Alþýðublaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 2
FIMMTUDAGUR 17. ÁG. 1939 At*>YÐUBLAÐIÐ — Hvað fannstu nú? spurðu bræðurnir. — -—- Svei, sögðu bræðurnir. — Það er leir, sem Ó, sagði Hans klaufi. — En hvað kóngsdótt- hefir verið kastað upp úr skurðinum. irin verður glöð. fiaos klaníi. — Halló, hérna kem ég, sagði Hans klaufi. — Nei, nú dámar mér ekki. — Já, sagði Hans klaufi. — Og það er bezta tegund af leir, það er ekki hægt að halda á honum. Svo fyllti hann vasa sína. En bræðurnir héldu áfram og sprettu úr spori, svo að þeir urðu langt á undan. Maðurinn. EG gekk yfir Skólavöröuhoitið og sá þar einkennilega sjón. Þá hugsa'ði ég: Einkennileg skepna er maðurinn. Hann reis- ir stjörnuturn og hreykir sér hátt, tekur langan og mikinn sjónauka óg horfir út í geiminn, sér. þar vetrarbrautir, sólkerfi, sólir og stjömur, sem ekki verða taldar, þótt talið sé í billjónum. Hve agnarsmár er hann þó sjálfur til samanburðar við hinar ógur- legu stærðir himintunglnanna og vegalengdir geymsins. í litlu hreiðri, í lítilli hauskúpu þessa litla manns, er heili, sem hann segir sjálfur, að sé engu minna furðuverk, en sólnavefur himn- anna. Með þessum heilarannsakar hann himin og jör'ð, rafeind frum- lunnar engu síður en hina fjar- lægustu fastastjörnu, reiknar út fjarlægðirnar í himingeimnum, þyngd og stærð sólna og stjarna log gang þeirra, setur upp svo háar tölur, að hann svimar sjálf- an. Svo gengur hann upp á Skólavör'ðuholt, hreykir sér upp á stein rétt hjá Leifsstyttunni, þekur neöð í sunnangoluna, eins og hreindýr á óróatímabili vors- ins, tekur neftóbakshorn upp úr vasa sínum, stingur því í hægri nösina, hallar höfðinu aftur á bak svo hornið vísar til himins, hell- ir nösina fuila, og svo hina \7instri líka, andvarpar þægilega efns og hann hafi afrekað eitt- hváð mikilvægt og — hugsar ekkert. Þannig er maðurinn. Getir þú skrifað nákvæma lýsingu af hon- um, þá láttu okkur fá hana. Pétur Sigurösson. Kaupum tuskur og strigapoka. PT Húsgagnavinaustofan Baldursgötu 3». Sáui 4166. UMRÆÐUEFNI Síldin og síldveiðarnar. Blaðamennirnir og fréttim- ar. Hverjir spyrja helzt um síldarfréttir? Steinninn á Lækjartorgi. — Bíll SÍF. Blómaliturinn á Austurvelli. Umbætur nauðsynlegar á umferðinni í Aðalstræti. Bréf frá Siggu um gangstéttirnr við Bankastræti. ATHUGANIR HANNESAR Á HORNINU. SÍÐASTI HÁLFI MÁNUÐUR- INN hefir fært íslendingum mörg vonbrigði. Aflinn bregzt, síldveið- arnar verða litlar, fólkið fær ekk- ert kaup, það kemur heim blá- suautt í sumar, verr statt en þegar það fór. Svona lítur það út í dag, þegar ég skrifa þessi orð, ef til vill gerbreytist þetta — og það vona allir. Þetta getur gerbreytzt á einni einustu viku. Svo mörg skip stunda nú síldveiðar, og svo margar verk- smiðjur eigum við og stórar þrær, að kunnugir telja, að við getum aflað og tekið á móti yfir þrjú hundruð þúsund málum á einni ein- ustu viku. Á HÁLFUM MÁNUÐI með geipiveiði getum við að líkindum, eftir því, sem mér er tjáð, náð öllu aflamagninu, sem var í fyrra, þegar það, sem er komið á land nú, bæt- ist við. Þetta sýnir líka betur en nokkuð annað, hvílíkt happdrætti síldveiðarnar eru. Menn hafa líka undanfarinn hálfan mánuð hér í