reykjavík á BtfreiSastöS ís- lands, sími 1540. Bifreiðastðið Akureyrar. Maðurinn kunna milli atvinnurekenda og verkalýðsfélaga, en slíkar deilur geta vitanlega risið upp á hvaða tíma ársins sem er. Tveggja mánaða sumarleyfi dómsins samrýmist því alls ekki tilgangi laganna. Getur þetta þvert á móti gert ástandið í vinnudeilum enn verra en áður var, þar sem ákvæði laganna um bönn við verkföllum halda vitanlega fullu gildi sínu, þrátt fyrir sumarleyfi dómaranna. Um hina venjulegu dómstóla gegnir hins vegar öðru máli. Mál þau, er fyrir þá koma, þurfa sjaldnast svo skjótrar afgreiðslu — að þingleyfi yfir sumartím- ann komi að sök í þeim málum. Eigi að síður er það ekki á valdi dómstólanna sjálfra að ákveða sér sumarleyfi, heldur þurfa þeir til þess leyfi dómsmála- ráðherra. Slíkt leyfi hefir Fé- lagsdómur ekki fengið — og hefir hann því algerlega heim- ildarlaust tekið sér frí þetta, Svo lengi, sem Félagsdómur sjálfur gengur á undan öðrum í því, að traðka á þeim lögum, sem sett voru til tryggingar réttindum verkamanna, og svo lengi, sem hann á annan hátt reynir að sporna við skjótri lausn þeirra mála, er fyrir dóminn koma, munu allir Al- þýðuflokksmenn taka undir þá kröfu, að endurskoða þurfi hið fyrsta skipun dómsins, og að sett verði enn tryggari ákvæði um meðferð þessara mála. Sigurgeir Sigurjónsson. Jeshov, eftirnaðar Jagoda i rd bou, oo ewnig Þakkir Stalins fyrir auðsýnda þjónustu. Koster 2 lcrómur. sem hvarf. Þessi óvenjulega skemmtileg* skáldsaga er skrifuð af 6 þekktustu skáldsagma- höfundum Bandarikjaiiita, eftir húg- mynd Franklin •. Roosev*lts Bamda- rfejaforseta. Fæst í Afgreiðslu Alþýðuhlaisins. P RANSKA fréttastofan * Agence Havas hefir ný- lega sent frá sér þá fregn eft- ir fréttaritara sínum í Mosk- va, að fullyrt sé þar eystra, að fyrrverandi yfirmaður rússnesku leynilögreglunnar, G.P.U., Jeshov, hafi verið tekinn af lífi. Um þetta ganga stöðugar fregnir meðal ýmissa í Moskva, en þó hefir ekki ennþá verið hægt að fá fregnina staðfesta. Fréttaritari hinnar frönsku fréttastofu í Moskva er vanur því að flytja áreiðanlegar fregn- ir, vegna vináttu þeirrar, er rík- ir milli Frakka og Rússa. Og hann sendir sjaldan út fréttir, sem nokkur vafi getur leikið á að séu sannar, enda þótt þær hafi ekki verið staðfestar opin- berlega. Þess vegna mun vera óhætt að treysta því, að frétt þessi sé sönn. Jeshov þessi, semí nú er álitið, að búið sé að taka af lífi, varð árin 1936—37 allt í einu heims- þekktur maður. Það var nefni- lega hann, sem bjó til allar á- kærurnar í hinum illræmdu málaferlum í Moskva gegn gömlu bolsévíkunum Bukharin, Rykov, Radek, Rakovsky, So- kolnikov, fyrirrennara sínum Jagoda og mörgum öðrum. Árið 1936 var Jeshov, þáv. flokks- ritari gerður að yfirmanni hinn- ar leynilegu, rússnesku lög- reglu, sem frá fyrri tímum hefir verið táknuð með bókstöfunum G. P. U. í stöðu þessari reyndist Jeshov geysilega blóð- þyrstur og steig þar feti framar fyrrverandi yfirmanni rúss- nesku leynilögreglunnar, Jago- da. Þó náði grimmd hans senni- lega hámarki sínu, þegar hann lét dæma fyrirrennara sinn í embættinu, Jagoda, fyrir margs konar afbrot og glæpi, þar á meðal fyrir það, að hann hefði drepið Maxim Gorki, frægasta rithöfund Rússa og einhvern frægasta rithöfund alls heims- ins, á *itri. Smám saman bárust út fregn- ir um það, að yfirmenn rauða hersins undir stjórn hermála- ráðherrans