Reykjavík hagáð sér eins og verið væri að draga í happdrætti, bar sem allir ættu nokkra möguleika. Skrifstofur blaðanna eru á hverj- um morgni umsetnar af fólki, sem spyr um síld — og aftur síld. Það er ekki nein sérstök stétt manna, sem spyr um þetta, neldur allir, verkamenn og heildsalar, sjómenn og læknar, járnsmiðir og prestar, yfirleitt allra stétta menn. VIÐ BLAÐAMENNIRNIR bíð- um líka í eftirvæntingu á hverjum morgni og hverju kvöldi eftir síld- arfréttunum. Hvar hefir síld sézt? Hefir flugvélin séð nokkrar torfur? Hafa nokkrar fréttir borizt af mið- unum? Síðasta spurningin er loka- spurningin hjá okkur, begar frétta- ritarar blaðanna á síldarstöðvun- um hafa sagt: „Engin síld í nótt.“ Okkur finnst það stórfrétt ef síld veiðist, en engin ef enga síld er að fá. Þetta er auðvitað rangt, hvort tveggja er jafnmikil frétt, munur- inn er aðeins sá, að önnur er góð, en hin vond, og mér að minnsta kos.ti finnst góð frétt alltaf betri frétt. ER STEINNINN Á LÆKJAR- TORGI ekki búinn að standa bar DAGSINS. helzt of lengi? Þegar hann var tek- inn af horninu, var honum valinn staður þarna, og finnst mér sannar- lega, að hann hafi fengið að vera barna alltof lengi öllum til leið- inda. ÞORVALDUR GUÐMUNDSSON forstjóri niðursuðuverksmiðju SFÍ er smekkmaður. Nýjasta uppátæki hans er að búa út smekklegasta bílinn í bænum, sem ekur út vör- um. Hann er mjög fallega málaður, og auk þess er hann skreyttur með hinum mörgu myndarlegu vöru- merkjum SÍF. MÉR FINNST guli liturinn helzt of sterkur í blómaríkinu á Aust- urvelli, yfirleitt finnst mér litur- inn of skerandi í augun. Þetta eiga hvorki að vera skammir né gagn- rýni á starfi garðyrkjuráðunautar bæjarins, sem hefir gert svo margt prýðilegt. En væri ekki hægt að hafa litina næsta sumar dálítið mýkri, svo að maður hvílist betur, þegar maður fær sér sæti á bekkj- unum umhverfis styttuna? BREYTINGIN Á UMFERÐA- REGLUNUM um Austurstræti og Hafnarstræti og raunar nokkrar fleiri götur hefir áreiðanlega orðið til stórra bóta. Ég hefi ekki rekizt á nokkurn mann, sem ekki hefir lokið á þetta lofsorði. En það barf að gera meira. Umferðin um Að- alstræti er oftast í hinu mesta öng- bveiti. Það kemur fyrir bráfald- lega, að bílar standa í röðum með- fram gangstéttunum á móts við Silla & Valda, svo að næstum er ógerningur fyrir aðra bíla að kom- ast áfram. Þetta barf að laga hið allra bráðasta. Þá er og barna stöðvunarstaður fyrir strætisvagna, fyrir framan Matstofuna, og ba<ð kemur oft fyrir, að strætisvagnar geta ekki komizt að staðnum fyrir bílum, sem standa kyrrir. Það barf að banna þetta tafarlaust og á- kveða einnig einstefnuakstur um Aðalstræti. WS*®3 SásfcfcSK EINHVER SIGGA skrifar mér og kallar mig „Elsku Hannes“, sem ég er auðvitað mjög hrifinn ai'. Hún biður mig að athuga gang- stéttirnar meðfram Bankastræti og rífast I bví, að þser séu lagaðar og bað strax. Þetta er alvég rétt. Gangstéttirnar, sérstaklega gang- stéttin frá horninu norðanvert við strætið, er alveg ófær til lengdar. Það þarf að helluleggja allar stétt- irnar eða malbika þær. Það þýðir ekki að hafa gamla lagið að bera salla ofan í þarna. Bankastræti er einn fegursti og fjölfarnasti götu- spottinn í