Voroshilov hefðu JESHOV. ekki lengur getað þolað blóð- þorsta Jeshovs. Og það er stað- reynd, að Stalin lét víkja Jes- hov úr embætti í fyrra. Ef til vill hefir það líka átt sinn sterka þátt í embættissviptingu hans, að Jeshov var farinn augljóslega að reyna að láta taka jafnmikið tillit til sín og sjálfur einræðis- herrann, Stalin. En eftir Moskvamálaferlin illræmdu fór að gerast hljótt um þennan mann, sem var svo mjög nafn- togaður áður. — Og nú virðist svo sem Stalin hafi vilj- að losa sig við þennan þjón sinn, sem hann notaði til hinna svívirðilegustu verka — og ef til vill keppinaut sinn um völd- in — með hans eigin aðferð. Bela Knn elnnig skot- inn i Hoskva. Þá skýrir pólska blaðið „Illu- strowanny Kurjer Doczienny" frá því, að hinn fyrrverandi ungverski kommúnistaforingi, Bela Kun, sé látinn í fangelsi í Moskva. En álitið er, að hann hafi v®rið fkotinn. BELA KUN. Fyrir 20 árum var Bela Kun einn af þekktustu og mest umræddu mönnum í Evrópu. Það eru einmitt um 20 ár síðan hann beið ósigurinn, eftir að hafa haft völdin í Ungverjalandi í hálft ár. Og það var einkenni- legt, að sömu dagana og fréttin barst út um lát hans, barst út fréttin um hátíðahöldin í Ung- verjalandi í tilefni af því, að þá voru liðin 20 ár frá því að ung- verska sovétstjórnin féll. Bela Kun, sem var fæddur árið 1886, gekk í ungversku verkalýðshreyfinguna tveim ár- um áður en heimsstyrjöldin brauzt út. Árið 1916, þegar ung- verski herinn beið ósigur fyrir Rússum, tóku Rússar hann til fanga og sendu hann til Sibiríu. Eftir bolsévíkabyltinguna 1917 gerðist hann byltingarforingi í Síbiríu. Eftir hrun Austurríkis og Ungverjalands 1918 snéri hann aítur til Ungverjalands og hóf þar ákafa kommúnistiska áróðursstarfsemi, í febrúarmán- uði 1919 lét stjórnin taka hann fastan, en mánuði seinna var hann látinn laus aftur. Svo varð hann utanríkismálaráðherra í ungversku sovétstjórninni. Áðeins hálft ár var Bela Kun við völd. Á þeim tíma var hann ásakaður um að vera hinn rót- tækasti af meðlimum sovét- stjórnarinnar. Þegar rúmenskar herdeildir réðust inn í landið í ágústmánuði 1919 til þess að ltollvarpa sovétstjórninni, bjargaði hann lífinu á þann hátt að flýja til Rússlands um Vín- arborg. í Rússlandi tók Bela Kun öfl- ugan þátt í því að útbreiða heimsbyltinguna. Hann gekk svo langt, að Lenin varð oft að leiðrétta hann. Þegar sovétstjómin tók stefnubreytingu sína undir stjórn Stalins, var ekki nema eðlilegt, að starfsemi Bela Kun tæki enda. Á ytra borðinu héldu þeir Stalin þó vináttu sinni fyrst um sinn. En þegar hin blóðugu málaferli hófust í Moskva, var Bela Kun einn af þeim fyrstu, sem teknir voru fastir. í Rússlandi hefir verið hljótt urn nafn Bela Kun, eins og ann- arra erlendra kommúnista, sem hlotið hafa gröf í þessu landi, sem þeir álitu hæli sitt. Og nú er sagt, að byssukúlur sovét- stjórnarinnar hafi hitt Bela Kun. Hafa menn verið hræddir við að draga hann fyrir opin- beran dómstól? Eða hafa menn ekki álitið, að „játning“ frá honum bæri tilætlaðan árang- ur? Það fær maður sennilega aldrei að vita. Innflutningurinn nam 31. júlí. síðastliðinn kr. 36 643 680, en á sama tíma í fyrra nam hann kr. 30 912 600. Útflutningurinn nam 31. júlí síðastliðinn kr. 25 077 170, en á sama tíma í fyrra nam hann kr. 22 719 710. Listasafn Einars Jónssonar ®r opið dag- lega kl. 1—3.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.