Reykjavík, og það er skömm að því að gera hann ekki vel úr garði. Hannes á hornmu. Útbreiðið Alþýðublaðið! Hinar vinsælu hraðferðir Steindórs fil Akureyrar um Akraaes erns Frá Reykjavik: Alla mánudagamiðvikudaga föstudaga og sunnudaga. Frá Akureyri: Alla mánudaga, fimtudaga Jaugardaga og sunnudaga. Afgreiðsla okkar á Aknreyri er á bif- reiðastðð Oddeyrar, H.S. Fagranes aranast sjéleiðina. Nýjar upphitaðar bifreiðar með útvarpi. AMar okkar hraðfeiðir eru um Akranes. Stelndó CfiAMÆS NORDHOFF eg JAMES NORMAN HALL: Uppreisnkn á Bounty. 45. Karl ísfeld ísienekaii. ruð aðrar eyjar, þar sem gott er að vera. Ég ræð ykkur báð- um til þess að hugsa ekki framar til heimferðar. Það eru ákaf- lega lítil líkindi til þess, að við komumst nokkru sinni heim til Englands aftur. Reynið að gleðjast yfir lífinu, eins og það er. Eftir að við skildum við bát Blighs, höfðum við haldið áfram sömu stefnu, í vestur til norðvesturs, þar til liðið var á dag. Því næst breyttum við stefnu og sigldum nú í austur. Er við höfðum siglt í þá átt skamma hríð, var enn breytt um stefnu, og frá því hafði verið siglt í suðaustur. Við fórum nú um slóðir, sem aldrei höfðu verið farnar áður. Það var bersýni- legt, að Christian leitaði að eyjum, sem aldrei höfðu áður ver- ið fundnar, því að lagzt var við akkeri á nóttunni, svo að ekki væri siglt fram hjá eyjum 1 myrkrinu. Þessir dagar og þessar nætur voru mjög kyrrlátar og friðsamar. Við vorum allir fegnir því að losna við Bligh. Norðaustan byr var á, og Bounty leið lengur. Christian hélt uppi ströngum aga, en hann var svo réttlátur, að enginn hafði ástæðu til að kvarta. Hann var fædd- ur foringi og vissi, hvernig átti að stjórna án þess að viðhafa ljótt orðbragð eða berja skipverja sína, sem Bligh áleit að væri nauðsynlegt. Það virtist svo sem allir hefðu orðið fegnir því að losna við Bligh. Norðaustan byr var á og Bounty leið undan vindi. Minnkandi tungl var, og eitt kvöldið rétt eftir sól- setur sást land í vesturátt. Síðla daginn eftir vorum við komnir að rifinu, sem virtist liggja umhverfis eyjuna. En um sundið milli rifs og eyjar var mörgum smábátum róið. Eyjan virtist vera um 8 mílur á lengd, og virtist töluvert hálend, þó ekki jafnhálend og Tahiti. Láglendið virtist ekki nándar nærri jafngróðursælt og á Ta- hiti. Eins og við aðrar eyjar í Kyrrahafinu var mjög aðdjúpt við rifið og við sigldum fram með landi mjög nálægt. Fjölda báta, sem hver haföi tíu til tólf manna áhöfn, var ýtt frá landi og þeir komu brátt alveg að okkur. Eyjarskeggjar líktust mjög Tahitibúum að hörundslit, vexti og í klæðaburði, og höfðu ber- sýnilega aldrei séð evrópiskt skip fyrr. Við reyndum að fá þá til þess að koma til okkar, en það reyndist örðugt. Að lokum réri einn báturinn í veg fyrir okkur og nam þar staðar í um 30 metra fjarlægð. Mennirnir voru sterkbyggðir og vel vaxn- ir. Samkvæmt skipun frá Christian ávarpaði ég þá á máli Ta- hitibúa og spurði þá, hvað eyjan héti. Þeir skildu, hvað ég sagði, og sögðu, að eyjan hé'ti Rarotonga. Þeir virtust verða mjög undrandi á orðum mínum. Einn þeirra svaraði mér og var mjög óðamála, en ég skildi fæst af því, sem hann sagði. Enda þótt við værum mjög vingjarnlegir við þá, fengust þeir ekki til þess að koma nær okkur. Christian vildi gefa þeim nokkra smámuni. Hann vafði þeim í böggul og lét fljóta til þeirra. Þeir tóku böggulinn án þess að opna hann til þess að vita, hvað í honum væri. Þegar útséð var um það, að hægt væri að fá þá til þess að koma um borð, gaf Christian skipun um að setja upp segl — öllum til mikillar óánægju. Ef dæma mátti eftir framkomu mannanna á bátnum, þá hefðu þeir ekki bannað okkur að stíga á land. Mér er það alltaf hulin ráðgáta, hvers vegna Christian valdi ekki þessa ey sem felustað. Rarotonga liggur 700 mílur fyrir sunnan og vestan Tahiti, og hann hafði enga ástæðu til að óttast, að nokkrir aðrir Evrópumenn en við, vissum um til- veru eyjarinnar. Mér til mikillar undrunar gerði hann mér orð eitt kvöldið og bauð mér að matast með sér. Ég hitti hann sitjandi í klefan- um, með eitt af sjóbréfum Cooks yfir Kyrrahafið útbreytt fyrir framan sig. Hann tók kurteislega á móti mér, og þegar hann hafði sent varðmanninn burtu, var hann hinn alúðlegasti. — Ég hefi boðið yður til kveldverðar með mér, sagði hann — ... iiniiii in— iii iii iiíiii i.—tt" anmurn irirrr'~im ir- en þér þurfið ekki að sitja við sama borð og ég, ef yður «r það á móti skapi. Gegn vilja mínum svaraði ég orðum hans vingjarnlega. — Ég var orðinn gramur yfir þeirri óhamingju, sem hann hafði leitt yfir okkur. En frammi fyrir honum hvarf mér öll gremja. Ég stóð hér frammi fyrir Fletcher Christian, vini mínum, en ekki uppreisnarmanninum, sem hafði rekið 19 manns út í opinn dauðann, á þann hátt «ð skilja þá eftir í opnum báti í margra þúsunda mílna fjarlægð frá heimkynnum sínum. Christian þarfnaðist manns, sem hann gæti trúað fyrir hagsmunum sín- um, og ég hafði aðeins dvalið inni hjá honum örstutta stund, þegar hann fór að tala um uppreisnina. — Þegar ég hugsa um Bligh, hóf hann máls, — þá hefi ég engar áhyggjur. Ég varð að þola honum svo margt, að mér er sama, hvað fyrir hann kann að koma. En þegar mér verður hugsað til þeirra, sem með honum fóru------—. Hann kreisti aftur augun, eins og hann vildi reyna að þurrka myndina úr huga sér af hinni brothættu bátsskel með nítján manns innanborðs. Rödd hans var svo harmþrungin, að ég gat ekki annað en haft samúð með honum. Ég vissi, að hann myndi aldrei öðlast sálarfrið. Hann bað mig að láta mér víti hans að varnaði verða og framkvæma aldrei neitt að óhugsuðu máli. Þrátt fyrir samúð mína með honum, hrökk það út úr mér, að uppreisn, sem hefði verið svo nákvæmlega og leyni- lega áformuð, hefði naumast verið gerð að óyfirlögðu ráði. — Hamingjan góða, hrópaði hann. — Álítið þér, að uppreisn- in hafi verið fyrirfram áformuð? Tíu mínútum áður en Bligh var tekinn fastur, datt mér ekki uppreisn í hug, fremur en yður sjálfum. Hvernig getur yður dottið slíkt í hug? — Hvað átti maður að álíta annað? spurði ég. — Þetta skeði, þegar þér voruð á verði. Þegar Churchill vakti mig höfðuð þér algerlega náð skipinu á yðar vald, og vopnaðir menn stóðu við allar klefadyr. Það er óhugsandi, að þetta skyldi geta skeð, án þess að um það hefði verið rætt áður. — En samt lem áður var það nú svo, svaraði Chriatiaa al-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.